Morgunblaðið - 10.10.1990, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1990
21
Ráðstefna Samtaka
heilbrigðisstétta
UM 300 MANNS sóttu ráðstefnu sem Samtök heilbrigðisstétta stóðu
fyrir undir fyrirsögninni „Æska án ofbeldis" sl. föstudag. A ráðstefn-
unni voru flutt 13 erindi af fagfólki utan og innan samtakanna en 28
félög eiga aðild að samtökunum. Heilbrigðisráðherra, Guðmundur
Bjarnason, flutti ávarp og í því kom fram vilji hans til að vinna að
lausn þess vanda sem ofbeldi meðal barna og unglinga er. Ráðstefna
sem þessi mætti ekki vera til þess eins að friða þá sem á hana mættu.
í máli flestra fyrirlesara kom fram
að víðtæk samvinna margra hópk
og einstaklinga er nauðsynleg ef
takast á að draga úr ofbeldi meðal
æskufólks. Góður árangur slíks sam-
starfs hafí komið í'ljós í fyrravetur
þegar átak lögreglu og félagsmála-
aðila sem beindist að því að fá ungl-
inga til að taka afstöðu gegn ofbeldi
varð til þess að ofbeldi minnkaði í
miðbæ Reykjavíkur. Nú frá næstu
áramótum mun sérstakur starfsmað-
ur sinna málefnum barna og ungl-
inga hjá lögreglunni í Reykjavík.
Staða og hlutverk fjölskyldunnar
sem mikilvægasta uppeldisaðila
barna var viða reifuð af fyrirlesurum.
Nauðsyn sé að styrkja þessa einingu
bæði inn á við og tengsl hennar við
þá aðila sem hafa með málefni barna
og fjölskyldna að gera. Öryggi og
virðing sé grundvallaratriði í uppeldi
barna til þess að þau megi ná eðlileg-
um þroska og öðlast sjálfsvirðingu.
Agi sé einnig mikilvægur en þau
börn sem beitt eru ofbeldi beiti því
frekar sjálf.
Mikið álag á fjölskyldur ungra
barna vegna skorts á dagvistarrými
skapi óöryggi og mikið álag sem
komi ekki síst niður á börnunum.
Þessar úrbætur ásamt samfelldum
skóladegi skipti gríðarlega miklu.
Hvað varðar-skólann þá þurfi að
viðurkenna í verki sívaxandi mikil-
vægi hans sem uppeldisstofnunar.
Ofbeldi, ofbeldismenn og fórn-
arlömb þeirra urðu öllum fyrirlesur-
um að umtalsefni. Ofbeldi þurfi að
uppræta strax og þess verði vart,
bæði vegna fómarlambsins og þess
sem ofbeldinu beitir. Það sé oftast
afleiðing en ekki orsök og þeir sem
því beita séu að hrópa á hjálp.
-----------------------
■ OG ENN BÍÐA BÖRNIN, er
yfirskrift fundar um dagheimili,
leikskóla, skóladagheimili og sam-
felldan skóladag, sem Félag ein-
stæðra foreldra stendur fýrir á
morgun, fimmtudag. Á fundinum
halda Svavar gestsson, mennta-
málaráðherra, Birgir Isleifur
Gunnarsson, alþingismaður, Krist-
ín Á. Ólafsdóttir, og Anna K.
Jónsdóttir, borgarfulltrúar, fram-
söguerindi og þar verða einnig full-
trúar frá Sókn og Fóstrufélagi
íslands. Fundurinn verður í fundar-
sal féalgsins að Skeljanesi 6 og
hefst klukkan 20.30.
■ BUBBI Morthens heldur tón-
leika á skemmtistaðnum Tveir vin-
ir og annar i fríi í kvöld, miðviku-
dag. Bubbi hefur nýlokið tónleika-
ferð um landsbyggðina, auk þess
sem hann var að ljúka upptökum á
hljómplötu, sem er væntanleg fyrir
jól. Sætafjöldi á tónleikunum er
takmarkaður.
V estmannaeyjar:
Sveinn sýnir í
Akóges-húsinu
SVEINN Björnsson listmálari
heldur málverkasýningu í Akog-
es-húsinu í Vestmannaeyjum á
morgun, fimmtudaginn 11. októ-
ber. Þar sýnir hann 24 myndir,
hluta af sýningu hans frá síðasta
vori í Hafnarborg.
Sveinn sagði í spjalli við
Morgunblaðið að hann hefði tvisvar
haldið sýningu í Vestmannaeyjum,
árið 1954 og 1959. Sveinn ólst upp
í Vestmannaeyjum og stundaði þar
sjómennsku til tvítugsaldurs og
segist eiga þar marga góða vini.
Þijár stórar myndir verða á sýn-
ingunni, þar á meðal Ægir konung-
ur og Maðurinn og hafið. Auk þess
sýnir Sveinn klippimyndir sem
hann gerði árið 1985.
Sýning Sveins er sölusýning og
Morgunblaðið/Emilía
Sveinn Björnsson listmálari.
hefst hún kl. 17 á morgun og
stendur fram á sunnudagskvöldið
14. október.
