Morgunblaðið - 23.02.1991, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1991
9
Kvennakvöld -
Spánnrkvöld
Hið árlega kvennakvöld hestamannafélagsins Fáks
verður haldið laugardaginn 2. mars nk. í félagsheimil-
inu. Kvöldið verður í spænskum anda og spænskir rétt-
ir á matseðlinum.
Sala á aðgöngumiðum fer eingöngu fram á skrifstofu
Fáks miðvikudaginn 27.2., fimmtudaginn 28.2. og föstu-
daginn 1.3. frá kl. 16.00-20.00.
Tekið er á móti pöntunum á skrifstofunni í síma 672166
frá kl. 13.00.
Kvennadeildin.
A laugardögum söfnum við einnota
umbúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Hringið í síma 621390 eða 23190 á milli
kl. 11.00 og 15.00 og við sækjum.
ÞJÓÐÞRIF
BANDAUQ ISLENSKRA SKÁTA
<3t;
LANDSSAMBAND
HJÁIPARSVEITA
sxAta
Dósakúlur um allan bæ.
Ferðamönnum
fjölgar jafnt og
þétt
„Ef þeim sem koma til
Islands [erlendum ferða-
mönnum] fjölgar jafn-
hratt og undanfarin tíu
ár verða þeir um alda-
mótin orðnir um 250 þús-
und á ári.“
Þannig er komizt að
orði í grein í nýrri
Vísbendingu, vikuriti um
viðskipti og efnáhags-
mál. Árið 1950 komu
hingað til lands 4.000
erlendir ferðamenn, árið
1973 75.000 og árið 1990
140.000. Fjöldi erlendra
ferðamanna rúmlega
tvöfaldaðist á sl. áratug.
A þeirri fjölgun er sú spá
byggð, sem hér að ofan
getur.
Vísbending segir:
„Ætla má að um 3,5%
landsmanna vimii við
þjónustu við ferðamenn,-
innlenda og erlenda. Árið
1988 voru ársverk í
ferðaþjónustu 4.500 og.
hafði þeim fjölgað um
meira en 50% frá 1980.
Hlutur ferðaþjónustu í'
útflutningi vöru og þjón-
ustu er mun meiri en í
mannafla [laudsmenn á
vinnualdri], eða upp und-
ir 9% og hefur hlutfallið
vaxið úr 4% árið 1980.
Gjaldeyristekjur af
ferðamönnum hafa
aukizt hraðar en fjöldi
fólks sem hingað kemur.
Undanfarinn áratug
jukuzt þær um 160% á
föstu verðlagi. Að meðal-
tali eru . þær rúmar 80
þúsund krónur og eru þá
bæði taldar fargjalda-
tekjur Flugleiða og það,
sem eytt er hér á landi...“
Yandi ferða-
þjónustunnar
Þrátt fyrir mikla fjölg-
un erlendra ferðamaima
hefur íslenzk ferðaþjón-
usta átt við nokkurn
rekstrarvanda að glima,
eins og raunar allur at-.
vinnurekstur hér á landi.
Vandi ferðaþjónustunn-
ar, auk almenns vanda
íslcnzks atviimurekstrar,
er, að langflestir ferða-
140 þúsund erlendir
ferðamenn 1990
Á síðastliðnu ári komu hingað til lands nálægt 140
þúsund erlendir ferðamenn. Ársverk í ferðaþjón-
ustu hér á landi eru talin 4.500-5.000. Gjaldeyris-
tekjur af hverjum ferðamanni eru áætlaðar um 80
þúsund krónur (fargjaldatekjur Flugleiða og eyðsla
hér á landi). Ferðaþjónusta er þegar orðin mikil-
vægur og gjöfull þáttur í þjóðarbúskap okkar.
