Morgunblaðið - 23.02.1991, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGA'RDAGUR 23: 'FEBRÚAR 1991
'27
Þj óðarflokkurinn:
Framboðslisti til þing-
kosninga frágenginn
STJÓRN kjördæmisfélags Þjóðarflokksins í Norðurlandskjördænii
eystra samþykkti á fundi í fyrradag framboðslista flokksins fyrir
komandi alþingiskosningar.
Árni Steinar Jóhannsson, um-
hverfisstjóri á Akureyri, verður í
1. sæti á listanum, Anna Helgadótt-
ir, kennari á Kópaskeri, í 2., Björg-
vin Leifsson, lífefnafræðingur, í 3.,
Oktavía Jóhannsdóttir, húsmóðir á
Akureyri, í 4. sæti, Gunnlaugur
Fjórtán gjald-
þrot nú í ár
FJÓRTÁN beiðnir um gjaldþrot-
askipti hafa borist skiptaráðanda
bæjarfógetaembættisins á Akur-
eyri frá áramótum.
Eyþór Þorbergsson skiptaráðandi
hjá embættinu sagði að svo virtist
sem ekkert lát væri á beiðnum um
gjaldþrotaskipti. „Það er ekki hægt
að segja að þetta sé neitt að
minnka," sagði Eyþór.
Frá áramótum hafa fimm fyrir-
tæki verið tekin til gjaldþrotaskipta,
Rafmar hf., Fiskverkun Birgis Þór-
hallssonar hf., Óskarsson hf., Skrið-
jöklar hf. og Norðurfell hf. Þá hafa
komið fram níu beiðnir um gjald-
þrotaskipti hjá einstaklingum.
Sigvaldason, bóndi, Svarfaðardal, í
5., Karl Steingrímsson, sjómaður,
Akureyri, í 6., Klara Geirsdóttir,
matreiðslunemi, Akureyri, í 7.,
Helga Björnsdóttir, húsmóðir,
Húsavík, í 8., Sigurpáll Jónsson,
bóndi, Hálshreppi í 9. og Gíslína
Gísladóttir, fulltrúi, Dalvík, í 10.
sæti.
í 11. sæti er Kolbeinn Arason,
flugmaður, Akureyri, Anna Krist-
veig Arnardóttir, símvirki, Akur-
eyri, í 12. Guðný Björnsdóttir, hús-
móðir, Akureyri, í 13. og Valdimar
Pétursson, skrifstofumaður á Akur-
eyri, í 14. sæti.
Þá hefur Þjóðarflokkurinn sent
frá sér stefnuskrá, þar sem m.a.
segir að flokkurinn hafi verið stofn-
aður til að hefja nýja sjálfstæðisbar-
áttu sem byggist á endurskoðun
stjórnarskrár lýðveldisins. Flokkur-
inn berst fyrir frelsi einstaklinga
og samtaka þeirra, gegn miðstýr-
ingu þjóðfélagsins. Þá berst hann
fyrir fækkun þingmanna og veru-
legri minnkun á framkvæmdavaldi
ráðherra og ráðuneyta. Einnig fyrir
valddreifingu ogjafnrétti landshlut-
anna og stöðugleika á pólitísku og
efnahagslegu sviði.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fjölmenni var á fundi sem Reki, félag rekstrardeildarnema við Háskólann á Akureyri, efndi til um
málefni skólans og haldinn var á miðvikudagskvöld. Á fundinutn kom fram mikill og eindreginn stuðn-
ingur fundannanua við skólann.
Fjölmennur fundur um málefni háskólans:
Rætt um nýjar deildir og
byggingu stúdentagarða
FJÖLMENNI var á fundi um mál-
efni Háskólans á Akurcyri sem
Reki, Félag rekstrardeildarneina,
liélt á þriðjudag. Svavar Gcstsson
mcnntamálaráðhcrra flutti ávarp
og kynnti m.a. stefnu ráðuneytis-
ins í menntamálum. Þá urðu mikl-
ar umræður um skólann og var
Kærur ganga milli bílstjóra
BÍLSTJÓRI á leigubifreiðastöðinni Glæsibíllinn hefur í hyggju að kæra
bilstjóra á leigubifreiðastöðinni BSO á Akureyri fyrir að veitast að sér
þar sem hann var á ferð í bíl sínum í einkaerindum. Bílstjóri á BSO
hefur kært umræddan bílstjóra fyrir farþegastuld. Frá því Glæsibílar
tóku til starfa síðla árs 1987 hafa bílstjórar leigubílastöðvanna tveggja
eldað saman grátt silfur, en BSO hefur einkaleyfi á rekstri leigubíla-
stöðvar á Akureyri og líta þeir því svo á að akstur Glæsibíla með far-
þega sé ólöglegur. Glæsibílamenn spyrja hins vegar á móti liver eigi
farþega.
