Morgunblaðið - 14.11.1990, Page 13
GUÐRÚN
EINARS-
DÓTTIR
Myndlist
EiríkurÞorláksson
„Maður lifandi, nú er það svart!“
Slíkt gæti auðveldlega orðið hið
fyrsta sem gestum kemur til hugar
þegar litið er inn í Gallerí einn einn
við Skólavörðustíg þessa dagana.
Þar sýnir nú Guðrún Einarsdóttir
sex málverk, sem öll eru eingöngu
unnin með svartri olíumálningu á
striga.
Það væri auðvelt að afgreiða
sýninguna stuttlega út frá þessum
forsendum. Svartur litur getur ver-
ið dauðastur allra lita, og ef allt
er svart er tæpast um mikla fjöl-
breytni að ræða, eða hvað; og þeg-
ar við bætist að verkin bera öll
sama nafn (Málverk) mætti ætla
að hring einhæfninnar væri lokað.
Slíkt væri þó of auðvelt, og þeg-
ar gengið er um þennan litla sal
kemur í Ijós að hér býr meira að
baki. Yfirborð allra myndanna er
mynstrað á einn eða annan hátt,
og í flestum tilvikum á afar sam-
felldan, allt að því vélrænan máta.
Þær eru jafnframt mjög ólíkar inn-
byrðis; sumar fínlegar og sléttar,
en aðrar grófgerðar og hrjúfar. En
myndirnar eiga það allar sameigin-
legt að breytast eftir afstöðu
manna til þeirra, og þar er komið
að helsta viðfangsefni þeirra; sam-
spili ljóss og listaverksins.
Athuganir listamanna á eðli birt-
unnar í myndlist eiga sér langa og
áhugaverða sögu, og þeir eru
margir sem hafa skapað sér nafn
fyrst og fremst vegna góðs árang-
urs á því sviði. Þessar rannsóknir
hafa að miklu leyti fjallað um birt-
una innan verksins. í málverkum
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1990
J3
Söngnr og sellóleikur
Guðrún Einarsdóttir: Málverk,
má sjá þetta með því að athuga
hvaðan birtan í fletinum kemur (að
framan, frá hlið, frá ljósgjafa í
myndefninu sjálfu o.s.frv.); þetta
er vel þekkt t.d. úr verkum
Rembrandts, og hinir einu sönnu
impressionistar fjölluðu í raun um
lítið annað í sinni myndlist. í högg-
myndum er hins vegar athyglinni
beint að áhrifum birtunnar utan
frá; þannig getur ljósið auðveldlega
breytt yfirborði verka og beint aug-
um manna að áherslum formanna
og óvæntu atriði þeirra. Þetta verð-
ur strax ljóst ef menn líta til þess
hversu vandlega er gengið frá lýs-
ingu á þeim höggmyndasýningum
sem haldnar eru nú til dags.
Á sýningunni í Gallerí einn einn
hefur Guðrún Einarsdóttir sett sér
að athuga áhrif birtunnar á yfir-
borð mynda sinna í stað þess að
setja hana inn í verkin, og hefur
valið að nota til þess einlita, svarta
fleti. En mismunandi mynstur ger-
ir að verkum að ljósið leikur á
breytilegan hátt um myndirnar;
nákvæmlega dregnir lóðréttir og
1990.
láréttir fletir endurvarpa ljósgeis-
lanum á misjafnan hátt, og á með-
an fínlegustu verkin varpa honum
skjannabjörtum til baka, gleypa
grófari fletirnir ljósið í sig og jafna
það um allt léreftið, sem gjarna
minnir þá á eitthvert draumalands-
lag eða hreyfingar straumvatns.
