Morgunblaðið - 23.02.1991, Blaðsíða 44
VOLVO
Besti vinur sjómannsins!
LAUGARDAGUR 23. FEBRUAR 1991
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
*
Aburðar-
verð hækk-
ar um 7%
STEINGRÍMUR J. Sigfússon
landbúnaðarráðherra hefur
heimilað 7% hækkun á áburðar-
verði í samræmi við tillögur
stjórnar Aburðarverksmiðju
ríkisins. Steingrímur kynnti
ákvörðun sína á ríkisstjórnar-
fundi í gær, en hann segir að
hækkunin sé innan þess ramma
sem fjárlög geri ráð fyrir.
Að sögn Hákonar Björnssonar,
framkvæmdastjóra Áburðarverk-
smiðjunnar, hafa hráefnisinnkaup
verksmiðjunnar verið hagstæð und-
anfarið vegna lækkunar á gengi
dollars, en mikið af innkaupunum
er í dollurum. Hann sagði að 7%
hækkun áburðarverðs nú ætti að
nægja til að standa undir rekstri
verksmiðjunnar.
Ólafsvík:
Mokveiði
í dragnót
Ólafsvík.
ÞRIR dragnótarbátar lönd-
uðu samtals 58 tonnum af
þorski á Olafsvík í gærkvöldi
eftir mokveiði í blíðskapar-
veðri á Vetrarbrautinni vest-
ur af Ondverðarnesi í gær.
Auðbjörgin SH kom með 30
tonn sem fengust í sjö hölum,
Hugborgin SH kom með 14
tonn og Tindurinn, sem er 14
tonna bátur með tveggja
manna áhöfn, kom einnig með
14 tonn.
Alfons.
Morgunblaðið/Leif R. Jansson
Sigríði Snævarr sendiherra var
ekið í hestvagni til konungshall-
arinnar þegar hún afhenti Svía-
konungi trúnaðarbréf sitt í gær.
Skíðað í Bláfjöllum
Morgunblaðið/Stefán Karlsson
Spáð er.góðu veðri um helgina og má því búast við .að margir fari á skíði þó snjólétt sé. Töluvert var af fólki
á skíðum í Bláfjöllum í gær og ágætis færi á aðalskíðasvæðunum, en víða var stutt í dökku dílana.
Loðnuveiðarnar:
Athugasemdir
frá Noregi og
Grænlandi
NORÐMENN og Grænlendingar
hafa gert athugasemdir vegna
ákvörðunar sjávarútvegsráð-
herra að heimila veiðar á 175
þús. tonnum af loðnu. Samkomu-
lag hefur verið milli þjóðanna um
400 þús. tonna hrygningarstofn
en með veiðiheimildinni er gengið
yfir þau mörk. Jón B. Jónasson,
skrifstofustjóri í sjávarútvegs-
ráðuneytinu segir að Grænlend-
ingum og Norðmönnum hafi verið
skýrt frá þeim vanda sem við
væri að glíma hér og kvaðst hann
eiga von á að farið yrði yfir stöð-
una á fundi í vor.
Rannsóknarskipið Árni Friðriks-
son fer til loðnuleitar við suðaustan-
vert landið í kvöld og fer Hrólfur
Gunnarsson, skipstjóri og útgerðar-
maður, með sem fulltrúi LÍU. Fiski-
fræðinga og skipstjóra loðnu-
skipanna hefur greint á um mæling-
arnar og vilja sjómenn að mæld verði
stór loðnuganga sem þeir telja sig
hafa orðið vara við út af Reykjanesi.
Sveinn Sveinbjörnsson fiskifræð-
ingur verður leiðangursstjóri í ferð-
inni. Sagði hann fiskifræðinga ekki
taka mark á upplýsingum skipstjór-
anna um milljón tonna loðnu út af
Reykjanesi. „Eg mældi þessa göngu'
400 þúsund tonn að stærð á meðan
hún var á leiðinni frá Hjörleifshöfða
að Þorlákshöfn síðastliðinn mánu-
dag,“ sagði hann.
Stjórn Landsvirkjunar um skilyrði þess að virkjanaframkvæmdir vegna álvers hefjist:
Fyrirvaralaus rafmagns-
sammngur liggi fyrst fyrir
LANDSVIRKJUN treystir sér ekki til að hefjá virkjunarframkvæmd-
ir vegna álvers fyrr en fyrirvaralaus rafmagnssamningur liggur fyr-
ir við Atlantsál hf., en ekki eru horfur á að það verði fyrr en í
haust. Stjórn Landsvirkjunar telur að þegar séu fyrir hendi nauðsyn-
legar lagaheimildir vegna þeirra virkjana sem byggja Jiarf, en Jón
Sigurðsson, iðnaðarráðherra, segir að lagaheimildir séu til að ráðast
í virkjanaröðina að gerðum samningum um nýtt álver, en hins vegar
séu ekki fyrir hendi lagaheimildir fyrir undirbúningsfrainkvæmduin.
Ekki hefur náðst samstaða í ríkisstjórninni um heimildarlagafrum-
varp eða þingsályktunartiliögu sem iðnaðarráðherra vill flytja um
málið.
