Morgunblaðið - 16.01.1991, Qupperneq 47
Moröunblaðié) íÞRómrt JáMaR 'lð’ái
'47*-
HANDKNATTLEIKUR
„Leiðinlegt að heyra alh-
af að ég sé ekki í aefingu"
- segir Héðinn Gilsson vegna ummæla Þorbergs Aðalsteinssonar landsliðsþjálfara.
Morgunblaðið/Sverrir
Frá undirritun samnings Héðins Gilssonar við Diisseldorf hér á landi í
haust. Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ, Héðinn og Horst Bredemeier,
landsliðsþjálfari Þjóðverja og þjálfari Diisseldorf.
Pétur Guðmundsson.
Ekkert var
athugavert
Lyfjanefnd ÍSÍ hefur fengið nið-
urstöður úr tveimur lyfjapróf-
um, sem fram fóru fyrir skömmu
og niðurstöðurnar á þann veg í
báðum tilvikum að ekkert hafi ver-
ið athugavert.
Það voru þeir Pétur Guðmunds-
son, kúluvarpari, sem setti glæsileg
íslandsmet bæði úti og inni nú í
vetur, og Carl J. Eiríksson, skot-
maður, sem voru lyfjaprófaðir.
ÚRSLIT
NFL-deildin .
Undanúrslit:
Ameríkudeildin:
Buffalo Bills—Miami Dolphins...44:34
LA Raiders—Cincinnati Bengals.20:10
Landsdeildin:
San Francisco 49ers—Washington 28:10
New York Giants—Chicago Bears.31: 3
■Buffalo og LA Raiders leika í undanúrslit-
um og San Francisco mætir New York
Giants.
„ÉG tel mig vera í góðri æf-
ingu, en ekki ítoppæfingu. Ég
tel að ég hafi staðið mig vel í
síðustu leikjum Dusseidorf og
mér þykir það frekar leiðinlegt
að heyra alltaf að ég sé ekki í
neinni æfingu," sagði Héðinn
Gilsson, handknattleiksmaður,
í samtali við Morgunblaðið í
gær í framhaldi af ummælum
Þorbergs Aðalsteinssonar,
landsiiðsþjálfara, sem birtust í
blaðinu ígær.
orbergur segir að Bredemeier,
þjálfari Héðins, hafi gefið sér
upp niðurstöður í þrekprófi sem
Héðinn hafi farið í, og komið mjög
illa út. Héðinn sagði að sér kæmu
þessar niðurstöður verulega á óvart.
„Ég fór aðeins í tvö þrekpróf á
síðasta ári, það fyrra hjá Þorbergi
og síðan í Diisseldorf í ágúst er ég
kom frá Friðarleikunum í Seattle
þar sem ég var með landsliðinu
undir stjórn Þorbergs. Ég veit ekki
annað en að ég hafi komið vel út
úr því prófi, að minnsta kosti miðað
við aðra leikmenn Diisseldorf liðs-
ins,“ sagði Héðinn.
Þorbergur lætur að því liggja að
brotalöm sé í samningi Héðins við
Dusseldorf varðandi það að fá hann
lausan í landsleiki, eins og gengur
og gerist hjá öðru landsliðsmönnum
sem leika með erlendum liðum. Um
þetta segir Héðinn: „Guðmundur
Karlsson hjálpaði mér við samn-
ingagerðina varðandi sjálfan mig
og félagið. Það var síðan Jón Hjalta-
lín Magnússon, formaður HSÍ, sem
samdi við félagið um aðra þætti
samningsins eins og að fá mig
lausan í landsleiki. Þessi hluti samn-
ingsins var algjörlega í höndum HSI
og mér algjörlega óviðkomandi. Mér
skilst hins veg'ar á forráðamönnum
Diisseldorf að þeir geti bannað mér
að leika með landsliðinu ef félagið
er að leika á sama tíma,“ sagði
Héðinn.
