Morgunblaðið - 16.01.1991, Síða 25
24
25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1991
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1991
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Sýnum hug
okkar í verki
Mikhaíl Gorbatsjov, forseti
Sovétríkjanna, hefur borið
blak af blóðverkum Rauða hers-
ins í Vilnius. Hann hefur lýst
því, hvernig ákvörðun var tekin
um að ráðast á almenna borgara
með skotvopnum og skriðdrek-
um og sagt að ákvörðun um það
hafi ekki verið tekin af sér en
hann hefur ekki andmælt henni.
Sem valdamesti maður Sov-
étríkjanna ber Gorbatsjov
ábyrgð á þessum verkum. Hann
getur ekki skotið sér undan því.
Þau minna á atburðina á Torgi
hins himneska friðar í júní 1989,
þegar skriðdrekum var ekið yfir
friðsama námsmenn þar, er
kröfðust lýðræðislegra stjórnar-
hátta. Eftir þá atburði var grip-
ið til margvíslegra alþjóðlegra
aðgerða til að þrengja að
kínverskum stjórnvöldum og
viðbrögðin voru skjót og mark-
viss.
Þegar þjóðirnar í Austur-Evr-
ópu tóku að fikra sig undan
sovésku valdi, óttuðust þær
mest að ráðist yrði á borgara
þeirra við friðsöm mótmæli að
kínverskri fyrirmynd. Þegar
ljóst varð að Rauða hernum yrði
ekki beitt í fylgiríkjum Kreml-
verja hrundu einræðisherrar og
ríkisstjórnir þeirra hver af ann-
arri. Menn sannfærðust um að
Gorbatsjov hefði horfið frá vald-
beitingarstefnu þeirra Nikíta
Khrútsjovs og Leoníds Brez-
hnevs. Var á það minnt að Gorb-
atsjov hefði verið á ferð í Kína
í þann mund sem námsmenn
tóku að sækja í sig veðrið í lýð-
ræðisbaráttunni. Tengdist nafn
hans þeirri baráttu, þótt reist
væri eftirmynd af Frelsisstytt-
unni við New York á Torgi hins
himneska friðar til áréttingar
lýðræðisást mótmælenda.
Eftir valdbeitinguna í Vilnius
er Gorbatsjov í sömu sporum og
kínverskir ráðamenn eftir blóð-
baðið á Torgi hins himneska
friðar. í Sovétríkjunum eins og
Kína á ekki að túlka breytt við-
horf valdastéttarinnar til efna-
hagsstjórnar á þann veg, að hún
þoli lýðræðislega stjórnarhætti
sem eru forsenda þess að efna-
hagur blómstri við markaðsbú-
skap. Kommúnistar eru enn við
völd þótt þeir hafi hafnað komm-
únismanum.
Þessi skilgreining á þróun
mála í Sovétríkjunum leiðir til
þeirrar niðurstöðu, að undir for-
ystu Gorbatsjovs sé ekki að
vænta frekari marktækra skrefa
í átt til frjálsræðis þar. Eftir að
hafa sveiflast á miðjunni um
nokkurt skeið hefur hann ákveð-
ið að veðja á herinn og harðlínu-
menn.
I rúm sjötíu ár hafa nágrann-
ar Sovétríkjanna búið við þetta
vald. Þeir hafa lagað sig að því
eftir aðstæðum hveiju sinni.
Sumir hafa barist við það, aðrir
gert við það bandalag á
stríðstímum og snúist gegn út-
þenslu þess á friðartímum. Sam-
starfið hefur aldrei orðið eins
náið eða meiri vonir verið bundn-
ar við það en í stjórnartíð Gorb-
atsjovs. Þeim mun meiri verða
vonbrigðin þegar hann tekur að
beita hemum gegn almennum
borgurum.
Astæðulaust er að gefa upp
vonina um að frelsisandi geti
feykt einræðisherrum á brott
úr einstökum lýðveldum Sov-
étríkjanna eða jafnvel Kremlar-
kastala sjálfum. Þótt Rauði her-
inn sýni vígtennurnar, hefur
Gorbatsjov ekki þaggað niður í
hugdjörfum leiðtogum lýðveld-
anna. Andstaðan gegn Moskvu-
valdinu er mögnuð heima fyrir
og hún magnast.
