Morgunblaðið - 16.01.1991, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B
I
STOFNAÐ 1913
12. tbl. 79. árg.
MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rúmiega 1200 þúsund hermenn albúnir til bardaga fyrir botni Persaflóa:
Höfum fullreynt allar leiðir
til að koma í veg fyrir styrjöld
- segir talsmaður Bush Bandaríkjaforseta - Saddam
Hussein kynnir sér viðbúnað innrásarliðsins í Kúveit, úti-
lokar málamiðlanir og boðar heilagl stríð til frelsunar Pal-
estínu - Framkvæmdasljóri SÞ birtir írökum lokaákall sam-
takanna - Israelar boða að nýjum vopnabúnaði verði beitt
Níkósíu, Lundúnum, Sameinuðu þjóðunum, Washington, Tel Aviv, Damaskus. Reuter.
SEX bandarísk flugmóðurskip, sem samtals bera um 450 orrustu- og
sprengjuþotur, voru í gærkvöldi búin undir bardaga á hafsvæðum í
nágrenni Iraks. Fréttir bárust einnig af miklum liðsflutningum Sýr-
lendinga við landamæri ísraels. Herafla ísraela var skipað í viðbragðs-
stöðu og almenningur bjó sig undir að sæta efnavopnaárásum af hálfu
Iraka. Utvarpið í Irak kvað Saddam Hussein forseta hafa hafnað öll-
um málamiðlunum, boðað heilagt stríð og sagt að hvergi yrði hvikað
frá þessari lokaafstöðu í Persaflóadeilunni. I Bagdad fóru hundruð
þúsunda manna um götur borgarinnar og hrópuðu í kór: „Kúveit til-
heyrir okkur“ og „Grimmdarseggirnir verða sigraðir." í Washington
var haft eftir George Bush Bandaríkjaforseta að hann teldi nánast
útilokað að Saddam Hussein virti samþykktir Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) og kallaði heim innrásarliðið frá Kúveit. Franskir ráðamenn sögðu
harmleik blasa við, og Hussein Jórdaníukonungur sagði í ávarpi til
þjóðarinnar að stríð væri yfirvofandi. Frestur sá sem SÞ hafði veitt
Iraksforseta til að kalla liðsaflann heim rann út klukkan fimm að
íslenskum tíma í nótt og stóðu þá 680.000 hermenn bandamanna grá-
ir fyrir járnum andspænis um 545.000 íröskum hermönnum í og nærri
Kúveit.
Javier Perez de Cuellar, fram-
kvæmdastjóri SÞ, birti kl. 23 að ísl.
tíma í gærkvöldi lokaákall samtak-
anna til íraka eftir að fulltrúar í
Öryggisráði SÞ höfðu fundað dag-
langt um friðartillögu frönsku ríkis-
stjórnarinnar og drög sem Bretar
lögðu fram að lokasamþykkt SÞ í
deilunni. De Cuellar, sem birti ákall-
ið í eigin nafni, sagði að dagurinn
örlagaríki 15. janúar væri senn á
enda og að heimsbyggðin öll stæði
frammi fyrir þeirri óvissu hvort
styrjöld skylli á eða friður héldist.
„Eg hvet því í allri einlægni Saddam
Hussein forseta til að snúa við blað-1
inu, hverfa af braut hörmunga og
beina sjónum sinum að nýjum tímum
réttlætis og samkenndar sem byggj-
ast á grundvelli stofnskrár Samein-
uðu þjóðanna." Lagði de Cuellar að
Saddam að hefja án tafar brottflutn-
ing innrásarliðsins frá Kúveit.
