Morgunblaðið - 14.11.1990, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1990
Nýr húsbréfaflokkur með 6% vöxtum:
Afföll á húsbréfum
niður undir 10%
RÍKISSTJÓRNIN féllst í gær á tillögu húsnæðismálastjórnar um að
gefinn verði út nýr flokkur húsbréfa með 6% vöxtum, í stað 5,75%
vaxta eins og verið hefur. I umsögn Seðlabanka var lagt til að vextir
yrðu 6,5%. Þá samþykkti ríkisstjórnin að heildarupphæð nýs flokks
verði þrír milljarðar króna. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra segir vaxtahækkunina þýða að afföll af bréfunum mninnki,
fari niður undir 10%. Hún segir greiðslubyrði aukast um 1.800 krónur
á ári fyrir hverja milljón króna láns.
Jóhanna segir, að alla tíð hafi Hún segir þessa breytingu hækka
verið litið svo á að húsbréfin ættu greiðslubyrði lántakenda um 1.800
MorgunblaOið/Þorkell
að hafa sömu stöðu og spariskírteini
ríkissjóðs, sem bera hærri vexti.
„Eins er ljóst að ávöxtunarkrafan
hefur farið nokkuð upp að því er
varðar húsbréfín. Þessi tillaga mun
minnka afföllin af húsbréfunum og
hækka gengið á þeim og gæti líka
komið í veg fyrir að íbúðaverð hækki
í kjölfar hækkunar á ávöxtunarkröfu
Landsbréfa. Enn sem komið er hafa
kaupendur ekki þurft að bera afföllin
í hærra íbúðarverði, en þegar afföllin
voru komin upp í 11,7% gat það leitt
til þess. Núna munu afföllin minnka
og fara niður undir 10% með þessari
leið,“ segir Jóhanna.
VEÐUR
krónur fyrir hveija milljón króna láns
á ári og um 5.800 krónur á ári mið-
að við meðal húsbréfalán, sem er 2,2
milljónir. „Þetta eru töluvert lægri
vextir heldur en almennt gerist á
markaðnum. Raunvextir af verð-
tryggðum skuldabréfum hjá bönkum
eru allt upp í 9,5%, meðaltal á raun-
vöxtum hjá bönkum er núna 8,2%
og lífeyrissjóðirnir eru með 7-8%
vexti, þannig að þetta er enn veru-
lega undir því og stór hluti af lántak-
endum mun fá þetta bætt upp í
vaxtabótum, fólk sem er með lágar
og meðaltekjur," segir Jóhanna Sig-
urðardóttir.
Olíutankarnir í Örfirisey.
Bætt aðstaða til lestunar og losunar olíu:
Viðlegukantur fyrir olíuskip
er besta en dýrasta lausnin
- segir hafnarstjórinn í Reykjavík
NOKKUR hundruð milljónir
króna kostar að gera viðlegukant
fyrir oliuskip, sem þau gætu
lagst upp að við dælingu olíu og
bensíns í birgðastöð olíufélag-
VEÐURHORFURIDAG, 14. NÓVEMBER
YFIRLIT I GÆR: Yfir Norðaustur-Grænlandi er 1030 mb hæð en
983ja mb lægð um 400 km suður af Dyrhólaey þokast norður.
8PÁ: Hæg austlæg átt og skúrir eða slydda á Norðurlandi en hæg
vestlæg átt og skúrir sunnanlands.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG:Suðvestlæg átt og skúrir vestanlantis,
en vestan- eða norðvestanátt og þurrt að mestu austanlands.
Sæmilega hlýtt í veðri.
TAKN:
y, Norðan, 4 vindstig:
' Uii
Vindörin sýnir vind-
jO Hitastig:
10 gráður á Celsius
stefnu og fjaðrirnar • Skúrir
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður V
er 2 vindstig. * V Él
Léttskýjað r r r r / / / Rigning = Þoka
r r r ' Þokumóða
Hálfskýjað * r * 5 5 ? Súld
Skýjað r * r * Slydda r * r oo Mistur
* * * 4 Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
anna í Örfirisey, að sögn Hannes-
ar Valdimarssonar hafnarstjóra
í Reykjavík. „Aðalmálið er að
bæta aðstöðu til Iestunar og Ios-
unar á olíu og ég reikna með að
mjög fljótlega verði viðræður á
milli Reykjavíkurhafnar og allra
olíufélaganna um það. Viðlegu-
kantur er besta en jafnframt
dýrasta lausnin og nokkur ár eru
þar til hann gæti verið tilbúinn
til notkunar," segir Hannes.
Kristinn Björnsson, forstjóri
Skeljungs hf., segist ætla að senda
hafnaryfirvöldum bréf, þar sem far-
ið verði fram á viðræður um bygg-
ingu viðlegukants fyrir olíuskip.
„Eftir að olíuslysið varð í Laugar-
nesi kom bréf frá Olís, þar sem
þeir fóru fram á viðræður um bætta
aðstöðu," segir Hannes Valdimars-
son. „Það hefur ekki verið kannað
hversu mikið viðlegukantur fyrir
olíufélögin myndi kosta og segja
má að það sé nokkur vandi, þar sem
tvær olíustöðvar eru í Reykjavík,
önnur í Örfírisey og hin í Laugar-
nesi. Það er spuming hvort hægt
væri að komast af með eina
bryggju, sem þjónaði báðum olíu-
stöðvunum. Þá yrði hins vegar er-
fitt að leiða leiðslurnar á milli
þeirra," segir Hannes.