Á viðsjárverðum tímum
vegna hættunnar við Persaflóa
eiga vestræn stórveldi erfiðara
um vik en ella að bregðast af
hörku við ofbeldi Sovétstjórnar-
innar. Þeim mun meiri ástæða
er fyrir smáþjóðir að láta að sér
kveða. Samhljóða ályktun Al-
þingis á mánudag var framlag
til þess og jafnframt aðgerðir
íslenskra stjórnvalda. Þau hafa
hins vegar rekið sig á, að litið
er á aðförina að Litháum sem
sovéskt innanríkismál, sem ekki
eigi heima á vettvangi Samein-
uðu þjóðanna. Sú staðreynd
ætti að ýta undir vilja íslensku
ríkisstjórnarinnar til að stíga
skrefið til fulls og viðurkenna'
sjálfstæði Eystrasaltsþjóðanna
með formlegum hætti. Við eig-
um að að taka upp stjórnmála-
samband við þau og láta á það
reyna, hvort þau geta tekið við
sendiherrum eða ræðismönnum.
Þá skal enn skorað á íslensk
stjórnvöld að tilkynna Sovét-
stjórninni að starfsmönnum í
sendiráði hennar hér á landi
skuli fækkað.
Sérhvert land verður að
bregðast við þróuninni í Sov-
étríkjunum eftir því sem geta
þess og hagsmunir leyfa. Of-
beldið gagnvart Eystrasaltsríkj-
unum höfðar sterkt til okkar
Islendinga, þjóðirnar þar eru
nánastar okkur af þeim, sem
vilja losna undan sovéska ný-
lenduvaldinu. Viðbrögðin eiga
að vera í samræmi við það.
Menntamálaráðherra um útsendingar á efni frá CNN;
Til athugnnar að breyta
reglum um þýðingarskyldu
Reglugerðin ekki í samræmi við anda
laganna, segir sjónvarpsstjóri Stöðvar 2
SVAVAR Gestsson menntamálaráðherra, segist velta því fyrir sér að
breyta reglugerð um þýðingarskyldu á erlendu sjónvarpsefni um gervi-
hnött. Sagði hann að forráðamenn CNN hefðu haft samband við ráðu-
neytið og óskað eftir að kannað yrði hvort þýðingarskylda ætti við um
viðstöðulausar sendingar frá stöðinni um gervihnött. Að mati Þorbjörns
Broddasonar formanns útvarpsréttarnefndar, standast beinar útsending-
ar Stöðvar 2 frá CNN ekki fyllilega reglur um þýðingarskyldu. Þorvarð-
ur Elíasson sjónvarpsstjóri telur að ákvæði reglugerðar um þýðingar-
skyldu sé ekki í samræmi við anda útvarpslaganna ef þau verða notuð
til að stöðva þessar útsendingar. Tveir nefndarmenn í útvarpsréttar-
nefnd og ritari nefndarinnar funduðu um þetta mál með sjónvarps-
stjóra og einum starfsmanni Stöðvar 2 í gær. Nefndin tekur málið form-
lega fyrir á fundi sem væntanlega verður haldinn síðdegis I dag.
Menntamálaráðherra sagði, að
hann liti á útsendingar Stöðvar 2 á
efni frá CNN sem tilraunaútsending-
ar og engin áform væru uppi um að
stöðva þær. „Ég hef velt fyrir mér
að breyta reglugerðinni en ekki tekið
endanlega ákvörðun," sagði hann.
Þorvarður Elíasson sagði, að Stöð
2 hefði fengið ókeypis rétt til útsend-
inga á efni CNN í einn mánuð í til-
raunaskyni. „Það á eftir að ganga
frá ýmsum málum hér heima, bæði
þýðingarskyldunni og samningum
við Póst og síma, en við erum að
vinna að því,“ sagði hann. Hann
sagði að ekki hefði verið sótt um
undanþágu til útvarpsréttamefndar.
