Morgunblaðið - 10.10.1990, Síða 34

Morgunblaðið - 10.10.1990, Síða 34
I 34_______________MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1990_ Saltað, reykt o g gott - en er það hollt? eftirJón Gíslason og Halldór Runólfsson Nýlega vom birtar í vísindarit- . ínu Journal of Agricultural and Food Chemistry niðurstöður rann- sókna á nítrósamínum í íslensku hangikjöti. Nítrósamín eru- efni, sem geta myndast við framleiðslu á ýmsum matvælum, s.s. söltuðu og reyktu kjöti, reyktum fiski, bjór, ostum og þurrkuðum vörum eins og kakódufti, súpum og kryddi. Þessi efni geta einnig myndast við matreiðslu, eins og steikingu, og er beikon eitt þekktasta dæmið í því samhengi. Athygli beinist að nótrósamín- um í fæðunni þar sem vitað er að mörg efni í þessum efnaflokki geta valdið krabbameini í dýratilraun- um. í þessu sambandi má benda á '~>*að löngum hefur verið rætt um hvort hina háu tíðni magakrabba- meins hér á landi megi að ein- hverju leyti rekja til neyslu saltaðs og reykts matar. Ekki hefur verið sýnt fram á tengsl milli þessara efna í fæðu og krabbameins í mönnum, en líklegt er að tengsl geti verið milli myndunar krabba- meins og þessara efna í umhverfi okkar og þá ekki síst ef tóbak er haft í huga, þar sem nítrósamín fínnast í margfalt meira magni í tóbaki en I matvælum. Myndun nítrósamína Þau efnasambönd, sem hér eru til umfjöllunar, myndast úr nítríti og ýmsum amínum í fæðunni. Rotvarnarefnið nítrít (E 250) er notað við kjötvinnslu, þar sem ef- nið hefur áhrif á örverur og getur komið í veg fyrir alvarlega mata- reitrun, sem nefnd er botulismi. Botulismi hefur komið upp hér á landi og getur slík eitrun valdið dauðsföllum. Auk þess hefur nítrít áhrif á iit kjötvöru og er þar kom- in ástæðan fyrir rauða litnum í hangikjöti og öðrum kjötvörum, sem innihalda nítrít. Efnasambandið nítrat getur breyst í inatvælum og haft þannig áhrif á myndun nítrósamína. ís- lenskir neytendur þekkja nítrat betur undir heitinu saltpétur (E 251 og E 252) og er hann notaður í ostamjólk við framleiðslu geijaðra osta. Saltpétur, sem slíkur, hefur ekki áhrif á örverur við framleiðslu osta eða í kjötvörum og heldur ekki á lit kjötvöru. Það er breyting saltpéturs í nítrít sem hefur þessi áhrif. Af þessum sökum er saltpét- ur ekki lengur notaður í kjötiðn- aði, heldur nítrítsalt, sem er blanda af nítríti og matarsalti. Einungis er heimilt að nota nítrít í forrríT nítrítsalts, þar sem þá er minni hætta á að éfnið sé notað í magni, sem er umfram það sem leyft er. Saltpétur og nítrat Saltpétur er í raun tvö efni, sem notuð eru sem aukefni í matvælum, en þau eru natríumnítrat (E 251) og kalíumnítrat (E 252), og geta neytendur enn keypt saltpétur þeg- ar þeir vilja salta sitt kjöt sjálfir. Það nítrat, sem við neytum á þenn- an hátt, er hins vegar aðeins lítill hluti af heildarneyslu efnisins. Nítrat er nauðsynlegt efni fyrir garðávexti, þar sem þeir taka upp köfnunarefni (N) í formi nítrats (NO ). Langstærstur hluti nítrats í fæðú okkar kemur því frá græn- meti, þar sem nítrat er náttúrulegur efnisþáttur og er magn efnisins misjafnt eftir tegundum, en þó mest í vörum eins og blaðsalati, rauðrófum óg káli. Sem dæmi má nefna að blaðsalat og rauðrófur geta innihaldið fleiri þúsund milligröm af nítrati á hvert kíló, meðan mesta leyfilegT magn nítrats við ostagerð er 150 mg/kg (reiknað með kalíumnítrat). Aigeng matvæli eins og kartöflur og gulrætur inni- halda einnig meira magn þéssara efna en ostar. Af þessu er ljóst að áburðarnotkun í landbúnaði hefur áhrif á neyslu nítrats og það miklu Jón Gíslason „ Almenningi er bent á að borða fjölbreytt fæði, sem er ríkt af kornmat og garðávöxt- um, en neyta saltaðs og reykts matar í hófi.