Morgunblaðið - 16.01.1991, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANUAR 1991
23
ísraelar verja heimili sín
gegn efnavopnaárásum
Jerúsalcm. Reuter.
ÍSRAELAR bjuggu sig undir hugsanlegar árásir frá írak og hermdar-
verk araba í gær er frestur íraka til að hverfa frá Kúveit var að renna
út. Viðbúnaður hersins náði hámarki og almenningur var hvattur til
að gera ráðstafanir til að verja heimili sín gegn hugsanlegri efnavopna-
árás íraka.
Reuter
Richard Roth, fréttamaður bandarísku sjónvarpskeðjunnar CNN,
tekur við kassa með gasgrímu í fjölmiðlamiðstöðinni í Jerúsalem og
fyrir aftan hann bíða erlendir starfsbræður hans og myndatöku-
menn eftir að röðin komi að þeim. Hundruð erlendra fréttamanna
hafa komið til Israels vegna stríðshættunnar við Persaflóa.
Þúsundir Israela báðu fyrir friði í
Jerúsalem en margir létu sér nægja
að sækja teiti í krám borgarinnar.
Saddam Hussein íraksforseti hefur
hótað að ísráel verði fyrsta skotmark
íraka í hugsanlegu stríði við Persaf-
lóa og ísraelsk stjórnvöld töldu hættu
árás á landið á hverri stundu. Hern-
um var fyrirskipað að halda uppi
hámarks viðbúnaði, sem felur meðal
annars í sér að flugmenn verða allan
sólarhringinn í stjórnklefum orrustu-
þotna.
Herinn taldi einnig hættu á árás-
um Palestínumanna frá Líbanon þar
sem Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis-
samtaka Palestínumanna (PLO),
hafði fyrirskipað þúsundum skæru-
liða sinna þar að beijast með írökum
gegn fjölþjóðahernum við Persaflóa.
Þá var mikill lögregluviðbúnaður
vegna hugsanlegra hermdarverka
Palestínumanna innan landamæra
landsins og á hernumdu svæðunum.
Leiðtogar Palestínumanna á Gaza-
svæðinu og Vesturbakka Jórdanar
höfðu hvatt íbúana til að „skapa
nýja víglínu" ef stríð brytist út'.
Herinn ráðlagði ísraelum í fyrsta
sinn að útbúa herbergi í húsum sínum
til að veijast hugsanlegum efna-
vopnaárásum Iraka. Biðraðir mynd-
uðust í verslunum þar sem fólk gat
keypt límbönd, plastklæðningar og
fleira til að þétta heimili sín.
Hafist var handa í gær við að
dreifa gasgrímum til Palestínumanna
á hernumdu svæðunum, sem óttast
einnig efnavopnaárásir frá írak.
Hæstiréttur ísraels hafði kveðið upp
þann úrskurð að Palestínumönnum
bæri að fá gasgrímur eins og gyðing-
ar. Varnarmálaráðuneytið sagði að
farið yrði eftir úrskurðinum en herinn
hefði nú aðeins birgðir handa uml 0%
af íbúum hernumdu svæðanna. Óvíst
væri hversu langan tíma tæki að
afla nægra gríma handa öllum.
Flestir íbúar ísraels hafa þegar
fengið gasgrímur. í upphafi var ekki
ráðgert að dreifa þeim á hemumdu
svæðunum þar sem ólíklegt var talið
að Irakar gerðu árásir á þau. Um
helgina var hins vegar ákveðið að
dreifa þeim til gyðinga á hernumdu
svæðunum, sem eru um 90.000.
FJOLVI
STÓRA BÓKAVEISLA FJÖLVA
(ALGER RYMIWCARBTSALfl)
VASA
» *
vA>V
//*.
°*// opnum á morgun kl. 12
&
*
Grensásvegi ÍZ
Mesta og ódýrasta bókaútsala sem nokkur V
bókaútgáfa hefur haldií. ALLTÁ AÐ SELJAST. -
Mörg hundrud titlar og pakkar
á ótrúlegu hlunnindaverði
I------------
| Natn
J Kennitala
I Ileinuli
I
T
I
* I
. I
I
Myndagetraun. Alllr Sá verðlaun!
Taktu þ&tt i getrauninni með þvi að krossa & myndina viö:
1. Prina Valíant, sem alltaf er aÖ lelta í þokunni aö Aletu sinni.
2. Þorstein afa gamla, sem gaf út fyrir ykkur Lukku-L&ka, Stóru flugvélabókina,
| Póstnúmer | liatasöguna, Prins Valiant, Grimmsœvintýri, Gosa og Á Toppnum.
I Stóru skordýrabókina, Stóru hundabókina, Stóru listasöguna, Stóru byggingar-
3. Léttfeta, sem er g&faöri en húsbóndi hans, og reykir hvorki né drekkur.
Merkið krossa á myndina og sendið til FJölva NJörvasundi 15 a, 104 Reykjavík. Setjið nafn
ykkar og heimilisfang og umfram allt aldur. Öllum sem merkja rétt, þó þeir yrðu 20 þúsund,
sendum við glaðning, einhverja Fjölva-Vasa-bók, sumar ódýrar sumar mjög verðmætar,
VASA