Morgunblaðið - 10.10.1990, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1990
fttwgiiiifclfifeife
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Árvakur, Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122.
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Setning
kosningaþings
Alþingi verður sett í dag.
Störf þingsins munu bera
yfírbragð þess að gengið verður
til kosninga á næstu mánuðum.
Kjörtímabilið rennur út í apríl á
næsta ári. Staðan í stjómmálun-
um er hins vegar þannig, að til
þess kynni að koma að þing yrði
rofíð fyrr og efnt til kosninga.
Raunar væri það best fyrir þjóð
og þing að kosningaþingið starf-
aði sem styst og sem fyrst yrði
gengið til kosninga þannig að
menn með nýtt umboð gætu tek-
ist á við vandann sem við blasir.
Innan ríkisstjórnarinnar er
ekki eining. Tortryggni setur í
vaxandi mæli svip á samskipti
ráðherranna. Síðustu daga hefur
álmálið borið hæst á þeim vett-
vangi og skyggt á ágreining
vegna stefnunnar í landbúnaðar-
málum, Evrópumálum og hús-
næðismálum, svo að aðeins þrír
málaflokkar séu nefndir. Hús-
næðisráðherrann, Jóhanna Sig-
urðardóttir, hefur kveðið svo
fast að orði, að hún sé í and-
stöðu við ríkisstjórnina þar sem
hún situr.
Á kosningaþingi er erfiðara
en endranær að takast á við eitt
mikilvægasta verkefni hvers
þings, afgreiðslu fjárlaga. Olafur
Ragnar Grímsson fjármálaráð-
herra hefur alls ekki náð viðun-
andi tökum á íjármálastjórn
ríkisins. Ríkissjóður hefur ekki
verið rekinn með því aðhaldi sem
er nauðsynlegt. Ráðherrann
gælir nú við hugmyndir um að
hækka skatta og notar til þess
upplýsingar frá Efnahags- og
framfarastofnuninni (OECD),
sem byggjast á tölum ráðherran-
i um í hag. Líklegt er að yfírboð
j innan stjórnarliðsins einkenni
i afgreiðslu ljárlaga nú og dæmið
: verði sett upp með hinni gamal-
j kunnu framsóknaraðferð, að
j fyrst skuli útgjöldin ákveðin og
j síðan álögurnar, skattarnir á
I borgarana.
Gangur álmálsins hefur verið
með þeim hætti síðustu vikur,
að tortryggni í garð Jóns Sig-
; urðssonar iðnaðarráðherra hefur
magnast meðal stuðningsmanna
ríkisstjórnarinnar. Þingflokkur
Alþýðubandalagsins hefur
í beinlínis ályktað gegn ráð-
herranum og formaður þing-
flokks framsóknarmanna er
mjög gagnrýninn á störf hans.
Að óbreyttu á þetta ástand eftir
að magnast, þegar þingmenn
taka að ræða málið. Gagnvart
hinum erlendu viðsemjendum
hlýtur að skipta miklu að skipu-
lega sé staðið að pólitískri lausn
álmálsins.
Samningarnir sem aðilar
vinnumarkaðarins gerðu í febrú-
ar síðastliðnum, þjóðarsáttin,
hafa veitt ríkisstjórninni skjól
við efnahagsstjórnina. Það er
hins vegar aðeins tímabundið og
þess sjást ekki merki að stjórnin
hafí notað svigrúmið til að gera
nauðsynlegar kerfísbreytingar.
Þingmenn standa frammi fyrir
miklum óleystum vanda í efna-
hagsmálum og ríkisstjórnin hef-
ur enga burði til að taka á honum.
Fyrir utan málefnaátök innan
stjómarflokkanna á það eftir að
setja svip á störf þeirra á þing-
inu í vetur, að einn þeirra, Borg-
arafiokkurinn, er að lognast út
af og annar, Alþýðubandalagið,
er klofínn ofan í rót. Að þessu
leyti stendur ríkisstjómin einnig
höllum fæti.
Allt ber að sama bmnni. Það
er best að kosningaþingið verði
sem styst og þjóðin fái sem fyrst
tækifæri til að veita þingmönn-
um nýtt umboð.