“ meiri áhrif en notkírn saltpéturs í matvælaiðnaði. Áhrif á meltingarvegi Ýmsir þættir hafa áhrif á mynd- un nítrósamína og er sýrustig einn þeirra. Sýrustig í maga er hag- stætt fyrir þau efnahvörf, sem leiða til myndunar efnanna, og þau geta því myndast í meltingarvegi eftir neyslu matvæla, hvort heldur þau innihalda nítrít eða nítrat. Bakteríur í munni breyta nítrati í nítrít og síðarnefnda efnið mynd- ast* því eftir neyslu garðávaxta. Nítrít, sem myndast á þennan hátt, breytist aftur í nítrat við efnahvörf í blóði eftir frásog og nítrat berst síðan aftur í munn með munn- Halldór Runólfsson vatni. Þannig er komin hringrás, sem getur varað í marga tíma eft- ir neyslu nítratríkra garðávaxta, og stöðug nýmyndun nítríts á sér því stað. Askorbínsýra (vítamín C), sem einnig er notuð sem aukaefni (E 300), dregur úr hættu á myndun nítrósamína í matvælum og melt- ingarvegi. Garðávextir gefa stærstan hlut C-vítamína í fæðu okkar, en auk þess er askorbínsýra algengt aukefni í fæðunni og er m.a. notuð við kjötvinnslu ásamt nítríti. Þannig.er dregið úr hættu á myndun nítrósamína. Hangikjötið í rannsóknum þeim á hangi- kjöti, sem greint var frá í inngangi þessarar greinar, var kannað inni- hald nítrósamína í vörum frá nokkrum íslenskum framleiðend- um. Fyrir tilstuðlan dr. Þóris Helgasonar læknis voru sýni af hangikjöti send til rannsókna er- lendis á árunum 1986 og 1987, og hafði Hollustuvernd ríkisins milligöngu um sýnatöku af þessu kjöti. Einnig var gerð rannsókn á taði og öðrum efnum, sem notað er við reykingu. Þess má geta að aðstaða til rannsóknar þessara .efna er ekki fyrir hendi hér á landi. Það sem var markverðast við niðurstöður rannsókna var að tiltekið nítrósamín, sem ekki hefur áður fundist í matvælum, mældist í öllum sýnum, að einu undan- skildu. Ástæða myndunar þessa efnasambands var rakin til notkun- ar taðs við reykingu, en þess ber að geta að magn annarra nítrósamína í hangikjöti var ekki frábrugðið því sem algengt er að greinist erlendis í reyktu og nítrítsöltuðu kjöti. Hér á landi er nú unnið að gerð reglugerðar um aðskotaefni í mat- vælum, en nítrósamín teljast til slíkra efna. í þessari reglugerð verður tilgreint hámarksgildi fyrir sk. rokgjörn nítrósamín, en það eru þau efni af þessum flokki, sem mest hafa verið greind í matvælum og athuguð í eiturefnafræðilegum rannsóknum. Hámarksgildi fyrir þessi efni verður að öllum líkindum 10 ppb, eða 10 partar per billjón, og er það í samræmi við alþjóðleg viðmiðunargildi fyrir þessi efni. Framangreind eining sýnir að um lítið magn efna er hér að ræða og mörkin því ströng. Niðurstöður rannsókna á hangikjöti benda til að flestir íslenskir framleiðendur framleiði í dag vörur, sem muni standast þessar kröfur. Jafnframt má út frá niðurstöðum sjá að magn efnanna getur í sumum tilvikum verið minna en nú er, Frekari rannsóknir Rannsóknir á íslensku hangi- kjöti sýndu að magn nítrósamína fór minnkandi milli áranna 1986 og 1987. Jafnframt fannst lítið sem ekkert af þessum efnum í vörum frá ákveðnum framleiðend- um. Frekari rannsóknir ber því að gera tif að finna ástæður þessa mismunar og eru slíkar rannsóknir þegar fyrirhugaðar í samvinnu framleiðenda, Rannsóknastofnun- ar landbúnaðarins og Hollustu- verndar ríkisins. Rannsóknir munu m.a. beinast að þeim aðferðum, sem notaðar eru við reykingu kjöts, þar sem vitað er að nítrósamín geta myndast án þess að nítrít sé notað við vinnsluna. Þetta getur stafað af því að orkugjafinn, sem notaður er við reykinguna, getur komið í staðinn fyrir nítrít í þeim efnabreytingum, sem leiða til myndunar nítrósamína. Orkugjaf- inn getur einnig innihaldið þau amín, sem leiða til myndunar mis- munandi nítrósamína, eins og til- vikið