Morgunblaðið - 10.10.1990, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1990
15
Landið er van-
nýtt auðlind
eftir Hólmgeir
Björnsson
Morgunblaðið fjallaði 4. septem-
ber í forystugrein um nýtingu auð-
linda landsins. Þar segir m.a.:
„Gróðurlendið og fiskimiðin eru að
stærstum hluta fullnýtt." Hér er
augljóslega verið að skírskota til
þess, að mestur hluti óræktaðs
lands á íslandi er nýttur til beitar,
sumt jafnvel ofnýtt. í þessari setn-
ingu má skynja þá blindu í mati á
landnýtingu, sem nokkuð hefur
gættj að nýting lands til landbúnað-
ar á Islandi sé einkum beitarnýting.
í nútíma landbúnaði er þó mikill
minnihluti fóðuröflunar áf beit.
Mestur hluti hennar er af ræktuðu
landi. Engum, sem ferðast um sveit-
ir landsins, t.d. Suðurlandsundir-
lendið, getur blandast hugur um,
að enn er hægt að taka víðáttumik-
il landsvæði til ræktunar. Ymsir
hafa spreytt sig á að áætla, hve
mikið megi rækta og framleiða af
landinu. Skal það ekki rakið, enda
eru það harla óvissar vangaveltur.
Þó tel ég að megi fullyrða, að „gróð-
urlendið“, þ.e. ræktanlegt land sé
jafnfjarri því að vera fullnýtt og
fallvötnin og jarðvarminn. Hitt er
svo annað mál, að nú um sinn eru
ekki markaðsskilyrði til að auka
nýtingu lands til ræktunar (nema
e.t.v. skógræktar). Þvert á móti
dregst þessi landnýting saman
hröðum skrefum.
Ræktunarjörð er ein helsta undir-
stöðuauðlind jarðarbúa. Hún er að
öllum jafnaði endurnýtanleg, en oft
ekki endurnýjanleg ef hún eyðist.
Þótt ekki sé nú hagkvæmt að nýta
þessa auðlind nema að litlu leyti
hér á landi, er mjög mikilvægt að
menn gleymi ekki, að síðar getur
hún orðið meira metin. Því ber að
varast landeyðingu. Land, sem fer
undir byggingar og vegi, er jafn
glatað og það, sem eyðist af upp-
blæstri, og oft er það verðmætara
land. Skilyrði geta breyst snögg-
lega, t.d. vegna markaðskreppu eða
vegna þess að loftslag hlýnar vegna
aukinna gróðurhúsaáhrifa í and-
rúmslofti. Viðhorfi því, sem lýsir
sér í tilvitnaðri forystugrein í Morg-
Hólmgeir Björnsson
„Ræktunarjörð er ein
helsta undirstöðuauð-
lindjarðarbúa.“
unblaðinu, má jafna við það, að
fiskimið landsins teldust fullnýtt,
þegar sókn með handfærum á ára-
bátum væri orðin það mikil, að
ekki væri von um aukinn afla nema
með meiri tækni.
Höfundur er dcildarstjóri á
Rannsóknastofnun
landbúnaðarins.
Heimildumum
matarhætti safnað
MATRÁÐ Samstarfshóps um söfnun og varðveislu gamalla matar-
hátta hyggst beita sér fyrir því að á komandi vetri verði safnað
heimildum um einkennisrétti héraða, eða matreiðslu sem mest var
bundin við ákveðnar sveitir eða landshluta. Sem dæmi um þetta má
nefna mjólkurkjötgraut Sunnlendinga, hjallþurrkaða magála á Vest-
fjörðum, pokabaunir á Suðausturlandi o.fl.
Matráð hyggst fá í lið með sér
kvenfélög og átthagafélög til að
safna upplýsingum. Einnig verða
skipulagar ferðir í sláturtíðinni til
að festa á filmu eða pappír ýmis-
legt um hefðbundna sláturmatar-
gerð á heimilum. Matráð hvetur
alla þá, sem taka slátur á næst-
unni, til að huga að þjóðlegum hefð-
um í þessu efni og hafa eldra fólk
með í ráðum. Þeir, sem eiga í fórum
sínum gamlar uppskriftir, eru beðn-
ir um að koma þeim til Matráðs,
pósthólf 161, 121 Reykjavík. Verið
er að huga að útgáfu á næsta ári
og til greina kemur að veita verð-
laun fyrir bestu uppskriftirnar að
vori.
Matráð skipa þau Hallgerður
Gísladóttir, sagnfræðingur, Sigur-
vin Gunnarsson, matreiðslumeistari
og Steinunn Ingimundardóttir, hús-
stjórnarkennari.
Fréttatilkynning.
Opnum í dag kl. 17.00
skrifstofu á BergstaÖastrœti 86
vegna framboðs
ÓLAFS ÍSLEIFSSONAR
Allir velkomnir!
Ólaf í öruggt sæti, 7. sætiö
Acer tölvumar em ekki gamlar í hettunni en hafa hvarvetna hlotiö
stórkostlegar móttökur og em nú yfir 1 milljón Acer tölva í notkun
víöa um heim.
Acer er framleidd í Taiwan, með bækistöðvar í meira en 70 löndum
og er þekkt um víða veröld fyrir gott verð, tækninýjungar og
vandaða framleiðslu. Acer er í nánum viðskiptatengslum við marga
helstu hugbúnaðarframleiðendur í heiminum, svo sem Nowell,
SCO og MicrosofLog annast einnig dreifingu á framleiðsluvörum
Autodesk og Aston-Tate. Framleiðendur Acer-tölvunnar búa yfír
víðtækri þekkingu og reynslu hvað vélbúnað og hugbúnað varðar
og tryggir með því viðskiptavinum skjótari og öruggari þjónustu.
Sem dæmi um randaðagerð A cer tölvunnarmá nefna að í Volkswagen
bílasmiðjunni,íWolfsburgíþýskalandi,eru200Acereinmenningstölvur
í 386-Ookknum notaðar í gæðaeftirlitskerfi aðfenginna bílahluta.
Þæreru tengdarfjölbrcyttum mælilækjum, sjá um gæðaeftirlitið ograða
niðurstöðunum í gagnabanka.
Nú gefst Islendingum kostur á að kynnast Acer, því nýverið tóku
Heimilistæki hf. við umboði og þjónustu fyrir þessar frábæru tölvur.
Heimilistæki hf
Tölvudeild, Sætúni 8 Sími 69 1500
, í SOMUttífUHt,
Z#*1£**i