Morgunblaðið - 10.10.1990, Síða 35

Morgunblaðið - 10.10.1990, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTOBER 1990 35 Gídeonfélagar á Islandi afhenda 200.000. eintakið að undirstrika, að ekki hefur verið sýnt fram á að myndun nítrósamína í litlu magni í matvæl- um eða meltingarvegi hafi áhrif á krabbamein í mönnum. Nokkuð hefur verið rætt um hugsanleg tengsl magakrabbameins og neyslu saltaðs og reykts matar. Tíðni magakrabbameins hér á landi hefur lengi verið há, en þessi tegund krabbameins er nú mun sjaldgæfari en var fyrir nálægt fjórum áratugum þegar skráning krabbameina hófst. Ekki er ólík- legt að minni tíðni magakrabba- meins megi rekja til breyttra þjóð- félagshátta, esm leitt hafa til breytinga í matvælaframleiðslu og neysluvenjum fólks, um leið og breyting hefur orðið á geymsluað- ferðum og framboði matvæla. Líklegt er að nítrósamín séu nú í minna mæli í fæðu okkar en áður var, en margir aðrir þættir geta ekki síður haft áhrif til þeirra lækkunar á tíðni magakrabba- meins, sem nú er orðin. Við borðum nú minna af söltuðum og reyktum afurðum, en aukning hefur orðið í neyslu kornmatar og garðávaxta. Trefjar í fæðu hafa því aukist og er itklegur áhrifavaldur í þessu sambandi. Þá er athyglisvert að ræða um garðávexti í þessu sam- bandi og ekki síst með hliðsjón af umræðu um nítratinnihald græn- metis. Tilraunir sem gerðar hafa verið á dýrum og faraldsfræðilegar rannsóknir, þar sem könnuð er fylgni þátta í mataræði og tíðni krabbameina, benda til þess að garðávextir geti veitt vörn gegn ákveðnum tegundum krabbameins og að þessi áhrif megi rekja til innihalds þeirra af karóteni (form A-vítamíns) og C-vítamíni. Meðal annars eiga þessi áhrif við um myndun krabbameins í meltingar- vegi, s.s. vélinda og maga. Tegund- ir, sem nefndar eru í þessu sam- bandi, eru dökkt grænmeti og ýmsar káltegundir, en þessar vörur geta jafnframt innihaldið umtals- vert magn nítrats. Lokaorð Rannsóknir benda til þess að koma megi enn frekar í veg fyrir myndun nítrósamína í söltuðum og reyktum mat og verður með aukn- um rannsóknum stefnt að því markmiði. Þessi efni munu hins vegar eftir sem áður finnast í litlu magni í matvælum og öðru um- hverfi okkar og því er ekki raun- hæft að gera kröfu um að slík aðskotaefni megi ekki finnast í neysluvörum. Það er hins vegar réttmæt krafa, og skylda heilbrigð- isyfirvalda, að tryggt verði svo sem kostur er, að efnum þessum sé haldið innan þeirra marka sem mögulegt er og reglur munu segja til um. Almenningi er bent á að borða fjölbreytt fæði, sem er ríkt af korn- mat og garðávöxtum, en neyta saltaðs og reykts matar í hófi. Gamla spakmælið „allt er best í hófi“ á við hér sem annars staðar og getur því einnig átt við nítratríkt grænmeti eins og blað- salat, spínat og rauðrófur. Mat- reiðsla getur einnig haft áhrif. Vð steikingu á beikoni myndast nítrósamín og því meira, sem hita- stigið við steikingu er hærra og steikingartími lengri. Má benda á að betra er að steikja beikon í ör- bylgjuofni, en á hefðbundinn hátt á pönnunni. Ekki er hægt að ljúka þessum skrifum án þess að nefna eina helstu uppsprettu nítrósamína í umhverfi okkar, en það er tóbak af ýmsu tagi, og veldur notkun munn- og neftóbaks ekki síður áhyggjum í þessum efnum en reykingar. Styrkur nítrósamína í tóbakí er margfalt meiri en sem mælist í matvælum og þeir sem reykja eða verða fyrir tóbaksreyk innbyrða því meira af þessum efn- um en aðrir. Allt bendir því til þess að mestum árangri í þessum efnum megi ná með fræðslu og áróðri gegn tóbaksnotkun. Höfundar eru starfsmenn Hollustu verndar ríkisins. eftir Sigurbjörn Þorkelsson Um þessar mundir munu Gíde- onfélagar á íslandi vera að af- henda 200.000. eintakið