Morgunblaðið - 16.01.1991, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUÐAGUR 16. JANUAR 1991
9
Lattu reglulegan
sparnað verða að
veruleika og
pantaðu áskriít að
spariskírteinum
nkissioðs
Áskriftar- og þjónustusímar:
91-62 60 40 og 91-69 96 00
Áhrif eða áhrifaleysi?
Birgir Árnason, fv. aðstoðarmaður Jóns Sig-
urðssonar, viðskiptaráðherra, vísar því á bug
í grein nýlega, að íslendingaryrðu næráhrifa-
lausir, jafnvel um eigin málefni, sem aðilar
að Evrópubandalaginu. Ekki er úr vegi að
kynna sjónarmið höfundar enda nauðsynlegt,
að landsmenn kynnist rökum bæði þeirra,
sem hug hafa á aðild að EB, og hinna, sem
andvígir eru aðild.
EFTA-ríkin
ogEB
Birgir ritaði nýlega
greiní Vísbendingil, rit
Kaupþings hf., um efna-
hagsmál. Hann starfar
nú sem hagfræðingur hjá
EFTA í Genf. Birgir fjall-
ar um með hvaða hætti
ákvarðanir eru teknar
innan EB og hvaða áhrif
EFTA-þjóðirnar, og
þ. á m. ísland, kynnu að
hafa innan EB með aðild.
Birgir Árnason segir.
m.a.:
„Vaxandi líkur eru á
þvi að Evrópska efna-
hagssvæðið, ef af verður,
verði aðeins biðstöfa fyr-
ir EFTA-ríkni — að ís-
landi undanskildu, í bili
a.m.k. — þar til þeini
verður hleypt inn í Evr-
ópubandalagið sennilega
á síðari helmingi þessa
áratugar.
Þetta á örugglega við
um Austurríkismenn sem
þegar haTa sótt um aðild
að Evrópubandalaginu.
Þetta á ekki síður við um
Svia, en sænska þingið
samþykkti nýverið með
yfirgnæfandi meirihluta
atkvæða að sótt skyldi
um aðild síðar á þessu
ári. Ólíklegt er, að Norð-
menn og Finnar verði þá
langt undan. Norðmenn
hafa m.a. lýst áhuga
sinum á nánari tengslum
við Evrópubandalagið
með því að tengja gengi
norsku krónunnar við
evrópsku _ mynteining-
una, ECU. í Sviss vex því
sjónarmiði nú rnjög fylgi
að Svisslendingum beri
fyrr en síðar að leggja
fram aðildarumsókn. Þó
hefur engin þjóð lagt
jafnmikla áherslu á
sjálfsákvörðunarrétt
sinn og lilutleysi og ein-
mitt þeir. Er nú hafin
undirskriftasöfnun í
landinu til að knýja fram
þj óðaratkvæðagreiðslu
um aðild og er ekki ólík-
legt að af henni verði
hman tveggja ára.
Fari svo sem horfir
mun Evrópubandalagið
trauðla geta hafnað að-
ildarumsókn þessara
þjóða. Þá mun sú spum-
ing brenna heitt á íslend-
ingum hvort þeir hyggist
feta sömu leið eða heltast
úr lest.
Akvarðana-
takaEB
Ráðherraráðið, þar
sem saman koma ráð-
herrar aðildarþjóðanna,
er æðsta valdastofnun
Evrópubandalagsins og
hinn eiginlegi löggjafi
þess. Völd framkvæmda-
sljómarinnar em einnig
tnikil ekki sist þar sem
hún ein getur lagt tillög-
ur og lagafrumvörp fyrir
ráðherraráðið. Það gerir
hún að vísu ekki fyrr en
að höfðu víðtæku sam-
ráði við aðildarþjóðimar
og samtök hagsmunaað-
ila. Til þessa hafa völd
og áhrif þings Evrópu-
bandalagsins verið afar
takmörkuð.
Almenna reglan er sú
að leitast er við að af-
greiða mál í Evrópu-
bandalaginu með sam-
komulagi allra aðildar-
þjóðanna og hefur fram-
kvæmdastjórnin þá það
hlutyerk að miðla mál-
um. í flestum veigamikl-
um málum hefur hver
aðildarþjóð neitunarvald.
Þetta átti til dæmis Við
um þær breytingar á
Rómarsáttmálanum —
stofnsáttmála Evrópu-
bandalagsins — sem fól-
ust í Einingarlögum Evr-
ópu frá árinu 1985. Áætl-
unin um innri markað
Evrópubandalagsins
byggist í ríkurn mæli á
þessum Einingarlögum.
