Morgunblaðið - 07.02.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1991
21
Haukadalshreppur:
Skógræktín fær
Laxaborg að gjöf
NÝLEGA færði Ingiríður Elísabet Ólafsdóttir Skógrækt ríkisins að
gjöf jarðeignina Laxaborg í Haukadalshreppi í Dalasýslu með húsum,
rækhin og hlunnindum öllum.
Gjöfín er gefín til minningar um
eiginmann hennar, Guðbrand Jör-
undsson frá Vatni í Haukadal, og
einnig í þeim tilgangi að varðveita
og auka þá ræktun, sem í Laxa-
borg er.
Guðbrandur Jörundsson sem lést
árið 1980, var einn af brautryðjend-
um þjóðarinnar í akstri og rekstri
langferðabifreiða. Ungur fékk hann
sérleyfi á leiðinni frá Reylgavík í
Dali, síðar lengdist leiðin í Reykhól-
asveit og loks náði hún til Amgerð-
areyrar, og þaðan með Djúpbátnum
til Isafjarðar.
Guðbrandur keypti árið 1943
þann hluta Þorsteinsstaða, fremri,
sem er milli þjóðvegarins og Hauka-
þegar fram líða stundir, og staðið
sem minnisvarði um skógræktar-
framtak þeirra Ingiríðar Elísabetar
ög Guðbrands um aldur og ævi.
(Fréttatilkynning frá Skógrækt ríkisins)
dalsár. Fljótlega reistu þau hjónin
sér sumarhús þama, sem síðan
hefur gengið undir nafninu Laxa-
borg. Þau hófu fljótlega umfangs-
mikla tijárækt, og nú er þar vaxinn
upp myndarlegur skógarreitur. Mun
diýgstur hluti tómstunda þeirra
hjóna hafa verið nýttur til þess að
hlúa að gróðrinum í Laxaborg.
Lengst af hefur landai’eignin,
sem er um 50 ha að stærð, verið
friðuð. Þar hefur mikil gróðurbreyt-
ing átt sér stað, eins og athugulir
vegfarendur taka eftir, og gefur
hún vísbendingu um það, hvemig
. gróðurfari hefur verið háttað í ár-
daga Islandsbyggðar.
Akveðið hefur verið að hefjast
BærinnLaxa-
borg er fremst
til vinstriá
myndhmi.
handa í Laxaborg, strax á vori
komanda með því að lagfæra girð-
ingu þá, sem umlykur landareignina
og gróðursetja þar skjólbelti.
Gjöf þessi er einhver sú vegleg-
asta, sem Skógrækt ríkisins hefur
verið gefín. Arður jarðeignarinnar
mun geta staðið undir vemlegri
skógrækt, og getur því Laxaboig
orðið miðstöð skógræktar í Dölum
Rokkað á himnum:
Gestir orðnir rúm-
lega 16 þúsund
Rokksýningin „Rokkað á
himnum" hefur verið sýnd á
Hótel íslandi í fjóra mánuði og
er ekkert lát á aðsókn, að því
er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá skemmtistaðnum. Hafa
nú rúmlega 16 þúsund manns séð
sýninguna.
Sýningin er byggð á söng, leik
og dansi og þema hennar er gullöld
ameríska rokksins á árunum 1954-
1964. Fram koma sex einsöngvar-
ar, dansarar og hljómsveit, alls um
25 manns. Höfundar sýningarinnar
eru Björn G. Björnsson og Björgvin
Halldórsson. Aformað er að sýna
„Rokkað á himnum“ öll föstudags-
og laugardagskvöld til vors.
Verð á sýninguna er 4,400 krón-
ur fyrir manninn og er þá innifalinn
þriggja rétta kvöldverður af 10
rétta matseðli. Boðið er upp á af-
slátt fyrir hópa og helgarpakkar
Flugleiða og Hótel íslands eru í
boði fyrir fólk á landsbyggðinni,
segir í frétt frá hótelinu.
SOL UR SORTA
15 milljónir land-
flótta í heiminum
ÁRIÐ 1989 voru 15 milljónir manna taldar landflótta í heiminum
vegna stríðs, þurrka eða hungursneyðar. Yfir níutíu af hundraði
þeirra flúðu land vegna hernaðarátaka.
Þetta kemur fram í bók Upp-
salaháskóla „Fórnarlömb stríðs-
átaka“. Bókin er gefin út vegna
alþjóðaátaks Rauða krossins til
þjálpar stríðshijáðum. Hér á landi
er átakið undir slagorðinu „Sól
úrsorta“.
