Morgunblaðið - 14.11.1990, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1990
37
/ krakkar!
/KUNÍÐ
AÐ BURSTA
■TENNURNAR
eru komin á alla
útsölustaði
Fjölhœf hrœrivél!
MK 4450
Blandari, grænmetiskvöm og hakka-
vél fylgja með.
• Allt á einum armi.
• Hrærir, þeytir, hnoðar, blandar,
brytjar, rífur, hakkar og sker.
• ísl. leiðarvísir og uppskriftahefti.
• Einstakt verð: 13.960 kr.
SMfTH & NORLAND
Þeim fylgir jólasveinslímmiði og tannkremstúpa.
hans þegar átti að halda skemmtan-
ir meðal vinnufélaganna, enda aldr-
ei komið að tómum kofunum. Það
verður því tómleg árshátíð þetta
árið, þar sem Ási flytur ekki annál
Sundahafnar, eins og hann hafði
gert undanfarin ár.
En það var ekki einungis leitað
til hans í þessu tilliti, því hann var
valinn trúnaðarmaður félaga sinna
á vinnustað og barðist ötullega fyr-
ir þeirra málum.
Engum duldist hver áhugamál
Ása voru, það var KR og allt sem
tengdist þeirra starfsemi. Enda
hafði hann verið góður íþróttamað-
ur á unglingsárunum, en varð því
miður að hætta að stunda íþróttir
vegna veikinda, sem hefur án efa
fallið honum mjög þungt.
En auk áhuga hans á íþróttum
hafði hann mjög gaman af því að
fljúga. Og undanfarin tvö ár hafði
hann lært flug og tekið rúmlega
sextíu flugtíma.
Það er erfitt að sætta s_ig við að
fá ekki að njóta nálægðar Ása leng-
ur, hans verður sárt saknað og
skarð það sem hann skilur eftir
verður ekki fyllt.
En við trúum að nú líði honum
vel og hans bíði stórt og mikið hlut-
verk þar sem hann er nú.
Við geymum minninguna um
góðan vin og félaga og kveðjum
Ása með söknuði og þakklæti í
huga.
Dóttur hans, bræðrum og föður
vottum við okkar dýpstu samúð.
Samstarfsmenn hjá Eimskip,
stjórnstöð.
• •
Oll Lionsdagatöl eru merkt.
Hún naut góðrar menntunar í
föðurhúsum. Þar var mikil rækt
lögð við góða þjóðlega menntun og
bókmenntir íslenskar í hávegum
hafðar. Jón, bróðir hennar, fór til
náms á Akureyri og leiðbeindi
systkinum sínum eftir að hann lauk
námi. Einnig lagði Guðbjörg stund
á tónlistarnám og lék á orgel í
frístundum sínum. Var hún stund-
um fengin til að spila á orgel við
messur í Vallaneskirkju.
Það voru sterk bönd, sem tengdu
systkinin og foreldra við Hafursá
og þegar Guðmundur, faðir þeirra,
hætti búskap, tók Jón Kjerúlf, bróð-
ir Guðbjargar, ásamt henni við bú-
skap að Hafursá og bjuggu þau þar
áfram ásamt foreldrum sínum.
Á Hafursá var afar gestkvæmt.
Þar lá leiðin uin er farið var inn í
Fljótsdal enda er Hafursá næsti bær
við Hallormsstað. Þar var í mörgu
að snúast fyrir húsmóður sem auk
þess að sjá um heimilið sinnti einn-
ig ýmsum störfum og sá um skepn-
urnar. Því var vinnudagur oft lang-
ur hjá húsmóður þegar margt var
í heimili. Guðbjörg talaði oft um
þá daga og einnig hversu ánægju-
legt hafi verið að hafa margt fólk
í kringum sig og í nógu að snúast.
Guðbjörg giftist 6. janúar 1934
Oddi Kristjánssyni, byggingameist-
ara, á Akureyri, sem fæddur var
3. október 1901 að Saurbæ í Eyja-
firði. Foreldrar Odds voru Kristján
Minning:
Guðbjörg Guð-
mundsdóttii' Kjerúlf
Fædd 27. október 1900
Dáin 5. nóvember 1990
Þriðjudaginn 13. nóvember verð-
ur til moldar borin tengdamóðir
mín, Guðbjörg Guðmundsdóttir
Kjerúlf. Hún andaðist á elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund í
Reykjavík, aðfaranótt mánudagsins
5. nóvember síðastliðinn.
Margt kemur upp í hugann og
langar mig til að minnast þessarar
góðu konu með nokkrum orðum nú
þegar hún er kvödd.