Landsberg-
is við þing-
setningu
Heimsókn Vytautas Lands-
bergis, forseta Litháens,
til Islands er fagnaðarefni og
það er sérstaklega gleðilegt að
hann skuli vera gestur við þing-
setninguna í dag. Er einstakt
að leiðtogi erlendrar þjóðar geri
það. Litháen er einnig í ein-
stakri stöðu. Litháar lýstu yfír
sjálfstæði 11. mars síðastliðinn
og Alþingi brást fljótt við þeim
atburði. Þorsteinn Pálsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins,
gekk einnig rösklega fram fyrir
skjöldu og krafðist fullrar viður-
kenningar á sjálfstæði ríkis-
stjómar Litháens og fyrir
skömmu var Þorsteini sýndur sá
heiður að fá að ávarpa setning-
arfund þingsins í Litháen. í ræðu
á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna fyrir skömmu fetaði
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra í fótspor for-
manns Sjálfstæðisflokksins og
vildi láta umgangast Litháa á
alþjóðavettvangi sem sjálfstæða
þjóð.
Landsbergis veit um hug Is-
lendinga og stuðning við sjálf-
stæðisbaráttu þjóðar hans og
telur að þar sé nánast um for-
ystuhlutverk að ræða. Nærvera
hans við setningu Alþingis er
áminning til þingmanna um að
þeir eigi að stíga skrefíð til fulls
og samþykkja formlega viður-
kenningu á sjálfstæði Litháens
strax á fyrstu dögum þingsins.
Hluti barnanna sem kom í sunnudagaskólann í Neskirkju.
Simnudagaskólar taka tíl starfa
Sunnudagaskólarnir eru nú að
taka til starfa víðsvegar um
landið. Á sunnudaginn komu um
200 böm í sunnudagaskóla Nes-
kirkju í Reykjavík.
Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson
sóknarprestur í Neskirkju sagði við
Morgunblaðið að alla sunnudags-
morgna væri skipulagt bamastarf í
kirkjunni þar sem bömin syngja,
fara í leiki og fræðast. Þá væri einn-
ig leik- og söguskóli fyrir böm sem
koma til almennrar guðsþjónustu
klukkan 14. Loks væri skipulögð
starfsemi fyrir börn og unglinga á
aldrinum 10-13 ára á mánudögum
og þriðjudögum.
Sr. Guðmundur sagði að þátttaka
í sunnudagaskólanum væri breytileg
en yfirleitt góð.
Séra Guðmundur
Oskar Olafsson
syngur með börn-
unum í Neskirkju.
Vísifingur
vísifingur
hvar ert þú?
Fyrsta skákin;
Skotgrafahemaður
__________Skák_____________
Margeir Pétursson
EINS og í tveimur síðustu heims-
meistaraeinvígjum var fyrsta
skák þeirra Karpovs og Ka-
sparovs í New York róleg og ein-
kenndist af þreifingum. Henni
lauk með jafntefli eftir 30 leiki.
Skákin veitti þó athyglisverðar
upplýsingar um vopnabúr einvíg-
ismannanna. Kasparov beitti
sinni nýjustu uppáhaldsbyrjun,
Kóngsindverskri vörn, en í ein-
vígjunum 1986 og 1987 hélt hann
sig yfirleitt við Griinfeldsvörn-
ina. Karpov svaraði henni á ann-
an hátt en hann hefur áður gert
gegn heimsmeistaranum, valdi
hið hvassa Saemisch afbrigði.
Önnur skákin verður tefld í kvöld
og hefur þá Kasparov hvítt.
Það má segja að það hafi helst
komið á óvart að Kasparov skyldi
ekki hafa komið á óvart! Vitað er
að hann hefur undirbúið sig mjög
gaumgæfilega fyrir þetta einvígi
og tekið sér mun lengra frí frá
skákmótúm en Karpov. Áttu því
margir von á að hann hefði ný vopn
á takteinum.
Val Karpovs á afbrigði gegn
Kóngsindversku vörninni kom einn-
ig á óvart, því Saemisch afbrigðið
hefur átt nokkuð undir högg að
sækja síðustu misseri, vegna nýrra
leikaðferða gegn því. Karpov hafði
hins vegar mikið dálæti á því í
æsku. Miðað við þetta varð skákin
furðulega róleg. Kasparov vildi ekki
kanna hvað Karpov hefði á taktein-
um gegn tízkuleiðunum, valdi eldri
leið sem gefur hvítum færi á að
ná örlítið betri stöðu. Karpov varð
hins vegar á smávægileg óná-
kvæmni er hann frestaði peðaupp-
skiptum of lengi og eftir það jafn-
aði Kasparov taflið auðveldlega.
Heimsmeistarinn eyddi töluverð-
um tíma á klukkunni og svo virtist
sem hann hefði lagt fullmikið á
stöðuna, en hún var svo einföld að
honum veittist auðvelt að leysa
hana upp í jafntefli.
