Morgunblaðið - 10.10.1990, Side 38

Morgunblaðið - 10.10.1990, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1990 Móðir okkar, t ELÍSABET ÁRNADÓTTIR, Aragötu 15, er látin. Árni Óskarsson, Helga Pálmadóttir. Móðir mín. t RAGNHILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR frá Iðu, síðast til heimilis í Hveragerði, er látin. Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 13. október kl. 14.00. Guðmundur Einarsson. t Minningarathöfn um móður okkar og tengdamóður, HÓLMFRÍÐI RÖGNVALDSDÓTTUR, fer fram í Fossvogskirkju fimmtudaginn 11. október kl. 13.30. Jarðsett verður frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 13. október kl. 14.00. Guðrún Pálsdóttir, Finnur Kolbeinsson, Erlendur Pálsson, Hamely Bjarnason, Guðbjörg Pálsdóttir, Anna Pála Guðmundsdóttir. Kristínn Guðjónsson forsljóri - Minning Kveðja frá Húsfélagi iðnaðarins Fráfall Kristins Guðjónssonar kom ekki á óvart. Hann hafði ekki gengið heill til skógar um nokkurt skeið og þótt hann hefði borið sjúk- dóm sinn af æðruleysi máttu allir vita að hvetju stefndi. Kristinn var ötull baráttumaður íslensks iðnaðar. Hann var einn af frumkvöðlunum, sem af eljusemi og framsýni settu á stofn iðnfyrir- tæki við erfiðar aðstæður og gáfu sig hvergi þótt oft blési á móti. Hann var Iengi í forystusveit Félags íslenskra iðnrekenda og varafor- maður félagsins um langt skeið. Á þeim vettvangi og með lífsstarfi sínu vann hann af mikilli atorku að þeirri hugsjón sinni að ryðja iðn- aði braut sem einum af aðal at- vinnuvegum þjóðarinnar. Hann var ekki alltaf sammála öðrum um með hvaða hætti það skyldi gert, en sá sem þessar línur ritar er í góðri aðstöðu til að vita með vissu, að hann vann bæði iðnaðinum og sam- tökum hans ómælanlegt gagn með hreinskiptinni og drengilegri fram- göngu sinni í þeim málefnum, sem hann taldi iðnaðinum til góðs. Eftir að Félag íslenskra iðnrek- enda gerðist aðili að Húsfélagi iðn- aðarins varð Kristinn fulltrúi þess í stjóm húsfélagsins. Sami áhuginn og athafnasemin settu svip sinn á störf hans þar eins og í öðram störf- um fyrir iðnaðinn. Naut hann enda svo mikils trausts, að hann var varaformaður framkvæmdastjómar húsfélagsins allar götur frá því að hann tók sæti í stjórninni og til dauðadags. Á þessum tíma voru viðfangsefni stjórnarinnar lengst af mjög víðfeðm. Að sameina krafta fjölmargra félaga og einstaklinga til byggingar samastaðar fyrir öll samtök í iðnaði, eins og markmiðið var þá, var ekki auðvelt á verð- bólgutímum. Oft var á brattan að sækja og ósjaldan þurfti miklar for- tölur, bæði inn á við gagnvart fé- lagsmönnum og út á við gagnvart ýmsum stofnunum, sem gátu haft úrslitaáhrif á hvort markmiðið næðist. í þeim ólgusjó kom sér vel að hafa innanborðs skelegga at- hafnamenn, sem kunnu til verka bæði á framkvæmda- og fjármála- sviði. í félagsmálum era hreinskilni og trúmennska höfuðkosöir. Hvoru- tveggja hafði Kristinn í ríkum mæli. Hann flutti mál sitt umbúða- laust og engum þurfti að dyljast hveijar skoðanir hann hafði á þeim málefnum, sem til umfjöllunar vora. En alltaf var stutt í glettni og mann- lega þætti. Þessir eiginleikar era ekki víst nauðsynlegir þegar í hlut á félagsskapur á borð við Húsfélag iðnaðarins. Stjórn húsfélagsins þakkar Kristni af alhug fyrir þýð- ingarmikil störf hans í þágu félags- ins og sendir eftirlifandi eiginkonu hans og fjölskyldu einlægar samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning Kristins Guð- jónssonar. Þórleifur Jónsson t AIMNA SVEINSDÓTTIR, fyrrum prestsfrú á Kirkjubæ í Hróarstungu, veröur kvödd frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. október kl.10.30. Vaka Sigurjónsdóttir, Máni Sigurjónsson, Frosti Sigurjónsson, Fjalarr Sigurjónsson, Bergþór Sigurðsson, Kristín I. Tómasdóttir, Guðrún Valgarðsdóttir, Beta Einarsdóttir, Sigríöur Helgadóttir, börn og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall elsku- legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR VERNHARÐSDÓTTUR, Laugarvegi 5, Siglufirði. Kristín Anna Bjarkadóttir, Hafsteinn Sigurðsson, Sveininna Ásta Bjarkadóttir, Hjálmar Guðmundsson, Brynhildur Dröfn Bjarkadóttir, Hreinn Þorgilsson, Árni Eyþór Bjarkason, Fríða Eyjólfsdóttir, Laufey Bjarkadóttir, Karl Björnsson, barnabörn og barnabarnabarn. t Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Hringbraut 