Guðbjörg fæddist í Sauðhaga í
Skriðdal í Suður-Múlasýslu 27.
október árið 1900 og varð því níræð
fyrir stuttu. Foreldrar hennar voru
Guðmundur Andrésson Kjerúlf, frá
Melum f Fljótsdal, bóndi í Sauðhaga
og síðar á Hafursá í Vallahreppi
og eiginkona hans, Vilborg Jóns-
dóttir frá Kleif í Norðurdal í Fljóts-
dal.
Þau Guðmundur og Vilborg eign-
uðust sex börn og voru þau auk
Guðbjargar Jón Kjerúlf, látinn, bú-
settur á Reyðarfirði, kvæntur Guð-
laugu Pétursdóttur; Anna Kjerúlf,
látin, búsett í Hábæ, Vogum á
Vatnsleysuströnd, gift Sveini Páls-
syni sem einnig er látinn; Sólveig
Kjerúlf, látin, húsmóðir á Akureyri
og síðar í Reykjavík, gift Gunnari
Jónssyni sem einnig er látinn;
Sigríður Kjerúlf, látin, gift Guð-
mundi Guðmundssyni; og Andrés
Kjerúlf, fyrrverandi bóndi á Akri í
Reykholti, nú til heimilis á dvalar-
heimili aldraðra í Borgarnesi, en
kona hans var Halldóra Jónsdóttir
sem nú er látin.
Ung fluttist Guðbjörg með for-
eldrum sínum og systkinum að
Hafursá í Vallahreppi. Hafursá
stendur frekar hátt undir hlíð og
þaðan er útsýni yfir Fljótsdalshérað
og Lagarfljót, þar sem Snæfell ber
við enda fljótsins, einstakt að feg-
urð.
í samheldnum systkina- og
frændhópi átti Guðbjörg góða æsku
og uppvaxtarár. Þeir tímar vom
henni alla tíð afar kærir og minnt-
ist hún þeirra og allra, sem þar
voru henni samferða með sérstakri
hlýju.
Árið 1942 fluttust Oddur og
Guðbjörg með syni sína til Akur-
eyrar. Oddur hóf störf sem bygg-
ingameistari hjá Akureyrarbæ og
gegndi því starfi til 1971. Þau reistu
sér myndarlegt hús á Helgamagra-
stræti 15 og bjuggu þar árin á
Akureyri.
Guðbjörg helgaði heimilinu
starfskrafta sína. Gestrisni var mik-
il á heimili þeirra Odds og Guðbjarg-
ar og nutu þau þess að geta veitt _
gestum sínum af rausn. Andrúms-
loftið á heimili þeirra var þannig,
að öllum sem þangað komu hlaut
að líða vel. Þau voru samhent og
einkenndist sambúð þeirra af kær-
leika.
Árið 1971 hætti Oddur störfum
hjá Akureyrarbæ fyrir aldurs sakir
og fluttust þau hjónin til Reykjavík-
ur. Synir þeirra voru þá búsettir
þar og vildu þau vera nálægt þeim
og fjölskyldum þeirra þegar árin
tóku að færast yfir.
Það var mikið áfall fyrir Guð-
björgu þegar Oddur andaðist haust-
ið 1979. Nokkru áður hafði hún
veikst af alvarlegum sjúkdómi og
auk þess hafði sjóninni hrakað veru-
lega. Hún bjó áfram á heimili þeirra
í nokkur ár.
Eins og áður er getið lést Guð-
björg á elli- og hjúkrunarheimilinu
Grund, þar sem húh dvaldi síðastlið-
in fimm ár. Starfsfólkið þar á þakk-
ir skildar fyrir þá umönnun og
hlýju, sem henni var þar sýnd.
Eg kveð tengdamóður mína með
þakklæti fyrir allt, sem hún var
okkur.
Blessuð sé minning hennar.
Herdís Tómasdóttir
Grein þessi biitist í blaðinu í
gær, en vegna mistaka við vinnsiu
birtist hún hér á ný. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
Friðfinnsson, bóndi í Saurbæjar-
hreppi, og Sigríður Grímsdóttir,
kona hans.
Hann kom austur á Fljótsdals-
hérað til að reisa nýtt íbúðarhús
að Hafursá og felldu þau Guðbjörg
hugi saman. Heimili þeirra var að
Hafursá fyrstu átta árin. Þar fædd-
ust synir þeirra tveir, Guðmundur,
árið 1936 og Sigurður, árið 1940.
Þessi ár starfaði Oddur sem
byggingameistari þar eystra,
byggði hann meðal annars hið sér-
stæða hús Gunnars Gunnarssonar,
skálds á Skriðuklaustri, sem hlaðið
var utan með grjóthnullungum úr
Bessastaðaá. Guðbjörg sá áfrám
um heimilið að Hafursá.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar eru
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
SIEMENS
NÓATÚNI4-SÍMI 28300
Allur hagnaður rennur óskiptur til líknarmála.