Þessi skák var nokkuð dæmigerð
fyrir Karpov. Þrátt fyrir val sitt á
hvassri byijun, beið hann aðeins
átekta eftir því að Kasparov veikti
sig um of. Ég er þó hræddur um
að slík leikaðferð eigi ekki eftir að
færa honum heimsmeistaratitilinn
að nýju, þótt hún kunni að gefast
vel gegn öðrum sterkum stórmeist-
urum.'
Heimsmeistarinn þekkir stíl
Karpovs einfaldlega alltof vel til að
slíkur rólegheitastíll geti skilað
árangri. Þessi skák gefur líka enn
frekar til kynna að Kasparov teflir
mun agaðar gegn Karpov en öðrum
skákmönnum. Val hans á rólegu
afbrigði og það að hann beið ekki
með að einfalda stöðuna í 16. leik
sýnir það. Ég held að spáin
12’/2-10‘/2heimsmeistaranum í vil
eigi því fullan rétt á sér.
1. einvígisskákin:
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Gary Kasparov
Kóngsindversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - g6 3. Rc3 -
Bg7 4. e4 - d6 5. f3 - 0-0 6.
Be3 — c6
Það vekur athygli að Kasparov
hafnar hvössustu afbrigðunum
gegn Saemisch, 6. — Rc6 7. Rge2
— a6, hinu svonefnda Panno af-
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1990
25
Verð á gas- og svart-
olíu hækkar um mán-
aðamótm að óbreyttu
- segir Arni Olafur Lárusson hjá Skeljungi hf.
VERÐ á gas- og svartolíu hækkar hér um mánaðamótin að öllu
óbreyttu, að sögn Árna Ólafs Lárussonar framkvæmdasljóra fjár-
málasviðs Skeljungs hf. I gær, þriðjudag, voru gasolíu-, svartolíu-
og bensínfarmar á leiðinni hingað og verð á þeim hefur áhrif til
hækkunar hér. Verð á næstu förmum ræður því hins vegar hvort
verðið hækkar hér eða ekki en næstu gasolíu- og bensínfarmar
koma hingað í síðari hluta þessa
Verð á gas- og svartolíu á Rott-
erdam-markaði hefur hækkað um
90% frá því í ágústbyijun en 1.
október sl. hækkaði verð á gasolíu
hér um 40% og svartolíu um 17%.
Árni Ólafur Lárusson segir að
ástæðan fyrir olíuverðshækkun-
inni undanfarið sé taugatitringur
hjá spákaupmönnum vegna
ástandsins við Persaflóa. Olíu-
birgðir í heiminum hafi sjaldan,
eða aldrei, verið meiri en nú. Árni
Ólafur Lárusson segir að heims-
framleiðslan hafi verið mjög mikil
fyrir innrás íraka í Kúvæt og olíu-
verðið því lágt. Hins vegar sé
framleiðslan ekki orðin jafn mikil
og hún var fyrir innrásina, enda
þótt Saudi-Arabar hafí aukið sína
framleiðslu undanfarið.
„Ef styijöld brýst út við Persa-
flóann má búast við að olíuverðið
mánaðar eða nóvemberbyrjun.
hækki,“ segir Árni Ólafur. „Ef
hækkunin varir í einhveija mánuði
fara hins vegar önnur olíusvæði
að verða arðbær og menn geta
aukið notkun á öðrum orkugjöfum,
til dæmis kolum, kjamorku og
vatnsafli. Þannig næst jöfnuður
aftur en á hærra verðstigi en var
fyrir þessi átök. Það er líklegt að
verðið lækki svo aftur smám sam-
an, svipað og gerðist eftir árið
1981.“
Árni Ólafur segist ekki hafa trú
á að olíuverðið verði mjög lengi
svona hátt eins og það hefur verið
undanfarið, því þá verði fjöldinn
allur af fyrirtækjum, sem nota
þessa orku, gjaldþrota. Þannig
muni eftirspumin eftir olíu minnka
og verðið lækka. „Það þolir ekkert
þjóðfélag þetta háa olíuverð til
lengdar,“ segir Árni Ólafur.
Leikfélag Reykjavíkur:
Sigurður Hróarsson
valinn leikhússtjóri
SIGURÐUR Hróarsson, núver-
andi leikhússtjóri Leikfélags
Akureyrar, hefur verið valinn
úr hópi umsækjenda til að gegna
stöðu leikhússtjóra hjá Leikfé-
lagi Reykjavíkur.
Sigurður Karlsson, formaður
stjórnar LR, sagði að stjórnin hefði
staðið einhuga að baki valinu en
það verður borið undir aðalfund
félagsins síðar í þessum mánuði.