„Ég held að það sé skoðun okkar
og sumra í útvarpsréttamefnd að það
sé ekki í samræmi við anda laganna
ef þau eru notuð til að stöðva svona
fréttasendingar á þessum tíma. Ef
andi laganna og reglugerðin stangist
á, þá eigi reglugerðin að víkja. Reglu-
gerðin byggist á þeirri grein útvarps-
laga sem segir að íslenskt mál skuli
vemdað. Við . teljum okkur ekþi
stofna íslensku máli í neina hættu
með þessari útsendingu, sem er í til-
raunaskyni og óvíst hvað henni verð-
ur haldið lengi áfram.“
„Að athuguðu máli er það niður-
staða mín að útsendingarnar standist
ekki fyllilega reglur um þýðingu er-
lends efnis,“ sagði Þorbjöm Brodda-
son formaður útvarpsréttamefndar í
gær þegar álits hans var leitað.
í 6. grein reglugerðar um útvarp
samkvæmt tímabundnum leyfum
segir m.a.: „Efni á erlendu máli, sem
sýnt er í sjónvarpi, skal jafnan fylgja
íslenskt tal eða neðanmálstexti á
íslensku, eftir því sem við á hvetju
sinni. Það skal þó ekki eiga við, þeg-
ar í hlut eiga erlendir söngtextar eða
þegar dreift er viðstöðulaust um
gervihnött og móttökustöð fréttum
eða dagskrárefni, er sýnir atburði,
sem gerast í sömu andrá. I síðast-
greindu tilviki skal að jafnaði fylgja
kynning eða endursögn þular.“
Þorbjörn sagði að sendingar
Stöðvar 2 á efni frá CNN stönguð-
ust á við þessar reglur, að því leyti
sem þær væru ekki beinar. Um það
væri óþarft að deila. Hann væri ekki
í neinum vafa um lögmæti reglugerð-
arinnar og hún væri í góðu samræmi
við anda útvarpslaganna.
Þorbjörn sagði að viss sveigjan-
leiki væri í reglunum um þýðingar-
skyldu. Sagðist hann vonast til að
þegar reynsla væri komin á sendin-
garnar tækist Stöð 2 að fara eftir
reglugerðinni, til dæmis með því að
flytja eftirá samantekt á efninu.
Hann sagði að útvarpsréttarnefnd
myndi koma saman til að ræða mál-
ið, væntanlega síðdegis í dag. Fyrr
yrði ekkert gert. Útvarpsréttarnefnd
veitir leyfi til útvarpsreksturs. Hún
getur afturkailað leyfi sín, að undan-
genginni aðvörun, ef stöðvar fara
ekki að settum reglum.
Formaður útvarpsréttarnefndar
tók sérstaklega fram að útsending
Stöðvar 2 á efni CNN væri merkilegt
framtak. CNN væri að mörgu leyti
sérstök stöð, flytti mikið af fréttum
í beinum útsendingum og mest allt
efni hennar væri nýtt. Þorbjöm sagði
útvarpsréttarnefnd ekki hafa viljað
bregða fæti fyrir það að hægt væri
að greina sem mest og best frá at-
burðum á þessum viðsjárverðu
tímum, það væri ekki í þágu almenn-
ings.
Þorvarður sagði að Stöð 2 vildi
sjá hvaða viðtökur þetta framtak
fengi hjá almenningi áður en ákveðið
yrði að semja við CNN um að senda
efni þeirra út til frambúðar. „Við
erum ekkert sannfærðir um að al-
menningur hafi áhuga á því að borga
fyrir opnun annarrar rásar, nema á
sérstökum óvissutímum eins og nú
eru,“ sagði hann. Þorvarður sagði
ekki ljóst hvað útsendingar CNN
myndu kosta. „Ef það ætti að þýða
það sem út er sent yrði það gífurlega
kostnaðarsamt og fremur ólíklegt að
tekjur stæðu undir slíku.“ Tæknilega
væri ekkert því til fyrirstöðu að þýða
efnið, eins og túlkar þýða beint á
ráðstefnum. „En ég held að það yrði
ekki til að efla íslenskt mál eða
vemda. Það er ekki á færi nokkurs
manns að þýða viðstöðulaust yfir á
lýtalausa íslensku," sagði Þorvarður.
