Morgunblaðið - 16.01.1991, Page 18

Morgunblaðið - 16.01.1991, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1991 Flestir telja Gorbatsj- ov standa að baki að- gerðunum í Litháen - segir Olöf Yr nýkomin frá Eystrasaltsríkjunum „FOLK er mjög órólegt og hrætt. Flestir sem ég ræddi við voru sam- mála um að Gorbatsjov stæði að baki aðgerðum Rauða hersins í Lithá- en,“ segir Ólöf Yr Atladóttir, íslenskunemi við Háskóla Islands, en hún er nýkomin heim úr vikudvöl í Eystrasaltsríkjunum þremur. Olöf Ýr sagðist ekki hafa orðið vör við beinar hernaðaraðgerðir en þó hafi hún séð mikið af sovéskum hermönnum á götum úti. Hún sagði hermennina meira áberandi eftir þvi sem norðar dró, og mest hefði hún séð af þeim í Tallinn, höfuðborg Eist- lands, en þaðan kom hún á mánudag- inn. „Ég kom til Tallinn á föstudaginn og þar var mjög mikið um sovéska hermenn. Þeir vöktuðu meðal annars sjónvarpshúsið, pósthúsið og fleiri byggingar og stofnanir. Það var aug- Ijost að fólk bjóst við sovéska hern- um, en ekki að hann léti til skara skríða." Morgunblaðið/Júlíus Ólöf Ýr með eistlenskt dagblað þar sem farið er lofsamlegum orð- um um afstöðu og velvild Islend- inga í garð Eystrasaltsrílganna. Þegar Ólöf Ýr kom til Litháen fyrir rúmri viku sagði hún að fólk hefði verið við öllu búið. Mögulegar aðgerðir sovéske. hersins hefðu verið mál málanna og mikil spenna hafí verið í loftinu. „Almenningur er mjög reiður út í Gorbasjov vegna kröfu ráðamanna í Moskvu um að Eystrasaltsríkin við- urkenni að þau tiíheyri enn Sovéska ríkjasambandinu," sagði Ólöf Ýr. Rússar eru stærsti minnihlutahóp- urinn í Eystrasaltsríkjunum og líta gjarnan á sig sem Sovéta frekar en Rússa. Þeir hafa mótmælt úrsögn úr ríkjasambandinu og eru þvf á annarri skoðun en Boris Jeltsín, for- seti Rússlands, sem hefur fordæmt atburðina í Litháen. Ólöf Ýr fór til Eystrasaltsríkjanna á vegum Norðurlandaráðsþings æsk- unnar. Æskufólkið fór til höfuðborga allra Eystrasaltsríkjanna og ræddi þar meðal annars við þingmenn og fulltrúa æskulýðshreyfinga. Alls staðar kom fram mikil ánægja með afstöðu íslendinga til Eystrasaltsríkj- anna og sagði hún marga telja ís- lendinga meðal helstu bandamanna sinna á Vesturlöndum. Hún sagði ástandið i ríkjunum mjög bágborið. Verslanir væru tómar en samt væru langar biðraðir eftir þeirri vöru sem þó fengist. „Það er mjög mikið skammtað í verslunum. Nærföt og sokkar eru meðal þess sem skammtað er og einnig flest matvæli," sagði Ólöf Yr. Gunnar Birgisson, formaður bæjarráðs Kópavogs: Gott eitt um ályktun bæjarstjómar að segja GUNNAR Birgisson formaður bæjarráðs Kópavogs segir að allt gott sé um ályktun bæjarsijórnar að segja, þar sem lýst er trausti á ráðgjafanefnd bæjarráðs varðandi framkvæmdir í Smárahvammsl- andi og því lýst yfir að samningar hafi í einu og öllu verið haldnir. Tilefni ályktunarinnar var viðtal við Gunnar í Morgunblaðinu 28. desember siðastliðinn, eins og fram kom í frétt hér í blaðinu í síðustu viku. Gunnar var ekki á landinu þegar ályktunin var samþykkt. Gunnar sagði 1 samtali við Morg- unblaðið að gagnrýni sín hefði ekki beinst að framkvæmd samning- anna, enda hafi hann tekið það fram í viðtalinu að þeir hefðu verið haldn- ir. Hins vegar hefði hann gagnrýnt sjálfa samningana og sú gagnrýni standi enn. „Það er allt gott um þessa álykt- un að segja, en það stendur í henni að aðilar hafi auðvitað mismunandi álit á ágæti upphaflega samnings- ins við Fijálst framtak hf. Allar mínar fullyrðingar standa eftir sem áður um að þetta hafi verið lélegir samningar fyrir bæjarfélagið og að þessi ráðgjafanefnd hafi bjargað því sem bjargað varð fyrir Kópavog í þessum málum. í ályktuninni kem- ur líka fram að allir aðilar þessa máls ætli að vinna heilshugar áfram að uppbyggingu í Kópavogsdal, eins og kom fram í mínum orðum,“ sagði Gunnar. Neskaupstaður: Formaður bæjarráðs ráðinn bæjarstjóri GUÐMUNDUR Bjarnason var í gær ráðinn bæjarstjóri í Néskaup- stað. Guðmundur er jafnframt formaður bæjarráðs og var í 2. sæti á lista Alþýðubandalagsins við síðustu kosningar. Hann tekur við starfinu í byijun apríl. Guðmundur hlaut 5 atkvæði Alþýðubandalags- ins er ráðið var í stöðuna á fundi bæjarstjórnar í gær, aðrir fulltrú- ar sátu hjá. „Starfíð leggst ágætlega í mig, en svona störf