Morgunblaðið - 16.01.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.01.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1991 19 Fulltrúar allra kirkjukvenfélaga og safnaðarfélaga í Reykjavíkurprófastdæmi hittust síðastliðinn laug- ardag í boði biskupshjónanna á heimili þeirra til að ræða sameiginlegt starf félaganna. Einnig voru við- staddirþeir Pétur Sveinbjamarson, stjórnarformaður Sólheima í Grímsnesi, og Ólafur Mogensen, forstöðu- maður, en starf félaganna er meðal annars fólgið í stuðningi við Sólheima, sem nánast frá upphafi hafa verið undir verndarvæng kirkjunnar. Að sögn Ebbu Sigurðardóttur biskupsfrúar var meðal annars rætt um að færa Sólheimum gjöf frá prófastdæminu í tilefni af 60 ára afmæli starfseminnar á síðasta ári, en ekki hefur enn verið ákveðið með hvaða hætti það verður. Tryggingastofnun: Endurgreiðslur vegna tannréttinga hafnar TRYGGINGASTOFNUN ríkisins hefur byrjað endurgreiðslur vegna Þá kemur fram að kostnaður tannréttinga sem hófust á timabilinu 1. nóvember 1989 til 31. desemb- vegna tannréttinga sem hófust fyr- er 1990. Endurgreiðslurnar eru samkvæmt sömú reglum og giltu ir 1. nóvember 1989 verði áfram fram til 1. nóvember 1989 þannig að greiddur er helmingur kostnað- greiddur samkvæmt þeim reglum ar. Þetta kemur fram í frétt frá Tryggingastofnun. sem þá giltu. Samþykktir bygginganefnda á öllu landinu: Fækkun 1990 um 44% frá árinu áður Yiðbrögð við sölutregðu á markaðnum, seg- ir Gunnar S. Björnsson byggingameistari FJÖLDI samþykkta sem bygg- inganefndir sveitarfélaga gáfu út fyrstu 10 mánuði ársins 1990 er um 44% minni en á sama tíma árið áður, samkvæmt athugun sem unnin hefur verið upp úr gögnum bygginganefnda hjá BYKO hf. Um er að ræða heildar- fjölda samþykkta á landinu öllu, þar með taldar íbúðir, atvinnu- húsnæði, viðbyggingar og annað sem samþykki bygginganefndar þarf til. Gunnar S. Björnsson byggingameistari og s^jórnar- maður í Húsnæðismálastjórn seg- ir þetta vera greinileg og óvenju skjót viðbrögð við sölutregðu á fasteignamarkaði á síðasta ári. „Eftir því sem við höfum kannað þá virðist vera 44% samdráttur á samþykktum bygginganefnda á landinu öllu,“ sagði Jón Guðmunds- son framkvæmdastjóri hjá BYKO hf. í samtali við Morgunblaðið. Gunnar S. Björnsson sagði, að þetta kæmi heim og saman við þró- unina á íbúðamarkaði. Þar hefur verið sölutregða á síðasta ári og enn lengur varðandi atvinnuhús- næði. Óseldar nýbyggðar íbúðir eru um allt að 500-600 'á landinu öllu samkvæmt áætlunum, að megin- hluta þó á höfuðborgarsvæðinu. „Stór hluti af þeim íbúðum sem núna standa auðar og óseldar sem voru samþykktar á árinu 1989 og eru að koma til byggingar fyrst á árinu 1989 og eru í byggingu 1990. Vegna þess hve lítið seldist á árinu 1990 hve treg sala er strax í upp- hafi þessa árs hægja menn mjög mikið á sér í sambandi við að sækja um lóðír á árinu 1991. Menn hægja á sér vegnáþess að þeir óttast sölu- tregðuna, “ sagði Gunnar. Gunnar sagði koma á óvart hve skjót viðbrögðin eru, miðað við reynslu fyrri tíma. „Þetta þýðir bara að menn eru farnir að fylgjast mikið betur með hlutunum heldur en áður.