Stöð 2 fékk í gær jákvæð viðbrögð
vegna útsendinga á CNN efninu, að
sögn sjónvarpsstjórans. Hann sagði
að það hefði komið á óvart að fólk
hefði hringt til að þakka þeim fyrir
að senda efnið út óþýtt, teldi að það
myndi skemma útsendinguna að lesa
á íslensku ofan í hana. „Okkur er
það þó ljóst að það er ekki stór hluti
landsmanna sem getur notið þessa
að fullu, til þess þarf fólk að hafa
gott vald á erlendu máli," sagði hann.
i'vK i 1
■ í -X p « t
L * k
1 í f 1 " 1
Morgunblaðið/Sverrir
Ólafur Þ. Stephensen flytur ávarp sitt, fjær standa Davíð Oddsson og kona hans Ástríður Thorarens-
en, Þorsteinn Pálsson, Davíð Stefánsson formaður SUS og Belinda Theriault framkvæmdarstjóri SUS.
Um 800 manns á mótmælafundi við sovéska sendiráðið:
Samviskan ein er það vald
sem frjálsir menn hlýða
- sagði Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins
„ÞJÓÐIRNAR við Eystrasalt eiga rétt á að njóta sjálfstæðis og full-
veldis. Við Islendingar styðjum það heils hugar,“ sagði Þorsteinn
Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins á mótmælafundi við sovéska
sendiráðið í Reykjavík í gær. „Samviskan ein er það vald sem frjáls-
ir menn hlýða.“ Til fundarins var boðað af Sambandi ungra Sjálf-
stæðismanna til að mótmæla valdbeitingu sovétstjórnarinnar í Lithá-
en og voðaverkum Rauða hersins í borginni Vilnius um helgina.
Að sögn lögreglu sóttu 800 manns fundinn. Þegar Belinda Theria-
ult framkvæmdastjóri SUS afhenti sendiráðsritara Sovétríkjanna
ályktun fundarins kölluðu fundarmenn nafn Litháens. Aðrir ræðu-
menn voru Davíð Oddsson borgarstjóri og Ólafur Þ. Stephensen
blaðamaður.
Ólafur rakti hliðstæðar fyrri að-
gerðir Rauða hersins. „Uppreisn í
Berlín var kæfð í blóði 1953, þá
komu innrásir í Ungvetjaland 1956
og Tékkóslóvakíu 1968. í skugga
sovésks valds tók herinn í Póllandi
völdin 1981. Enn ein þjóð hefur
orðið fyrir barðinu á grimmdar-
æðinu sem grípur Kremlarherrana,
þegar þeim virðast völd þeirra
þverra. Við getum vonað með
Eystrasaltsþjóðunum, hjálpað þeim
að halda vakandi von um frelsi og
sjálfstæði,“ sagði Ólafur.
Þorsteinn Pálsson sagði hryggi-
legt að Rauði herinn hefði enn á
ný beitt valdi vopnanna til að fót-
umtroða rétt Eystrasaltsþjóðanna
til að endurheimta frelsi sitt og
fullveldi. Vonbrigðin yfir þróuninni
væru mikil þar sem vónir voru um
að á bak við nýja samninga um
afvopnun og um frelsi Austur-Evr-
ópuþjóðanna væri ærleg hugsun
um viðurkenningu á lýðræði og
mannréttindum. „Við höfum orðið
fyrir vonbrigðum vegna þess að
leiðtogi Sovétríkjanna fékk fyrir
fáum vikum friðarverðlaun Nóbels,
og hefur nú svarað fyrir sig með
einstæðum hætti,“ sagði hann.
„Við erum skelfíngu lostin vegna
atburða í lýðveldunum þremur, sem
Hitler færði Stalín sem morgungjöf
er heimsstyrjöldin seinni hófst,“
sagði Davíð Oddsson. „Við trúðum,
að Gorbatsjov umfram aðra menn
skildi að hann gæti ekki lengur
haft frelsið af þessum þjóðum með
vísun til þess eins sem þeim hafði
farið á milli, Hitler og Stalín. En,
enn skal kastað skuggum þessara
fúlmenna fortíðarinnar yfir þessi
smáu og saklausu menningarríki."
Hann minnti á orð Landsbergis
forseta, að sú þjóð sem ekki vildi
leggja neitt í sölurnar fyrir frelsi
sitt ætti það ekki skilið. „Þótt nú
hafi orðið vonarbrestur, skynjum
við af orðum hans að í þeim felst
að vonir munu vakna á ný í löndun-
um þremur. Draumur þeirra um
fijálst mannlíf og óbugað at-
hafnaiíf í ríki sem virðir þegna sina
verður að veruleika," sagði Davíð.
