Morgunblaðið - 16.01.1991, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 16.01.1991, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANUAR 1991 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. april) Það eru tímamót hjá hrútnum í starfi og ábyrgð hans eykst.' Úthald og þrautseigja auð- velda honum lífsbaráttuna. Naut '(20. apríl - 20. maí) Áætlanir um ferðalög og menntun ganga eftir hjá nautinu núna. Það gerir nýja starfssamninga og leitar ráð- gjafar í sumum tilvikum. Tvíburar (21. maí - 20. júnf) Æt Tvíburinn tekur afdrifaríka ákvörðun um flármál sín núna. Hann er sammála maka sínum um ráðstöfun sameiginlegra fjármuna þeirra. Krabbi (21, jún! - 22. júlí) HSS8 ^ Krabbinn deilir ábyrgðinni með maka sínum núna. Hagsmunir barnanna eru þeim efst í huga. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Ljónið er fært um að færast mikið í fang núna. Einbeiting þess er góð og það leggur áherslu á að nár sem bestum árangri. Meyja (23. ágúst - 22. september) Meyjan axlar aukna ábyrgð vegna barnsins síns. Hún er rómantísk og full af sköpun- arþrá núna. Vog (23. sept. - 22. október) s Vogin lýkur ýmsum skyldu- verkum í dag. Ættingi leitar hjálpar hennar. Hún tekur ákvarðanir sem skipta heim- ilið miklu. Sporódreki (23. okt. - 21. nóvember) Cjjj0 Sporðdrekinn sinnir mikil- vægu andlegu verkefni í dag. ^ Nágrannar hans færa honum óvænt tíðindi. Hann segir skoðanir sínar hispurslaust og er hiklaus og ákveðinn. Bogmaóur (22. nóv. - 21. desember) Bogmaðurinn er hófstilltur í öllum sínum gerðum núna. Hann dettur niður á nýja leið til tekjuöflunar. Steingeit (22. des. - 19. janúar)' Steingeitin er reiðubúin að byija á einhvetju nýju núna, Hún er alvörugefin og mark-^ sækin. Hún hefur gott af því að slappa af og hitta .vini sína. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Vatnsberinn er að velta ýmsu fyrir sér núna. Hann lýkur nokkrum verkefnum sem hann hefur ýtt á undan sér. Skoðanir og skilgreiningar ganga fyrir öllu öðru hjá honum í augnablikinu. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) “ Fiskurinn reynist vini sínum hin mesta hjálparhella sem oft áður. Félagslífið blómstr- ar hjá honum á næstunni og hann ákveður að ganga í fé- lag eða samtök af einhverju tagi. Stjörnuspána á að , tesa sem •» dœgradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra stadreynda. DÝRAGLENS TOMMI OG JENNI LJÓSKA FERDINAND SMÁFÓLK BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Spilamennska suðurs í fjórum hjörtum snýst um það að fá vörnina til að hreyfa tígulinn. Austur gefur; ÁV á hættu. Norður ♦ 62 ♦ D10872 ♦ D1074 / ♦ Á7- Vestur Austur ♦ G3 ♦ 64 ♦ 983 ♦ KDG962 ♦ 843 Suður ♦ Á95 ¥ ÁKG92 ♦ K62 ♦ 105 ♦ KD10874 ♦ 3 ♦ ÁG5 Vestur Norður Austur Suður 2spaðar*3 hjörtu Pass 3 spaðar Pass 3 grönd Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass * Veikir tveir. Útspil: laufkóngur. Samningurinn veltur bersýni- lega á því að gefa aðeins einn slag á tígul. í fljótu bragði virð- ist ekkert annað að gera en svína tíunni, en ef grannt er skoðað er nokkurt gagn að tígulsjö- unni. Ef vestur hreyfir tígulinn er hægt að fá fría svíningu fyr- ir 98. Sagnhafi drepur á laufás, tek- ur tvisvar tromp og spilar síðan spaðaás og meiri spaða. Eftir opnun austurs er ljóst að-vestur á aðeins tvo spaða og kemst því ekki út nema á tígul þegar hann hefur tekið laufslaginn. Spilið vinnst þá í þessari legu. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Stórmeistararnir Jan Timman (2.660) og Yasser Seirawan (2.635) háðu einvígi fyrir áramót- in í Hollandi sem lauk nokkuð óvænt með sigri hins síðarnefnda, 4-2. Mest munaði um að Banda- ríkjamaðurinn vann fljótan og glæsilegan sigur í fimmtu skák- inni með hvítu. Drottningar-ind- versk vörn, 1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 - b6, 4. Rc3 - Bb4, 5. Db3 - c5, 6. a3 - Ba5, 7. Bg5 — Rc6 (I þriðju skákinni lék Timman 7. — h6, 8. Bh4 — Rc6 og tapaði í aðeins 22 leikjum.) 8. 0-0-0 — Bxc3 (Hugmyndin er að svara 9. Dxc3 með 9. — Re4. En Seirawan hefur greinilega búist við þessari endurbót.) 9. d5! — exd5, 10. cxd5 — Be5, 11. dxc6 - De7, 12. cxd7+ - Bxd7, 13. e3 - Hd8. 14. Hxd7!! - Hxd7 (Þvingað, sbr. 14. — Kxd7, 15. Da4+ — Kc8, 16. Ba6n— Kb8, 17. Rxe5.) 15. Bb5'— Bd6, 16. Hdl - 0-0, 17. Bxd7 - Dxd7, 18. Bf4! Svarta staðan er nú vonlaus. Lok- in urðu: 18. — c4, 19. Dc2 — Re8, 20. Rg5 - f5, 21. Dxc4+ - Kh8, 22. Bxd6 - Rxd6, 23. Dd5 - Hd8, 24. Re6 - Dc8+, 25. Kbl — Hd7_, 26. Dxd6! og svai-tur gafst upp. Áskorendaeinvígi Timmans og Húbners hefst í Sarajevo í Júgóslavíu 23. janúar og er vart ástæða til bjartsýni fyrir Timman, þótt hann sé stigahærri en Þjóð- veijinn, sem er í góðu formi og sterkur einvígismaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.