Morgunblaðið - 10.10.1990, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTOBER 1990
t
F4805 ELX
Ofn
Yfir-undirhiti, blástur og
grill, fitohreinsun, svart
eöa hvítt glerútlit,
tölvuklukka meö tímastilli.
Helluborð
Keramik yfirborö, svartur
eða hvítur rammi, fjórar
hellur, þar af tvær
halogen, sjálfvirkur
hitastillir og hitaljós.
Funahöfða 19
sími 685680
HVAÐ ER
Ip!a!rIaId!oIr1
ÞÝSKAR ÞILPLÖTUR
GÆÐAVARA í STÍL
Fyrirliggjandi
►.►BBBBlMSSBHtCO
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640
Er hægt að draga úr lyfja-
kostnaði landsmanna?
eftir Sigurð Helgason
Á síðum Morgunblaðsins hefur að
undanförnu verið rætt um hag-
ræðingu í rekstri heilbrigðiskerfisins.
Athyglin hefur ekki síst beinst að
sívaxandi lyfjakostnaði landsmanna.
Ymsar aðferðir hafa verið reyndar
til að lækka þennan kostnað, en því
miður hafa þær allar reynst árang-
urslausar. Þá hafa komið fram ýms-
ar nýjar tillögur til úrbóta, misskyn-
samlegar eins og gengur.
Að mínu mati er samþætting fjár-
hagslegrar og faglegrar ábyrgðar
starfsmanna heilbrigðiskerfisins
grundvallarforsenda hagkvæmni
þess. I íslenska heilbrigðiskerfinu er
það regla fremur en undantekning,
að starfsmenn taki ákvarðanir sem
hafa kostnað í för með sér og vísi
kostnaðinum yfir á aðra. Þetta gildir
t.d. um lyfjakostnaðinn. Læknar áv-
ísa lyfjum og sjúklingurinn og sér-
staklega ríkið bera kostnaðinn.
Læknar géta því ávísað lyfjum, án
tillits til kostnaðar ríkisins (skatt-
greiðenda) og bera enga fjárhagslega
ábyrgð á gerðum sínum. Hér sem
víðast annars staðar fara fjárhagsleg
og /agleg ábyrgð ekki saman.
Ýmsir hafa lagt til að vandamálið
verði leyst með því að láta sjúkling-
ana bera aukinn hluta lyfjakostnað-
arins. Þetta er að mínu mati slæmur
kostur, bæði út frá hagkvæmnis- og
jafnaðarsjónarmiði. Sjúklingar hafa
í fæstum tilfellum nægjanlega þekk-
ingu á sjúkdómum og verkun lyfja
til að geta tekið sjálfstæða ákvörðun
um hvaða lyf þeir eigi að nota. Þeir
verða því að treysta á ráðleggingar
lækna og gera það í flestum tilfellum
án tillits til þess hve mikið þeir þurfa
að greiða fyrir lyfín. Auknar greiðsl-
ur sjúklinga munu því ekki draga
úr lyfjanotkun að neinu verulegu
marki. Auk þessa myndu auknar
greiðslur koma harðast niður á efna-
litlum sjúklingum. Tilraunir til að
auka þátt sjúklinga í lyfjakostnaði
(t.d. í Danmörku) hafa gefist illa og
er verið að hverfa frá þeim.
Úr því að það er slæmur kostur
að láta sjúklingana greiða fyrir lyfin,
er nærtækasti kosturinn að þeir sem
taka ákvörðun um iyijanotkun,
þ.e.a.s. læknarnir, beri kostnaðinn.
Ef læknar bera beinan kostnað af
að ávísa lyfjum, munu þeir íhuga
vandlega hvort sjúklingurinn þurfi í
raun og veru á lyfi að halda og
hætta óþörfum ávísunum. Að sjálf-
sögðu á ég ekki við að læknarnir
eigi að greiða fyrir lyfin með núver-
andi launum sínum. Framkvæmdin
gæti verið eftirfarandi:
1. Hveijum lækni er úthlutað
ákveðinni /'árupphæð til lyfjakaupa.
Upphæðin yrði ákveðin með tilliti til
þess sem þykir eðlileg lyijanotkun
fyrir sjúklinga hvers læknis, að teknu
tilliti til fjölda sjúklinga, aldurs þeirra
og kyns og e.t.v. fleiri þátta.
2. Þessa ijármuni myndu lækn-
arnir síðan nota til að kaupa lyf fyr-
ir sjúklinga sína og myndu að sjálf-'
sögðu hafa hag af því að takmarka
„Það er trú mín að ef
tillögur í líkingu við
þær sem ég hef lýst,
yrðu framkvæmdar,
myndi það bæta hag
flestra aðila sem að
málinu koma.“
lyíjanotkun sjúklinganna, ávísa
mátulegum lyijaskömmtum, kaupa
ódýrustu lyfin og semja við lyfsalana
um sem hagstæðust kjör.