Get ekki tekið
þetta alvarlega
-segir forsætisráðherra um viðvörun 14 einstaklinga
STEINGRÍMUR Hermannsson,
forsætisráðherra, hafnar því að
hægt sé að draga íslensk stjórn-
völd til ábyrgðar vegna afleið-
inga stríðs við Persaflóa en 14
einstaklingar á Islandi, sem eiga
vini og ættingja á hugsanlegum
átakasvæðum, sendu ráðherrum
viðvörun fyrir helgina þar sem
því er lýst að ráðherrar verði
dregnir til ábyrgðar vegna af-
leiðinga stríðsins. „Ég skil vel
áhyggjur þessa fólks en kann
engin ráð,“ segir Steingrímur.
í bréfinu segir m.a. að einstakl-
ingarnir 14 áskilji sér rétt til að
draga persónulega til ábyrgðar,
lagalega eða með öðrum hætti,
hvern og einn ráðherra í ríkisstjórn-
inni vegna afleiðinga sem stríð
kynni að hafa á ættingja og vini á
hugsánlegum átakasvæðum.
Steingrímur sagðist telja þetta
mjög vafasamt orðalag. Kvaðst
hann binda vonir við frumkvæði
Frakka til lausnar Persaflóadeil-
unni. „Ég tel að íslendingar hafi
gengið nokkuð langt í tilraunum til
að koma með hugmyndir sem gætu
komið í veg fyrir átök. Ríkisstjórnin
hefur viljað tengja þetta óbeint
Palestínumálinu og að lofað verði
að það verði tekið upp eftir að her
íraks hefur farid út úr Kúveit,"
Sagði hann að Frakkar hefðu
lagt fram samskonartillögu nú. „Ég
er ekki að segja að hugmyndin
hafi komið frá okkur en Bandaríkin
og Bretar hafa hafnað henni. Við
eigum þarna samstöðu með Frökk-
um og fleiri þjóðum í Evrópu og
höfum ekki farið leynt með það.
Ég get því ekki tekið það alvarlega
að hægt sé að draga okkur til
ábyrgðar, því fer víðsfjarri. Það er
dálítill örvæntingarkeimur af þessu
en ég skil vel áhyggjur þessa fólks,“
sagði Steingrímur.
Jón Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, sagðist vilja benda
bréfriturum á að kynna sér frum-
kvæði Norðurlandanna til lausnar
Persaflóadeilunni en vildi ekki tjá
sig að öðru leyti um bréfið.
Ólafur Ragnar Grímsson, fjár-
málaráðherra, hafði ekki kynnt sér
innihald bréfsins þegar haft var
samband við hann í gær. Bréfið,
sem barst á póstfaxi til fjölmiðla á
mánudag var sent frá skrifstofu
Alþýðubandalagsins. Kvaðst Ólaf-
ur, aðspurður um skýringu á því,
ekki vita hvernig á því stæði en .
margir fengju að nota faxtækið á
flokksskrifstofu Alþýðubandalags-
ins.
Kirkjan mót-
mælir ofbeldi
í Eystrasalts-
ríkjunum
KIRKJURÁÐ Þjóðkirkju íslands
hlýddi síðastliðinn mánudag á
boðskap Karlis Gailitis erkibis-
kups Lúthersku kirkjunnar í Lit-
háen, sem biskupi íslands barst í
símskeyti. í fréttatilkynningu af
því tilefni frá hr. Ólafi Skúlasyni,
biskupi, segir að Kirkjuráð mót-
mæli harðlega öllu ofbeldi og
kúgun.
Karlis Gailitis sendi erindi sitt til
biskupa og kirkjuleiðtoga í Evrópu
og Ameríku. Hann vekur athygli á
ofbeldi sovéskra hersveita með
stuðningi kommúnistaflokksins í Lit-
háen og leitar eftir stuðningi við •*
viðleitni þeirra sem vinna að frið-
samlegri lausn á frelsisbaráttu
Eystrasaltsríkj anna.
„Kirkjuráð mótmælir harðlega
öllu ofbeldi og kúgun og sendir
Eystrasaltsþjóðunum kveðjur sínar
og heitir bænum sínum og kirkjunn-
ar. Kirkjuráð lýsir einnig yfir stuðn-
ingi við framgöngu stjórnvalda á
Islandi í málum, Eystrasaltsþjóð-
anna,“ segir í tilkynningu biskups.