virðast vera hálf kvikul, meira að segja hér á Nes- kaupstað,“ sagði Guðmundur í gær. Hann sagðist fá leyfi frá störfum hjá Síldarvinnslunni í þijú ár. Guðmundur hefur verið starfs- mannastjóri Síldarvinnslunnar og sagðist hann fara úr því starfi með dálitlum söknuði. Hann er borinn og barnfæddur á Neskaupstað árið 1949. Lauk stúndentsprófí frá Menntaskólanum á Laugarvatni og BA-prófí í félagsfræði frá Háskóla íslands árið 1973. Þá hóf hann að kenna við gangfræðaskólann í Nes- kaupstað og kenndi til ársins 1977 er hann hóf störf hjá Síldarvinnsl- unni. Guðmundur tekur við starfinu af Ásgeiri Magnússyni sem verið hefur bæjarstjóri undanfarin ár. Æfingar að hefjast á stóra sviðinu Byggingarnefnd Þjóðleikhússins kynnti á mánudag leikurum og öðrum starfsmönnum verkáætlun vegna breytinga á Þjóðleikhúsinu en nú eru um 100 iðnaðarmenn að störfum í húsinu. í næstu viku er fyrirhugað að setja upp veggþiljur í sal, teppaleggja og mála en áætlun gerir ráð fyrir að húsið opni 15. mars og eru leikarar og aðrir að hefja æfíngar á stóra sviðinu fyrir fyrstu sýningamar. Deilt um rækjuverð og aðeins 9 bátar róa Boiungarvík. MIKIL óánægja er meðal rækju- sjómanna við Isafjarðardjúp með verð og sölufyrirkomulag á rækju. Niðurstaða af fundarhöld- um sjómanna er sú að um það bil tveir þriðju hluti rækjubáta, en þerr eru alls 32 hér við Djúp, liggur bundinn við bryggju frá og með gærdeginum en 9 bátar, sem leggja upp afla sinn hjá Nið- ursuðuverksmiðjunni hf. á ísafirði munu halda áfram veið- um þar sem verksmiðjan hefur gert samkomulag um að greiða áfram það verð sem í gildi hefur verið fram að þessu. Verðlagsráð átti að vera búið að ákveða nýtt rækjuverð fyrir 15. janúar, en það liggur ekki fyrir enn. Sjómenn buðu kaupendum að kaupa rækjuna á Verðlagsráðsverði því sem gildir til 15. janúar, en kaupendur höfnuðu því en voru hins vegar tilbúnir að kaupa rækju á væntanlegu Verðlagsráðsverði. Því vilja sjómenn ekki una þar sem fyr- ir liggur að kaupendur hafa farið fram á 20% lækkun á rækjuverði, sem myndi þýða að verð á rækju hefði lækkað um 25% frá því í haust. Sjómenn benda á að Þjóðhags- stofnun hafi spáð 18% tapi á rækju- vinnsiunni og vilja þeir meina að 25% lækkun sé ekki réttlætanleg á Guðmundur Bjarnason Ásgeir hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar. sama tíma og olía og aðrir kostnað- arliðir til útgerðar hafí stórhækkað. Þá gagnrýna þeir harðlega þá til- högun stjórnvalda að rækjukvótan- um sé skipt á milli verksmiðjanna og sjómenn þannig skikkaðir til að selja rækjunaí ákveðnar verksmiðj- ur. Þetta fyrirkomulag kemur í veg fyrir að sjómenn geti selt þeim rækjuafla sinn sem besta verðið bíður. Þeir óska eftir að losað verði um þennan verksmiðjukvóta þannig að eðlileg samkeppni skapist á þess- um markaði. Áætlað er að Verðalagsráð komi saman í dag og ætla rækjusjómenn að funda þegar þeir hafa haft frétt- ir af niðurstöðum fundar Verðlags- ráðs. Þar mun verða tekin ákvörðun um framhald í þessu máli. Gunnar Morgunblaðið/Þorkell Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, starfsmaður Baulu, með ostlík- ið. Baula hf.: Ostlíki í neytenda- pakkningar fljótlega BAULA hf. hefur hafið sölu á ostlíki til pizzugerðar, en fyrsta sendingin af þeim 40 tonnum sem viðskiptaráðherra hefur heim- ilað innflutning á var afgreidd til fyrirtækisins í gær. Að sögn Þórðar Ásgeirssonar, forstjóra Baulu, hafa pizzustaðir sýnt ostlíkinu mikinn áhuga, og margir þeirra hafa gert pantanir. „Áhugi pizzugerðarmanna er verið tollflokkað hér sem ýmis mikill á ostlíkinu þrátt fyrir það að landbúnaðarráðuneytið með ráðherra í broddi fylkingar hafí gert allt sem þeir geta til að gera þetta tortryggilegt. Það koma allir pizzugerðarmenn t.il með að prófa ostlíkið, og þá er ég ekkert hræddur um að þeir haldi ekki áfram að nota það, því þetta er það góð vara,“ sagði Þórður. Hann sagði að ostlíkið hafi matvæli, og þannig væri það einnig tollflokkað hjá Efnahags- bandalaginu, en mikið magn af ostlíki væri flutt inn til EB þjóð- anna frá Bandaríkjunum. Ostlíkið sem komið er til lands- ins er í sérstökum pakkningum fyrir veitingahús, en að sögn Þórðar verður það á næstunni einnig flutt inn í neytendapakkn- ingum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.