í bókinni kemur enn fremur
fram, að áætlað er að um 20
milljónir manna séu flóttamenn
innanlands í ríkjum heims, helm-
ingur þeirra í Afríku. Yfirgnæf-
andi meirihluti þeirra hefur
hrökklast frá heimkynnum sínum
eða verið fluttir nauðungarflutn-
ingum vegna hernaðarátaka.
Þetta innanlandsflóttafólk er utan
lögsögu flóttamannahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna og verður að
reiða sig á að alþjóðleg mannúðar-
lög séu virt, en á því er mikill
misbrestur.
Samið um firnin þúsund sæti
FLUGLEIÐIR, Samvinnuferðir-
Landsýn og sjö launþegasamtök
hafa skrifað undir samning um
kaup samtakanna á fimm þúsund
sætum I áætlunarflugi Flugleiða
til 11 borga í sumar. Sala í ferð-
irnar hefst fljótlega en ferðirnar
eru í júní, júlí og ágúst.
Félögum í BSRB, ASÍ, Verslun-
armannafélagi Reykjavíkur, Sam-
bandi ísl. bankamanna, Kennara-
sambandi íslands, Bandalagi há-
skólamenntaðra ríkisstarfsmanna
og Farmanna- og fiskimannasam-
bandinu standa þessar ferðir til
boða en þær verða auglýstar nánar
í félagstíðindum samtakanna.
Helgi Jóhannsson, forstjóri SL,
sagði að samningurinn væri svipað-
ur og í fyrra en boðið væri uppá
fleiri sæti og borgir og verðið væri
líklega heldur lægra. Þijár borgir
bætast við: Baltimore, París og
Glasgow en flest sætin eru í flugi
til Kaupmannahafnar og Luxemb-
urgar, enda eru það vinsælustu
ferðirnar.
„Við gerum ráð fyrir að fjögurra
Morgunblaðiö/Arni Sæberg
Helgi Jóhannsson, framkvæmdastjóri Samvinnuferða og Sigurður
Skagfjörð, fyrir hönd Flugleiða, undirrita samkomulagið.
manna fjölskylda geti farið til Evr-
ópu og haft bflaleigubíl í tvær vikur
fýrir um 24 þúsund krónur á
mann,“ sagði Helgi. „Ástæðan fyrir
því er að sjálfsögðu sú að hér er
um fímm þúsund sæti að ræða og
því hægt að ná góðum samningum."
Undanfarin ár hafa myndast
langar biðraðir við skrifstofur Sam-
vinnuferða en Helgi sagði að reynt
yrði að koma í veg fyrir það: „Það
er óþarfí að fara í langar biðraðir
og í fyrra voru til sæti fyrir alla,“
sagði Helgi.
Alþýðuleikhúsið æfir Undirleik við morð
ÆFINGAR standa nú yfir á þriðja verkefni leikársins hjá Alþýðu-
leikhúsinu. Verkið heitir á frummálinu „Music to Murder“ og
hefur í íslenskri þýðingu Guðrúnar Bachmann hlotið titilinn Undir-
leikur við morð.
I verkinu leiða tveir fulltrúar
tónlistarsögunnar saman hesta
sína, madrigalaskáldið Carlo Gesu-
aldo frá 16. öld og Peter Warlock
sem lauk ævi sinni árið 1930 eftir
stormasamt líf. í sameiningu
kveðja þeir á sinn fund bandarí-
skan tónlistarfræðing í þeim til-
gangi að leiðrétta ýmsan misskiln-
ing sem eftirkomendur hafa um líf
þeirra, tónlist og hvert þeir sóttu
innblástur sinn. Tónlist þessara
sérstæðu tónskálda kemur mikið
við sögu í verkinu bæði sungin og
leikin, en verkið allt er slungin
flétta af beittri ádeilu, gamansemi
og ógnvekjandi spennu.
Leikendur eru þau Bára Lyngdal
Magnúsdóttir, Eggert Þorleifsson,
Erling Jóhannesson, Hjálmar
Hjálmarsson og Margrét Ákadótt-
ir. Stjórnandi tónlistar og undir-
leikari á sýningum er Árni Harðar-
son, Alda Sigurðardóttir hannar
búninga, Árni Baldvinsson sér um
lýsingu og leikstjóri er Hávar
Siguijónsson.
Frumsýning er fyrirhuguð í lok
febrúar.
(Fréttatilkynning)
iXC'ÚV , .
WordPerffccl5.0
Mest notaða ritvinnslukerfið á íslandi í dag.
Næsta námskeið er að hefjast.
Hringdu og fáðu nánari upplýsingar.
Ath.: VR og fleiri stéttarfélög styrkja sína aðildarfélaga.