Morgunblaðið - 16.01.1991, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16.'JANÚAR 1991
31
Leysa gömul eða ný
öfl þj óðmálavandann?
eftir Tómas
Gunnarsson
Vaxandi átök milli gamalla og
nýrra afla í íslenskum stjórnmál-
um hafa átt sér stað síðustu ára-
tugi. Sókn Fijálslyndra og vinstri
manna inn á Alþingi með fimm
menn markaði þáttaskil árið 1971
og í kosningunum 1987 fengu ný
öfl fjórtán nýja þingmenn.
En er þess að vænta að umrót-
inu í stjómmálunum ljúki innan
tíðar? Nei, vonandi ekki. Meðan
kreppan í þjóðlfínu ríkir er full
ástæða til að vinna að breytingum
á þjóðlífsmynstrinu.
Margt er til marks um krepp-
una. Til dæmis hve örðugt stjórn-
völdum reynist að framkvæma það
sem þau hafa yfírlýst og sam-
mæli er um, svo sem að reka ríkis-
sjóð án halla, sem ekki hefur tek-
ist um árabil, þrátt fyrir samdrátt
í ýmissi opinberri þjónustu, svo
sem sjúkrahúsa, skóla, vegagerð-
ar, löggæslu pg fleiru. Aukning
þjóðartekna. Árið 1991 stefnir í
að verða ijórða árið í röð án hag-
vaxtar. Hækkun lægstu launa.
Kjaralegt misrétti fólks hefur auk-
ist geysilega á níunda áratugnum
og nú munu lögfræðileg inn-
heimtumál skipta tugum þúsunda.
Loks má nefna sífelldar frestanir
Luileggsiiótur er hægt
að nota á útsölum
ATHYGLI Neytendasamta-
kanna hefur verið vakin á því
að sumar verslanir taka ekki á
móti innleggsnótum ef um út-
sölu er að ræða.
Að mati Neytendasamtakanna
stenst slíkt ekki gagnvart lögum
nema það sé ótvírætt tekið fram
á innleggsnótunni. Neytendasam-
tökin telja slíkan fyrirvara þó ekki
dæmi um góða viðskiptahætti.
Þegar verslun hefur gefið út inn-
leggsnótu án fyrirvara, hefur
verslunin viðurkennt að neytand-
inn eigi kröfu á vörum að sömu
upphæð. Útsala, rýmingarsala eða
önnur sala á lækkuðu verði getur
á engan hátt breytt þessum rétti
neytandans, segir í frétt frá Neyt-
endasamtökunum.
■ REYKJA VIKURDEILD
Rauða kross Islands heldur nám-
skeið í almennri skyndihjálp. Nám-
skeiðið hefst fimmtudaginn 17. jan-
úar og stendur yfir 4 daga. Kennt
verður frá kl. 17-20. Kennsludagar
verða 17., 21., 22. og 24. janúar,
samtals 16 kennslustundir. Að
þessu námskeiði loknu verður þátt-
takendum gefinn kostur á að bæta
við sig 2 skiptum sem verða 29.
jan. og 5. febrúar. Þá teljast nám-
skeiðin vera 24 kennslustundir sem
á að vera nóg til að hægt sé að fá
þau metin í skólum. Námskeiðin
verða haldin í Fákafeni 11,2. hæð.
KENNSLA
Vélritunarkennsla
Ný námskeiö eru að hefjast.
Vélritunarskólinn, s. 28040.
FELAGSUF
O GLITNIR 59911167 = 1
I.O.O.F. 7 = 17211681/2 =
I.O.O.F. 9 = 17211681/2 =
O GIMLI 599114017 = 6
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Stúkan Einingin nr. 14
Fundur i kvöld, miðvikudag, kl.
20.30 í Templarahöllinni. Við
minnumst merkisafmæla.
Æðs'titemplar.
SAMBAND ISLENZKRA
igttír KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðssamkoma á Háaleit-
isbraut 58 í kvöld kl. 20.30.
Ræðumenn: Helgi Hróbjartsson
og Friðrik Hilmarsson.
Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30.
Ræðumaður: Hafliði Kristins-
son. Allir hjartanlega velkomnir.
ffl
FREEPORTKLUBBURINN
Freeportklúbburinn
Aðalfundur verður haldinn
fimmtudaginn 17. janúar 1991
kl. 20.30 í Safnaðarheimili Bú-
staöakirkjú.
Aðalfundarstörf. Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Tilkynning f rá
Skíðafélagi Reykjavíkur
Toyta-skíðagöngumót 1991 fer
fram í Bláfjöllum næstkomandi
laugardag kl. 14.00. Skráning í
Kaffiteríu-kjallaranum kl. 13.00.
Keppt í 10 km göngu karla, 5
km göngu kvenna, öldunga og
unglinga. Ef veður er óhagstætt
kemurtilkynning í Ríkisútvarpinu
kl. 10.00 keppnisdaginn. Móts-
stjóri verður Páll Samúelsson.
Upplýsingar í sima 12371.
Stjórn Skíðafélags Reykjavíkur.
skíðadeild
Flokkar 14 ára og yngri
Fundur f Gerðubergi f kvöld,
miðvikud. 16. jan., kl. 20.00.
Fundarefni er vetrarstarfið, til-
högun æfinga, akstursleiðir og
áætlun bílanna, mótaskráin í
vetur og fleira. Seld verða árs-
kort í lyftur og innheimt félags-
og æfingagjöld (greiðslukjör).
