Morgunblaðið - 07.02.1991, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRUAR 1991
37
Bætur almannatrygg-
inga og skattamir
eftirÁstuR.
Jóhannesdóttur
Nú eru flestir búnir að fá skatt-
skýrsluna sína senda heim og farn-
ir að huga að því að útfylla hana.
Margir sem fá greiðslur frá Trygg-
ingastofnun ríkisins eru farnir að
spyrjast fyrir um hvaða bótaflokkar
séu skattskyldir.
Meginreglan er sú að bætur al-
mannatrygginga eru skattskyldar.
Undantekingar eru:
Barnaörorka og barnastyrkur
skv. 10 grein um málefni fatlaðra.
Barnalífeyrir vegna örorkulífeyris-
þega og örorkustyrkþega. Barna-
lífeyrir vegna ellilífeyrisþega.
Barnalífeyrir vegna ófeðraðs barns.
Meðlag og meðlag skv. viðbótarúr-
skurði. 8 ára dánarbætur slysa-
trygginga til ekkju eða ekkils.
Styrkur vegna kaupa á bifreið. Or-
orkubætur vegna örorku undir 50%,
en þær bætur eru eingreiðslur þ.e.
greiðast í einu lagi.
Þetta eru þær bætur sem ekki
eru skattskyldar en engu að síður
framtalsskyldar.
Dvalarheimilisuppbót
Síðan er breyting frá fyrri árum
er varðar dvalarheimilis- og elli-
heimilisuppbótina. Tryggingastofn-
un greiðir elli-/dvalarheimilum upp-
bót, þegar lífeyrir nægir ekki til
greiðslu á dvalarkostnaði. Lífeyris-
þeginn sér aldei þessa peninga.
Þeir ganga beint til þess heimilis
sem hann dvelur á.
í fyrsta skipti í ár er þessi upp-
hæð talin með öðrum bótum, þegar
talið er fram til skatts.
Á móti kemur að Trygginga-
stofnun sendir skattstjórum lista
yfir þá sem dvelja á elliheimilum
og hliðstæðum stofnunum og fá
þessar greiðslur. Skattstjóri veitir
þessu fólki síðan skattívilnun, sem
vegur upp á móti skatti, sem ann-
ars kæmi á þessar greiðslur. Þessi
ívilnun er veitt skv. 66. grein
skattalaganna.
Staðgreiðsla
Af skattskyldum greiðslum frá
Tryggingastofnun skal haldið eftir
staðgreiðslu skatta. Frá 1. janúar
1991 gildir þetta um allar greiðslur
lífeyrisdeildar, nema bensínstyrk-
inn. Fram að síðustu áramótum var
ekki tekin staðgreiðsla af nokkrum
bótaflokkum t.d. barnalífeyri vegna
gæslu- og refsivistarfanga, en frá
áramótum er það aðeins bensín-
styrkurinn sem er undanþeginn
staðgreiðslu.
Greiðsluseðill
Tryggingastofnunar
Tryggingastofnun ríkisins er bú-
Ásta R. Jóhannesdóttir
„Þeir sem liggja með
skattkortið sitt ónýtt
heima ættu frekar að
leggja það inn hjá
Tryggingastofnun. Það
má alltaf sækja kortið
aftur til okkar ef að-
stæður breytast.“
in að senda bótaþegum „greiðslu-
seðil til notkunar við útfyllingu
skattframtals".
Á þessu blaði kemur fram, í einni
upphæð, hve mikið viðtakandi hefur
fengið greitt frá Tryggingastofnun
samtals á árinu 1990.
Á seðlinum eru einnig tíundaðar
greiðslur frá Lífeyrissjóði ríkis-
starfsmanna, hjúkrunarfræðinga
og sjómanna.
Þessar upphæðir skal færa sem
tekjur á skattframtalið.
Þeir skattar, þ.e. staðgreiðslan,
sem dregnir hafa verið af bóta-
greiðslum við útborganir eru Iíka
tilgreindir á greiðsluseðlinum.
Ég vil hvetja fólk sem fær
greiðslur frá Tryggingastofnun að
halda saman launamiðunum eða
greiðslumiðunum fyrir hverja út-
borgun og bera upphæðirnar frá
áramótum á desemberseðlinum
saman við það sem fram kemur á
greiðsluseðlinum. Ef um eitthvert
misræmi er að ræða hafið þá sam-
band við okkur á Tryggingastofn-
un. Bótaþegar sem fengu greitt hjá
gjaldkera í desember, fá sérstakan
greiðsluseðil vegna þeirrar upphæð-
ar. Hún er ekki með öðrum greiðsl-
um ársins.
