Morgunblaðið - 23.02.1991, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1991
Morgunblaðið/KGA
Norræn ungmenni kynna kristilegt unglingastarf
í gær var undirritaður samstarfssamningur á
milli landssambands KFUM og KFUK og fræðslu-
nefndar kirkjunnar í Laugarneskirkju um svokallað
„Ten Sing“ unglingastarf. Hópur unglinga frá Nor-
egi hefur verið hér á landi að undanförnu til að
kynna þetta starf og hafa verið haldin námskeið
með söng, dansi og leikrænni tjáningu. Norsku ung-
mennin héldu tónleika og sýndu leikatriði í Laugar-
neskirkju í gær þegar unglingastarfið var kynnt
prestum og leiðtogum í æskulýðsstarfi innan kirkj-
unnar. Fengu þau séra Jón Dalbú Hróbjartsson,
sóknarprest Laugarneskirkju, til að taka þátt í einu
leikatriðanna.
Staðfest 4 ára fangelsi
fyrir gríinunauðgini
Launahækkun opinberra starfsmanna vegna viðskiptakjarabata:
Engin efnahagsleg rök
mæla með hækkuninni
kjör, sérstaklega þegar litið væri til
eins mánaðar í senn. Hann lagði
áherslu á varasamt væri að taka
viðskiptakjör eins mánaðar til við-
miðunar því nákvæmnin væri ekki
mjög mikil.
Samkvæmt upplýsingum Þórðar
voru viðskiptakjör 2,6% betri í des-
ember í fyrra en þau voru í janúar
sama ár. Viðskiptakjör, án stóriðju-
afurða, hefðu hins vegar batnað um
6,7% á sama tíma. Hluti viðskipta-
batans var ekki til ráðstöfunar í
fyrra vegna þess að hann var lagð-
ur til hliðar með greiðslum í Verð-
jöfnunarsjóð sjávarútvegsins. Sé
tekið tillit til þessa alls voru við-
skiptakjörin 3,8% betri í desember
í fyrra en þau voru í janúar 1989.
„Hvort það er nægilega mikið til
að hækka kaup verða þeir sem um
þessi mál fjalla á vinnumarkaði að
dæma um,“ sagði Friðjón.
Gæsluvarð-
hald staðfest
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
þann úrskurð sakadóms Reykja-
víkur að 28 ára þroskaheftur
maður, sem játað hefur að hafa
deytt 24 ára stúlku, skuli sæta
gæsluvarðhaldi til 1. apríl næst-
komandi.
Veijandi mannsins hafði kært
úrskurð sakadóms og taldi að vegna
þess hvernig högum hans og heilsu-
fari væri háttað bæri að vista hann
í sjúkrahúsi í stað fangelsis.
í dómi Hæstaréttar er vísað til
álitsgerðar geðlæknis sem skoðaði
manninn síðastliðinn þriðjudag og
komst að þeirri niðurstöðu að hann
væri ekki haldinn neinum þeim
líkamlegum eða andlegum sjúk-
dómum sem geri það að verkum
að hann sé í þörf fyrir sérstaka
læknisfræðilega meðferð. Ekkert
mæli gegn því að hann sæti áfram-
haldandi gæsluvarðhaldsvist ef
nauðsyn krefji.
Hæstiréttur:
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt 29
ára gamalan mann, Gísla Grétar
Þórarinsson, til fjögurra ára
fangelsisvistar fyrir að hafa
grímuklæddur og vopnaður
hnífi ráðist að konu í Kópavogi
og neytt hana til samræðis við
sig með hótunum um að beita
ofbeldi. Arásin var gerð aðfara-
nótt 17. nóvember 1989. Hæsti-
Atkvæði ekki
greidd um fjár-
hagsáætlun
UMRÆÐUM um fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar og fyrir-
tækja hennar lauk á sjöunda
tímanum í gærmorgun.
Fundi borgarstjórnar var þá
frestað og er fyrirhugað að honum
verði fram haldið næstkomandi
þriðjudag. Mun þá fara fram at-
kvæðagreiðsla um áætlunina og
breytingartillögur við hana.
Sjá fréttir bls. 16 og miðopnu.
réttur gerði manninum að
greiða konunni 800 þúsund
króna miskabætur.