“ -------♦ ♦ ♦ Jökulsá rann framhjá brúnni JÖKULSÁ á Fjöllum rann fram hjá Jökulsárbrú og yfir þjóðveg- inn aðfaranótt mánudags. Um morguninn fór áin að renna und- ir brúnna að nýju. „Útlitið var ekki gott á sunnu- dagskvöldið en morguninn eftir gekk ég þurrum fótum yfir brúna," sagði Bragi Benediktsson á Grím- stöðum á Fjöllum, í samtali við Morgunblaðið. Bragi sagði að áin hefði áður breytt farvegi sínum og benti á að þá hefði þurft að gera við þjóðveg- inn. í þetta skipti hefði þess ekki þurft. Ástæðan fyrir breyttum árfar- vegi árinnar við brúna var krapa- stífla sem jafnaði sig um nóttina. Ulfært er nú að Grímsstöðum. Utan Reyjcjavíkur annast um- boðsmenn Tryggingastofnunar endurgreiðslurnar, en í Reykjavík er bent á að þeir sem telja sig eiga rétt á endurgreiðslu, skuli snúa sér til afgreiðslu Tryggingastofnunar í Tryggvagötu 28. I fréttinni segir að reikningar skuli hafa borist stofnuninni fyrir 1. mars næstkom- andi. Þá segir að áfallinn kostnaður frá og með 1. janúar 1991, vegna tannréttinga sem hófust eftir 1. nóvember 1989, verði endurgreidd- ur samkvæmt mati á þörf fyrir tannréttingar í hverju tilviki fyrir sig, reglugerð vegna þessa verði gefin út innan skamms. * Háskóli Islands: Settur prófessor í heimilislækningnm JÓHANN Ágúst Sigurðsson heilsugæslulæknir í Hafnar- firði, hefur verið ráðinii fyrsti prófessorinn í heimilislækning- um við Háskóla íslands. Jóhann Ágúst er skipaður af mennta- málaráðherra til tveggja ára frá og með 1. janúar 1991. Það er Félag íslenskra heimilislækna, sem gefur Háskóla íslands stöð- una fyrstu tvö árin. Jóhann Ágúst er fæddur á Si- glufirði árið 1948. Hann tók stúd- entspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1968 og lauk emb- ættisprófi frá Læknadeild Háskóla íslands árið 1975. Að loknu kandi- datsári fór hann í framhaldsnám í heimilislækningum í Gautaborg í Svíþjóð og starfaði þá jafnframt að rannsóknum í faraldsfræði. Hann varð sérfræðingur í heimilis- lækningum árið 1980 og varði doktorsritgerð sína um háan blóð- þrýsting hjá miðaldra konum við Gautaborgarháskóla árið 1982. Árið 1986 var hann ráðinn í hluta- stöðu lektors í heimilislækningum við Háskóla íslands og hefur kennt við deildina síðan. Jóhann hefur starfað sem heil- sugæslulæknir í Hafnarfirði frá árinu 1981 og jafnframt sem hér- aðslæknir Reykjaneshéraðs. Sveinn Magnússon heilsugæslu- læknir í Garðabæ hefur nú tekið við héraðslæknisembættinu frá og Jóhann Ágúst Sigurðsson próf- essor með 1. janúar en Jóhann mun áfram starfa sem heimilislæknir í Hafnarfirði. Jóhann Ágúst er sonur Gyðu Jóhannsdóttur og Sigurðar Jóns- sonar fyrrverandi framkvæmda- stjóra Síldarverksmiðju ríkisins og síðar forstjóra Sjóvár. Hann er kvæntur Eddu Benediktsdóttur og eiga þau þrjú börn. HELGARFERÐiR í JANÚAR FEBRUAR OG MARS Skemmtiskrepp um helgi, kostar ekki mikið... ...með Flugleiðum. AMSTERDAM Amsterdam iðar af mannlífi og skemmtun. Amsterdam er borg sælkera og listunnenda. Sigling á síkjunum eða rómantískur kvöldverður - Amsterdam er lifandi borg að nóttu sem degi. Hagstætt vöruverð og vöruval. Amsterdam er borg verslunar og glæsileika. FOSTUDAGUR TIL ÞRIÐJUDAGS HÓTEL MUSEUM TVEIR í HERB. KR. 32.6 IO Á MANN FLUGLEIÐIR Þjónusta alla leið Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjaraötu 2, Hótel Esju og Krinqlunni. Upplýsingar og farpantanir f sfma S 90 300. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.