Hann upplýsir að bygging við-
legukants yrði mjög dýr fram-
kvæmd en meta þyrfti hvaða kröfur
um viðleguró ætti að gera, til dæm-
is hvort skapa yrði algjört skjól.
„Það kemur margt til álita og við
höfum ekki komist að niðurstöðu
um þetta mál. Ég reikna með að
Reykjavíkurhöfn tæki þátt í að
greiða kostnaðinn við slíka bryggju
og yrði jafnvel eigandi að henni ef
hún kæmi. Flest hafnarmannvirki
í Reykjavíkurhöfn eru í eigu hafnar-
innar og hún tekur gjöld fyrir afnot
af þeim. Eina undantekningin í því
tiiviki er sú að áburðarverksmiðjan
hefur eigin bryggju," segir Hannes.
Fimmtán hundruð at-
vinnulausir í október
ATVINNULEYSI í októbermánuði var 14% meira en í mánuðinum
á undan. Atvinnuleysisdögum fjölgaði um 3.800 og er aukningin
innan marka reglubundinnar árstíðasveiflu. Skráð atvinnuleysi í
október samsvaraði því, að 1.500 manns hefðu að meðaltali verið
án atvinnu í mánuðinum, eða 1,1% af mannafla. Þetta kemur fram
í yfirliti um atvinnuástandið frá Vinnumálaskrifstofu félagsmála-
ráðuneytisins.
f VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hlti veður Akureyri 2’ rigning Reykjavík 10 skýjað
Bergen 8 rigning
Helsinki 1 snjókoma
Kaupmannahöfn 8 þokumóða
Narssarssuaq B skýjað
Nuuk 5 aiskýjan
Osló 2 þoka
Stokkholmur 3 þoka
Þórshöfn 10 alskýjað
Algarve vantar
Amsterdam 12 þokaumóða
Barcelona 18 hálfskýjað
Berlin 8 þokumóða
Chicago vantar
Feneyjar 15 þokumóða
Frankfurt 9 þokumóða
Glasgow 12 rign. á síð.klst.
Hamborg 10 þokumóða
Las Palmas vantar
London 13 súld
Los Angeles 16 heiðskírt
Lúxemborg 6 súld
Madrid 13 mistur
Malaga 19 léttskýjað
Mallorca 19 léttskýjað
Montreal +B alskýjað
New York 2 hálfskýjað
Orlando vantar
Paris vantar
Róm 17 heiðskírt
Vin 10 skýjað
Washington vantar
Winnipeg +4 skýjað
í októbermánuði síðastliðnum
voru skráðir 32 þúsund atvinnuleys-
isdagar á landinu öllu. Þar af voru
18 þúsund dagar hjá konum og 14
þúsund hjá körlum. Atvinnuleysi
kvenna jafngildir 1,6% af heild, en
hjá körlum 0,8% af heild. Síðasta
virka dag mánaðarins voru 1.600
manns á atvinnuleysisskrá.
Mest atvinnuleysi, sem hlutfall
af mannafla, mældist á Vesturlandi
og á Norðurlandi eystra, 2,3%. Á
Suðurnesjum var atvinnuleysi 1,9%,
á Austurlandi 1,8%, á Norðurlandi
vestra 1,6%, á Suðurlandi 1,3%, á
höfuðborgarsvæðinu 0,8% og
minnst atvinnuleysi mældist á Vest-
fjörðum, 0,2%.
í yfirlitinu kemur fram að at-
vinnuhorfur séu nokkuð óvissar á
næstunni. Auk venjulegrar árstíða-
sveiflu komi einkum tvennt til,
óvissa um framhald veiða vegna
boðaðs verkfalls yfírmanna á fiski-
skipum svo og dökkar horfur um
síldarsöltun vegna óvissu um sölu
á Rússlandsmarkað.
Heilbrigðisráðherra:
Styrkir til rannsókna á
öldrunarsjúkdómum
HEILBRIGÐIS- og tryggingamálaráðherra, Guðmundur Bjarnason,
lagði til á ríkisstjórnarfundi í gær að ríkið styrkti þátttöku íslenskra
lækna í umfangsmikilli rannsókn á orsökum astma- og ofnæmissjúk-
dóma. Samstarfshópur íslenskra lækna er þátttakandi í fjölþjóðlegri
rannsókn á þessum öndunarfærasjúkdómum og er kostnaður áætlað-
ur sjö milljónir króna. Ráðherra lagði til að ríkið tæki á sig helming
kostnaðarins og veitti tveimur milljónum króna til verksins á næsta
an.
Tíðni þessara sjúkdóma fer vax-
andi og ný lyf hafa ekki skilað til-
ætíuðum árangri. Rannsókninni er
því beint að áhrifum umhverfis á
sjúkdómana. Er hún þegar hafin
og mun taka tvö ár. Læknarnir
hafa safnað framlögum til að hefja
rannsóknina frá ýmsum styrktarað-
ilum. Þetta er umfangsmikið verk-
efni sem beint er að 3600 manna
úrtaki, þar af verða 600 manns látn-
ir gangast undir ítarlega rannsókn.
Þarf dýran tækjakost til að fram-
kvæma hana.
„Ég lagði til að ríkið kæmi inn
í þetta og fjármagnaði um helming
kostnaðarins og legði til tvær millj-
ónir á næsta ári. Það fékk góðar
undirtektir í ríkisstjórn,“ sagði Guð-
mundur.