Morgunblaðið - 14.11.1990, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.11.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NOVEMBER 1990 19 Athugasemd um bókastefnu o g skáld eftirJakob S. Jónsson Á ferðalagi í Danmörku kemst ég fyrir tilviljun í Morgunblaðið frá 31. október sl. og les þar stutta ádrepu eftir Jón Oskar, rithöfund, þar sem hann finnur — með réttu — að því, að hið ágæta skáld, Jón úr Vör, var ekki meðal þeirra íslensku rithöfunda, sem hampað var á nýlega afstaðinni bókastefnu í Gautaborg. Jón Óskar biður um að „réttir aðilar“ svari og skýri frá því hvers vegna Jón úr Vör var hafður útundan. Get ég að vísu ekki talist vera sá „rétti aðili“ þótt ég hafi átt dálítinn þátt í að kynna höfunda á bókastefnu; það er af annarri ástæðu, sem ég legg orð í belg. Þannig vill til, að ég lagði fyrir nokkru þá hugmynd fyrir sænska Þjóðleikhúsið, Dramaten, og nor- rænu menningarmiðstöðina Háss- elby slott, að standa fyrir dagskrá með íslenskum ljóðum. Aðdragand- inn var sá, að þessar stofnanir tvær höfðu staðið fyrir dagskrám með ljóðum frá Danmörku, Noregi og Finnlandi. Þær dagskrár voru liður í röð ljóðadagskráa, sem Dramaten hefur staðið fyrir um langt árabil í forsvari leikkonunnar Barbro Hiort af Ornás, og var talsvert meira lagt í þessar norrænu dag- skrár en venjan er. En mér þótti ljóður á annars góðu framtaki að vantaði íslensk ljóð og hafði orð á því. Árangurinn varð sá, að ég var beðinn um að taka saman íslenska ljóðadagskrá og var henni umsvifa- laust bætt inn í þá röð norrænna ljóðadagskráa sem fyrir var. Ég tók saman sjötíu ljóð eftir þekkt og óþekkt íslensk ljóðskáld. Sjálfsagt má benda á að margt gott skáldið vanti, en einhvers stað- ar verður að setja mörk, og úrvalið var gert í tvennum tilgangi; annars vegar var ætlun mín að þeir leikar- ar, sem fram kæmu, veldu sér til lestrar þau ljóð sem þeim líkaði; hins vegar var það von mfn, að þau ljóð, sem ekki yrðu valin í hina endanlega dagskrá, gætu samt orð- ið flytjendum til halds og trausts — gefið þeim mynd af gróskumikilli og vandaðri ljóðmenningu á ís- landi, sem oýttist þeim við flutning dagskrárinnar. Eitt skáldanna, sem var að sjálf- sögðu að finna í áðurnefndu úrvali, var Jón úr Vör, og þar er ég kom- inn að eiginlegu erindi þessarar hugleiðingar: Flytjendur íslensku Ijóðadag- skrárinnar voru, auk Barbro Hiort af Ornás, leikararnir Palle Grand- intsky, Bergljót Árnadóttir og Hjalti Rögnvaldsson. Bergljót hefur sem kunnugt er starfað sem leikari í Svíþjóð frá því hún lauk námi, en Hjalti var fenginn sérstaklega frá Rogaland teater í Stavanger í Nor- egi, þar sem hann hefur starfað undanfarin ár. Palle Grandintsky er velþekktur leikari og fyrrum leik- hússtjóri í Svíþjóð — og hann tók sérstöku ástfóstri við ljóð Jóns úr Vör og las þau á dagskránni ásamt stuttri sögu eftir sænska skáldið Jan Fridegárd, sem honum þótti eiga heima við hlið Jóns. Þannig