Morgunblaðið - 17.11.1990, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.11.1990, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NOVEMBER 1990 Dalvík: Segjum engum upp nema í ítrustu neyð - segir yfirverkstjóri frystihússins „VIÐ SEGJUM ekki upp okkar starfsfólki nema í ítrustu neyð,“ sagði Sigurður Jörgen Óskarsson yfirverkstjóri á frystihúsinu á Dalvík. Hann sagði að menn tryðu því ekki að til boðaðs verkfalls yfirmanna á fiskiskipum kæmi. Mikið hefur venð að gera í frysti- húsinu á Dalvík að undanförnu og aila þessu viku hefur vinna hafist ki. 6 á morgnana og er unnið í 10 tíma. Sigurður sagði að eingöngu væri unnið í dýrustu pakkningar á Bandaríkjamarkað, en það hefði ■ STUÐNINGSHÓPUR fyrir aðstandendur aldraðra efnir til fundar á heilsugæslustöðinni á Akureyri næstkómandi mánudag, 19. nóvember. Fundurinn verður haldinn á 4. hæð og hefst kl. 17.30. Starfsmenn þjönustuhóps aldraðra koma á fundinn og kynna nýtt vist- unar/þjónustumat. m.a. í för með sér að starfsfólki hefur verið fjölgað í frystingunni og þar vinna nú um 65 manns. Nægur kvóti er fyrir hendi til að halda uppi vinnu til 22. desember og sagði Sigurður að að því væri stefnt. „Við gerðum áætlanir fyrir vinnsluna fyrir allt þetta ár og það hefur staðist ágætlega. Það hefur ekki fallið niður klukkutími vegna hráefnisskorts á þessu áriv“ Sigurður sagði að reksturinn gengi þokkalega, öll skilyrði væru hin ákjósanlegustu og það hefði í för með sér mikinn bata í rekstri. „Við getum ekki annað en horft björtum augum til framtíðarinnar," sagði Sigurður. HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á AKUREYRI Hjúkrunarfræðingar - sjúkraliöar Hjúkrunarfræóingar Staða deildarstjóra við ung- og smábarnaeftirlitið er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. mars nk. Afleysingarstaða almenns hjúkrunarfræðings við ung- og smábarnaeftirlit er veitt til eins árs og einnig frá 1. mars nk. Er hér um að ræða 80% stöðugildi. Staða hópstjóra við heimahjúkrun er laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Hálf eða heil staða kemur til greina. Mk Morgunblaðið/Rúnar Þór Bergur Már í fangi föður síns, Flosa, við hlið þeirra er bróðirinn Hrólfur, þá föðuramman, Margrét, og lengst til vinstri er Halldóra móðir hans. Sex mánaða barn hvarf í tvo tíma: Hræðileg reynsla en erum ánægð með hversu vel fór - segja foreldrar barnsins „ÞETTA var alveg hrikaleg lífsreynsla og tíminn var óskaplega lengi að líða,“ sögðu hjónin Halldóra Krisfjánsdóttir og Flosi Jóns- son, en sex mánaða gamall sonur þeirra, Bergur Már, hvarf í gær þar sem hann svaf í kerru sinni fyrir framan gullsmíðaverslun þeirra, Skart í Hafnarstræti. Hvarfið var tilkynnt til lögreglu laust fyrir kl. 12 á hádegi í gær, en barnið fannst í anddyri Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri skömmu fyrir kl. 13. Drengurinn svaf í kerru fyrir utan verslunina og var hans sakn- að nokkru fyrir kl. 11.30. Foreldr- ar drengsins leituðu hans fyrst í nágrenninu ásamt fleira verslunar- fólki í miðbænum, en hvarfið var tilkynnt til lögreglu kl. 11.48. Gunnar Randversson varðstjóri lögreglunnar sagði að lögregla hefði fengið vísbendingar, sem leiddu til þess að leit var m.a. beint að Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri. Barnið fannst sofandi í kerru sinni í anddyri sjúkrahússins. Talið er að sjúklingur á sjúkrahúsinu hafi ekið kerrunni með barninu þangað. Sjúklingurinn, sem er kona, á við andlega vanheilsu að stríða. „Hann svaf allan tímann og vissi ekkert af þessu. En það eru allir afar ánægðir með hversu vel þetta fór að lokum, meðan á leitinni stóð var þetta svo óraunverulegt, eins og þetta væri ekki að gerast í al- vörunni,“ sögðu foreldrar drengs- ins. Sjúkralióar Staða sjúkraliða við heimahjúkrun er laus til umsókn- ar, hálf eða heil staða. Komið eða hringið í Heilsugæslustöðina á Akureyri og kynnið ykkur starfsemi heilbrigðisstétta á heilsu- gæslustöð. Hafið samband við hjúkrunarforstjóra, deildarstjóra ung- og smábarnaeftirlits eða deildarstjóra heima- hjúkrunar og fáið nánari upplýsingar. Símatími daglega í síma 96-22311 milli kl. 11.00- 13.00. Umsóknarfrestur er til 1. desember nk. Hrísey: Borg kaupir Skarðsvíkina BORG hf. í Hrísey hefur fest kaup á Skarðsvík AK-205 frá Akra- nesi. Skipið er væntanlegt til nýrrar heimahafnar á morgun, sunnudag. Borg hf. á fyrir bátana Eyborgu EA og Isborgu EA, en auk þess er í smíðum skip í Portúgal fyrir fyrir- tækið. Skarðsvíkin er loðnuskip, 347 tonn að stærð. Skipið er smíðað í Noregi árið 1975 og yfirbyggt árið 1977. Páll Siguijónsson, einn hluthafa í Borg hf., sagði að ætlunin væri að nota skipið til síldveiða í haust, en fyrirtækið hefur yfir allmiklum síldarkvóta að ráða. Komi hins vegar til boðaðs verkfalls yfirmanna á fiskiskipum yrði að líkindum farið að undirbúa skipið fyrir vetrarvertíð. . Skipið, sem hlotið hefur nafnið Asborg EA-259, er væntanlegt til heimahafnar, Hríseyjar, síðdegis á morgun, sunnudag. FJÓRAR NÝJAR! Q* Allt stakar sögur ásútgáfan Glerárgötu 28 - 600 Akureyri - Sími 96-24966 Framleiðum snjóblásarann BARÐA Sterkur og afkastamikill fyrir íslenskar aðstæður. Einnig fáanlegar fleiri gerðir og stærðir. Hringið og fáiö nánari upplýsingar. VÉLSMIMN VÍK HF., 610 Grenivík, símar 96-33478 og 96-33216.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.