Morgunblaðið - 17.11.1990, Blaðsíða 46
HANDKNATTLEIKUR / FRAKKLAND
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
LAUGARDAGUR 17. NOVEMBER 1990
Júlíus Jónasson næst markahæstur í frönsku 1. deildinni:
„Arangur liðsins fram
úr björtustu vonum“
^KEPPNIN
JÚLÍUS Jónasson, landsliðs-
maður í handknattleik, er næst
markahæstur í frönsku 1.
deildinni þegar átta umferðir
eru að baki, og lið hans, Paris
Asnieres, er íþriðja sæti. Ár-
angurinn til þessa „hefur farið
fram úr björtustu vonum okk-
ar,“ segir Júlíus.
Þriðjudagur 20. nóv. kl. 20:00
Selfoss-KA
íþróttahús Selfoss
Þriðjudagur 20. nóv. kl. 20:00
Grótta-Stjarnan
Seltjarnarnes
'yjfcr vAtryggingaféiag íslands hf
Víkingar
athugió
Þeir einstaklingar og fyrirtæki, $em vilja senda jólakveðjur til félags-
manna í jólablaði Víkings, vinsamlega hafið samband við skrifstofu
félagsins í símum 83245 eða 37450.
VíKingar í vígahug.
ÍSLENSKI HANDBOLTINN
12. UMFERÐ
Laugardagur 17. nóv. kl. 16:30
Stjarnan-ÍR
Ásgaröur, Garðabæ
Laugardagur 17. nóv. kl. 16:30
Víkingur-Haukar
Laugardalshöll
Laugardagur 17. nóv. kl. 16:30
f
Valur-Grótta
Hlíðarendi
Sunnudagur 18. nóv. kl. 20:00
Fram-Selfoss
Laugardalshöll
13. UMFERÐ
Mánudagur 19. nóv. kl. 20:00
Víkingur-ÍR
Laugardalshöll
Mánudagur 19. nóv. kl. 20:00
Haukar-KR
Strandgata, Hafnarfirði
Þriðjudagur 20. nóv. kl. 20:00
Fram-ÍBV
Laugardalshöll
Þriðjudagur 20. nóv. kl. 20:00
FH-Valur
Kaplakriki, Hafnarfirði
Paris Asnieres er með 10 stig,
eins og Bordeaux, Venissieux
frá Lyon er efst með 15 og meistar-
arnir frá því sl. keppnistímabil,
Nimes, eru komnir með 11 stig.
Júlíus og félagar mættu einmitt
Nimes á heimavelli sl. miðvikudags-
kvöld — og lauk leiknum með jafn-
tefli, 18:18. „Við klúávuðum unnum
leik. Hann var jafn allan tímann,
en við vorum yfir í lokin 18:17 og
með boltann. Einn leikmanna liðsins
gerði hins vegar þau mistök að
reyna ótímabært skot er 20 sekúnd-
ur voru eftir, leikmenn Nimes náðu
boltanum og jöfnuðu Ijórum sek-
úndum fyrir leikslok. Beint úr auka-
kasti; við stilltum upp varnarvegg,
skotið fór í vamarmann, markvörð-
urinn hálfvarði en boltinn „lak“ í
netið,“ sagði Júlíus við Morgunblað-
ið en hann gerði fimm mörk.
Hann sagði lið Venissieux það
besta í deildinni í ár að sínu mati,
en Nimes-liðið væri einnig sterkt.
í því eru átta landsliðsmenn auk
sovésks leikmanns. Þess má geta
að það var Venissieux sem burstaði
sænska liðið Redbergslid í Evrópu-
keppninni á dögunum.
Júgóslavinn Zarazevic hjáBorde-
aux; ljóshærður, lágvaxinn og örv-
hentur, leikmaður sem oft hefur
hrellt varnarmann íslenska lands-
liðsins, er markahæstur í deildinni
með 57 mörk^en Júlíus er næstur;
hefur gert 52.
Eins og áður hefur árangur Júl-
íusar og félaga farið „fram úr björt-
ustu vonum okkar,“ eins og hann
orðaði það. Liðið kom upp úr 2.
deild í vor og sagði hann stefnuna
alls ekki hafa verið tekna á topp-
sætið. Og þó staðan væri góð í dag
þyrfti ekki nema tvo til þijá tap-
leiki til að falla talsvert niður töfl-
una. Nokkur lið væru með átta og
níu stig, þannig að staðan gæti
verið fljót að breyast.
Júlíus Jónasson, í búningi Paris Asnieres, mænir að marki.
Júlíus ekki með gegn Svíum
Júlíus kemur til landsins nk.
þriðjudag og verður með lands-
liðinu í leikjunuin þremur gegn
Tékkum 23., 24. og 25. nóvemb-
er. Hann verður hins vegar að
öllum líkindum illa fjarri góðu
gamni milla jóla og nýárs er Is-
lendingar og Svíar mætast í vin-
átluleikjum hér á landi. Tvö
frönsk 1. deildarlið, Paris Asnier-
es og Metz, verða þá í æfinga-
og keppnisferð á franskri nýlend-
ur austur af Madagaskar, eynni
Reunion. Þar verða þau þar til
3. janúar; æfa og leika við lið
heimamanna, en Júlíus sagðist
stefna að því að komast heim til
íslands á gamlársdag. „Maður
verður að ná áramótaskaupinu!“
sagði hann.
FELAGSLIF
Uppskeruhátíð
Fram á mánudag
Uppskeruhátíð knattspyrnudeild-
ar Fram verður mánudaginn 19.
nóvember kl. 18.00 í Framheimil-
inu. Bestu menns hvers flokks verða
heiðraðir, svo og markakóngur auk
þess sem Eiríksbikarinn verður af-
hentur þeim sem þykir hafa sýnt
mestu framfarirnar.
Allir unnendur knattspyrnudeild-
ar Fram eru velkomnir, sérstaklega
leikmenn yngri flokka og fjölskyld-
ur þeirra.