Morgunblaðið - 14.11.1990, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 14.11.1990, Qupperneq 1
56 SIÐUR B jrcjuiitfiIðfrUk STOFNAÐ 1913 259. tbl. 78. árg. MIÐVIKUDAGUR 14. NOVEMBER 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Landgönguæfing ráðgerð við Kúvæt Nikosíu, Washington. Reuter, dpa. SKÝRT var frá því í gær að land- gönguliðar í bandaríska flotanum tækju á næstunni þátt í æfingu skammt frá Kúvæt og einn af valdamestu þingmönnum repú- blikana lagði til að Bandaríkja- þing kæini sainan til að ræða Tékkóslóvakía: Klofningi rík- isins afstýrt Prag. Reuter. Stjórnmálaleiðtogum í Tékkó- slóvakíu tókst í gær að ná sam- komulagi um mál, sem talið var geta leitt til þess að ríkið klofn- aði. Forsætisráðherrar beggja sambandsríkjanna, Tékkneska lýðveldisins og Slóvakíu, höfðu krafist þess að þau fengju meira ákvörðunarvald í eigin málum, en Marian Calfa, forsætisráðherra sambandsríkisins, heimtaði að sambandstjórnin réði í grundvall- aratriðum efnahagsmálum auk utanríkis- og varnarmála. Calfa kallaði saman fund leiðtoga sambandsríkjanna og stjórnvalda í Prag í gær til að reyna að finna málamiðlun, en Slóvakar höfðu kraf- ist þess að fundin yrði lausn fyrir áramót. Þeir komust þar að sam- komulagi um drög að frumvarpi varðandi dreifingu ákvörðunarvalds- ins, sem leggja verður fyrir þing landsins fyrir 20. nóvember. Vaclav Havel forseti hefur reynt að stemma stigu við ágreiningi milli þjóðarbrota, en studdi sjónarmið Calfa og sagði að umheimurinn myndi ekki geta tekið ríkið alvarlega nema sambandsstjórnin hefði mikil völd. Vaclav Klaus fjármálaráðherra barðist einnig ákaft gegn því að hvert sambandsríki fengi að setja á stofn eigin seðlabanka og skattakerfi án miðstýringar frá Prag. Sjónarmið hans urðu ofan á. Sjá ennfremur erlendan vett- vang á bls. 22. hugsanlega stríðsyfirlýsingu á hendur írökum. Um 2.000 landgönguliðar taka þátt í æfingunni, að því er embættis- menn í Washington skýrðu frá í gær. Bandaríska dagblaðið Was- hington Times sagði að landgangan yrði æfð í apeins 15 km ijarlægð frá Kúvæt og írakar gætu litið á hana sem ögrun. Bandaríska varnarmála- ráðuneytið vísaði þessu þó á bug. Frá Washington bárust einnig þær fréttir að þingmaðurinn Richard Lugar, fyrrverandi formaður ut- anríkisnefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings, hefði hvatt George Bush Bandaríkjaforseta til að kalla þingið saman til að ræða hvort lýsa bæri formlega yfir stríði á hendur írokum. írösk stjórnvöld gáfu til kynna að þau hefðu hug á að ganga til samningaviðræðna um lausn Persa- flóadeilunnar. Saddam Hussein ír- aksforseti kynni að taka þátt í hugs- anlegum fundi leiðtoga Arababanda- lagsins ef tekið yrði tillit til óska íraka um hvaða mál yrðu þar til umræðu. Leiðtogar Egyptalands, Saudi-Arabíu og fleiri arabaríkja voru varir um sig þar sem þeir vildu tryggja að slíkur fundur leiddi ekki til þess_ að bandalagið léti undan kröfum íraka til að komast hjá stríði. Reuter Bændur mótmæla í Genf Þúsundir reiðra bænda frá aðildarríkjum Evrópu- bandalagsins (EB) söfnuðust saman í Genf í gær til að mótmæla niðurskurði á landbúnaðarstyrkjum sem verið er að semja um í GATT-viðræðunum um tolla og viðskiptamál. Bændurnir brutust í gegnum járnhlið við innganginn að höfuðstöðvum GATT en óeirðalögreglan kom í veg fyrir að þeir kæmust inn í bygginguna. „GATT merkir dauði bænda,“ mátti meðal annars lesa á mótmælaspjöld- unum. Jeltsín segist fá fulltrúa í sovésku ríkisstjóriiinni Moskvu. Reuter. BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, sagði í gær að Míkhaíl Gorb- atsjov, forseti Sovétríkjanna, hefði í grundvallaratriðum fallist á að mynda nokkurs konar þjóð- stjórn, m.a. með þátttöku fulltrúa Rússlands. Lagði Jeltsín