Morgunblaðið - 10.10.1990, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1990
9
Láttu reglulegan
sparnað verða að
veruleika og
pantaðu áskriít að
i spariskírteinum
ríkissjóðs
Áskriítar- og þjónustusímar:
91-62 60 40 og 91-69 96 00
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Þjónustumiðstöð rikisverðbrcfa, Hverfisgötu 6, 2. hæð. Síml 91-62 60 40
ORG og Össur á meðan báðir voru í Alþýðubandalaginu.
Gamla kommaklíkan kvödd
Ástandið í Alþýðubandalaginu verður alvarlegra með hverjum
deginum sem líður. Flokkurinn er klofinn í fylkingar vegna átaka
um grundvallaratriði og ekki síður afstöðu til foringjanna. Þetta
hefur haft í för með sér vaxandi flótta úr Alþýðubandalaginu
og síminnkandi fylgi í skoðanakönnunum.
Brotthlaup
Fyrir síðustu helgi
gerðist það, að einn af
áhrifamestu félögum í
Alþýðubandalaginu
síðari ár sagði sig úr
því. Hann er Ossur
Skarphéðinsson, sem um
árabil var sá félaginn,
sem einna mest var i
sviðsljósinu, enda einn af
ritstjórum flokksmál-
gagnsins, Þjóðviljans, og
borgarfulltrúi.
Ossur bætist í hóp
fjölda margra fyrrum
áhrifamanna í flokknum,
sem hafa sagt sig úr hon-
um síðustu árin. En sl.
sumar jókst brotthlaupið
enn, ekki sízt i kjölfar
borgarstjórnarkosning-
anna og ævintýrsins í
kring um Nýjan vett-
vang. Meðal þeirra, sem
sagt hafa skilið við Al-
þýðubandalagið siðustu
vikumar, má nefna
Kristínu Ólafsdóttur,
fyrrum borgarfulltrúa
þess, nú borgarfulltrúa
Nýs vettvangs, Óskar
Guðmundsson, fyrrum
ritstjómarfuUtrúa Þjóð-
vUjans, Margréti Bjöms-
dóttur, fyrrum formann
Alþýðubandalagsfélags
Reykjavíkur (ABR),
Tryggva Þór Aðalsteins-
son, sem hefur verið í
framboði fyrir flokkinn,
og Guðna Jóliannesson
fyirum formann ABR.
Allir þessir framan-
greindu félagar eiga það
sammerkt að hafa um
árabU lofað og prísað
Alþýðubandalgið og hlut-
verk þess í íslenzkri
pólitík. Ekki sízt Óssur
Skarphéðinsson, sem
skauzt upp á stjömuhim-
in vinstrimanna vegna
mergjaðs orðaflaums um
ágæti Alþýðubandalags-
ins og sósiaUsmans. Þeir,
sem létu hrífast (eða
blekkjast) af málflutningi
hans í sjónvarpi og ann-
ars staðar t.d. fyrir borg-
arstjómarkosningamar
1986, hefðu gott af því
að lesa lýsingar hans á
Alþýðubandalaginu við
úrsögn hans nú. í frétt i
Þjóðviljanum sl. laugar-
dag um úrsögn Óssurar
segir m.a.:
Stefnuleysi
Óssur segir ástæðuna
vera tvöfalda. í fyrsta
lagi sé Alþýðubandalagið
hugmyndalega staðnað
og hafi engan kjiu-k tU
þess að endumýja sig og
laga sig að breyttum að-
stæðum í nútímanum.
„Flokkurinn er stefnu-
laus í hinum veigamestu
málum. í sjávarútvegs-
málinn hefur flokkurinn
ekki haft kjark tíl að
samþykkja vel gmndaða
og ítarlega stefnu sem
Birting hefur lagt fram
í sjávarútvegsmálum.
Sömu sögu er að segja
um landbúnaðarmálin.
Þá sýna atburðir síðustu
daga sem tengjast álveri
þetta líka glöggt Þar
vilja menn ekki ræðast
við með rökum, heldur
nota andstæðingar Ólafs
Ragnars málið tíl að Iæsa
saman klónum og þjarma
að honum einvörðungu."