Muniö að taka með ykkur mynd
í árskortið. Fjölmennið, því nauð-
synlegt er að allir mæti. Þjálfar-
arnir Guðmundur (s: 24256) og
Arna (s. 12615) mæta og svara
fyrirspurnum.
Nýir krakkar velkomnir.
Stjórnin.
ráðagerða opinberra aðgerða.
Þjóðarbókhlaðan, sem ákveðið var
að byggja á ellefu alda afmælinu
1974, er hálfbyggð.
Hvernig hafa ný
stjórnmálaöfl reynst?
Má vænta umþóta af þeim?
Hafa t.d. Kvennalistinn, Stefán
Valgeirsson og Borgaraflokkurinn
gert eitthvað sem máli skiptir og
gömlu flokkamir hefðu ekki gert?
Ljóst er, að kvennabaráttan hefur
sett svo mark sitt á þjóðlífið að
lengi mun eftir tekið. Stefán hefur
líka svo víða látið að sér kveða,
að fjölmiðlum kerfisins hefur þótt
ástæða til að veita honum sérstaka
neikvæða breiðsíðuumfjöllun, auk
annars. Borgaraflokkurinn hefur
átt misjafna daga. Verið hvað
glæsilegast dæmi um vilja almenn-
ings til umbóta, en jafnframt átt
hlut að því að viðhalda ríkjandi
skipan með því að róta yfir áfeng-
iskaupamál og fleira i dómsmálum
og nú er unnið að útgáfu starfs-
leyfís fyrir nýtt mengandi risaál-
ver í nýja umhverfisráðuneytinu.
Horfir ömurlega nú í þeim málum,
en það eru enn tækifæri ti! að
gera góða hluti.
Við mat á árangri nýrra stjórn-
málaafla verður m.a. að hafa í
huga, að þau hafa aldrei verið
meirihlutaöfl í samfélaginu. Þau
hafa í flestum tilvikum verið
reynslulítil og ekki átt þá bak-
hjarla i skipulagi og svo víða í
„kerfinu“ sem gömlu flokkarnir.
Tómas Gunnarsson
„Gömlu flokkarnir eru
orðnir fangar eigin
skipulags og hags-
munaaðila,sem byggja
þá upp.“
Geta gömlu flokkarnir komið
málum í lag?
Hvernig stendur á því að ekki
tekst að framkvæma það sem
stjórnvöld og þjóðin eru sammála
um? Ástæðumar eru margar, svo
sem slakt stjórn- op réttarkerfí,
mikil miðstýring og rangar aðferð-
ir í stjóm fískveiða. Mörgum þyk-
ir tilefnislaust að líta til þróunar-
innar í Austur-Evrópu. Ekki hafa
íslendingar þvingað fram vilja
flokksforystu með aðstoð leynilög-
reglu og hers. En valdhafarnir hér
hafa firna sterk tök á þjóðfélag-
inu. Smæð þess veldur því að þeir
geta verið L tiltölulega nánum
tengslum við alla, sem þeir óska -
og beitt t.d. embættum, banka-
stofnunum, sérleyfum, svo ekki sé
talað ufn fjölmiðla. Svo bætist við,
að gengisskráningu og vaxtaxt-
efnu er skipað þannig, að stór
þáttur í starfi forystumanna í at-
vinnurekstri er að reyna að fá láns-
fé til að fleyta fýrirtækjum áfram,
meðan það tekst. Öflugustu aðilar
í einkarekstri era háðir valdhöfum.
Ekki þarf annað en að loka um-
ferðargötum af meintum örygg-
isástæðum til að kippa stoðum
undan verslun eða þjónustufyrir- -
tæki.
.Gömlu flokkarnir era orðnir
fangar eigin skipulags og hags-
munaaðila, sem byggja þá upp.
Færi svo að einhver gömlu flokk-
anna vildi breyta veralega er
líklegt, að fljótlega kæmi að eigin
mönnum og eigin hagsmunum.
Þetta er ein aðalskýringin á því,
að fáu hefur verið breytt og stund-
um til óþurftar því að hugga hefur
þurft sérhagsmunahópa. Á seinni
áram hefur linka stjórnkerfísins
og kröfuharka sérhagsmunahóp-
anna gengið yfir rétt manna al-
mennt og samfélags. Þessi þraut,
. sem gömlu flokkamir standa
frammi fyrir, að vinna gegn hags-
munum eigin manna og skera af
eigin limi, er svo erfíð, að ekki er
unnt að búst við að þeir leysi hana.
Umbótamenn verðaþví að halda
sig utan vítahrings gömlu flokk-
anna, ætli þeir að ná árangri. Ný
öfl eru einu sæmilegu nothæfu
umbótatækin.
Höfundur erformaður
framkvæmdanefndar
Heimastjórnarsamtakanna. -
Örfá útsölusæti
til Amsterdam
og lúxusgisting í kaupbæti!
Tekist hefur að útvega örfá sæti með Flugleiðum til
Amsterdam á næstu vikum á aldeilis ótrúlegu verði.
Nú gildir jið vera snöggur!
Verðdæmi:
Hjón saman í 2ja manna herbergi á lúxushótelinu
Hótel Pulitzer í 4 nætur með morgunverðarhlaðborði:
34.200kr. á mann
Flugvallarskattur er ekki innifalinn í verðdæminu.
FLUGLEIÐIR
Mjög
takmarkaö
sætaframboö
*
URVAL-UTSYN
Pósthússtræti 13 álfabakka 16
sími 26900 sími 603060