Morgunblaðið - 07.02.1991, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1991
í Miðausturlöndum? Hann er hvort
sem er veigamikill þáttur alls vand-
ans. Hvers vegna skyldu menn ekki
grípa til þess ráðs ef tenging þeirra
mála gæti leitt til friðar?
írakar hófu stríðið við írani og
börðust við þá í átta ár. Hundruð
þúsunda manna lágu eftir í valnum
beggja megin, ef til vill yfir milljón
manna. Husein forseti lét ekki hug-
fallast þótt þeim átökum fylgdu
þessar hörmungar. Því er sú von
veik að honum verði komið frá.
Ekki verður annað séð en að banda-
menn neyðist til að fást við hann,
þrátt fyrir mikilmennskubijálæði
hans, slæma sögu hans og þau
hryðjuverk sem hann hefur unnið,
sérstaklega á Kúrdum, írönum og
Kúveitum.
Mesta hættan sem vofir yfir í
þessum átökum er að menn missi
þolinmæðina svo að kjarnorkuvopn-
um verði beitt. Það eru ekki aðeins
arabar sem breyta semkvæmt því
fallvallta grundvallaratriði að til-
gangurinn helgi meðalið. Hræðileg-
ustu mistökin væru þau að missa
þolinmæðina og vinna mannkyninu
tjón sem ekki yrði bætt í rás hverr-
ar kynslóðarinnar á fætur annarri.
Setjum svo að konungsríkið Kúv-
eit framleiddi bestu kókoshnetur
heimsins. Mundi þá fjölmennur her
bandamanna vera að beijast fyrir
frelsi þess og veija Saudi Arabíu
og emh-véldin? Olía og peningar eru
mikilvægt atriði hvað snertir þýð-
ingu þessara landa og hvað snertir
orsök þessa stríðs. Kannski væri
vert að spyija hvernig standi á öll-
um þessum vopnabúnaði í vopna-
búrum Iraka. Hvaða þjóðir seldu
írönum efni og tæki, sérfræðiþekk-
ingu og vopn og þjálfuðu þá í
tortímingu? Hvaða þjóðir þögðu
þegar taugagas og áþekkum efnum
var beitt? Margar af þeim þjóðum,
sem nú mynda heri bandamanna,
sáu þeim fyrir þessu — en var það
gert til stuðnings við hugmyndir
þeirra eða fyrir peninga? Sagan sem
hefur verið að gerast í Miðaustur-
löndum hefur verið skammarleg.
Græðgin í orku hefur líka verið
atriði í þessu máli. Sú græðgi er
stjórnlaus og er á kostnað mikils
hluta þriðja heimsins.
Friður byggist á því að réttlætis
verði gætt í Miðausturlöndum, að
hætt verði vopnasölu, að menn
skilji rétt Islams og arabana, að
endalausri þolinmæði verði beitt við
lausn vandans sem Sameinuðu þjóð-
irnar eiga mikla sök á, að alvarlegt
átak verði gert til orkusparnaðar,
orkurannsókna og skipulags á notk-
un hennar. Ég vil trúa því að Guð
vilji frið. Við verðum að vinna fyrir
frið samkvæmt erfðum kristninnar.
Við erum ekki bókstafstrúarmenn
og eigum ekki að láta þessi átök
þróast til að verða fyrsta kjarnorku-
styijöldin, mannkyninu öllu til
óbætanlegs tjóns. Slíkar vonir
byggjast á kristilegum ásetningi og
trú af hálfu leiðtoga bandamanna.
En Shah Allah — verði það þannig
sem fyrst.
Ég er jesúíti og starfaði fimm ár
í írak sem menntaskólakennari,
skólameistari pg ráðgjafi íraskra
æskumanna. _ Ég á marga íraska
vini, bæði í írak og utan þess. Á
jólakortum sem ég fékk frá Bagdað
báðu vinir mínir mig að biðja fyrir
sér og einn þeirra orðaði bón sína
þannig: „Pray that we may be in
piece not pieces." (Biddu þess að
við megum vera í heilu lagi en ekki
í stykkjum.) Hussein forseti réð því
að jesúítar voru reknir 1968 og
1968 frá Bagdað-menntaskóla og
Al-Hikma-háskólanum. Ég var líka
rekinn í reynd, þótt ég væri þá fjar-
verandi. Brottrekstur jesúíta var
gerður til þess að sýna Bandaríkja-
mönnum andúð. Allir jesúítarnir
bera hlýjar tilfinningaf í bijósti til
íraka og biðja fyrir þéim, fyrir ör-
yggi og friði öllum þeim til handa
sem flæktir eru í þessi átök. En
Shah Allah, megi þeir njóta friðar
og réttlætis sem fyrst.
Höfundur er biskup kaþólskra
manna á Islandi.
Hver býÖur betur?
Seljum nýbökub braud og kökur á
innkaupsverdi eða án 25% -30%
álagningar eins og almennt gerist.
Mjólk og léttmjólk 7,5% ódýrari en í
jlestum verslunum.
Kaffistofa á staðnum, sem býður kaffi og
kókó ásamt meðlœti á hóflegu verði.
Komið, gerið verðsamanburð og reynið
viðskiptin.
Odýri brauða
& kökumarkaðurinn
Suðurlandsbraut 32
Opið Mánud. - Föstud. kl. 9:00 - 18:00
Laugard. kl. 10:00 - 16:00
ODYRI BRAUÐA &
KÖKUMARKAÐURINN
MATBRAUÐ HF.
IAnbúA 8 Fósthólf 9244 129 Kcykjavík
Símar: 656222, Vsk.nr.: 27144
Kennitala: 500172-0459
fessss®—*“*
IBÉTTIMO
jaosEtt
A'K > ei"“au9,baí*er
baðm°t
ÍívÐHEMGI
■■■■■#’ J.þorláksson & Norðmann hf.
Suðurlandsbraut 20 - Sími: 91 -8 38 33