skipaði Jón úr Vör eins konar heið- urssess í dagskránni, sem var ákaf- lega ánægjulegt, ásamt Hannesi Péturssyni, Þorsteini frá Hamri, Ingibjörgu Haraldsdóttur, Sigfúsi Daðasyni, Þórarni Eldjárn — já, lengi mætti telja enn. Þótt ég taki hiklaust undir orð Jóns Óskars, að Jón úr Vör hafi ómaklega „gleymst" á bókastefn- unni — og lenti þar reyndar á bekk með mörgum góðum íslenskum skáldum: Stefáni Herði Grímssyni, sem einnig var gefinn út á sænsku fyrir skemmstu, ungu skáldunum Gyrði Elíassyni, ísak Harðarsyni og Sjón, svo fáir einir séu taldir — þá vil ég með þessu skrifi benda á, að bókastefna í Gautaborg ein og sér sker ekki úr um þá virðing, sem íslerisku skáldi er sýnd í Svíþjóð. Á bókastefnunni var marg- ur höfundur maklega kallaður, en týndist kannski í ysnum og þysnum, og við því verður lítt gert. En sá áhorfendaskari, sem hlýddi á „Þannig skipaði Jón úr Vör eins konar heiðurs- sess í dagskránni, sem var ákaflega ánægju- legt.“ íslensk ljóð viku síðar á Dramaten og í Hásselby slott í ágætum flutn- ingi leikaranna (og heyrðu og sáu Margaretu Byström flytja upphafs- kafla Völuspár ásamt songvara og dansara) tók eftir ljóðunum og kunni vel að meta — þótt minna færi kannski fyrir þeirri uppákomu en bókastefnunni, sem von er. Höfundur er leikhúsfræðingur og leikstjóri, búsettur i Stokkhólmi. Jakob S. Jónsson HELSTU SÖLUSTAÐIR: Amaro, Akureyri • Embla, Hafnarfírði • Fell, Mosfellsbæ • H. bú&in, Garöabæ • Kaupsta&ur í Mjódd • KF.Þ. Húsavík • KF.VH. Hvammstanga • KF.H. Egilsstöðum • Mikligar&ur v. Sund <t Perla, Akranesi • Rut, Glæsibæ/Kópavogi • Vöruhús KÁ, Selfossi Schiesser^ Er Macintosh eyland ? Ráðstefna um tölvutengingar í Veltubæ, (gamla Tónabíói), Skipholti 33, Rvk. 15. nóvember 1990, K1 13:10 Ávarp ráðstefnustjóra Jóhann Pétur Malmquist professor. 13 20 Madntosh í netumhverfi (LocalTalk, Ethernet, Tókahringur, Novelltengingar og MS-DOS) Fyrirlesari: Jón Georg Aðalsteinsson, tölvunarfræðingur hjá Apple-umboðinu. 14:00 Macintosh í AS/400- og System 36-umhverfi Fyrirlesari: Gunnbjörn Marinósson, tölvunarfræðingur hjá Reykjavíkurhöfn. 14:25 Macintosh í 370-umhverfi Fyrirlesari: Bjarni Birgisson, foistöðumaður Upplýsingamiðstöðvar Reiknistofu bankanna. 14:50 Ráðstefiiuhlé Kaffi og meðlæti 15:10 Macintosh í Unix-umhverfi Fyrirlesari: Kjartan Guðmundsson, tölvunarfræðingur hjá Reiknistofnun H.í. 15:35 Macintosh í Client Server-umhverfi (Data Access Language, Oracle.) Fyrirlesari: Viktor B. Kjartansson, tölvunarfræðingur hjá Hagstofu íslands. l6:00 Apple's strategy in Networking Fyrirlesari: Peder Bjoriiolm, hjá Apple í Danmörku. (Fyrirlesturinn verður á ensku.) 16:40 Pallborðsumræður 17:00 Ráðstefnulok Aðgangur er ókeypis. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku hjá Apple-umboðinu, Skipholti 21, Rvk. fyrir kl. 18:00 í dag, miðvikudag, í síma: 91-624800.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.