í gærkvöldi höfðu engin svör við
ákalli framkvæmdastjórans borist
frá írökum en útvarpið í Bagdad
kvað Saddam hafa í gær og í fyrra-
dag kynnt sér viðbúnað liðsaflans í
Kúveit. Var haft eftir honum að
Reuter
ísraelskur hermaður kannar
stýribúnað skotpalls fyrir loft-
varnarflaugar á Vesturbakkan-
um í gær.
málamiðlanir í deilunni kæmu ekki
til greina. Háð yrði heilagt stríð til
frelsunar Palestínu og gegn „trúvill-
ingunum". „Þetta er endanleg af-
staða okkar og frá henni munum
við ekki hvika," hafði útvarpið eftir
forsetanum.
Marlin Fitzwater, talsmaður Ge-
orge Bush Bandaríkjaforseta, ítrek-
aði fyrri yfirlýsingar þess efnis að
látið yrði til skarar skríða „frekar
fyrr en síðar“ gegn Irökum yrði
herlið þeirra enn í Kúveit eftir mið-
nætti að New York-tíma. Banda-
ríkjamenn hefðu gert allt sem í
þeirra valdi stæði til að koma f veg
fyrir styrjöld í Mið-Austurlöndum.
Deilt um tillögu Frakka
Mikil spenna ríkti í höfuðstöðvum
SÞ í New York í gær er fulltrúar
þeirra ríkja sem eiga sæti í Öryggis-
ráðinu fjölluðu um tillögu þá sem
Frakkar kynntu óvænt til lausnar
Persaflóadeilunni á mánudagskvöld.
Tillagan gerði ráð fyrir því að írakar
tilkynntu án tafar að þeir hygðust
flytja liðsaflann frá Kúveit. Lokalið-
ur áætlunarinnar og sá umdeildasti
kvað hins vegar á um að SÞ gengj-
ust fyrir ráðstefnu um frið í Mið-
Austurlöndum.
Seint í gærkvöldi varð ljóst að
tillaga Frakka myndi ekki ná fram
að ganga. Roland Dumas, utanríkis-
ráðherra Frakklands, sagði að íraks-
forseti væri nú ábyrgur fyrir fram-
haldi málsins.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, lýsti yfir því á þingi að
hann væri ósáttur við orðalag
frönsku tillögunnar, sagði efnahags-
legar refsiaðgerðir gagnvart Irökum
ekki hafa skilað tilætluðum árangri
og kvað herafla bandainanna við
Persaflóa tilbúinn til að hrekja inn-
rásarlið Saddams frá Kúveit virti
hann ekki samþykktir SÞ. Lét hann
þessi orð falla skömmu áður en þing
Bretlands lýsti yfir stuðningi við
afstöðu ríkisstjórnarinnar í Persa-
flóadeilunni. Bandaríkjamenn lýstu
einnig yfir andstöðu sinni við tiliögu
Frakka og bentu á að gert væri ráð
fyrir því að heimkvaðning innrásar-
liðsins frá Kúveit yrði beinlínis tengd
ráðstefnu um málefni Austurlanda
nær.
Viðvaranir Israela
Fulltrúar ísraelsku ríkisstjórnar-
innar voru sammála mati Breta og
Bandaríkjamanna og í ísrael bjuggu
menn sig undir stríð en Saddam
forseti og undirsátar hans hafa
margoft lýst yfir því að írakar muni
ráðast á Israel láti hersveitir þj.nda-
manna við Persaflóa til skarar
skríða. Yfirmaður ísraelska flug-
hersins varaði íraka við slíkri árás
og sagði Israela að undanförnu hafa
þróað nýjan vopnabúnað sem gera
myndi þeim kleift að leggja eld-
flaugaskotpalla íraka í allt að 1.000
kílómetra ijarlægð í rúst.
í tilkynningu sem birt var í nafni
íraska stjórnarflokksins í gær voru
ísraelar og Bandaríkjamenn sakaðir
um að hafa skipulagt morð á þrem-
ur háttsettum liðsmönnum Frelsis-
samtaka Palestínu (PLO). Mennirnir
voru myrtir í Túnis í fyrrinótt og
sagði í tilkynningunni að það væri
engin tilviljun að morðin hefðu verið
framin á sama tíma og haft væri í
hótunum við íraka.