Loðnuveiðibannið framlengt:
Forðast ætti styrkveiting-
ar til loðnuverksmiðjanna
- segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra
„VIÐ höfum tekið ákvörðun um að framlengja loðnuveiðibannið og
halda Ioðnurannsóknunum áfram,“ segir Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra. „Ég tel að í þjóðfélaginu sé mjög lítið svigrúm til að
fara út í miklar styrkveitingar til Ioðnuverksmiðjanna, enda hefur
andinn i forystumönnum atvinnulífsins verið sá á undanförnum árum
að slíkt ætti að forðast og ég er því sammála. Aftur á móti hljóta
alltaf að vera ákveðnar undantekningar. Að mínu mati er fyrst og
fremst um það að ræða að bankar framlengj lán og létti greiðslu-
byrði af verksmiðjunum," segir Halldór. Jón Ólafsson, framkvæmda-
sýóri Félags íslenskra fiskmjölsframleiðenda, segir að ljóst sé að all-
ar loðnuverksmiðjurnar séu nú reknar með tapi og sumar þeirra séu
í gríðarlegum vandræðum.
„Það er alveg ljóst að þegar þjóð-
arbúið verður fyrir svona stóru
áfalli er engin leið að bæta það.
Hitt er svo annað mál að við verðum
að reyna að lifa það af og vera í
stakk búnir að taka til starfa á
nýjan leik þegar loðnan gefur sig
á ný. Til þess mun þurfa marg-
víslegar ráðstafanir. Við settum á
stofn nefnd í desember til að vinna
í því máli og hún hefur átt nokkra
fundi. Við höfum átt fund með
bankastjórum stærstu viðskipta-
banka þessara aðila og farið þess
á leit við þá að þeir gerðu útttekt
á fjárhagsstöðu þeirra og banka-
stjórarnir hafa fúslega orðið við
því, enda snertir málið þeirra við-
skiptavini," segir Halldór.
Vil reyna að komast hjá að
skerða kvóta annarra skipa
„Þá hefur flotinn farið mjög
ákveðið fram á það að fá aðrar
aflaheimildir í stað loðnunnar. Það
verður ekki gert nema með veru-
legri skerðingu á hinum hluta flot-
ans, sem ég vil reyna að komast
hjá, eins og nokkur kostur er, því
ég finn mjög fyrir því hversu marg:
ir eru óánægðir með sinn hlut. í
þetta mál er ekki komin niðurstaða
en við munum halda áfram þessu
undirbúningsstarfi, þannig að það
geti legið fyrir um eða upp úr næstu
mánaðamótum," upplýsir Halldór.
Hann segir að Hafrannsókna-
stofnun sé að vinna að tillögum um
nýja loðnurannsóknaáætlun. „Við
munum fara eftir þeirri áætlun þeg-
ar þeir hafa lokið við hana,“ fullyrð-
ir Halldór. „Ef Hafrannsóknastofn-
un leggur til að loðnuskipin taki
áfram þátt í loðnurannsóknunum,
eins og mér heyrist að stofnunin
hafi mikinn áhuga á, munum við
leita eftir því við flotann að það
verði gert. Við gerum okkur hins
vegar fulla grein fyrir því að erfitt
er að velja þau skip en teljum að
það megi ekki koma í veg fyrir að
loðnuskip verði með í mikilvægum
rannsóknum,“ segir Halldór.
Sjávarútvegsráðherra segist telja
það á margan hátt eðlilegt að önn-
ur loðnuskip taki þátt í þeim loðnu-
rannsóknum, sem fyrirhugaðar eru
á næstunni, en þau 6 skip, sem
tekið hafa þátt í þeim til þessa.
Búið er að veiða um 120 þúsund
tonn af loðnu í vetur en heildar-
loðnukvótinn er 600 þúsund tonn á
þessari vertíð. Loðnuveiðar voru
hins vegar bannaðar í síðasta mán--
uði. íslensk skip veiddu 85 þúsund
tonn af loðnu í haust og erlend
skip 25 þúsund tonn, þannig að
veidd voru 110 þúsund tonn af
loðnu á haustvertíðinni.