Iðnaðarráðhen'a óskaði eftir því
með bréfi til Landsvirkjunar að íá
mat fyrirtækisins á stöðu samninga
um orkusölu til álversins á Keilis-
nesi og afstöðu til þess að aflað
verði á þessu þingi heimildar til
Sigríður Snævarr afhenti
Svíakonungi trúnaðarbréf
Sænska sjónvarpið sýndi athöfnina í fréttatíma
SIGRÍÐUR Ásdís Snævarr aflienti í gær Karli Gústafi sextánda Svía-
konungi trúnaðarbréf sitt sem sendiherra íslands í Svíþjóð. Sænska
sjónvarpið fylgdist með atburðinum og sýndi hann í fréttatíma í gær-
kvöldi en það mun vera í fyrsta skipti sem athöfn við afhendingu
trúnaðarbréfs er sjónvarpað þar í landi.
Sigríður sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að fylgt væri gam-
alli og hefbundinni siðvenju við af-
hendingu trúnaðarbréfs í Svíþjóð.
„Hámeistari frá hirðinni sótti mig
og sendiráðsritarann og fylgdi okkur
í utanríkisráðuneytið, þar sem ég
átti fund með fulltrúum þess. Því
næst fór ég í hestvagni frá ráðuneyt-
inu yfir brúna til hallarinnar. Þar
afhenti ég konungi trúnaðarbréf
mitt,“ sagði Sigríður.
„Þetta var storkostleg stund og
táknræn athöfn. Siðvenjur við af-
hendingu trúnaðarbréfs eru mjög
mismunandi eftir, löndum en kjarn-
inn er alltaf sá trúnaður sem bund-
inn er við afhendingu skilríkja sem
sýna að maður njóti trúnaðar síns
þjóðhöfðingja og ríkisstjórnar. Kon-
ungi tók á. móti mér og bauð mig
velkomna sem sendiherra íslands.“
Sigríður sagði að hugmynþin 'að
sjónvarpsupptökunni hefði komið frá
fulltrúa konungshirðarinnar, sem
hefði viljað sýna hvernig þessi at-
höfn færi fram. Fylgdust sjónvarps-
menn með för Sigríðar til konungs-
hallarinnaií ogi niQtioftunni.
áframhaldandi undirbúnings virkj-
ana á þessu ári, þannig að selja
megi hinu væntanlega álveri raf-
orku frá áramótum 1994-95. Ráð-
herra óskaði einnig eftir verkáætlun
vegna undirbúnings virkjana og
upplýsingum um hver lánsfjárþörf
Landsvirkjunar væri á þessu ári
vegna þess undirbúnings.
I bréfi, sem stjórn Landsvirkjunar
sendi iðnaðarráðherra á fímmtudag
og hann kynnti á ríkisstjórnarfundi
í gær, segir að til þess að hefja
undirbúningsframkvæmdir á þessu
ári, sem nauðsynlegar eru til að
tryggja að hægt verði að byija að
afhenda raforku til álversins í árs-
byrjun 1995, þurfi Landsvirkjun
hemild í lánsfjáriögum eða öðrum
lögurn til að taka 580 milljóna króna
íán. Þá kemur fram að vegna breyt-
inga er varða forsendur verðlags,
gengis og fleiri atriða sem hafi áhrif
á mat á arðsemi rafmagnssamn-
ingsins hafi Landsvirkjun tekið arð-
semisútreikninga sína til endurskoð-
unar og því geti stjórn Landsvirkj-
unar ekki tekið afstöðu til arðsemi
samningsins í heild fyrr en þeirri
endurskoðun er lokið.
Þá segir í bréfi stjórnar Lands-
virkjunar að ef lokasamningum og
fjármögnun framkvæmda Atlants-
áls hf. ljúki ekki fyrr en á tímabilinu
ágúst-desember næstkomandi, eins
og nú eru horfur á, verði ekki liægt
að hefja orkuafliendingu til álvers-
ins fyrr en upp úr áramótum
1994-95 og ekki að fullu fyrr en
átta mánuðum síðar.
Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra,
segir að hann telji kjarnann í bréfi
Landsvirkjunar vera beiðni um lán-
tökuheimild vegna undirbúnings-
verka, og hann vilji afla slíkrar
heimildar, en áskilja samþykki sitt
í ljósi framvindu samninganna við
Atlantsál. „Þetta er meðal þess efn-
is sem ég reyni nú að finna þingleg-
an farveg fyrir. Lagaheimildir eru
ekki fyrirliggjandi fyrir þessum und-
irbúningsframkvæmdum, en það
eru lagaheimildir til þess að ráðast
i virkjanaröðiná, ög þeirra aflaði ég
í fyrravor að gerðum samningum
um nýtt álver. Þeir samningar hafa
því miður ekki verið gerðir, og þess
vegna er nauðsynlegt að hafa sér-
staka heimild. Eg leita einfaldlega
að þeirri aðferð sem er einföldust
og líklegust til að koma efnisatriðinu
fram, en ég tel mjög mikilvægt að
þingið taki af skarið með sinn vilja
til að ljúka þessum samningum."
Aðspurður um viðbrögð innan
ríkisstjórnarinnar við bréfi stjórnar
Landsvirkjunar og. tillagna hans
varðandi þinglega meðferð málsins
sagði Jón að sér fyndist ekki áhuga-
vert að ræða áfanga innanhúss í
málinu, en hann ynni að samstöðu
um það og hann vonaði að sér tæk-
ist það. „Eg hef í mörgum umferð-
um verið að kynna efni og hugmynd-
ir um þetta mál í leit að sameigin-
legri niðurstöðu, því mikilvægt er
að um þetta takist víðtæk samstaða
á þingi. Samstaða hefur ekki enn
tekist, en ég held hún sé nálægt,“
sagði hann.