Morgunblaðið - 10.10.1990, Side 32

Morgunblaðið - 10.10.1990, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTOBER 1990 Leiðsögumaður, hvað er það? •Fyrri hluti eftírBirnu G. Bjarnleifsdóttur Þegar erlendir ferðamenn komu til íslands á fyrri öldum keyptu þeir hér mat til ferðarinnar, tóku á leigu hesta og fengu sér fylgdarmenn til að vísa sér rétta leið. Nú á tímum er notað orðið leiðsögumaður (á ensku „tourist guide“) um það fólk sem fylgir ferðamönnum um landið og útskýrir það sem fyrir augu ber. Ekki má rugla því saman við starfs- heitið fararstjóri (á ensku („tour manager“), sem notað er um fólk sem fylgir ferðamannahópum milli landa eða, svo að dæmi sé tekið, veitir íslenskum ferðamönnum fyrir- greiðslu á erlendri grund. Flest fjöl- miðlafólk ruglar þessum hugtökum saman. Ekki hefur mér tekist að fá upplýst hvenær fyrst var farið að nota starfsheitið leiðsögumaður í stað orðsins fylgdarmaður, en árið 1981 var sett reglugerð um menntun leiðsögumanna ferðafólks og þeir þar með aðgreindir frá leiðsögu- mönnum skipa, e_n um þá voru sett lög árið 1933. íslenskir leiðsögu- menn sækja nám í Leiðsöguskóla Ferðamálaráðs og fá réttindi sam- kvæmt fyrrgreindri reglugerð. Löggilt starfsheiti Orðið leiðsögumaður er einnig notað yfir aðstoðarmenn laxveiði- manna (á ensku ,,gilly“) og á síð- ustu misserum hefur borið á því í fjölmiðlum að orðið sé notað í enn víðari merkingu. Sjónvarpsfólk fór t.d. í heimsókn í afskekkta sveit og tók þar einn íbúann tali. Var hann spurður um lífsafkomu og framtíðarhorfur í sveitinni. í lok viðtalsins var íbúinn titlaður leið- sögumaður. Gerður var sjónvarps- þáttur um Landgræðslu ríkisins þar sem landgræðslustjóri útskýrði starfsemi stofnunarinnar. í upp- talningu á viðmælendum í lok þátt- arins var hann kynntur sem leiðsög- umaður. Blaðamaður fór í heimsókn að Sólheimum í Grímsnesi og heim- amaður sýndi honum framkvæmdir á staðnum. Sá var sagður vera leið- sögumaður. Mörg svipuð dæmi mætti nefna um nýja merkingu á orðinu leiðsögumaður. Leiðsögu- menn ferðafólks hafa óskað eftir því að starfsheiti þeirra verði lög- verndað og ekki notað um eða ruglað saman við önnur óskyld störf. Að baki starfsheitisins liggi próf frá Leiðsöguskólanum. Árlega sækja um fimm tugir út- lendinga um leyfí til að vinna sem leiðsögumenn á íslandi og búast má við að einhveijir vinni hér án þess að sækja um leyfi. Sumir þess- ara útlendinga ganga vel um landið og segja vel frá, en aðrir vaða um af tillitsleysi og fara oft með rang- Birna G. Bjarnleifsdóttir „Allar alvöru ferða- skrifstofur ráða ekki réttindalaust fólk til leiðsögustarfa nema í neyð.“ ar upplýsingar. Islendingar sem sjá til þeirra og heyra rangfærslurnar hafa sagt sem svo: „Að sjá frekjuna í þessum leiðsögumönnum. Og að heyra rangfærslurnar hjá þeim!“ Þeim spurningum hefur stundum verið beint til mín hvort þessar vit- leysur séu virkilega kenndar í Leið- söguskólanum. í frásögninni er ekki gerður greinarmunur á því hvort viðkomandi leiðsögumaður er rétt- indalaus útlendingur eða íslending- ur með léiðsöguréttindi. Söluvara Þegar auglýst er ferð með leið- sögumanni (á ensku „guided tour“) er verið að bjóða ákveðna söluvöru og kaupendumir/ferðamennirnir geta gert skaðabótakröfur ef „var- an“ er gölluð. Leiðsaga ferðafólks er því ábyrgðarmikið starf sm krefst sérmenntunar og mikilvægt að til starfsins sé aðeins ráðið fólk sem hefur fengið nauðsynlega fræðslu og þjálfun. Skv. kjarasamningi Félags leið- sögumanna hafa félagsmenn for- gangsrétt til leiðsögustarfa. Aðeins þeir geta