Þau 6 loðnuskip sem hafa tekið
þátt í loðnuleiðangri Hafrannsókna-
stofnunar í þessum mánuði mega
veiða fullfermi af loðnu tvisvar sinn-
um sem greiðslu fyrir rannsóknirn-
ar, eða samtals um 12 þúsund tonn
og sjávarútvegsráðherra segir að
önnur loðnuskip, sem taki þátt í
loðnurannsóknunum, fái greitt fyrir
þátttökuna með sama hætti.
Gjaldþrot blasir við fái
loðnuskip ekki aukinn kvóta
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, segir að gjaldþrot blasi við
útgerðum loðnuskipa ef þær fái
ekki skerðingu á loðnuaflakvóta
bætta með auknum kvóta í öðrurn
tegundum, til dæmis bolfiski, rækju
og síld. Kristján upplýsir að niður-
stöður mælinga Hafrannsókna-
stofnunar séu þær að loðnustofninn
sé nú 320 þúsund tonn, eða 50
þúsund tonnum minni en mælingar
í haust gáfu til kynna.
„Það er hins vegar breytileiki
Loðnufrysting í Vestmannaeyj-
um.
þessara mælinga og það gæti eins
verið á hinn veginn að við ætlum.
Þessi niðurstaða núna undirstrikar
að þetta er ekki sambærilegt við
það, sem var í fyrra. Þess vegna
leggjum við áherslu á að útgerðar-
menn loðnuskipa og áhafnirnar fái
að vita hvað þeirra bíði.“
Kristján segir að á fundi sjávar-
útvegsráðherra með hagsmunaaðil-
um í gær hafi enginn lagt til að
loðnuveiðar yrðu leyfðar að sinni.
Menn vilji hins vegar fá svör við
því hvað veiðimöguleika loðnuskipin
eigi að hafa. „Ég vitna til þess að
alveg síðan kvótakerfið var sett á,
árið 1984, hafa eigendur ioðnuskiþa
deilt erfiðleikum með öðrum með
þeim hætti að þeirra botnfiskveiði-
réttur hefur verið skertur mikið til
að létta undir með öðrum.
Sjávarútvegsráðherra hefur hins
vegar ekki treyst sér til að kveða
upp úr með það hvoit hann treystir
sér til að nýta heimild í nýjum lög-
um um stjórn fiskveiða til að auka
botnfiskkvóta loðnuskipa á kostnað
annarra ef loðnuveiðar bregðast.
Við erum hins vegar mjög óánægð-
ir með það og teljum að ekki sé
lengur hægt að draga að taka þær
erfiðu ákvarðanir og undan því
verði ekki vikist," segir Kristján.
Hann segist telja að ekki sé leng-
ur ástæða til að gera sér vonir um
mikla loðnuveiði í vetur. Hins vegar
eigi að fylgjast með loðnunni þegar
hún gengur inn á grunnið, inn í
bugtirnar, og þá telji menn að betur
verði hægt að átta sig á hvaða
magn sé á ferðinni.
Jón Ólafsson, framkvæmdastjóri
Félags fiskmjölsframleiðenda, segir
að Hafrannsóknastofnun sé mjög
ánægð með samvinnu hennar og
loðnuskipstjóra. „Ég held að þessi
samvinna sé upphafið að breyting-
um á loðnuveiðum okkar, þannig
að engar loðnuveiðar verði heimiL
aðar fyrr en að afloknu svona loðnu-
rallíi. Greiðsla fyrir þátttöku í því
yrði þá í formi loðnu,“ segir Jón.
Togarar urðu varir við
stóra loðnu á Halamiðum
Guðjón A. Kristjánsson, forseti
Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands, segir að tveir togar-
ar hafi orðið varir við stóra loðnu
á Halamiðum í þessum mánuði.
Guðjón segist halda að nauðsynlegt
sé að fara að ákveða hvort loðnu-
skipin megi veiða eitthvert ákveðið
hlutfall af loðnukvóta sínum á þess-
ari vertíð. Menn yrðu þá sjálfir að
gera það upp við sig hvort sú loðna
yrði veidd til bræðslu eða frysting-
ar. Sjálfsagt yrði það hlutfall ekki
nema 50-70 þúsund tonn til viðbót-
ar-við það, sem búið er að veiða
af loðnu í vetur, þannig að sum
skip væru nú þegar búin að veiða
sinn loðnukvóta,“ segir Guðjón.