Sigurður Hróarsson tekur vænt-
anlega formlega við starfinu í sept-
ember á næsta ári en hann kemur
til starfa við leikhúsið um næstu
áramót og starfar við hlið Hallmars
Sigurðssonar, núverandi leikhús-
stjóra LR, síðari helming leikársins
1990-1991.
Sigurður Hróarsson
Morgunblaðið/Sverrir
Aðeins einn styrkþegi gat komið því við að taka sjálfur við styrk sínum, hinir voru uppteknir í námi sínu
erlendis og sendu fulltrúa fyrir sína hönd. Hér eru þeir, ásamt stjórn Minningarsjóðs Helgu Jónsdóttur og
Sigurliða Kristjánssonar. Fremst sitja Helga Aaberg, Ragnar Ingimarsson og Sigurður Guðmundsson, þau
skipa stjórn sjóðsins. í miðröð eru Tómas Jóhannesson, Sigþór Lárusson fyrir Harald Sigþórsson, Þóra Kristín
Eiríksdóttir fyrir Gunnar Guðna Tómasson, Björg Aradóttir fyrir Þórð Arason, Þóra Jónsdóttir fyrir Birgi
Jóhannesson, Gerður Thoroddsen fyrir Sigurð T. Thoroddsen og Anna Björk Guðjónsdóttir fyrir Orn Almars-
son. I öftustu röð eru Lúðvík Leósson fyrir Auðun Lúðvíksson, Bessi Bjarnason fyrir Bjarna Bessason og
Kristján Magnús Arason fyrir Þórð Arason.
Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar:
Þremur milljónum króna
úthlutað til tíu styrkþega
AFHENDING styrkja úr Minningarsjóði Helgu Jónsdóttur og Sigur-
liða Kristjánssonar fór fram við hátíðlega athöfn í Skólabæ, húsi
Háskóla Islands við Suðurgöru í Reykjavík, í gær. Tíu aðilar fengu
styrki, samtals þijár milljónir króna. Tveir fengu 500 þúsund króna
styrki og átta fengu 250 þúsund króna styrki. Allir styrkþegar eru
langt komnir í framhaldsnámi í raunvísindum.
500 þúsund króna styrki hlutu
Sigurður T. Thoroddsen og Tómas
Jóhannesson. Sigurður nemur eðlis-
verkfræði við Kaliforníuháskóla í
Bandaríkjunum, Tómas nemur jarð-
eðlisfræði við Washington háskól-
ann í Seattle í Bandaríkjunum.
250 þúsund króna styrki hlutu
eftirtalin. Auðunn Lúðvíksson, hann
nemur eðlisefnafræði við Kali-
forníuháskóla. Birgir Jóhannesson,
hann nemur efnisfræði við Surrey
háskólann í Englandi. Bjarni Bessa-
son, hann nemur jarðskjálftaverk-
fræði við NTH í Noregi. Gunnar
Guðni Tómasson, hann nemur
straumfræði við MIT í Bandaríkjun-
um. Haraldur Sigþórsson, hann
nemur samgöngutækni við háskól-
ann í Karlsruhe í Þýskalandi. Sól-
veig Grétarsdóttir, hún nemur
líffræði við háskólann í Lundi í
Svíþjóð. Þórður Arason, hann nem-
ur jarðeðlisfræði við ríkisháskólann
í Oregon í Bandaríkjunum. Orn
Almarsson, hann nemur efnafræði
við Kaliforníuháskóla.
Alls bárust 39 umsóknir. Ragnar
Ingimarsson prófessor og stjórnar-
formaður Minningarsjóðsins sagði
við afhendingarathöfnina mjög er-
fitt hafa verið að velja styrkþega
úr þeim hópi. Upphaflega voru aug-
lýstir tveir styrkir, hvor 500 þúsund
krónur. Þegar ljóst varð hve marg-
ir sóttu um og hve góð meðmæli
þeir höfðu frá skólum sínum, ákvað
stjórn sjóðsins að bæta við átta 250
þúsund króna styrkjum.
í erfðaskrá hjónanna Sigurliða
Kristjánssonar og Helgu Jónsdóttur
er meðal annars ákveðið að eignar-
hluta þeirra í fyrirtækinu Silla og
Valda skuli varið til stofnunar fimm
sjóða. Af þeim skyldi einn hafa það
markmið að styrkja góða stúdenta
sem leggja stund á raunvísindanám.
Styrkjum hefur verið úthlutað
úr sjóðnum árlega frá 1984. Alls
hafa nú 64 einstaklingar fengið
styrk úr sjóðnum og er andvirði
styrkja framreiknað til núvirðis 15
milljónir króna.