52, Reykjavík, lést að kvöldi 28. september 1990 á Borgarspítalanum. Jarðsett var í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum innilega auðsýnda samúð. Amelía Magnúsdóttir, Jóhannes Þorsteinsson, Kolbrún Magnúsdóttir, Sveinn Gfslason, Sigríður Guðbjörg Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir sendum við öllum, er sýndu okkur samúð og vin- áttu við andlát og útför elsku móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURRÓSAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Guðnabæ. Akranesi, Guðríður Jónsdóttir, Guðmundur Jónsson, Kristfn Jónsdóttir, Hildur Jónsdóttir, Valur Jónsson, Guðrún Jónsdóttir, Pétur El/sson, Ingunn ívarsdóttir, Allan Sveinbjörnsson, Valmundur Eggertsson, Elín Þóra Geirsdóttir, Davíð Aðalsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Þórður Bogason frá Flatey - Minning Ég ætla még ekki að rekja ævi- feril Þórðar Bogasonar, það vona ég að aðrir kunnugri geri. En það hefur leitað mjög á huga minn síðustu daga fyrstu kynni mín af Þórði, sem sýndu mér svo glöggt hvern mann hann hafði að geyma. Hann gerði mér þá svo stóran greiða að mér hefur alla tíð fundist ég standa í þakkarskuld við hann. Við Þórður vorum sveitungar í uppvexti en vegna aldursmunar og aðstæðna í okkar heimabyggð þá kynntist ég honum ekki meðan ég var að alast upp, hann var farinn suður eins og fleiri fulltíða menn. Nú langar mig til að segja sjó- ferðasögu eins og breiðfirskra „sæ- garpa“ er siður, en þá kynntist ég mannkostum Þórðar. Það var sumarið 1958, ég var á leið vestur í eyjar að vitja átthag- anna í fyrsta sinn eftir að ég fór alfarin að heiman. Með í för var framburðurinn, 5 mánaða stelpukríli að fara sína fýrstu sjó- ferð. Það var auðvitað fyrsta hugs- un þegar komið var yfir Kerlingar- skarð og sá yfir Breiðafjörð, að aðgæta hvort það væri gott eða slæmt í sjóinn. Ég kveið svo sem engu því „Baldur" biði við bryggj- una og af gamalli reynslu vissi ég að Kristján kokkur var enginn við- vaningur í að hlynna að farþegum og aðstoða konur með börn. En það varð annað upp á teningnum í þeta sinn. Af einhveijum ástæðum var „Baldur" ekki á sínum stað, heldur var þar kominn gamall litli „Konr- áð“ úr Flatey, sem ég vissi að var ekki fýsilegt farþegaskip þegar hér t Systursonur minn, EINAR K. MARKÚSSON píanóleikari og kennari, lést 5. október. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd vina og vandamanna, Davið Ólafsson, Hvítárvöllum. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki era tek- in til birtingar framort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til- vitnanir í ljóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar era birtar af- mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk.sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. var komið sögu. Illa lagðist því sjó- ferðin í mig, enda kom það á dag- inn. Þó að veðrið væri gott á bryggj- unni í Hólminum, þá var bullandi vestanundiralda í flóanum og eins gott að farþegar vora fáir. Raunar man ég ekki eftir öðrum en okkur mæðgum og Þórði Bogasyni sem kom eins og bjargvættur okkur til hjálpar, því fljótlega eftir að komið var út úr höfninni varð ég aldeilis ófær um að sinna barni vegna sjó- veiki og leist mér nú hreint ekki á blikuna þar sem ferðin tæki á þriðja klukkutíma og lætin rétt að byija. Þarna tók Þórður við móðurhlut- verkinu eins og ekkert væri eðli- legra og henni dóttur minni leið svo vel í fangi hans alla leið, hún lagði allt sitt traust á þennan svipgóða, fríða mann, sem hún hafði aldrei hitt áður, enda hefur hún séð að móðir hennar var ekki upp á marga fiska þá stundina. Ég efast um að Þórður hafi sjálf- ur reynt svona sjóveiki, en mikinn skilning og hjálpsemi sýndi hann mér. Frá þessum degi hef ég litið á Þórð sem vin minn og velgjörðar- mann, sem ég gæti aldrei nógu vel þakkað fyrir góðverkið. Síðan höfum við oft hist, ýmist á fögrum sumardögum í Flatey eða á haustfagnaði okkar eyjamanna, sem hann ásamt fleiram brottflutt- um Flateyingum hefur undirbúið og gert að ógleymanlegum manna- mótum. Með þessum línum langaði mig að kveðja Þórð og óska honum guðs blessunar. Fjölskyldu hans og ástvinum öllum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. María S. Gísladóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.