Morgunblaðið - 10.10.1990, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1990
23
v l\f beppiiin er
meö þér kenislu
til Ameríkit <>}•
allur bekknrinn
k jiinn ineó. .
Erum á fullri ferð inn
í fjórða kjörtímabilið
Bournemouth. Reuter. Daily Telegraph.
LANDSÞING breska Ihaldsflokksins var sett í gær í skugga gífur-
legra öryggisráðstafana vegna ítrekaðra hótana hryðuverkamanna
um að sýna Margaret Thatcher forsætisráðherra banatilræði. That-
cher gaf enga vísbendingu um hvenær hón mundi boða til þingkosn-
mga en sagði að flokkurinn
kjörtímabil sitt við völd.
„Eg hef ekki íhugað hvenær boð-
að verður til kosninga því ég hef
haft öðrum hnöppum að hneppa,“
sagði Thatcher. Kosningar fara
fram í síðasta lagi á miðju ári
1992, en vegna ákvörðunar bresku
stjórnarinnar fyrir síðustu helgi að
ganga í myntbandalag Evrópu-
bandalagsins (ERM) og vaxtalækk-
unar hafa ýmsir stjórnmálaský-
rendur talið að boðað yrði til kosn-
inga fyrr, jafnvel á næsta ári.
Eins og vænta mátti gagnrýndu
ræðumenn á landsþinginu stefnu
Verkamannaflokksins harðlega, en
Neil Kinnock leiðtogi flokksins hef-
ur krafist kosninga þegar í stað.
Kenneth Baker, formaður íhalds-
flokksins, sagði að Kinnock væri
Herforíngjar
kærðir vegna
morðs á Sam-
stöðupresti
Varsjá. Reuter.
PÓLSKA lögreglan hefur hand-
tekið tvo herforingja, Wladyslaw
Ciaston og Zenon Platek, í
tengslum við morðið á Samstöðu-
prestinum Jerzy Popieluszko,
sem myrtur var 1984.
Að sögn aðstoðarsaksóknara Pól-
lands, Aleksanders Herzog, hafa
Ciaston og Platek verið kærðir fyr-
ir að hafa hvatt til og skipulagt
morðið á Popieluszko sem studdi
málstað hinna óháðu verkalýðs-
hreyfinga í stólræðum sínum og var
því eitur í beinum kommúnista-
stjórnarinnar sem stjórnaði með
herlögum á þessum tíma.
Ciaston var aðstoðarinnanríkis-
ráðherra og yfirmaður leyniþjón-
ustunnar. Eftir morðið var hann
gerður að sendiherra í Albaníu en
kallaður heim í vetur. Platek stjórn-
aði deild í innanríkisráðuneytinu
sem sá um njósnir gegn kaþólskum
prestum.
Asamt Ciaston og Platek voru
fjórir aðrir handteknir í gær vegna
morðsins á Popieluszko, þar af
tveir ofurstar. Ennfremur var Mi-
roslaw Milewski, hershöfðingi og
fyrrum innanríkisráðherra, hand-
tekinn ásamt tveimur öðrum ónafn-
greindum hershöfðingjum, fyrir
spillingu. Þeir eru sakaðir um að
hafa dregið sér gull í kílóatali og
önnur verðmæti. Milewski var að-
stoðarinnanríkisráðherra 1971-80
og innanríkisráðherra 1980-81 en
sat í stjórnmálaráði pólska komm-
únistaflokksins þegar Popieluszko
var myrtur. Fór hann þar með mál
leynilögreglunnar sem hafði því
hlutverki fyrst og fremst að gegn
að kæfa starfsemi stjórnarandstæð-
inga.
Eru þetta fyrstu handtökurnar á
fyrrum leiðtogum kommúnista frá
því ríkisstjórn undir forystu Sam-
stöðu tók við völdum í fyrra. Þær
eiga sér stað á sama tíma og til-
kynnt var um forsetaframboð Tad-
eusz Mazowieckis forsætisráðherra.
Forsetakosningar verða í Póllandi
25. nóvember næstkomandi og er
talið að valið muni standa milli
Mazowiecki og Lechs Walesa Sam-
stöðuleiðtoga.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á^íöum Moggans!
væri á fullri ferð inn í fjórða
„snákmenni“, hann væri æfður í
að vinda margvíslega upp á sig í
sýningarskyni. Hann reyndi að villa
á sér heimildir því eina ráðið sem
verkamenn hefðu væri að auka rík-
isútgjöld og þar með skatta. Þeir
myndu seilast æ dýpra í vasa skatt-
greiðenda. Framtíðarboðskapur
þeirra væri stefna fortíðarinnar.
Baker sagði Verkamannaflokk-
inn enn ríghalda í boðskap sem
Sovétmenn hefðu hafnað og hug-
myndir sem hrunið hefðu með járn-
tjaldinu sem skipti Evrópu. „Sósíal-
Reuter
Margaret Thatcher á flokksþing-
inu í gær. Eftir því var tekið að
hún hafði skipt um hárgreiðslu
og látið stytta hár sitt mjög.
Peter Lilley, verslunar- og iðnað-
arráðherra, tók í svipaðan streng
og Baker og sagði að meiri mark-
aðshyggja væri ríkjandi innan sov-
éska kommúnistaflokksins en Verk-
amannaflokksins.
Birtar voru í gær niðurstöður
skoðanakönnunar á vegum blaðsins
Daily Telegraph, sem hefur stutt
íhaldsflokkinn, þar sem fram kemur
andstaða við lykilatriði í stefnu
flokksins. Þrír fjórðu aðspurðra
voru t.a.m. andvígir nefskatti sem
tekin var upp á árinu til að fjár-
magna rekstur sveitarfélaga, og
meirihluti var andvígur frekari
einkavæðingu ríkisfyrirtækja og
breytingum á mennta- og heilbrigð-
iskerfinu.
Elnstakt landkönnunartækifæri
fyrir nemendur í 5. til 10. bekk grunnskóia.
Íslensk-ameríska félagiö heldur upp á 50 ára afmæli
félagsins meö þvíaö efna til spurningaleiks á meöal
allra nemenda f 5. til 10. bekk grunnskóla í samvinnu
viö Landsbanka íslands, Samvinnubankann, Flugleiöir
og Sjóvá-Almennar. í boði eru verðlaun sem eiga
engan sinn líka: þriggja daga ferð til höfuðborgar
Bandaríkjanna, Washington, og vinningshafinn fær
aö bjóöa meö sér öllum nemendum í sínum bekk.
Þátttökublöð ILeifsleiknum liggja frammiíöllum
útibúum Landsbanka íslands og Samvinnubankans.
Skilafrestur er til 20. október.
Úrslit veröa tilkynnt í fjölmiölum fyrir miöjan nóvember.
Landsbanki
íslands FLUGLEIÐIR
Banki allra lartdsmanna
SJÓVáÍ^MaLMENNAR samvinnubanki
-----“i“Bi------- ISLANDS
*
Margaret Thatcher á landsþingi breska Ihaldsflokksins:
isminn gengur ekki. Og það vill
hann heldur enginn," sagði Baker.