Sjá fréttir á bls. 22-23.
Reuter
Víða kom til mótmæla vegna yfirvofandi átaka við Persaflóa í ríkjuin
múhameðstrúarmanna í gær. A myndinni sem tekin var í höfuðborg
Pakistans, Islamabad, sjást aðdáendur Saddams Husseins Iraksfor-
seta brenna brúðumynd af George Bush Bandaríkjaforseta.
Gorbatsjov ver aðgerðir Sovétstjóniarimiar í Eystrasaltsríkjunum:
Verndum íbúana fyrir
ofríki sjálfstæðissinna
Moskvu,_ Riga, Vilnius, Tallinn. Reuter, Daily Telegraph.
MÍKHAÍL S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi réðst í gær harkalega á Borís
Jeltsín, forseta Rússlands, og sagði að hann virtist vera að ganga
af göflunum. Jeltsín hefur lýst stuðningi við sjálfstæðisbaráttu
Eystrasaltsþjóðanna þriggja, Eistlendinga, Letta og Litháa. Einnig
hefur hann lagt til að Rússar komi sér upp eigin herafla til að
verja fullveldi sitt og hvatt rússneska hermenn í Rauða hcrnum til
að neita að ráðast á óbreytta borgara. Gorbatsjov gagnrýndi einnig
leiðtoga Eystrasaltsríkjanna, sagði að ekki mætti láta „nýtt ofríki"
taka þar við af gömlu.
Auk Jeltsíns hafa leiðtogar
Úkraínu fordæmt ofbeldisverk
Rauða hersins í Eystrasaltsríkjun-
um og forystumenn í Moldovu,
Armeníu og Georgíu hafa tekið í
sama streng.
„Þetta er ekki aðeins ögrun við
æðstu valdastofnanir í Sovétríkjun-
um heldur getur þetta valdið aukn-
um deilum í landinu þar sem fyrir
ríkir mikil spenna," sagði Gorb-
atsjov Sovétleiðtogi á fundi Æðsta
ráðsins er hann ræddi hugmynd
Jeltsíns urn sjálfstæðan, rússnesk-
an her. „Stjórnvöld verða að láta
til sín taka til að tryggja öryggi
almennings," sagði Gorbatsjov og
sakaði lettneska forystumenn um
að hundsa óánægju fólksins. Hann
sagðist hafa fengið fjölda bréfa frá
fólki í Eystrasaltsríkjunum þar sem
spurt væri hvers vegna hann hefði
skilið það eftir á köldunt klaka.
Fjölmennir, rússneskumælandi
minnihlutahópar eru í öllum lönd-
unum þrem.
Harðiínumenn úr t'öðum
Moskvuhollra kommúnista í Lett-
landi efndu til íjöldafundar í Riga
í gær. Ræðuntenn hvöttu til alls-
hetjarverkfalls og báðu Rauða her-
inn að hindra að „borgaralegt ein-
ræði“ næði að skjóta rótúm í
landinu. Lettneskir ráðamenn hafa
búist til varnar í þinghúsinu ásamt
fjölda sjálfboðaliða og ríkir mikil
spenna í borginni. Reist voru götu-
vit'ki við þinghúsið og víðar í mið-
borginni. Margir hétu því að vetj-
ast árásum sovéskra hermanna þar
til yfir lyki þótt fæstir hefðu öflugri
vopn en lurka.
Möt'g þúsund andstæðingar
sjálfstæðis í Eistlandi héldu útifund
við þinghúsið í Tallinn í gæt'. Kraf-
ist vat' afsagnar stjórnar sjálfstæð-
issinna. fíetifers-fréttastofan sagði
sovéska hermenn itafa fjölgað
vegatálmum og eftirlitsstöðvum í
Viínius, höfuðborg Litháens, í gær.
Litháar héldu áfram að treysta
víggirðingar og annan varnarbún-
að við þinghúsið.
Sjá fréttir á bls. 20-21.