Þessi athugun er áhugavert
framlag listakonunnar til að minna
áhorfendur á grunnatriði myndlist-
arinnar, þar sem birtan er eitt
flóknasta viðfangsefnið. Ungt lista-
fólk leitar gjarna til þess grundvall-
ar sem öll myndlist hvílir á, og
þreifar sig áfram þaðan til við-
fangsefna, sem þeim finnast verð-
ug til frekari listsköpunar í fram-
tíðinni. Það felst í því ákveðin hóg-
værð að skoða grunninn vandlega
áður en lagt er á víðari mið, og
það er sjálfsagt fyrir listunnendur
að nota einnig tækifærið til að rifja
upp þau fjölbreytilegu áhrif sem
ljósið getur haft á yfirborð mál-
verksins.
Sýning Guðrúnar í Gallerí einn
einn stendur til 15. nóvember.
__________Tónlist______________
Jón Ásgeirsson
Tónlistardögum Dómkirkjunnar
lauk með blönduðum tónleikum sl.
sunnudag. Dómkórinn frumflutti
mótettu eftir Siegfried Thiele, rekt-
or tónlistarháskólans í Leipzig.
Marteinn H. Friðriksson, dómorg-
anisti, lék Chaconne eftir Pál ísólfs-
son. Signý Sæmundsdóttir söng
þtjú kirkjulög eftir Jón Leifs og
Bryndís Halla Gylfadóttir lék selló-
svítu nr. 2 eftir J.S. Bach.
Það er í níunda sinn, sem „Tón-
listardagar Dómkirkjunnar" eru
haldnir og að þessu sinni var tón-
list eftir tónskáld, sem stunduðu
nám og störfuðu í Leipzig, aðalvið-
fangsefni tónlistardaganna. Þar í
hópi íslenskra tónskálda voru Páll
ísólfsson, Jón Leifs og Hallgrímur
Helgason. Efstur á blaði erlendra
voru J.S. Bach, áðurnefndur Thiele,
Kurt Hessenberg og Brahms, sem
heimsótti Leipzig nokkrum sinnum
en stóð hins vegar fyrir tónleikum
í Vínarborg, þar sem lögð var
áhersla á flutning barokktónverka,
m.a. eftir J.S. Bach og Hándel.
Mótettan „Multum facit, qui
multum diligit" eftir Thiele er ágæt-
lega samið verk, ekki átakamikið
eða frumlegt. Kórinn söng þokka-
lega undir stjórn höfundar, þó enn
vanti hljómmeiri karlaraddir, sem
var sérlega áberandi í upphafi
verksins. Vegna forfalla lék Mar-
teinn H. Friðrikssonj dómorganisti,
Chaconne eftir Pál Isólfsson og að
hafa slíkt verk á reiðum höndum
segir nokkuð til um ágæti dómorg-
anistans. Signý Sæmundsdóttir
söng þijú kirkjulög eftir Jón Leifs,
perluna Vertu Guð faðir faðirminn,
Allt eins og blómstrið eina og Upp,
upp mín sál en öll þessi lög eru
frábærlega falleg og tókst Signýju
mjög vel upp í Allt eins og blómstr-
ið eina.
Eiginlegt niðurlag tónleikanna
vareinleikur Bryndísar Höllu Gylfa-
dóttur á selló en viðfangsefni henn-
ar var svíta nr. 2, eftir J.S. Bach.
Bryndís Halla er góður sellisti, ræð-
ur yfir ágætri tækni, fallegum tón
og er tónvís. Deila má um túlkun
hennar og helst að hún hafi leikið
sarabönduna og menúettinn af of
miklum ákafa, sem hins vegar á
vel við í síðasta þættinum er hún
lék mjög vel.
Niðurlag tónleikanna var endur-
tekning á mótettunni eftir Thiele.
Sýna myndir
frá Grænlandi
ÍSLENSKI Grænlandsleiðangur-
inn 1990 segir i máli og myndum
frá klifurleiðangri sínum til
Staunings-Alpa síðastliðið sum-
ar.
Leiðangursmenn klifu sjö fjöll og
skoðuðu einstaka náttúrufegurð og
dýralíf Grænlands. Myndasýningin
hefst kl. 20.30 á Hótel Holiday Inn
í kvöld, miðvikudaginn 14. nóvem-
ber.