orðið félagsmenn sem staðist hafa próf Leiðsöguskólans. í fyrstu voru ferðaskrifstofueigend- ur tregir til að virða forgangsrétt- arákvæðin og sögðust vilja fá að ákveða sjálfir hveija þeir réðu til vinnu við sín fyrirtæki. Furðuleg afstaða að fagna ekki aukinni menntun starfsmanna sinna. Nú hafa orðið breytingar þar á og eru meiri kröfur gerðar til leiðsögu- manna en áður, bæði hvað snertir tungumálakunnáttu og þekkingu á landinu. Allar alvöm ferðaskrifstof- ur ráða ekki réttindalaust fólk til leiðsögustarfa nema í neyð. Þegar réttindalaus aðili er ráðinn til leið- sögustarfa er hann samt sem áður kallaður leiðsögumaður og enginn greinarmunur gerður á honum og þeim sem hefur réttindi. Ef eitthvað fer úrskeiðis í ferðinni liggja allir alvöru leiðsögumenn undir ámæli. Það gerðist tvisvar sl. sumar að fjölmiðlar greindu frá því að þyrlur voru kallaður til að leita að frönsk- um ferðamönnum sem týndust í óbyggðum. í fréttum ijölmiðla var tekið fram að ferðamennirnir hefðu verið með íslenská leiðsögumenn. Hvorugur hópurinn var þó með leið- sögumenn sem hefur réttindi, en það kom ekki fram í máli frétta- manna. Það kom heldur ekki fram að annar „leiðsögumaðurinn" (sem auðvitað ætti því ekki að kalla leið- sögumann) kann ekki frönsku, en hins vegar í björgunarsveit og tilbú- inn til að ganga langar vegalengd- ir. í umræddu tilviki gekk hann einfaldlega nokkra farþega sína af sér. Að sjálfsögðu getur leiðsögu- mönnum sem hafa réttindi orðið á mistök, eins og öðrum mannlegum verum. Einnig eru til kennarar sem ekki ættu að koma nálægt kennslu, én það breytir ekki nauðsyn þess að kennarar fái ákveðna starfs- menntun. Sömu sögu er að segja um lækna, sjúkraþjálfara, presta og allar aðrar starfsstéttir. Hingað til hefur verið talið æskilegt að fólk fengi starfsmenntun. Enda þótt flestar íslenskar ferða- skrifstofur ráði fyrst og fremst rétt- indafólk til leiðsögustarfa er það staðreynd að um 25% þeirra sem fara um landið í hlutverki leiðsögu- manna eru réttindalausir einstakl- ingar, flestir erlendir, en einnig ís- lenskir. Þetta er alvarlegt mál því að leiðsagan er mikilvægt land- kynningarstarf sem fram fer á heimavelli og mikilvægt að vel sé að henni staðið ekki síður en land- kynningu erlendis. Hana má hvorki vanmeta né vannýta. Ég hef lengi bent á að hæfileika og þekkingu Macinfosh fyrir byrjendur Works - ritvinnsla, gagnasöfnun, töflureiknir og stýrikerfi á © 15 klst námskeiði fyrir byrjendur! Fáið senda námsskrá. ~ & % Tölvu- og verkfrœöiþjónustan Grensásvegi 16 - fjögur ár í forystu Múlalundur SÍMI: 62 84 50 BRÉFA- BINDIN frá Múlalundi... ... þar eru gögnin á góðum stað. jg okkar bestu leiðsögumanna mætti nýta yfir vetrartímann við land- kynningarstörf erlendis. Það eru óteljandi félög, klúbbar og alls kyns samtök sem leita með logandi ljósi að' góðu fundarefni. Okkar bestu leiðsögumenn gætu sem best boðið upp á góða fræðsludagskrá með myndasýningum og kveikt m_eð fundarmönnum hugmyndir að ís- landsferð. Með þessum orðum vil ég leggja áherslu á að leiðsögustarfið verið metið að verðleikum og að Leiðsög- uskólinn verði efldur með því að tryggja honum nauðsynlegar fjár- veitingar. Markmiðið á að vera að hér á landi sé ávallt tiltækur nægj- anlega stór hópur sérþjálfaðs fólks til að taka að sér leiðsögustörf, hvort sem um er að ræða í hótel- ferðum, gönguferðum eða fugla- skoðunarferðum, hringferðum eða ferðum um afmörkuð svæði, fólk sem hefur bæði þekkingu á efninu og næga tungumálakunnáttu til að koma þeirri þekkingu og nauðsyn- legum leiðbeiningum til