þetta til á fundi forsetanna á sunnudag sem boðaður var til að leysa deil- ur um skiptingu valds milli mið- stjórnarvaldsins í Moskvu og Sov- étlýðveldisins Rússlands. Jeltsín ávarpaði rússneska þingið í gær og sagðist hafa rætt þetta efni við Gorbatsjov í fimm klukku- stundir. Sagðist hann hafa lagt til að mynduð yrði nokkurs konar þjóð- stjórn og hefði samkomulag orðið Howe gagnrýnir Thatcher harðlega á breska þinginu Lundúnum. Reuter. SIR Geoffrey Howe, sem sagði nýlega af sér embætti aðstoðarfor- sætisráðherra í bresku stjórninni, fór í gær hörðum orðum um Margaret Thatcher forsætisráðherra og sagði að aðrir félagar í íhaldsflokknum ættu einnig að endurskoða stuðning sinn við hana. Ræðan er talin auka mjög líkurnar á mótframboði gegn Thatcher í komandi leiðtogakosningum íhaldsflokksins. „Nú er tími til kominn að aðrir íhugi hvernig bregðast skuli við ágreininginum um hvort halda eigi tryggð við Thatcher ... hvað sjálf- an mig varðar tók það mig ef til vill of langan tíma að gera upp hug minn,“ sagði Howe í nítján mínútna ræðu sem hann flutti á breska þinginu til að útskýra ástæður afsagnar sinnar. Howe sagði af sér 1. nóvember til að mótmæla andstöðu Thatcher við frekari sameiningu ríkja Evr- ópubandalagsins (EB), einkum við tillögur um evrópskt myntbanda- lag. Hann sagði stefnu hennar í Evrópumálunum sorglega. „Svo virðist sem hún sé sífellt á varð- bergi gagnvart meginlandinu og sjái aðeins urmul af illkvittnu fólki. Hvers konar sýn er það?“ bætti hann við. Thatcher hlýddi svip- brigðalaus og þögul á ræðuna. Howe sagði að Bretum stafaði ekki hætta af evrópska mynt- bandalaginu heldur af einangrun frá hinum EB-ríkjunum ellefu sem Sir Geoffrey Howe Reuter' stefndu að sameinaðri Evrópu. Hann kvað hættu á að afstaða Thatcher skaðaði framtíðarhags- muni Breta og vísaði til eins af virtustu leiðtogum flokksins, Winstons Churchilis, forsætisráð- herra í seinni heimsstyijöldinni, sem hann sagði hafa verið hlynntr an sameiningu Evrópu. Kosið verður um leiðtoga íhaldsflokksins á þriðjudag og tal- ið er að ræða Howes verði til þess að mótframboð komi gegn Thatch- er. Sigurvegari kosninganna verð- ur forsætisráðherra. Stuðningsmenn Michaels Hes- eltines, fyrrum varnarmálaráð- herra, töldu að hann myndi ákveða í dag hvort hann byði sig fram gegn Thatcher. um það. „Ég vildi ekki fara fram á mörg ráðherraembætti áður en ég ráðfærði mig við ykkur,“ sagði Jeltsín. „En ég sagðist óska þess að fá embætti forsætisráðherra, flár- málaráðherra og varnarmálaráð- herra.“ Við þessi orð Jeltsíns brut- ust út hlátur og fagnaðarlæti í þing- salnum, enda skildist mönnum að Jeltsín væri ekki fyllsta alvara. Jeltsín sagðist ennfremur hafa gagnrýnt Gorbatsjov fyrir að hafa ekki viðurkennt fullveldisyfirlýsingu Rússlands en reyna þess í stað að stjórna með tilskipunum. Sjálfur vísaði hann þeirri gagnrýni á bug að hann vildi leggja Sovétríkin í rúst, sér væri einungis annt um að verkaskiptingin milli Sovétstjórnar- innar og rússnesku stjórnarinnar yrði skýr. Það varð ekki ráðið af orðum Jeltsíns í livaða formi þjóðstjórnin yrði en aðstoðarmenn hans segja að önnur Sovétlýðveldi en Rússland fái þar einnig fulltrúa. Ekki hafa heyrst nein viðbrögð úr öðrum áttum við hugmyndum Jeltsíns. Vítalíj Ignatenko, talsmað- ur forsetans, sagðist i gær ekki hafa heyrt um þjóðstjórnarhugmyndina, enda væri sér ekki kunnugt um smáatriði varðandi fund forsetanna tveggja. Jeltsín hefur ítrekað krafist afsagnar Níkolajs Ryzhkovs, forsæt- isráðherra Sovétríkjanna, og sakað hann utn að torvelda þróun Rúss- lands í átt til markaðshagkerfis. Stjórnmálaskýrendur sögðust í gær telja ólíklegt að Gorbatsjov væri reiðubúinn að fórna Ryzhkov.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.