Maður þessi var handtekinn í
ágúst á síðasta ári eftir að niður-
stöður rannsókna sem gerðar voru
á DNA-erfðaefni hans og um 60
annarra leiddu til þess að grunur
beindist að honum. Hann játaði
brot sitt og hefur síðan verið í
haldi. í dómi Hæstaréttar er hon-
um gert að greiða fímmta hluta
af rúmlega 1,7 milljónum króna
sem kostað var til erfðaefnarann-
sóknarinnar.
í sakadómi var maðurinn einnig
dæmdur til fjögurra ára fangelsis-
vistar en gert að greiða konunni
500 þúsund króna miskabætur.
Dóm Hæstaréttar kváðu upp
hæstaréttardómaramir Guðmund-
ur Jónsson, Hörtur Torfason,
Hrafn Bragason, ásamt Gunnari
Guðmundssyni settum hæstarétt-
ardómara og Auði Þorbergsdóttir
borgardómara. Hjörtur Torfason
hsestaréttardómari skilaði séráliti
og taldi refsingu hæfilega 3 ára
fangelsi og miskabætur hæfílegar
700 þúsund krónur. Hann taldi
hæfilegt að gera sakborningnum
að greiða tíunda hluta rannsóknar-
kostnaðar.
um hvaða viðskiptakjör verið væri
að ræða. „Ekki er verið að ræða
viðskiptakjör ríkissjóðs því hann á
ekki krónu upp í þetta, enda rekinn
með meiri halla en nokkru sinni
fyrr. Það þarf augljóslega að slá
fyrir þeim tugum milljóna sem þetta
kostar,“ sagði Þórarinn.
Ari Skúlason, hagfræðingur ASÍ,
tók í sama streng. „Við sjáum ekki
marktækar viðskiptakjarabætur
umfram þær forsendur sem við vor-
um með í samningunum. Það var
reiknað með því að viðskiptabatinn
yrði örlítið meiri í febrúar en í des-
ember og því má segja að við séum
nokkurn vegin á pari núna. Þetta
er einhliða pólitísk ákvörðun og við
sjáum ekki nein efnisleg rök fyrir
þessu. Hvað ætla þeir að gera ef
viðskiptakjörin versna örlítið? Á þá
að taka kauphækkunina til baka?“
Hann sagði að fyrst ríkið teldi
eitthvert svigrúm til kauphækkana
hefði hann kosið að sjá það svigrúm
nýtt á annan hátt. „Það kemur á
óvart að staðan sé svona góð. Við
hefðum heldur viljað að svigrúmið
væri nýtt til að hækka skattleysis-
mörk, hækka barnabótaauka eða
eitthvað slíkt þannig að það nýttist
þeim sem mest þurfa á slíku að
halda. Með þessum aðgerðum fær
símadaman um 150 krónur auka-
lega á mánuði á meðan ráðherrann
fær um 700 krónur," sagði Ari.
Hann sagði að ASÍ hefði krafíst
þess að félagsmenn þeirra fengju
sömu hækkun um mánaðarmótin.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, sagði að nokkur
óvissa væri um tölur um viðskipta-
Sameiginleg yfirlýsing forsætisráðherra íslands og Eistlands:
Aherslum breytt í endanleg-
um texta að ósk Eistlendinga
1 SAMEIGINLEGRI yfirlýsingu forsætisráðherra íslands og Eist-
lands, sem undirrituð var á fimmtudagskvöld og gerð opinber í gær
koma fram nokkur atriði sem eru efnislega frábrugðin þeirri yfirlýs-
ingu sem send var út í fréttatilkynningu forsætisráðuneytisins eftir
viðræður ráðherranna á fimmtudagsmorgun. í samkomulagi sem
varð um að íslensk sljórnvöld taki að sér sáttahlutverk í samskiptum
Sovétríkjanna og Eystrasaltsríkjanna var felldur út sá fyrirvari, að
þetta verði gert „ef eftir verður Ieitað“.
Eftir viðræður ráðherranna um
morguninn varð niðurstaðan_ sú að
fyrsta skrefið í sáttaviðleitni íslend-
inga „gæti verið" að efna til fundar
með fulltrúum Eystrasaltsríkjanna
í Reykjavík. í endanlegri yfirlýsingu
er hins vegar„samþykkt“ að fyrsta
skrefíð „ætti að verða“ að bjóða
fulltrúum allra Eystrasaltsríkjanna
til fundarins „í mars“.