Skattkortin
Bætur almannatrygginga hækka
svolítið öðru hvoru. Ofan á þær
koma svo uppbætur á lífeyri svona
tvisvar til þrisvar á ári.
Margir eru með skipt skattkoit,
og miða þá við að sleppa alveg við
skatt hjá Tryggingastofnun, en
halda ónýttum persónuafslætti á
sér korti (sumir eru í fastri vinnu
en aðrir í íhlaupavinnu). Svo þegar
upphæðir bóta hækka eða uppbót
er greidd á bæturnar, þá þurfa sum-
ir að greiða svolítinn skatt vegna
hækkunarinnar. Við því er lítið að
gera ef allur persónuafslátturinn
er nýttur. En þeir sem liggja með
skattkortið sitt ónýtt heima ættu
frekar að leggja það inn hjá Trygg-
ingastofnun. Það má alltaf sækja
kortið aftur til okkar ef aðstæður
breytast og menn vilja nota kortið
annars staðar.
Þegar staðgreiðsla var tekin upp,
var skattkort þáverandi bótaþega
sjálfkrafa skipt. Gefið var út skatt-
kort sem miðaðist við bæturnar frá
Tryggingastofnun og það sent t;'
stofnunarinnar. Hinn hlutinn var
síðan sendur heim til viðkomandi.
Það hafa komið upp tilvik, þar
sem fólk hefur legið á þessum
hluta, án þess að nota hann, og svo
lent í því að staðgreiðsla hefur ver-
ið dregin af bótum.
í slíkum tilvikum fær fólk endur-
greitt frá skattinum árið eftir. En
með því að athuga vel stöðu sína
gagnvart staðgreiðslu skatta gæti
fólk komið í veg fyrir þetta.
Skattkortin eru gefin út hjá
skattstjóra og hann sér einnig um
að skipta kortunum. Hafir þú skipt
kortinu, en viljir breyta hlutföllum,
þá snýrð þú þér til skattstjóra.
Slysatryggið ykkur við
heimilisstörf!
Svo í lokin vil ég benda öllum
þeim sem fylla út skattskýrslur á
næstunni, ekki aðeins bótaþegum
heldur öllum, að merkja við í reit-
inn þar sem spurt er hvort menn
vilji slysatryggja sig eða maka sinn
við heimilisstörf. Tryggingin er inn-
heimt með sköttum og er ekki há
upphæð, en ef menn slasast við
heimilisstörf eiga menn rétt til
slysabóta almannatrygginga á
sama hátt og þeir sem slasast við
launaða vinnu. Reynsla mín af
þessu hjá Tryggingastofnun ríkisins
sýnir að allir ættu að tryggja sig
við heimilisstörfin jafnt heimavinn-
andi og útivinnandi fólk.
Höfundur er deildarstjóri
Félagsmála- og upplýsingadeildar
Tryggingastofnunar ríkisins.
SMIÐIR - HfiSBYGGJENDUR
Nýtt frá Húsasmiðjunni
— ofnþurrkað milliveggjaefni
Ofnþurrkað milliveggjaefni,.(12-14% raki) í
stærðunum 35x70 mm og 45x95 mm. Fagmenn
okkar leiðbeina um efnisval og gefa góð róð
varðandi uppsetningu.
HÚSASMWJAN
SÚÐARVOGl 3-5 • SÍMI 687700 • FAX 679366
Lofíkældar
dieselrafstöðvar
fyrir verktaka, bændur, sumarhúsaeigendur,
björgunarsveitir og útgerðarmenn.
Eigum á lager margar stærðir frá
1.7KW til 5 KVA, 220 og 380 volt.
Pantanir óskast sóttar sem fyrst.
Á næstunni getum við einnig boðið
vatnskældar rafstöðvar 7.6 - 10.0 - 17.0 og
23 KW á ótrúlega hagstæðu verði.
Sala - Ráðgjöf - Þjónusta.
Erum flutt í múrsteinshúsiðað Knarrarvogi 4
Eigum yfir 100 tegundir af flísum af öllum geröum
og allt efni til flísalagna, frá Þýskalandi, Ítalíu,
Portúgal og Spáni.
AL FAÐORG?
BYGGINGAMARKAÐUR
KNARRARVOGI 4, SÍMI 686755
Sérverslun með flísar og flísalagningaefni
B
PORCELANOSA*
CERAMICA
IMOLA
AGROB
W CERAMICHt
PAVIGRES
DEITERMANN
moden
ÍEX