3. Til að koma í veg fyrir að lækn-
ar neiti sjúklingum um sérstaklega
dýr og mikilvæg lyf svo og til að
koma í veg fyrir að læknar þyrftu
að bera óeðlilegar byrðar vegna
sjúklinga sem þurfa á miklum og
dýrum lyijum að halda, gæti ríkið
greitt fyrir ákveðin lyf og fyrir lyf
sjúklinga með langvinna sjúkdóma,
á svipaðan hátt og gert er í dag. Þá
hef ég einnig trú á að fagleg og sið-
ræn sjónarmið Iækna hvetji þá til
að spara fyrst, þar sem þörfin er
minnst. Slíkt myndi í reynd vera
heilsubætandi, þar sem óþörf lyfja-
notkun getur varla talist heilsusam-
leg.
Að sjálfsögðu þarf að útfæra þess-
ar hugmyndir áður en hægt verður
að framkvæma þær. Til dæmis er
sennilegt að útfærslan verði ólík fyr-
ir heilsugæslulækna annars vegar
og sérfræðinga hins vegar.
Að mínu mati eru þær hugmyndir
sem ég hef reifað að framan mun
betur til þess fallnar að lækka lyfja-
kostnað landsmanna en þær tilraunir
sem þegar hafa verið gerðar eða þær
tillögur sem komið hafa fram í um-
ræðum undanfarinna daga. Bestu-
kaupalistinn hefur skilað takmörkuð-
um árangri. Önnur tillaga sem nefnd
hefur verið er að minnka álagningu
á lyfjum. Eg hef ekki mikla trú á
að það sé vænlegt til árangurs. Ekki
vegna þess að ég hafi miklar áhyggj-
ui' af afkomu lyfsala, heldur vegna
þess að lækkun álagningar tryggir
ekki lægri heildarútgjöld. Ef lyfja-
notkun heldur áfram að stíga óhóf-
lega, er lægri álagning skammgóður
vermir.
Önnur leið sem nefnd hefur verið
er að gefa álagningu á lyijum frjálsa
og leyfa fijálsa samkeppni. Ég er
ekki talsmaður núverandi einokunar,
en ég hef heldur ekki trú á að fijáls
samkeppni leiði til aukinnar hag-
kvæmni á meðan greitt er fyrir lyf
á sama hátt og í dag. Spítalarnir
gætu haft hag af fijálsri lyfjasölu,
en hinn almenni sjúklingur hefur
takmarkaðar forsendur til að velja
bestu og ódýrustu Iyfin. Samkeppnin
yrði því í reynd takmörkuð. Ef þær
hugmyndir sem ég hef gert grein
fyrir verða framkvæmdar munu
skapast skilyrði fyrir fijálsa sam-
keppni milli [yfsala. Þá gætu upplýst-
ir kaupendur (læknar) sem hafa
þekkingu á lyfjunum og geta og
hafa fjárhagslegan hvata til að velja
ódýrasta og besta kostinn hveiju
sinni, þvingað lyijaverðið niður. Áð
mínu mati eru tillögur mínar for-
senda fijálsrar samkepþni lyfsala.
Það er trú mín að ef tillögur í
líkingu við þær sem ég hef lýst, yrðu
framkvæmdar, myndi það bæta hag
flestra aðila sem að málinu koma.
Ríkið og skattgreiðendur myndu
hagnast á lægri heildarútgjöldum
vegna lægri lyfjanotkunar. Sjúkling-
arnir myndu sleppa við að greiða
hluta lyij'akostnaðarins og aðeins fá
þau lyf sem þeir hafa raunverulega
þörf fyrir. Læknarnir myndu hafa
von um fjárhagslegan ávinning ef
þeir ávísa skynsamlega. Lyfsalarnir
myndu einna síst hagnast, en það
er hæpið að þeir geti til lengdar stað-
ið gegn hugmyndum um skynsam-
legri lyfjanotkun og fijálsa sam-
keppni.
Höfund/ir er stjórnsýslufræðingur
og hefur sérhæft sig ískipulagi
heilbrigðismála ogstjórnun
heilbrigðisstofnana.
FRYSTIKISTUR
SPAÐU I VERÐIÐ
SPÁÐU í VERÐIÐ
SPÁÐU í VERÐIÐ
Öll verð miðast við staðgreiðsluverð.
152 lítra kr. 31.950,-
191 lítra. kr. 34.990,-
230 lxtra kr. 38.730,-
295 lítra kr. 41.195,-
342 lítra kr. 43.360,-
399 lxtra kr. 45.870,-
489 Ixtra kr. 49.710,-
587 lítra kr. 62.460,-
HEIMILISKAUP H F
• HEIMILISTÆKJADEILD FÁLKANS •
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670.
Innrabyrði úr
hömruðu áli
Lok með ljósi,
læsingu, jafn-
vægisgormum
og plastklætt
Djúpfrystihólf
Viðvörunarljós
Kælistilling
Körfur
Botninn er
auðvitað frysti
flötur ásamt
veggjum