Þá sagði Össur að í
öðm lagi væri ljóst að
flokkurinn verður áfram
óstarfhæfur vegna innri
ófriðar.
Erindisleysi
„Það er (jóst að þau
öfl sem nú em orðin ofan
á i flokknum hugsa
hvorki um velferð flokks-
ins né samfélagsins,"
sagði Össur. Hann bætti
við, að nú sé fullreynt.
Eins og Alþýðubandalag-
ið hafi þróast sé það er-
indislaust í íslenzkum
stjómmálum.
Kommúnistamir
Morgunblaðið ræddi
einnig við Össur um úr-
sögn hans og birtust
ummæli hans sl. sunnu-
dag. Þar hnykkir hann á
þvi, sem liaim sagði við
ÞjóðvUjaim. Hann sagði,
að tök flokksins á álvers-
málinu á undanförnum
dögum væri ein ástæðan
fyrir þvi að hann hefði
kvatt gamla flokksbræð-
ur. Enginn væri hann
sérstakur álverssinni, en
hann vUdi að flokkurinn
tæki á því máli með rök-
um, en sér sýndist
„gamla klíkan í flokkn-
um, kommúnistamir,"
ætli að nota það tU stjóm-
arslita og nota svo stjóm-
arslitin m.a. tíl að skipta
um formann að loknum
kosningum.
Múrarnir
í viðtali Morgunblaðs-
ins við Össur segir ma.:
„Þá varð mér (jóst að það
verður aldrei friður í
flokknum og á meðan
haim er ekki starfhæfur
vegna átaka, verður aldr-
ei hægt að móta þar
stefnu. Þar að auki sýnist
mér að i flokknum séu
þeir að verða ofan á, sem
fylgja þeirri gömlu hug-
myndafræði, sem er búið
að rústa i Austur-Evr-
ópu. A meðan múramir
falla í austri er verið að
byg83a þá í Alþýðu-
bandalaginu."
Þessar lýsingar fyrr-
um ritstjóra flokksmál-
gagnsins á Alþýðubanda-
laginu hefðu einhvem
tímaim verið afgreidd:ir
sem „Moggalygi".
Röng mynd
I DV sl. mánudag var
birt niðurstaða úr könn-
un á fylgi stjómmála-
flokkanna. Samkvæmt
henni minnkaði fylgi Al-
þýðubandalagsins úr
10,1% í síðustu kömiun í
ágúst í 8,2% nú. Rætt var
við formann flokksins,
Ólaf Ragnar Grimsson,
og leitað álits hans á nið-
urstöðunni. DV hefur
þetta eftir honum:
„Niðurstaða könnun-
arinnar lofar góðu fyrir
Alþýðubandalagið. Hún
endurspeglar þó að hluta
þá neikvæðu umræðu
sem hefur verið um ál-
málið. Sú ranga mynd
hefur verið dregin upp
af flokknum, að hami
væri andvígur byggingu
álvers. Alþýðubandalag-
ið styður byggingu ál-
vers, en vill láta þróa
sjunningsgerðina nánar.“
Össur Skarphéðinsson,
eins og reyndar þjóðin
upp til hópa, hefur mis-
skilið hamaganginn i ráð-
hcmtnum Svavari Gests-
syni og Steingrími J. að
undanförnu, ef marka
má orð flokksformanns-
ins.
HLUTAFJARUTBOÐ
Hlutabréf í EIMSI
8. -19. október
11
Nú er hafið almennt útboð hlutabréfa í Eimskip að nafn-
verði rúmar 41 milljón króna. Hlutabréfin eru seld með
áskriftarfyrirkomulagi og geta allir óskað eftir bréfum að
nafnverði 5-25 þús. kr. á genginu 5,60. Þeir sem óska að
kaupa bréf að nafnverði 25 þús. og allt að einni milljón
króna geta gert í þau tilboð á ekki lægra gengi en 5,60.
Utboðsgögn liggja frammi hjá VIB, öðrum verðbréfa-
miðlurum og útibúum Islandsbanka. Askriftar- og tilboðs-
blöðum þarf að skila inn fyrir 19. október nk.
Verið velkomin í VÍB.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
— Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Símsvari 68 16 25.