Forsaga þessa máls er sú, að út-
lendur maður sem staddur var á
Akureyrarflugvelli hringdi á BSO og
óskaði eftir leigubifreið. Að sögn
Jakðbs Jónssonar formanns Bifreiða-
stjórafélags Akureyrar tók bílstjóri
leigubifreiðarinnar sem fór í akstur-
inn eftir því að farþeginn var kominn
upp í bifreið Glæsibíla. Jakob segir
að BSO hafi einkaleyfi til reksturs
leigubifreiða á Akureyri og því sé
um að ræða ólöglegt athæfi. Hann
segir að þetta sé ekki fyrsta kæran
sem lögð er fram á hendur bílstjórum
Glæsibíla og að minnsta kosti í tví-
gang hafi bílstjórar þaðan tekið 'far-
þega á Akureyrarflugvelli, sem pant-
að höfðu bíla frá BSO.
Bílstjórar frá BSO veittu bílstjóra
Glæsibíla eftirför, en bílarnir voru
stöðvaðir í krika við Möl og sand við
Glerár. Bílstjóri Glæsibíla sagði við
Morgunblaðið að BSO-menn hefðu
veist að sér með háreysti og læti,
lamið bíl hans utan og gert tilraunir
til að bijótast inn í hann. Ilan kvaðst
hafa verið í einkaerindum, á leið í
hesthús sitt er atburðurinn átti sér
stað. „Þetta var alveg augljós árás
og ég lít svo á að ég hafi þegar
kært þetta mál munnlega, strax og
þetta gerðist," sagði bílstjórinn.
Hann sagði að frá því Glæsibílar
tóku til starfa hefðu bæði BSO-bíl-
stjórar og lögreglan hindrað starf-
semi félagsins, nefndi hann sem
dæmi, að farþegar hefðu þurft að
gefa lögreglu skýrslu, lögregla hefði
spurt einstaka bílstjóra út í ferðir
þeirra á milli staða og þá hefði félag-
inu verið haldið í ólöglegu lögbanni
um langa hríð.
Um meintan farþegastuld sagði
bílstjóri Glæsibíla, að ekki væri hægt
að segja fyrir um hveijir ættu far-
þega.
það mál niaima að ef liann fengi
að dafna væri um að ræða byggða-
mál sem snúið gæti við þeirri
byggðaröskun sem orðið hefur í
landinu.
Ilaraldur Bessason rektor ræddi
um framtíðarsýn skólans, Smári Sig-
urðsson lektor um stefnumótun og
Jón Þór Gunnarsson framleiðslustjóri
um mikilvægi hans. Þá fjallaði Krist-
inn Hreinsson formaður Reka um
sjónarhorn nemenda og fulltrúar
stjórnmálaflokkanna lýstu viðhorfum
sínum.
Á meðal þess sem mikið var rætt
voru byggingau við skólann, nauðsyn
þess að reistir verði fleiri stúdenta-
garðar, um nýjar deildir og viðbót-
arnám. Fram komu hugmyndir um
að ekki væri úr vegi að komið yrði
upp lögfræðideild við skólann og
sagði Haraldur Bessason rektor að
því máli hefði oft verið hreyft við
sig. Þá sagði menntamálaráðherra
að hann myndi taka afstöðu til fram-
kominnar beiðni um tveggja ára við-
bótarnám við rekstrardeild fyrir lok
næsta mánaðar. Hvað nýjar deildir
varðar var einnig rætt um að æski-
legt væri að á Akureyri væri boðið
upp á kennaranám, einkum skorti
kennára til að kenna raungreinar í
framhaldsskólum og lýstu margir
yfir áhuga á að unnt yrði að sækja
það í bænum.
