Morgunblaðið - 17.11.1990, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1990 ,
34
Minning:
Elísabet Guðmunds■
dóttir Andersen
Fædd II. nóvember 1915
Dáin 11. nóvember 1990
Ekki grunaði mig þegar Beta
mágkona mín og Tage maður henn-
ar kvöddu okkur í ágúst síðastliðn-
um að það yrði í hinsta sinn í þessu
lífi sem ég sæi hana. Hún virtist
svo glöð, hressileg og ánægð. Þau
héldu þá til heimilis síns í Kaup-
mannahöfn. Eftir heimkomuna fór
hún að kenna sjúkleika sem ágerð-
ist svo að hún var lögð inn á spítala.
Þann 10. þessa mánaðar versnaði
henni mjög skyndilega og lést hún
að morgni næsta dags, 75 ára af-
mælisdags síns, eftir stutta legu.
Lát hennar var sorglegt og mikið
áfall fyrir alla fjölskylduna.
Þórdísi konu minni þótti mjög
vænt um Betu systur sína og tók
þessa sorgarfregn afar nærri sér.
Það gerðu ég og börn okkar líka.
Elísabet, eða Beta eins og hún
kaus að kalla sig, fæddist að
Bíldsfelli í Grafningi 11. nóvember
1915 dóttir hjónanna Guðmundar
Þorvaldssonar bónda þar og konu
hans Guðríðar Finnbogadóttur.
Húnólst þar upp í stórum systkina-
hópi á miklu myndarheimili. Hún
stundaði nám í Kvennaskóla
Reykjavíkur og brautskráðist þaðan
árið 1935.
Til Danmerkur fór hún rétt fyrir
byjjun síðari heimsstyrjaldarinnar
1939 og dvaldi þar öll stríðsárin.
Þar kynntist hún mannsefni sínu
Tage Andersen. Þau felldu hugi
saman og giftu sig í stríðslok.
Skömmu síðar komu þau hingað til
íslands og dvöldu hér um tveggja
ára skeið. Á þeim árum fæddust
þeim tvær dætur, Kiddy og Lene.
Móðir Þórdísar, Kristín Jósefsdóttir
ljósmóðir, tók á móti báðum stúlk-
unum við fæðinguna að Bíldsfelli.
Þegar Beta og Tage fluttu aftur
til Danmerkur ásamt dætrunum
stofnuðu þau heimili í Kaupmanna-
höfn og hafa búið þar síðan.
Þau komu öðru hvoru í heimsókn
hingað til landsins og við Þórdís
heimsóttum þau einnig þegar við
fórum til Danmerkur. Það fór alltaf
mjög vel á með okkur. Þau hjónin
urðu góðir vinir mínir.
Við hjónin höfum oft gist hjá
þeim í skemmtilegu einbýlishúsi
sem þau byggðu sér á góðum og
rólegum stað í Hvidovre, einni út-
borg Kaupmannahafnar, nálægt
ströndinni. Umhverfis það er
óvenjufallegur tijágarður með
fjölda blóma því húsmóðirin var
mikil blómakona og þau hjónin voru
raunar bæði mikið fyrir blóm. Þau
ræktuðu enn fremur allskonar mat-
jurtir og ávexti. Þar var gott að
koma og njóta mikillar gest.risni.
Beta var fyrirmyndar húsmóðir
og kunni vel til matargerðar. Tage
Notaðu AKRA
með öðruúrvals hráefni....
og útkoman verður frábær!
Súkkulaðiterta með rommkremi
Léttþeytið 70 g AKRA smjörlíki, 90 g sykur,
90 g púðursykur og 3 egg.
Hrærið saman við 150 g hveiti, V2 tsk.
natron, 2 tsk. salt, 25 g kakó og 150 g mjólk.
Bakið við 190°C í 20 mínútur.
Rommkrem
Hrærið saman 50 g kakó, 500 g flórsykur og
350 g AKRA smjörlíki og bætið í
rommdropum eftir smekk. Skreytið kökuna.
Verði ykkur að góðu!
-------------f
SMJÖRLÍKISGERÐ
Akureyri
var góður og vanur gestgjafi. Hann
hafði rekið veitinga- og matsölu-
staði og oftast hafði Beta verið með
honum í því starfi. Það var ekki í
kot vísað að gista hjá þeim.
