Morgunblaðið - 07.02.1991, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1991
NEYTENDAMAL
Gerlarannsóknir á ís-
lenskum matvælum
sjúkrahúsi og borið þar fram og
einnig á annarri sjúkrastofnun.
Ástæða matareitrunar var talin
vera ófullnægjandi hitastig við
geymslu og flutning á kjötinu eft-
ir að það hafði verið soðið.
Salmonellusýkingar
Á árinu 1987 voru rannsökuð
995 matvælasýni með tilliti til
salmonellusýkla og fundust þeir í
111 af 332 alifuglasýnum og í
11 af 214 svínakjötssýnum, í 9
af 106 sýnum úr hráum kjötvörum
(réttum úr alifugla- og svínakjöts-
afurðum) og í 5 af 43 sýnum úr
ýmsum tilbúnum matvælum. Stór
hluti þessara jákvæðu sýna tengd-
ist rannsóknum vegna matarsýk-
inga og jafnframt öll jákvæð sýni
af tilbúnum matvælum.
Salmonella greindist í súrmat.
Árið 1989 greindist Sýkillinn í
kindahausum frá einum slátur-
leyfishafa. Mest fannst af salmon-
ellu í kjúklingum. Rannsökuð voru
þurrkuð matvæli, aðallega krydd.
Salmonella fannst í ijórum krydd-
sýnum, þar af reyndust þrjú inni-
halda salmonelluafbrigði sem ekki
hafði áður fundist í matvælum
hér á landi.
Salmonellusýklar geta leynst
víða. Á árinu 1987 var erlent
súkkulaði og konfekt rannsakað
vegna gruns um salmonellu, sam-
kvæmt ábendingu að utan, segir
í skýrslunni. I ljós kom að tölu-
verður hluti súkkulaðsins var
mengaður salmonellu.
M. Þorv.
í ársskýrslu Hollustuverndar
ríksins, sem út kom í ágúst á
síðasta ári, er m.a. greint frá
niðurstöðum gerlarannsókna á
matvælum . á árunum 1987-
1989. Niðurstöður sýna að á
mörgum sviðum matvælafram-
leiðslu hefur ástandið batnað
en á öðrum má bæta um betur.
Neytendum til fróðleiks verða
birtar hér helstu niðurstöður.
í skýrslunni er vakin athygli á
að mismunandi tilefni hafi verið
til sýnatöku og að sýnaijöldi í ein-
staka matvælaflokkum hafi verið
of takmarkaður til að_ segja til um
ástandið almennt. Áhugaverður
er einnig samanburður á milli ára.
Söluhæf matvæli og ósöluhæf
Af þeim matvælasýnum sem (
send voru Hollustuvernd til rann-
sóknar reyndust aðsend sýni vera
sem hér segir:
1987 1988 1989
Söluhæf 69,8% 67,0% 68,9%
Gölluð 7,1% 6,4% 7,3%
Ósöluhæf 23,1% 26,6% 23,6%
Ósöluhæf matvælasýni skiptust
síðan í eftirfarandi flokka:
1987 1988 1989
Hrá kjötvara 63,8% 55,9% 54,2%
Hrátt fiskmeti Unnar soðnar 3,8 3,6 1,4
lyötvörur 3,8 4,8 2,6
Alegg Samlokur/ 7,1 11,8 11,5
smurt brauð 5,7 4,8 3,3
Tilbúinn matur 6,3 5,3 5,2
Súrmatur 4,1 3,8 6,3
Salöt 3,8 5,0 5,2
Þurrkuð matvæli 0 1,5 4,3
Ýmislegt 1,6 3,5 6,0
Kóligerlar og saurkóligerlar
í matvælum
í skýrslunni kemur fram, að
algengustu aðfinnslur við hráar
kjötvörur og hrátt fiskmeti hafi
verið vegna of mikils gerla- og
kóligerlafjölda, en einnig oft
vegna fjölda saurkóligerla.
Stærsti hluti ósöluhæfra sýna af
hrárri kjötvöru var af kjötfarsi og
kjöthakki. Fundið var að miklum
gerlafjölda í soðnum kjötvörum,
áleggi og salötum, miklum gerla-
fjölda og kóligerlafjölda í tilbún-
um mat og samlokum. Saurkóli-
gerlar og staphylococcar voru
einnig nokkuð algengir í -sýnum
af soðnum kjötvörum, samlokum,
tilbúnum mat og súrmat. Athug-
semdir voru gerðar vegna gerla-
''•5
fjölda í skinku og staphylococca
í kindakæfu.
Með öðrum orðum, þarna hefur
verið um að ræða skort á hrein-
læti við framleiðslu og meðhöndl-
un þessara matvæla.
Athugasemdir vegna gerla í
ósöluhæfum sýnum skiptist þann-
ig:
1987 1988 1989
Ofmikill fjöldi
gerla 56,8% 60,5% 49,3%
Kóligerlar 50,8% 40,3% 41,5%
Saurkóligerlar 17,1% 14,7% 16,6%
Staphylococcar 4,9% 6,9% 4,0%
Athygli vekur að árið 1989
virðist aukning á saurkóligerlum
í rannsökuðum matvælum miðað
við árið áður.
Matareitranir, gerlamengun
og þorramatur
I skýrslunni er einnig saman-
tekt á rannsóknum vegna mata-
reitrana og matarsýkinga. Vert
er að veita þessum kafla sérstaka
athygli, þar sem um er að ræða
algeng matvæli en viðkvæm, sem
mikið eru höfð um hönd á heimil-
um. Fram kemur í skýrslunni að
árið 1988 eru auk aðfinnslna
vegna saurkóli- og kóligerla gerð-
ar athugasemdir vegna gersveppa
í súrmat.