Fundarmönnum varð tíðrætt
um hlutverk skólans og þátt hans
í að sporna gegn frekari byggðarösk-
un og voru í því sambandi tekin
dæmi frá Noregi og Svíþjóð, en þar
hefðu háskólar verið reistir í fremur
afskekktum byggðarlögum í norður-
hluta landanna og öflug starfsemi
þeirra hefði orðið sveitunum í kring
lyftistöng og jafnvel komið í veg
fyrir að byggðir færu í eyði.
-----t-t-t-----
Eyjafjörður:
Lionsmenn
selja blóm
Ytri-Tjörnum.
í DAG, þorraþræl, gengst Lions-
klúbburinn Vitaðsgjafi fyrir ár-
legri blóntasölu á félagssvæði
sínu, sem er Eyjafjarðarsveit og
Svalbarðsströnd, í tilefni af
konudeginum sem er eins og
kunnugt er á morgun.
Blómin sem seld verða eru öll
framleidd hjá Gróðrarstöðinni
Grísarar í Eyjafjarðarsveit. Hús-
bændur og aðrir herramenn eru
hvattir til að taka vel á móti Lions-
mönnum nú, sem endranær. Allur
ágóði rennur til Kristsnesspítala.
Benjamín
Nemendur í Tónskóla Sigursveins.
Tónskóli Sigursveins:
Tvennir tónleikar á
degi tónlistarskóla
Á DEGI tónlistarskólanna, laugardaginn 23. febrúar nk., mun Tón-
skóli Sigursveins standa fyrir tvennum tónleikum.
Þeir fyrri verða haldnir í Tónskól-
asalnum, Hraunbergi 2, og heljast
kl. 14.00. Hinir síðari verða í Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar kl.
17.00. Alls spila og syngja um 60
nemendur skólans á þessum tón-
leikum.
Eingöngu verður flutt íslensk
tónlist, m.a. eftir Sigursvein D.
Kristinsson, Atla Heimi Sveinsson,
Hafliða Hallgrímsson, Hjálmar H.
Ragnarsson, John Speight, Þorkel
Sigurbjörnsson og fleiri.
Allir eru velkoninir á tónleikana.
■ ISLANDSMEJSTARA-
KEPPNI í gömlu dönsunum verður
haldin á Hótel Islandi á morgun,
sunnudag, og hefst hún kl. 14. Um
200 pör víða að af landinu hafa
skráð sig til þátttöku í keppninni
og eru flestir þátttakendurnir á
grunnskólaaldri.
Dansráð Islands stendur fyrir
Islandsmeistarakeppninni í gömlu
dönsunum, en það er samtök allra
danskennara á landind. Dómnefnd
í keppninni er skipuð þeim Sigvalda
Þorgilssyni, Iiuldu Hallsdóttur,
og Ingibjörgu Róbertsdóttur.
■ RÖSKVA samtök félags-
hyggjufólks, gengst fyrir menn-
ingar- og listahátíð í skemmtistaðn-
um Lídó í Lækjargötu, laugar-
dagskvöldið 23. febrúar kl. 21.30-
24.00. Að lokinni menningardag-
skrá verður framboðslisti Röskvu í
komandi stúdenta- og háskólaráðs-
kosningum kynntur. Aðagangur að
menningar- og listahátíð Röskvu
er ókeypis fyrir alla nemendur Há-
skóla íslands en að henni lokinni
tekur við almennur dansleikur í
Lídó.
SJALFSTÆDISFLOKKURINN
F É 1. A G S S T A R F
Framtíð þjóðarsáttar
Fundur verður hald-
inn i Alþýðuhúsinu
Akureyri nk. sunnu-
dag 24. febrúar kl.
15.00. Frummæl-
endur verða Magn-
ús , L. Sveinsson,
formaöur Verzlunar-
mannafélags
Reykjavíkur, Guð-
mundur Flallvarðs-
son, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, Hrafnkell A. Jónsson,
formaður Verkalýðsfélagsins Árvakurs, Eskifirði, og Svanhildur Árna-
dóttir, húsmóðir og bæjarfulltrúi á Dalvík.
Fundarstjóri: Halldór Blöndal.
Fundarefni:
Framtið þjóðarsáttar og kjaramál almennt.
Fjölmennum á fjörugan fund. Allir velkomnir. ■ Kjördæmisráð.