Héðinn sagðist ávallt vera tilbú- t
inn að leika fyrir ísland og þac)
væri metnaður allra ungra íþrótta-^
manna að leika með landsliði. „Ég
er ekki sáttur við þau ummæli Þor-
bergs að ég hafí verið. að gera mér
upp meiðsli fyrir leikina gegn Þjóð-
veijum. Gunnar Þór [Jónsson],
læknir landsliðsins, skoðaði mig
lítillega og sagði að ég gæti spilað
ef hnéð yrði vafíð. Ég sagðist hins
vegar ekki vilja taka þá áhættu þar
sem ég var verið búinn að vera
meiddur með Diisseldorf. Það kom
mér svo mjög á óvart að ég var
ekki einu sinni boðaður á æfíngar
hjá iandsliðinu milli jóla og nýárs
er ég var heima í jólafríi."
Með gegn Ungverjum? t.
Héðinn sagði að Einar Þorvarðar-
son, aðstoðarþjálfari, hafí boðað sig
í landsleikina gegn Ungverjum 11.
og 12. febrúar. Hann sagðist hins
vegar ekki vita hvort hann fengi
leyfi frá félaginu. „Við eigum að
leika mjög mikilvægan leik gegn
Hameln tíunda febrúar og Brede-
meier lætur mig örugglega ekki
lausan fyrr en eftir þann leik.“
VIÐURKENNINGAR
Ármenningar heiðra Bjama
Bjarni Friðriksson, íþróttamaður ársins 1990, var í gær heiðraður af félagi sínu, Glímufélaginu Ármanni, í tilefni af
kjöri Samtaka íþróttafréttamanna. Júdódeild félagsins afhenti honum skjöld til minningar um kjörið, og ungu Ármenn-
ingamir tveir á myndinni, Elísabet Halldórsdóttir og Andri Arinbjarnarson, afhentu Bjarna 100.000 krónur frá aðal-
stjórn félagsins. Að baki þeim er Þorsteinn Jóhannsson, formaður júdódeildar Ármanns.
Grindavík -
Valur 72:71
íþróttahúsið i Grindavík. Úrvals-
deildin í körfuknattleik, þriðju-
daginn 15. janúar 1991.
Gangur leiksins: 0-2, 6-4, 15-6,
28-11, 28-16, 30-24, 40-26,
45-30. 49-38, 53-44, 56-53,
63-57, 63-66, 66-66, 68-71,
72-71.
Stig UMFG: Dan Krebbs 18,
Guðmundur Bragason 17, Stein-
þór Helgason 12, Rúnar Árna-
son 9, Jóhannes Kristbjömsson
9, Marel Guðlaugsson 4, Svein-
bjöm Sigurðsson 3.
Stig Vals: Magnús Matthíasson
30, David Grissom 14, Ragnar
Þór Jónsson 12, Símon Ólafsson
9, Guðni Hafsteinsson 4, Matt-
hías Matthíasson 2.
Dómarar: Kristján Möller og
Kristinn Óskarsson.
Áhorfendur: Um 300
KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILDIN
Gríndvíkingar mörðu sigur
Leikur Grindvíkinga og Vals var mjög kaflaskiptur. Fyrri hálfleikur var í eigu
Grindvíkinga sem spiluðu oft á tíðum ágætis körfuknattleik og settu Valsliðið
í mikil vandræði með pressuvörn allan völlinn. Það var eins og önnur lið kæmu inn
á völlinn eftir leikhlé. Grindvíkingar hentu knettinum á milli sín án þess'að veruleg
HMM ógnun væri í spili þeirra og áttu síðan feilskot en Valsliðið kóm
Frímann tvíeflt og saxaði óðum á forskotið og náði reyndar að komast yfír
Ólafsson 64-63 með þriggja stiga körfu David Grissom þegar 5 mínútur voru
skrifar eftir. Magnús Matthíasson sem var hreint óstöðvandi í seinni háif-
leik jók muninn í 3 stig en heimamenn jöfnuðu með þriggja stiga
körfu Steinþórs Helgasonar. Valsmenn náðu síðan að komast yfir 71-68 þegar
mínúta var til leiksloka. Dan Krebbs skoraði úr tveimur vítaskotum og Valsmenn fóru
í sókn. Þeir töpuðu boltanum þegar 26 sekúndur voru eftir og Guðmundur Braga-
son tryggði Grindvíkingum sigur með körfu um leið og klukka tímavarðar gall við.