skila til farþega sinna. Til þess að svo megi verða þurfa ferðamálayfirvöld að viðurkenna starfsréttindi og starfs- heiti leiðsögumanna og vinna að því að leiðsögustörf hér á landi séu fyrst og fremst í höndum íslensks réttindafólks sem hefur holtið nauð synlega sérmenntun. Höfundur er forstöðumaður Leiðsöguskólans. ------------------ Trékyllisvík: Hvatur o g Fjöln- ir í fyrsta sæti Trékyllisvík. HALDIN var hrútasýning á veg- um Búnaðarsambands Islands að Bæ í Árneshrepp laugardaginn 7. október. Alls voru sýndir 35 hrútar frá flestum bæjum í sveitinni. Tveir hrút- ar urðu efstir og jafnir með 81,5 stig, Hvatur 87548 og Fjölnir 88591. Eigandi Hvats er Ágúst Gíslason, Steinstúni, en eigandi Pjölnis er Sig- ursteinn Sveinbjörnsson, Litlu-Ávík. Á sýningunni hlaut 31 hrútur 1. verðlaun og fjórir 2. verðlaun. Af þeim sautján hrútum sem voru stiga- dæmdir fengu níu heiðursverðlaun, sjö 1. verðlaun A og einn 1. verðlaun B. Slátrun lauk hjá Kaupfélagi Norð- urijarðar föstudaginp.5. október með árvissum vatnsslag starfsmanna, en sú hefð hefur skapast hér í hreppnum að síðasta sláturdag fer enginn þurr heim. - VHansen NVR VEITINGASTADUR VITAST1G 3, SIMI623137 í kvöld 10. októberkl. 22-01 PÚLSDJASS Tómar R. Einarsson, kontrabassi Kristjón Guðmundsson, píanó Guðmundur R. Einarsson, trommur Fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld I5 ÁRA AFMÆLISHÁ TÍD JAZZVAKNINGAR Sunnudags- og mónudagskvöld Á LJÚFUM NÓTUM Þórir Baldursson leikur á flygilinn svEPPnt Heimilishorn Bergljót Ingólfsdóttir Sveppir eru hreint lostæti og hægt er að nota þá á marga vegu, þeir eru góðir sem meðlæti með kjöti eða fiski, í hrásalat og hægt er að hafa þá í sérstæða rétti. Und- anfarnar vikur hafa sveppir við og við verið seldir á tilboðsverði í mörg- um verslunum svo það hlýtur að hafa legið vel á matargerðarfólki þess vegna. En það er ekki hægt að kaupa mikið af sveppum til að geyma þá ferska, þeir hafa heldur takmarkað geymsluþol eins og kunnugt er. Þeir geymast ágætlega í frysti ef þeir eru fyrst settir í smjör á pönnu og aðeins látnir taka lit, eftir það eru þeir þó ekki nothæf- ir í hrásalat en góðir í ýmsa saman- soðna rétti. Til að lengja aðeins geymsluþol nýrra sveppa er mælt með að þeir séu ekki skolaðir úr vatni fyrir geymslu, heldur um leið og nota á. Ennfremur er talið að þeir geym- ist betur ef stilkarnir eru skornir af og settir í annan poka, en eru auðvitað nothæfir fyrir því. Niður- soðnir sveppir eru betri ef látið er síga vel af þeim soðið, síðan settir á heita pönnu með örlitlu smjöri á og lauksalti stráð yfir. Bragðið verður betra við þá meðhöndlun. Sveppir eru venjulegast hreinsað- ir úr köldu vatni en það er líka hægt að ná af þeim með því að setja gróft salt í plastpoka, stinga sveppunum í og hrista pokann hressilega. Sveppa-grænmetis „risotto“ 2’A dl hrísgijón, lengri gerðin 1 súputeningur 250 g blandað grænmeti 220 g sveppir 2 laukar 2 msk. smjör eða smjörlíki salt, pipar og steinselja Hrfsgijónin soðin á venjulegan hátt en súputeningur settur út í soðvatnið. Grænmetið tekið sundur í hæfilega hluta og snöggsoðið. Sveppirnir skornir í sneiðar og lauk- urinn skorinn smátt, brugðið í smjör á pönnu. Grænmetinu og hrísgijónunum bætt.þar á, kryddað að smekk, steinselju stráð yfir um leið og borið er fram. Sveppasósa 250 g sveppir, ferskir eða niður- skornir 1 laukur 1 msk. smjör 2 msk. hveiti 3 dl ijómi og sveppasoð salt og pipar Ef notaðir eru nýir sveppir eru Niðursoðnir sveppir settir í smjör á pönnu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.