af Bibl- íunni eða Nýja testamentinu. Gídeonfélagið á íslandi, sem er 45 ára á þessu ári, hóf að 'koma Biblíum eða Nýja testamentum fyrir á hótelherbergjum, við sjúkrarúm og víðar fjórum árum eftir stofnun félagsins. Flestir íslendingar 10-48 ára hafa fengið Nýja testamentið að gjöf frá félaginu. Það var svo árið 1954 að farið var að gefa öllum 12 ára börnum í landinu Nyja testamentið. Síðan þá hefur aldurinn verið færður niður í 10 ár að beiðni skólayfir- valda. Á hverju hausti eru allir grunn- skólar landsins, um 190 að tölu, heimsóttir og öllum 10 ára börnum gefið eintak af Guðs Heilaga orði. Það ættu því flestir íslendingar á aldrinum 10-48 ára að hafa fengið Nýja testamentið að gjöf frá félag- inu. Um 160.000 eintök hafa farið til skólabarnanna og um 40.000 eintök á aðra staði. Markmið Markmið Gídeonfélagsins er að ávinna menn til trúar á Frelsarann Jesú Krist. Félagið er ekkert ann- Spaðaviftur - borðviftur - bað-. herbergisviftur - gróðurskála- viftur - röraviftur - iðnaðarviftur - fjósviftur Hagstætt verð. Einar Farestvett&Co.hf. BORGARTÚNI28, SÍMI622901. að en framlengdur armur hinnar Kristnu kirkju. Það nær með starfi sínu til fólks sem e.t.v. aldrei kem- ur til kirkju eða á aðra þá staði þar sem Guðs orð er boðað. Gídeonfélagið, alþjóðasamtök Gídeonfélagið er alþjóðasamtök. Félagið starfar nú í 149 löndum og er því án efa eitthvert öflug- asta starfstæki nútímans til að koma fagnaðarerindinu um Jesú Krist á framfæri á meðal manna. Gídeonfélagar eru sjálfboðalið- ar, sem starfa við misjafnar að- stæður í hinum ýmsu löndum. Fjárhagsáætlun Biblíusjóðs al- þjóðasamtakanna er um tveir og hálfur milljarður íslenskra króna á þessu starfsári, en Gídeonfélagar á islandi senda 25% af því sem safnast í Biblíusjóð Gídeonfélaga hér á landi í þennan alþjóða Biblíu- sjóð, en hann stendur fyrir kostn- aði á dreifingu orðsins á meðal þeirra Gídeonlanda sem ekki geta fjármagnað sína dreifingu sjálfír nema að hluta. Hjálp þín Þú getur orðið að miklu iiði. Starf Gídeonfélagsins gengur ekki án stöðugrar fyrirbænar. Þú getur beðið fyrir starfi félagsins, að sem flestir mættu eignast lifandi sam- félag við Frelsarann Jesú Krist fyrir lestur Biblíunnar eða Nyja testamentisins. Takið eftir að Nýja testamenti Gídeonfélagsins eru nú til á yfir 60 tungumálum. Eins og fyrr kemur fram í þess- ari grein þá er fjárhagsáætlun al- þjóða Biblíusjóðs Gídeonfélagsins um tveir og hálfur milljarður íslenskra króna. Því mikilvæga markmiði verður ekki náð nema með hjálp velviljaðra manna, til að hægt sé að afgreiða pantanir sem liggja fyrir þá þurfa margir að leggja sitt af mörkum. Gjafir í Biblíusjóðinn eru því vel þegnar. Takið eftir að Biblíusjóður Gídeon- félaganna stendur eingöngu fyrir kaupum á Biblíum og Nýja testa- mentum til dreifingar, það eru síðan aðrir sjóðir fráskildir Biblíu- sjóðnum sem standa undir öðrum rekstri starfsins. „Verið staðfastir í bæninni. Vakið og biðjið með þakkargjörð. Biðjið jafnframt fyrir oss, að Guð opni oss dyr fyrir orðið, svo vér getum boðað leyndardóm Krists.“ Kól. 4:2-3. Kristnu Islendingar. Biðjið fyrir Sigurbjörn Þorkelsson „Gídeonfélagar eru sjálfboðaliðar, sem starfa við misjafnar aðstæður í hinum ýmsu löndum.“ starfi Gídeonfélagsins í 149 lönd- um. Höfundur er framkvæmdastjóri Gídeonfélagsins á íslandi. ELFA vifturf úrvalil GUR OPNAR LAUGARDAGINN 13.0KT0BER með stórsýningunni: GENGUR LAUST TRÍÓ í 25 ÁR arsonar runum ásamt stórhljómsveit sem leikur fyrir dansi eftir sýni Eyjólfi Kristjánssyni og Stórkostleg sýning - Glæsile Skemmtistaðurá heimsmæ Miðaverðkr. 3.900,-. Borðapantanirísím 111II Y\M I I SÍMI77SOO í MICDD G

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.