Annars vann Beta langtímum
saman við hjúkrunarstörf þótt hún
væri ekki lærður hjúkrunarfræðing-
ur, en hafði verið á námskeiðum í
því fagi.
Hún hafði mikinn áhuga á hann-
yrðum, einkum útsaumi allskonar
og var stórvirk í þeim. Við eigum
meðal annars eftir hana veggteppi
og stóra innrammaða mynd, hvort-
tveggja mjög vel gert og fallegt.
Dætumar eru báðar lærðir hjúkr-
unarfræðingar og löngu giftar.
Kiddy sem er eldri 0g hefur sér-
hæft sig í hjúkrun eldra fólks er
forstöðukona á elliheimili. Hún er
gift egypskum verkfræðingi Arafa
E1 Kholy og eiga þau eina dóttur,
Hönnu að nafni. Þau búa í Lyngby.
Lene starfar líka við hjúkran.
Hún er gift endurskoðanda. Flemm-
ing Sivertsen. Þau eiga.einn son
sem Henrik heitir og búa í Slagelse.
Þórdís kona mín veiktist um 1950
0g þurfti að dvelja á sjúkrastofnun
í Danmörku um hálfs árs skeið. Þá
heimsótti hún Betu og Tage alloft
og þau hana. Eftir að hún útskrifað-
ist buðu þau henni að búa á heim-
ili þeirra um tíma sér til hressing-
ar. Þessi tími varð hálft ár og hefur
Þórdís oft sagt mér að hún gleymi
aldrei hve vel systir hennar og
mágur reyndust henni þá, einsog
þau raunar alltaf hafa. gert.
Með árunum hef ég kynnst þeim
báðum náið, glaðværum, vel gefn-
um og raungóðum manneskjum.
Við munum sakna Betu mjög
mikið og eigum erfitt með að átta
okkur á því að hún sé horfin okkur
fyrir fullt og allt. Margar og góðar
minningar eigum við þó 0g þær
verða ekki frá okkur teknar.
Við Þórdís, börn okkar og fjöl-
skyldur þeirra sendum Tage, dætr-
um hans, tengdasonum og fjöl-
skyldum þeirra okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Hjartanlega þökkum við Betu
alla vináttu hennar og ánægjulegar
samverustundir. Vð biðjum henni
Guðs blessunar á þeim leiðum sem
hún nú hefur lagt út á. Blessuð sé
minning hennar.
Útförin fer fram í Kaupmanna-
höfn í dag.
Erlingur Þorsteinsson
■ AÐALFUND UR Leigjenda-
samtakanna verður haldinn á skrif-
stpfu samtakanna,' Hafnarstræti
15, 3. hæð, í dag, laugardaginn 17.
nóvember, og hefst kl. 14.00. Auk
venjulegra aðalfundarstarfa mun
Jón Rúnar Sveinsson félagsfræð-
ingur hjá Húsnæðisstofnun ríkis-
ins koma á fundinn og segja frá
gildandi reglum um húsaleigustyrki
á Norðurlöndum. Húsnæðisbætur
til leigjenda eru nú á undirbúnings-
stigi hér á landi og verða þau mál
eitt helsta umræðuefni fundarins,
auk reksturs skrifstofu samtak-
anna. Á aðalfundinum gefst leigj-
endum kostur á að kynnast betur
starfi Leigjendasamtakanna.
■ KVENNADEILD Reykjavík-
urdeildar Rauða krossins heldur
sinn árlega basar á morgun kl.
14.00 í Hótel Lind, Rauðarárstíg
18. Þar verður á boðstólum margs
konar handavinna, kökur og jóla-
kort deildarinnar. Állur ágóði renn-
ur til bókakaupa fyrir sjúklinga-
bókasöfn spítalanna í Reykjavík.
Tlutancb
Heílsuvörur
nútímafólks
stelnsteypu.
S“® Léttir
meöfærilegir
viðhaldslitlir.
Avalll lyflrllgg|andl.
Þ.ÞORGRÍMSSON &G0
Ármúla 29, Reykjavík, sími 38640