V^terkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
■ BÓKA ÚTGÁFAN Forlagið
hefur sent frá sér þijár nýjar bæk-
•ur í ritsafninu Ævintýri barnanna.
Þær eru Prinsessan á bauninni,
Mjallhvít og dvergarnir sjö og
Nýju fötin keisarans. Áður hafa
komið út sex ævintýri í þessu safni
og hefur Þorsteinn frá Hamri
þýtt öll ævintýrin. „Gömlu góðu
ævintýrin eru alltaf í fullu gildi,“
segir í kynningu Forlagsins, „og
hér eru sögð sígild ævintýri sem
börn hafa skemmt sér við kynslóð
fram af kynslóð. Hér eru Ævintýri
barnanna endursögð við hæfi
yngstu barnanna og myndskreytt
af frægum spænskum listamönn-
um.“ Ævintýri bamanna eru
prentuð á Spáni.
■ SETBERG hefur gefið út bæk-
urnar Babar fer í ferðalagið og
Babar fer á fætur í þýðingu
Þrándar Thoroddsens. Bækurnar
ljalla um fílinn Babar. Þetta eru
harðspjaldabækur, litprentaðar.
Setberg hefur gefið út tvær bækur
í bókaflokknum Viltu lesa með
mér þær heita Ari lærir að synda
og Gullbrá og birnimir þrír og er
íslenskur texti eftir Stefán Júlíus-
son. I bókunum eru sumst staðar
myndir í stað orða. Þær em af per-
sónum, stöðum og hlutum sem
koma fyrir í sögunni. Sá sem les
fyrir barnið lætur það skoða mynd-
irnar og segja hvað þær heita.
Hvað er klukkan? og Viltu vera
með mér? með íslenskum texta
Stefáns Júlíussonar em harð-
spjaldabækur í bókaflokknum Leik-
ur að orðum sem Setberg gefur
út. Þetta er bók sem lítil börn, uppa-
lendur og fóstmr hafa bæði gagn
og gaman af segir í kynningu útgef-
enda.
Setbert hefur einnig gefið út Æv-
intýrabókina í þýðingu Rúnu
Gisladóttur. Þetta er harðspjalda-
bók með stuttum sögum og litmynd-
um. í henni eru endursögð ævintýr-
in: Stígvéla kötturinn, Hans og
Gréta, Frú Hulda, Hugrakki
skraddarinn, Dvergurinn,
Froska kóngurinn, Litlu systkin-
in, Kiðlingarnir sjö og Rauð-
hetta.
íslenskt atvinnulíf
eftir 1992
Fundur um áhrif innri markaðar EB á íslensk fyrirtæki
Frummælendur:
Jón Sigurðsson iðnaöar- og viðskiptaráöherra
Jón Steindór Valdimarsson, Félagi íslenskra iðnrekenda. Sérfræðingur í EB-málum
Pjónusta vló atvlnnuveglna:
Páll Kr. Pálsson forstjóri IÖntæknistofnunar
María Ingvadóttir fjármálastjóri Útflutningsráðs
Gunnlaugur Sigmundsson framkvæmdastjóri Þróunarfélagsins
Fundarstjórl:
Heimir Ingimarsson, formaöur atvinnumálanefndar Akureyrar
Jón Sigurfisson Jón Steindór Valdimarsson Páll Kr. Pálsson Marla Ingvadóttir Gunnlaugur Sigmundsson
Fundurmn veröur haldinn á Hótel KEA, föstudaginn 16. nóv. kl. 15:00
íl
Iðntæknistofnun
ÚTFLUTNINGSRÁÐ ÍSIANDS
ftt
IÐ NAÐAR RÁÐU N EYTIÐ
FÉLAG ISLENSKRA
IÐNREKENDA
\, Þróunarfélag lslands hf.