Þróunarsamvinna:
Samið við Græn-
höfðaeyjar
I GÆR var undirritaður samning-
ur milli Islands og Grænhöfðaeyj-
ar um þróunarsamvinnu í sjávar-
útvegi og á öðrum sviðum.
Samningurinn gildir til ársloka
1995 og kemur í stað fyrri samninga
milli ríkjanna og þróunarsamvinnu í
sjávarútvegi. Með þessum samningi
er verið að framlengja þróunarsam-
vinnu ríkjanna, sem hefur staðið í
tíu ár og tryggja að hún taki til
fleiri þátta en fiskveiða, segir í frétt
frá utanríkisráðuneytinu.
brigði, og nýja tízkuafbrigðinu, 6.
— c5!?, sem sérfræðingarnir Gelf-
and og Nunn beita með góðum
árangri. Svartur hefur þá fengið
meira en nægar- bætur fyrir peðið
eftir 7. dxc5 — dxc5 8. Dxd8 —
Hxd8 9. Bxc5 — Rc6.
7. Bd3 - a6
Kasparov hefur tvívegis beitt
peðsfórninni 7. — e5 8. d5 — b5!?.
Hann vann mikilvæga skák af
Timman á heimsbikarmóti Stöðvar
2 1988, en tapaði fyrir Gulko í Lin-
ares í febrúar. Nú velur hann mun
rólegra afbrigði, sem virðist reynd-
ar ekki hæfa stíl hans sérlega vel.
8. Rge2 - b5 9. 0-0 - Rbd7 10.
Hcl
í skákinni Geller-Fischer, Hav-
ana 1965 lék hvítur 10. cxb5 —
axb5 11. b4 — Bb7 12. Dd2 - e5
13. Hfdl og stóð örlítið betur. Gell-
er vann skákina eftir að Fischer
hafði teflt alltof djarft.
10. — e5 11. a3 — exd4 12. Rxd4
- Bb7 13. cxb5 - cxb5!
Þar sem Karpov hefur beðið full-
lengi með að taka af skarið á drottn-
ingarvængnum, ólíkt Geller í skák-
inni við Fischer, sér Kasparov sér
leik á borði og víkur frá þeirri reglu
að drepa skuli að miðborðinu. Þetta
hefur þann kost að c peðið byrgir
ekki lengur fyrir biskupinn á b7 og
svartur hrókur á c8 getur orðið
áhrifamikill. Eftir þetta má segja
að Kasparov sé nokkuð öruggur
með jafnt tafl, það er nú einungis
tímaspursmál hvenær hann getur
leyst taflið upp með d6- d5.
14. Hel - Re5 15. Bfl - He8
16. Bf2 - d5!?
Þar sem Karpov hefur litla kröfu
gert til frumkvæðisins lá ekki á
þessu. 16. — Hc8 kom einnig til
greina.
17. exd5 — Rxd5 18. Rxd5 —
Dxd5 19. a4!
Loksins lætur Karpov vita af
• sér, eftir mjög rólega byrjun. Nú
gæti Kasparov auðvitað einfaldlega
leikið 19. — bxa4, en hann gefur
ekkert rými eftir:
19. - Bh6!? 20. Hal - Rc4 21.
axb5 — axb5 22. Hxa8 — Hxa8
23. Db3! - Bc6
Svarta liðið á drottningarvæng
myndar tígul, sem virðist ekki alltof
traustvekjandi. Næsti léikur
Karpovs er bezta tilraunin til að
reyna að fá eitthvað út úr dauf-
legri stöðunni. 24. Hdl?! er nú auð-
vitað svarað með 24. — Re3! Upp-
skipti á c6 létta líka aðeins á svörtu
stöðunni, skemmtilegt framhald
væri t.d. 24. Rxc6 — Dxc6 25. Dc2
- Ha2! 26. Dd3!? (26. De4 - Dxe4
27. Hxe4 — Ha8! leiðir til dauðs
jafnteflis) 26. — Bf8 27. b3 —
Hxf2!, sem er a.m.k. jafntefli á
svart.
24. Bd3! - Rd6!
Fórnar peði tímabundið, en
tryggir sér um leið jafntefli.
25. Dxd5 — Bxd5 26. Rxb5 —
Rxb5 27. Bxb5 - Bg7 28. b4 -
Bc3 29. Hdl - Bb3 30. Hbl -
Ba2 og hér var samið jafntefli,
enda er lítið orðið eftir til að tefla
um.