er með taðið, en notkun þess leiðir til myndunar efna, sem ekki hafa áður fundist í matvælum. Því hefur þegar verið haft samband við helstu framleiðendur á reyktu kjöti hér á landi og mælst til þess að notkun taðs við reykingu verði takmörkuð sem mest og reyktími með taði einnig styttur. Þess má geta að svipuð áhrif geta átt sér stað við þurrkun mat- væla og verða við reykingu. Sér- stakiega á þetta við þar sem bein eldþurrkun fer fram, til dæmis með olíu eða gasi sem orkugjafa. Af þessum ástæðum finnast nítrósamín í bjór og vískí, þegar kornið sem notað er við framleiðsl- una er þurrkað við vissar aðstæð- ur. Eldþurrkað fiskimjöl, sérstak- lega það sem unnið er úr físki, sem rotvarinn hefur verið með nítríti, getur því einnig innihaldið þessi efni. í þessu sambandi er athyglis- vert að minnast þess, að fyrsta vísbending um myndun nítrósamína vegna íblöndunar nítríts, var þegar upp kom faraldur af lifrarsjúkdómi í kindum í Nor- egi. í ljós kom að kindurnar höfðu veikst af fiskimjöli, sem framleitt var úr fiski rotvörðum með nítríti. Breytt framleiðsla Eftirlit með notkun og magni saltpéturs og nítríts í matvælum á síðustu tveimur áratugum hefur aukist og strangari reglur hafa verið settar um notkun þessara efna. Sýna rannsóknir einnig ótvír- ætt að magn þessara efna í mat- vælum hefur minnkað frá því sem áður var. Margir matvælaframleið- endur hafa breytt sinni framleiðslu og er allt sem bendir til þess, að minnst hætta á myndun nót- rósamína sé við aðstæður, þar sem hægt er að stýra framleiðsluþátt- um, s.s. reykgjöfum, hitastigi, tímalengd reykingar og notkun aukaefna. Reyking matvæla á sér langa sögu hér á landi og fyrr á öldum var þetta ein helsta aðferð Iands- manna til að tryggja að kjöt, fisk- ur og fuglar geymdust frá einu ári til annars. Var venjan að hengja kjötið upp í gömlu hlóðareldhúsun- um og þar sem eldiviður var oft af skornum skammti var einnig notað sauðatað og gamalt hey til eldunar og sem reykgjafi. Síðar meir, þegar olíu- eða rafmagn- seldavélar komu til sögunnar var farið að reykja kjötið í sérstökum kofum heima á bænum og vildu menn þá hafa sama gamla bragðið af hangikjötinu. Því var áfram notaður viður, tað og hey sem reykgjafi. Á landsbyggðinni er heimareyking algengari en í þétt- býli og reyktur matur getur verið mun oftar þar á borðum. Rétt og skylt er að benda þeim aðilum á, að draga úr reykingu og neyslu slíkra matvæla og kynna sér sem best hvernig standa skal að reykingu. Þetta gæti átt sérstak- lega við þar sem taðreyking er algeng. Krabbamein í dýratilraunum geta nítrósamln valdið mismunandi tegundum krabbameins, en hins vegar er rétt FLUGLEIDIR HIUTHAFAFUNDUR Hluthafafundur í Flugleiðum hf. verður haldinn þriðjudaginn 23. október í Höfða, Hótel Loftleiðum. Fundurinn hefst kl. 16.00. DAGSKRÁ: 1. Breyting á samþykktum félagsins. a) Tillaga um breytingu á 4. gr. samþykkta félagsins um heimild til stjórnar til að hækka hlutafé með sölu nýrra hluta til núver- andi hluthafa eða nýrra hluthafa, fáist ekki áskrift hjá núver- andi hluthöfum fyrir allri aukningunni. b) Till aga um breytingu á 5. gr. b. þess efnis, að arður skuli greiddur innan þriggja mánaða frá ákvörðun aðalfundar um arðgreiðslu. 2. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur, reikningar félagsins og skýrsla stjórnar munu liggja frammi á aðalskrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, 7 dögum fyrir hluthafafundinn. Aógöngumiöar, atkvæóaseálar og fundargögn veröa afhent á aöalskrifstofu félagsins, Reykjavíkurflugvelli, hlutabréfadeild, 2. hæö, frá og meö 16. október nk. kl. 9.00-17.00, fundardag til kl. 15.30. Stjórn Flugleióa hf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.