í vaxandi mæli frá
samþykkt Einingarlag-
anna gerist það þó að
mál eru afgreidd með
atkvæðagreiðslu. í slíku
tilviki hefur hver aðildar-
þjóð sinn atkvæðafjölda
í ráðherraráðinu. Við at-
kvæðagreiðslu nær til-
laga fram að ganga ef
henni eru greidd a.m.k.
54 atkvæði en fellur ef
greidd eru 23 eða fleiri
atkvæði á móti henni.
Einfaldur meirihluti at-
kvæða nægir því ekki og
ekki geta heldur neinar
tvær þjóðir stöðvað
framgang máls. Það eru
einkum mál sem varða
innri markaðinn sem
hafa verið afgreidd með
atkvæðagreiðslu og þyk-
ir sýnt að framkvæmd
áætlunarinnar um hann
hafi verið auðvelduð og
henni flýtt með þessu.
í þessu sambandi
skiptir þó mestu að at-
kvæðavægi hinna fá-
mennari aðildarþjóða er
miklu rneira en hinna
fjölmemiari. Sem dæmi
má taka að á bak við
hvert ' atkvæði Þýska-
lands í ráðherraráðinu
standa næstum 8 miHjón-
ir Þjóðveija (eftir sam-
einingu þýsku ríkjanna)
en ekki nema 190 þúsund
I.úxemborgarar á bak
við hvort atkvaiði Lúx-
emborgar. Þetta þýðir
einfaldlega að lítil ríki
geta haft umtalsverð
áhrif á þróun mála í ráð-
herraráðinu sérstaklega
ef inynda þarf kosn-
ingablokk til að hindra
samþykkt tillögu. Því fer
fjarri að liin stærri aðild-
arríki geti hunsað af-
stöðu hinna minni.
Atkvæðavægi
EFTA-ríkj-
anna
Gert er ráð fyrir því
að Svíþjóð fengi 5 at-
kvæði Austurríki og
Sviss 4 hvort og Finnland
og Noregur 3 hvort.
Langlíklegast er að ís-
lendingar fengju jafn-
mörg atkvæði og Lúxem-
borgarar hafa nú eða 2.
Það er alls ekki svo lítið
þegar þess er gætt að 2
atkvæði yrðu um 2% af
heildaratkvæðafjölda
stækkaðs ráðherraráðs
en Islendingar yrðu inn-
an við 0,1% af íbúafjölda
Evrópubandalagsins eft-
ir fjölgun aðildarríkj-
anna.
Auðvitað myndu 2 at-
kvæði út af fyrir sig ekki
vega þmigt en í samfloti
með öðrum gætu þau rið-
ið baggamuninn. Norð-
urlöndin með samtals 16
atkvæði gætu t.d. mynd-
að sterka heild innan
Evrópubandalagsms sem
ekki væri hægt að snið-
ganga þótt formlega
dygðu 16 atkvæði ekki
til að stöðva framgang
mála.
Vettvangnr
sjónarmiða
En hvað sem líður
talnaleikjum af þessu
tagi er ekki síður mikils
um vert að í ráðherraráð-
inu gæfist Islendingum
færi á því að koma sjón-
armiðum sínum þ. á m.
um málefni sjávarútvegs-
ins, beint á framfæri við
forystumenn aðildarrikj-
anna sem jafnan hafa
sýnt sérstöðu íslendmga
meiri og betri skilning
en fulltrúar fram-
kvæmdastjórnarhuiar.
Það getur vart vafist fyr-
ir nokkrum að hægara
verði fyrir íslendinga að
halda sjónarmiðum
sínum á lofti og vinna
þeim stuðning eigi þeir
sæti í ráðherraráðinu en
þurfi þeir einir að kepp-
ast við að ná eyrum for-
ystumanna Evrópu-
bandalagshis frammi á
gangi.“
SJÓÐSBRÉF 4
8,9%
Hæsta ávöxtun
ársins 1990
ÞJ0NUSTUMIÐST0Ð
RÍKISVERÐBRÉFA
Í'AN^
Sv:
■
Þjónustumlðstöð ríkisveröbrcfa, Hverflsgötu 6, 2. hæð. Sími 91-62 60 40
™ *' ^'Tiaifliiii1 fiimiii]iiiin'i'[
Ávöxtun Sjóðs 4 var 8,9% umfram verðbólgu á árinu
1990, hæst allra innlendra verðbréfasjóða. Velgengni
sjóðsins má þákka hagstæðri eignaskiptingu hans, en
allt að helmingur af eignuin Sjóðs 4 eru ávaxtaðar í
hlutabréfum innlendra fyrirtækju. Gengi hlutabréfa
hækkaði verulega á síðasta ári og er ársávöxtun Sjóðs 4
miðað við síðustu 3 mánuði komin upp í 9,1% um-
fram verðbólgu. Verið velkomin í VÍB.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Simi 68 15 30. Telefax 68 15 26