Árið 1987 voru rannsökuð 136
matvælasýni vegna 28 tilvika þar
sem grunur lék á matareitrun eða
matarsýkingu. Staðfest voru 6
matareitrunar- eða matarsýking-
artilvik þar sem a.m.k. 158 ein-
staklingar veiktust.
Orsakir voru sem hér segir:
Sýkill Fjöldi
tilvika
Clostridium perfringens 2
Staphylococcus aureus 1
Salmonella typhimurium 1
Salmonella goaldcoast 1
Salmonella infantis 1
Sjúkdóms- Tegnnd
tilfelli matvæla
39 Sviðasulta, pottréttui
1 Brún sósa
59 Kalt veisluborð
56 Svínakjöt
3 Grillkjúklingur
Árið 1988 voru rannsökuð 75 matvælasýni vegna 29 tilvika þar sem
grunur lék á matareitrun. Af þeim voru staðfestar 3 matareitranir og
matarsýkingar með a.m.k. 40 sjúkdómstilfelli.
Orsakir voru þessar:
Sjúkdóms-
tilfelli
30
Sýkili
Clostridium perfringens
Salmonella thypimurium/
Salmonella senftenberg
Salmonella thompson
Fjöldi
tilvika
1
Tegund
matvæla
Pottréttur
1 4 Léttsteikt nautakjöt
1 6 Súrmatur
Árið 1989 voru rannsökuð 97 matvælasýni í 23 tilvika þar sem
grunur lék á matareitrun og voru 5 matareitranir og matarsýkingar
staðfestar með a.m.k. 499 sjúkdómstilfella.
Orsakir voru greindar á eftirfarandi hátt:
Sýkill Fjöldi tilvika Sjúkdóms- tilfelli Tegund matvæla
Clostridium perfringens 1 144 Soðið hangikjöt
Staphylococcus aureus 1 4 Maiskorn (átekin niðursuðudós)
Bacillus cereus 1 100 Sýrð sviðasulta
Bacillus cereus 1 250 Soðið hangikjöt
Bacillus cereus 1 1 Smurkæfa
í skýrslunni segir að staðfest
sé að sýkillinn bacillus cereus
hafi orsakað matareitrun í tveim
tilfellum með samtals 350 sjúk-
dómstilfellum, vegna neyslu á
þorramat; súrri sviðasultu og
soðnu niðurskornu hangikjöti. I
einu tilviki með 144 sjúkdómstil-
felli hafi verið um að ræða mata-
reitrun af völdum clostridium
perfringens sem rakin var til soð-
ins hangikjöts sem matreitt var á
Umhverfismennt:
Dagskrá námsgagnastofnunar
DAGANA 4.-8. febrúar er í
Kennslumiðstöð Námsgagna-
stofnunar efnt til dagskrár um
umhverfismennt og stendur hún
í fimm daga.
Að dagskránni standa auk
Námsgagnastofnunar fræðslu-
skrifstofurnar í Reykjavík, á
Reykjanesi og á Vesturlandi,
menntmálaráðuneytið og Norræna
umhverfisárið.
Kennarar úr fimm skólum
kynna verkefni sin. Það eru Álfta-
mýrarskóli en þar hafa kennarar
samið og unnið með námsefni um
Vatnsmýrina og Tjörnina í
Reykjavík. Grunnskólinn í Sand-
gerði, þar var í fyrra unnið athygli-
svert verkefni um sögu og náttúru
heimabyggðarinnar. í Grunnskó-
lanum á Stykkishólmi er unnið
þróunai-verkefni um umhverfi
Breiðafjarðar þar sem mest
áhersla er lögð á líffræði og sögu.
í Selásskóla er unnið með mann-
gert umhverfi í skóla og í Æfinga-
skóla KHI nálgast menn náttúru-
fræði fyrir yngstu börnin á nýstár-
Iegan hátt.
Einnig verða flutt stutt erindi
um mikiivægi umhverfismenntun-
ar. Náttúrufræði - mikilvægasta
þekkingarsvið nýrrar aldar? kall-
ast eitt erindið. Annað fjallar um
Sameiginlega framtíð okkar. Um-
hverfismennt, hvernig og hvers
vegna? er spurt og fjallað er um
Landgræðslustörf skólafólks og
Umhverfisfræðslu og áhuga-
mannasamtök.
Fundirnir verða haldnir í
Kennslumiðstöðinni, Laugavegi
166, Reykjavík, dagana 4.-8. febr-
úar frá kl. 16-18 nema föstudag
kl. 15-18.
(Fróttatilkynning)
Kristín Andrésdóttir
Sýnir í
FIM-salnum
KRISTÍN Andrésdóttir heldur
einkasýningu í FÍM-salnum,
Garðastræti 6, dagana 7. febrúar
til 26. febrúar nk.
Stef um mannlega þjáningu er
viðfangsefni Kristínar Ándrésdótt-
ur á þessari fyrstu sýningu hennar.
Kristín útskrifaðist úr Myndlista-
og handíðaskóla Islands 1987. Á
sýningunni vinnur hún ónafn-
greindar myndir með akríl á striga.
§krif§tofutækninám
Tölvuskóli Reykjavíkur gerir þér kleift að auka við
þekkingu þína og atvinnumöguleika á skjótan og
hagkvæman hátt.
Þú lærir bæði á Macintosh- og PC-tölvur, auk al-
mennrar skrifstofutækni, bókfærslu, tölvubókhalds,
verslunarreiknings og toll- og verðútreikninga.
Innritun stendur yfir.
•Hringið og fáið sendan ókeypis bækling.
Erum við til kl. 22
Tölvuskóli Reykiavíkur
Borgartúni 28, sími 91-687590
tn'-rnTf'ýVJ