Morgunblaðið - 07.02.1991, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1991
fólk í
fréttum
Þú sendir Fax beint af skjánum til viðtakanda og
færð Fax-sendingar beint á skjáinn eða í minni
og prentar síðan út á venjulegan pappír.
FaxModem gefur þér samband við gagnabanka
og gagnanet Pósts og síma.
Hægt er að senda sama skjalið á marga
staði með fjölsendingu.
Innbyggö símaskrá.
Allar valmyndir á íslensku.
Gæði sendinga eru meiri þar sem skjal er sent
út milliliðalaust.
*(IBM PC/XT/AT/ TÖLVUR)
<ö>
Heimilistæki hf
Tæknideild, Sætúni 8 SÍMI 69 15 00
isamtun^m>
3ds8o.
LIFSREYNSLA
Slapp naumlega frá
brjálaðri kengTÍru
Attatíu og eins árs gamall Ástr-
ali á eftirlaunum lenti í þeirri
myrku lífsreynslu fyrir nokkru, að
tamin kengúra hans sem gekk sjálf-
ala í garði hans í bænum Toodyay
gekk berserksgang er Turner hugð-
ist vökva túnblett sinn. Kengúran
Turner gamli sýnir sáraumbúðir.
réðist á Turner aftan frá, sparkaði,
barði hann og beit og þótti sá gamli
sleppa vel miðað við heift dýrsins.
Var hann þó töluvert slasaður eftir
dýrið.
Heimaborg Turners er skammt
frá Perth og kengúruna hafði hann
haldið í nokkur ár. Hafði þeim allt-
af verið vel til vina. Sérfræðingar
gátu ekki Ieitt getur að því hvað
truflaði geðslag dýrsins jafn harka-
lega og raun bar vitni. Turner tókst
að sleppa frá óðu dýrinu af eigin
rammleik og kveðja til lögreglu sem
skaut kengúruna á færi. Síðan var
Turner ekið á slysavarðsstofu þar
sem gert var að sárum hans. Hann
var með glóðarauga og bitsár bæði
aftan á hálsi og hnakka og djúp
svöðusár bæði á höndum og fótum.
Þurfti alls að sauma 50 spor til að
njörva saman sárin.
STUÐNINGUR
Kasparov selur verðlaunagripi
Skáksnillingurinn og heimsmeist-
arinn Garry Kasparov héfur
ákveðið að selja verðlaunagrip þann
sem hann hlaut er hann varði titil
sinn í spennandi einvígi við Anatoly
Karpov á dögunum. Hann ætlar með
gripinn á uppboð í Frakklandi áður
en langt um líður og vonast til þess
að fá um 500 sterlingspund fyrir
hann. Ekki er það fégræðgi eða
blankheit sem reka heimsmeistarann
til þessa, heldur ætlar hann að láta
peningana renna til bágstaddra
heima fyrir í Armeníu en þar eiga
margir um sárt að binda eftir borgar-
astríð og mannskæða jarðskjálfta.
Sjálfur er Kasparov frá Baku, höfuð-
borg Armeníu.
Kasparov flýði ásamt Maríu eig-
inkonu sinni og móður sinni frá Arm-
eníu á síðasta ári er bardagar bloss-
uðu upp milli Armena og Azera í
Nagorno Karabakh. Þau búa nú eins
og fjölmargir Armenar síðan í
Moskvu og nágrenni, í hálfgerðri
útlegð. Fjölmargir Armenar eru enn
heimilislausir á átakaslóðunum. Ka-
sparov ætlar að reyna að hjálpa þessu
fólki. Hann segir ennfremur að hann
ætli að láta til sín taka í pólitík
næstu misserin, hann þurfi ekki að
veija heimsmeistaratitil sinn fyrr en
árið 1993 og hann ætli því að taka
sér dálítið frí frá skák.
„Ég er varaformaður Lýðræðis-
flokksins_ sem er aðeins þriggja ára
gamall. Ég verð að gefa eitthvað af
mér í starfið eða sleppa því alfarið.
Ég vil svo miklu breyta í sovésku
þjóðfélagi að pólitíkin hlýtur að verða
ofan á, að minnsta kosti í bili,“ seg-
ir Garry Kasparov.
Morgunblaðið/Hilmar Árnason
Unga fólkið á Patró fékk að valsa um og skoða skipið að vild.
MANNLIF
Af ungum og öldn-
um á Patreksfirði
Varðskipið Óðinn kom nýlega
til hafnar hér í Patreksfirði.
Skipherra, Friðgeir Olgeirsson,
bauð öllum nemendum grunnskól-
ans til skips og þeir fengu að
valsa um skipið, skoða og spyrja.
Eerðinni lauk í borðsal þar sem
brytinn og hans fólk bauð upp á
ís. Landhelgisgæslan á þakkir
skildar fyrir að gleðja unga fólkið
á þennan hátt, en þetta er leið
Gæslunnar til að kynna sig.
Kvenfélagið Sif, sem nú er sjö-
tíu og fimm ára, hélt á laugardag-
inn var eitt fjölmennasta þorrablót
allra tíma í þorpinu. Þótti konun-
um takast einstaklega vel upp en
þær eiga sjálfar allan veg og
vanda af matargerðinni.
- Hilmar
Kasparov, lengst til vinstri, hampar verðlaunagripnum sem hann
ætlar nú að selja á uppboði. Lengst til hægri er Anatoly Karpov.
COSPER
C05PER II5ZO
píV. Jl.
- Ég byrja alltaf á naflanum.
Nýjung!
Ódýrt!
NÚ GETA ALLIR* SENT 0G MÓTTEKIÐ TELEFAXSKJ0L
Lítið, ódýrt og einfalt „FaxModem" sambyggt telefax og Modem fyrir allar tegundir tölva*