„Ég þykist sjá það að við tækjum
enga sérstaka áhættu þótt loðnu-
skipin fengju auknar rækjuveiði-
heimildir. Sjálfsagt er einnig hægt
að láta loðnuflotann hafa einhverjar
síldveiðiheimildir. Við tökum enga
sérstaka áhættu í síldarstofninum,
enda þótt við leyfðum loðnuflotan-
um að veiða 50-60 þúsund tonn af
síld. Síðan þyrfti að auka botnfisk-
kvóta loðnuskipanna og samanlagt
verða þessar bætur sjálfsagt að
nema rúmlega 30 þúsund tonnum
í þorskígildum talið."
Guðjón segir að sparast hafi
nokkur þúsund tonn, þar sem afla-
kvóti hafi verið skertur vegna ís-
fiskútflutnings og hugsanlegt sé að
veita ráðherra heimild til að nýta
þennan kvóta upp í bætur til loðnu-
skipanna á þessu ári. „Síðan er
spurning hvort ráðuneytið vill beita
sér fyrir því að einhver af stærstu
og öflugustu loðnuskipunum færu
á gulllaxveiðar og þeim verði veitt-
ur sérstakur styrkur til þess.“
Óskar Vigfússon; formaður Sjó-
mannasambands Islands, segist
ekki telja líklegt að leyft verði að
veiða meira af loðnu í vetur. Óskar
segir að ef loðnuskipin fái aukinn
botnfiskkvóta samþykki fulltrúar
sjómanna ekki að þau fái að fram-
selja þann kvóta.
Snær Karlsson, formaður fisk-
vinnsludeildar Verkamannasam-
bands íslands, segir að starfsmenn
loðnuverksmiðjanna heyri undir
fiskvinnsludeildina og þeir séu trú-
lega 200-300 talsins. „Loðnuafla-
brestur hefur gífurleg áhrif á okkar
fólk, bæði atvinnulega og tekjulega
og einhveijir eru atvinnulausir
vegna aflabrestsins,“ segir Snær.
Þorvaldur Jóhannsson, bæjar-
stjóri á Seyðisfirði, segist halda að
tekjutap Seyðisfjarðarbæjar verði
25-30 milljónir króna ef frekari
loðnuveiðar verða ekki leyfðar í
vetur og að minnsta kosti 40 manns
missi vinnuna en á Seyðisfirði búi
977 manns. ^
„Seyðisfjörður fer verst
út úr loðnuveiðibanni“
„Ekkert byggðarlag fer jafn illa
út úr loðnuveiðibanni og Seyðis-
fjörður. Hafnarsjóðurinn tapar í
afla- og vörugjöldum 10-12 milljón-
um miðað við að hér verði landað
100-120 þúsund tonnum minna af
loðnu á þessari vertíð en undanfar-
in ár en Seyðisfjörður hefur verið
einn af hæstu löndunarstöðunum.
Aftur á móti var engin bolfisk-
vinnsla hér árið 1989 og Dverga-
steinn byijar ekki að vinna bolfisk
fyrr en um næstu mánaðamót.“
Þorvaldur segir að hugsanlegt
sé að Dvergasteinn kaupi togara á #-
næstunni en bæjar- og hafnarsjóður
eiga meirihlutann í fyrirtækinu.
Hann segir að tvö fyrirtæki, Síldar-
verksmiðjur ríkisins og Hafsíld,
hafi tekið á móti loðnu á Seyðis-
firði og rekstur þeirra verði mjög
erfiður ef loðnuveiðibannið verði
framlengt.
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri
í Vestmannaeyjum, segir að þar
verði framieiðsluverðmæti loðnu um
1,1 milljarði króna minna en á
síðustu vertíð ef ekki verði leyft að
veiða meira af loðnu á þessari
vertíð. Launakostnaður við fram- .
leiðsluna verði hins vegar um 300
milljónum króna minni en á síðustu
vertíð. Guðjón upplýsir að fram-
leiðsluverðmæti loðnunnar hafi ver-
ið 20% af heildarverðmæti þess,
sem Vestmanneyingar hafi fram-
leitt og beint tekjutap Vestmanna-
eyjabæjar verði 35-40 milljónir
króna ef ekki verði leyft að veiða **
meira af loðnu í vetur.