Það voru því svekktir Valsmenn sem gengu af veili en að sama skapi kátir heima-
menn. í liði þeirra hélt Guðmundur Bragason haus alian leikinn og átti góðan dag
ásamt Krebbs. Magnús Matthíasson átti mjög góðan seinni hálfleik og barðist eins
og ljón. Ragnar Jónsson átti góða spretti ásamt Grissom.
Jón Hjaltalín Magnússon:
Héðinn á að vera
með landsliðinu
þegar við óskum
N Sérstakt „heiðursmannasamkomulag,i
þó í gildi um yfirstandandi leiktímabil
„ÞAÐ kemur mérá óvart að Þorbergur [Aðalsteinsson lands-
liðsþjálfari] hafi ekki séð samning HSÍ við Diisseldorf þvi
hann liggur í möppu á skrifstofu HSÍ. Ég veit ekki betur en
landsliðsnefnd hafi skoðað hann á dögunum og búið sé að
setja Þorberg inn í málið," sagði Jón Hjaltalín Magnússon,
formaður HSI, vegna ummæla landsliðsþjálfarans í blaðinu í
gær að hann hafi farið fram á við HSÍ og félagið að fá að sjá
samninginn, og hann vissi ekki enn hvort hann gæti notað
Héðin í B-keppninni á næsta ári.
Mt
| atvinnumennsku skiptir ár-
angur liðsins öllu máli og þjálf-
ari fýkur ef ekki gengur vel. Og
þegar lið mega aðeins nota einn
útlending er mikil áhersla iögð á
að hann leiki alla leiki liðsins. Það
er líka forsenda þess að hann fái
eitthvað fyrir hæfileika sína og
íslenska félagið eitthvað fyrir sinn
snúð,“ sagði Jón. „Þess vegna
sömdum við þannig við Dusseld-
orf að á fyrsta leikári Héðins,
þegar hann er að sýna sig og
sanna, myndi hann leika alia leiki
með liði sínu því aðeins eitt stig
getur skipt máli hvort það kemst
upp úr 2. deild eða ekki. Héðinn
hefur líka tjáð okkur að ef liðið
kemst ekki upp ér spurning hvort
það fer á hausinn eða verður lagt
niður. En það er hins vegar alveg
ljóst í þessum samningi að Héðinn
á að vera með landsliðinu þegar
við óskum eftir því og ef hann
er það ekki þarf félagið að borga
gríðatiega háar sektir til HSÍ.
Milli okkar er hins vegar vegar
heiðursmannasamkomulag að
hann verði með i öllum leikjum
liðs síns á þessu leiktímabili. En
í samningnum er skýrt að næsta
leikár taki Héðinn þátt ( öllum
þeim undirbúningi og keppni sem
landsliðsþjálfari telji nauðsynlegt.
Þegar samningurinn var gerður
var að vísu gert ráð fyrir að Þjóð-
veijar yrðu með í B-keppninni,
en það gæti sett strik í reikning-
inn að þeir verða ekki þar. En ef
Héðinn vill vinna sér aftur sæti í
landstiðinu og taka þátt í /Undir-
búningi þess, hef ég ekki trú á
öðru en málið verði leyst.“
Jón sagði það enga launung að
stjórn HSÍ og landsliðsþjálfari
væru mjög óhi'ess þegar góðir
leikmenn færu utan til að leika
með 2. deildarliðum. „Við teljum
hættu á að mönnum fari frekar
aftur en hitt, og þetta er ekki í
fyrsta skipti sem landsliðsþjálfari
verður áþreifanlega var vnð að
svokallaðir atvinnumenn, hjá lið-
um sem okkur er sagt að æfí allt
að tvisvar á dag, eru í mun lak-
ari líkamlegri þjálfun en leikmenn
hér heima. En það er von mín að
Héðinn Gilsson, sem engin spurn-
ing er um að er einn okkar efnileg-
asti leikmaður, verði meira én
efnilegur og vilji vinna sér sæti
aftur í landsiiði íslands,“ sagði
Jón Hjaltalín.