Þá hefur sá fyrirvari verið settur
inn í endanlega yfirlýsingu að
„hugsanlega" hefði fulltrúi íslend-
inga framvegis aðsetur sitt í Tallin
í því skyni að koma á sem nánustum
samskiptum við Eystrasaltsríkin.
Jón Sveinsson, aðstoðarmaður
forsætisráðherra, sagði í gær, að
ýmis atriði gengju lengra í yfirlýs-
ingu ráðherranna en í fréttatilkynn-
ingunni, sem gefin var út eftir fund
ráðherranna um morguninn af
hálfu forsætisráðuneytisins. „Þessi
atriði komu inn á vissan hátt að
ósk Eistlendinga og þótti rétt að
verða við því. Þrátt fyrir að eist-
lensku ráðherrarnir hafi vitað efnis-
lega um hvað fréttatilkynningin
snerist, var farið nákvæmar yfir
textann síðar og þá komu þessar
áherslur inn að þeirra ósk sérstak-
lega, sem forsætisráðherra og ut-
anríkisráðherra féllust á og ríkis-
stjórnin öll eftir að yfirlýsingin var
kynnt henni á föstudag,“ sagði Jón.
Jón sagði að dagskrá heimsókn-
arinnar hefði verið það ströng á
fimmtudag að ekki hefðu verið tök
á að fara nægilega vel yfir texta
yfírlýsingarinnar fyrr en eftir
fréttamannafundinn en það var
gert síðdegis.
Sjá sameiginlega yfirlýsingu
forsætisráðherranna á
miðopnu.
Fjóla Pálmadóttir.
Ungfrú Norðurland:
Fjóla Pálma-
dóttir kjörin
Akureyri.
FJÓLÁ Pálmadóttir var kjörin
Ungfrú Norðurland í Sjallanum
í gærkvöldi.
Fjóla er 20 ára Akureyringur og
stundar hún matreiðslunám.
Sveindís Benediktsdóttir, 20 ára
Akureyringur, var kjörin besta tjós-
myndafyrirsætan.
- segja forsvarsmenn ASÍ og YSÍ
FORSVARSMENN ASÍ og VSÍ telja ekki marktækan bata á viðskipta-
kjörum og því engan efnahagsleg rök fyrir 0,3% kauphækkun opin-
berra starfsmanna. Þeir telja að hér sé um einhliða pólitíska ákvörð-
un að ræða, eða „örlætisgerning fjármálaráðherra" eins og Þórarinn
V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri
„Þetta er einhliða örlætisgerning-
ur fjármálaráðherra. Viðskipta-
kjaraforsendan er svipuð og við
reiknuðum með. Viðmiðun okkar
var 4% í febrúar og samkvæmt
tölum Þjóðhagsstofnunar var við-
skiptakjarabatinn 3,8% í desember.
Þessi launahækkun, til handa opin-
berum starfsmönnum, er því ekki
grundvölluð á efnahagslegum við-
skiptakjarabata. Það getur vel verið
að menn meti það svo að þetta hafi
einhvem pólitískan viðskiptakjara-
bata í för með sér, um það skal ég
VSI orðaði það.
ekki dæma,“ segir Þórarinn V. Þór-
arinsson, framkvæmdastjóri VSÍ.
Hann sagði að VSÍ hefði ekki
miklar áhyggjur af þessum 0,3 pró-
sentum. „Þetta er engin stærð sem
ruggar neinú, en þetta er hins veg-
ar fádæma asnalegt og ber þess
merki að menn séu ekki að fram-
kvæma samninginn upp á punkt og
prik. Við teljum afar brýnt að menn
standi við samninga, hvort heldur
verið er að setja þá uppá við eða
niður á við,“ sagði Þórarinn.
Hann sagðist velta því fyrir sér
fttftirgiitstMiifrffr
Komið hefur fyrir að blað-
berar Morgunblaðsins hafi
dotlið í hálku og siasast við
blaðburð. Það eru því vin-
samleg tilmæli afgreiðslu
Morgunblaðsins til kaupenda
blaðsins að þeir taki tillit til
blaðberanna með því að hafa
kveikt útiljós á morgnana.