Ljóðatónleikar í Gerðubergi
LAUGARDAGINN 13. október
kl. 17.00 heldur W. Keith Reed,
baritónsöngvari, ljóðatónleika í
Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi, við undirleik Ólafs Vignis
Albertssonar, píanóleikara.
Á efnisskrá eru Sechs Lieder von
Gellert eftir Beethoven, enskar
ballöður, íslensk lög eftir Jón Þórar-
insson og Sigvalda Kaldalóns,
sænsk lög eftir Sibelius og Vier
Ernste Gesange eftir Johannes
Brahms.
W. Keith Reed lauk masters-
námi í tónlist frá Indiana, Univers-
ity í Bloomington vorið 1989 með
söng sem aðalgrein. Síðan hefur
Keith verið búsettur hér á landi
ásamt fjölskyldu sinni. Hann kenn-
ir söng við Söngskólann í Reykja-
vík og kórstjórn við Kennarahá-
skóla Islands en þar stjórnar hann
einnig kór skólans. Síðastliðinn
vetur söng hann með íslensku ópe-
runni, fyrst hlutverk Almaviva
greifa í „Brúðkaupi Fígarós“ eftir
Mozart og síðan hlutverk Tonios í
W. Keith Reed, baritónsöngvari.
„1 Pagliacci" eftir Leoncavallo.
Hann hefur einnig komið fram við
ýmis tækifæri.
gervihnattadiskana er hægt aö fá meb
snúningstjakki sem skíptir sjálfvirkt á milli
gervihnatta, til móttöku á enn fleiri
sjónvarpsstöbvum. Allur okkar búnaöur
eru viöurkenndur af Pósti og síma.
Sækjum um öll leyfi! Muniö aö panta fyrir
10. október
insi
eba
msm^
Ath. Engin afnotagjöld af gervihnattasjonvarpi
CMC kerfl fyrir nl6urben||d lott, er úr
galvanlseruöum mðlmi og eldþoliö.
CMC kerfl er auóvelt I uppsetningu
og mjög sterkt.
CMC kerti er test msö stillanlegum
upphengjum sem þola allt aö
50 kg þunga.
CMC kerfi tæst I mörgum geröum bæöl
sýnilegt og falió og veróió er
ótrúlega lágt.
CMC kerfi er serstaklegh hannad Hringiö ettir
tyrir loftplötur fr* Armstrong Irekari upplýslngum.
Einkaumboe é l.l.ndi
£5 Þ. ÞORGRÍMSSON & CQ
Ármúla 29 - Reykavík - sími 38640
rrt. Lt -AV Fngor LBOÐ YSTIKISTUR
Tll FR
MÁL H X B X D STÆRÐ GERÐ STAÐGR. VERÐ
90x73x65 1851 B20 31.950
90x98x65 2751 B 30 35.730
90x128x65 3801 B40 39.960
90x150x65 4601 B 50 43.470
ÁRATUCAREYNSLA
DÖNSK GÆÐATÆKI A CÓÐU VERÐI
é SAMBANDSINS
VIÐ MIKLAGARÐ SÍMAR 68 55 50 - 6812 66
ÞÚ GETUR KOMIÐ Á FLOKKSÞING ALÞÝÐUFLOKKSINS NÚ UM HELGINA, KYNNT
SJÓNARMIÐ ÞÍN OG LAGT FRAM TILLÖGUR.
\
Nk. föstudag 12. OKTÓBER kl. 17.00 verður 45. FLOKKSÞING ALÞÝÐUFLOKKSINS sett í
íþróttahúsinu við Strandgötu, Hafnarfirði.
Auk setningarræðu formannsins JÓNS BALDVINS HANNIBALSSONAR hlýðum við á
hafnfirskan ungmeyjasöng, lúðraþyt og slaghörpuleik, auk þess sem bæjarstjórinn,
GUÐMUNDUR ÁRNI STEFÁNSSON, og fleiri flytja ávörp.
Við bjóðum alla íslenska jafnaðarmenn velkomna á setningarathöfnina hvar í flokki
sem þeir standa.
Auk þess hefur framkvæmdastjórn Alþýðuflokksins samþykkt að leggja til þau
nýmæli við þingsköp flokksþingsins, að til sjálfs þingsins, dagana 12., 13. og 14.
október, verði boðið, með fullu málfrelsi og tillögurétti, öllu flokksbundnu
Alþýðuflokksfólki. Þeir sem vilja taka þessu tilboði skulu tilkynna þátttöku á
skrifstofu Alþýðuflokksins Hverfisgötu 8—10 Reykjavík, sími 29244, fyrir
fimmtudagskvöldið 11. október.
Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ VERÐUR FRAMREIDDUR
GLÆSILEGUR KVÖLDVERÐUR OG BOÐIÐ UPP Á
VANDAÐA HÁTÍÐARDAGSKRÁ MEÐ ÞEKKTUM
SKEMMTIKRÖFTUM.
Þinginu verður slitið kl. 16.00 á sunnudag
14. október.
Liggðu ekki á liði þínu
Vertu með í mótun fyrirmyndarsamfélags
á Islandi.
ALÞÝÐUFLOKKURINN
FORYSTA TIL FRAMTÍÐAR
Alþýðuflokkurinn