menn koma hingað á tíu
vikna tímabili, það er á
liásumri. „Dýrt er,“ segir
Vísbending, „að lialda úti
þeirri fjárfestingu, sem
nauðsynleg er, ef hún
nýtizt aðeins að fullu svo
stuttan tíma. Reynt er að
auka nýtingu hótela á
öðrum hluta árs með ráð-
stefnuhaldi. Ferðir út-
lendinga hingað dreifast
nú heldur jafnar á árið
en áður.“
Spurning er hvort
hægt er að nýta vaxandi
áhuga fólks, beggja meg-
in Atlantsála, á vetrar-
íþróttum, til að beina
ferðamöimum hingað til
landsins. Ferðaþjónusta
bænda vex og trúlega
enn, sem og ferðaþjón-
usta í sjávarútvegspláss-
um, m.a. við stangveiði-
meim sem áhuga hafa á
að veiða sjávarfiska.
„Frá 1984-1989 fjölg-
aði heilsársgistirúmum
um rúm 60%,“ segir
Vísbending, „en sumar-
gistirúmum um þriðj-
ung.“ Þá hefur veitinga-
húsum fjölgað ört hin
allra síðustu árin. Rekst-
ur gisti- og veitingaliúsa
hefur sætt halla, á heild-
ina Iitið, bæði 1988 og
1989, samkvæmt úrtaks-
könnun Þjóðhagsstofn-
unar. Fjárfestingar, með
tilheyrandi kostnaði,
hafa trúlega vegið
þyngra en vöxtur þessar-
ar atvinnugreinar. Kapp
er bezt með forsjá í þess-
uni efnum sem öðrum.
Ihugunarefni
varðandi ferða-
þjónustu
Stöðugt verðlag skipt-
ir miklu fyrir framtíðar-
vöxt feröaþjónustu. Vís-
bending segir orðrétt:
„Hátt verðlag hér á
landi er það sem ferða-
menn kvarta einna mest
yfir. I könnun verðlags-
stofnunar fyrir hálfu
öðru ári kom fram að
innlendar búvörur eru
helmingi dýrari hér en í
Svíþjóð. Sumir ferða-
menn bregða á það ráð
að hafa vistir með sér að
heiman. Einfaldasta leið-
in til þess að sporna gegn
þessu er að lækka verð
á iimlcndum matvörum."
Vísbending segir og:
„Fjárfestingar í ferða-
þjónustu hafa ehikemist
af of mikilli bjartsýni.
Of algengt er hér á landi
að menn líti á uppgang
í ehini grein og miði
áætlanir sínar við að
hann hakli áfram með
sama hraða um alla
framtíð ...“ Kapp er af
hinu góða, meðan menn
fara ekki langt fram úr
veruleikanum.
Þá er óhjákvæmilegt
að efla hvers konai' um-
hverfis- og náttúruvernd,
samhliða vaxandi
streymi erlendra ferða-
manna. Við eigum hik-
laust að nýta okkur þann
möguleika, sem ferða-
þjónustan gefur, en fyrir-
byggja jafnframt sem
kostur er hinar neikvæðu
hliðar hennar. Þetta
tveimt er hægt að sam-
ræma, ef hyggilega er
að verki staðið.
En hvað um framtíð
ferðaþjónustu hér á
landi? Vísbending segir:
„Enda þótt vafasamt
sé að treysta neinu um
þrómiina á næstu árum,
bendir flest til að ferða-
þjónusta eflizt mikið.
Þeim mun fjölga sem
hafa atvinnu af þjónustu
við ferðamenn. Nú koma
um 9% gjaldeyristekna
frá þessari grein, en það
er sjöttungur þess sem
sjávarútvegur aflar. Ef
ferðamönnum fjölgai-
með sama hraða og verið
hefur síðustu tíu árin
kæmi ckki á óvart að
þetta hlutfall yrði um
15% um aldamótin."
ELSTA TEPPAVERSLUN LANDSINS
Á VÖNDUÐUM TEPPUM
FYRIR STIGAHÚS 0G
SKRIFST0FUR
FRIÐRIKS BERTELSEN
FÁKAFENI 9 - SÍMI 686266
KAUPMANNAHOFN■LONDON
Okkar eigið leiguflug alla miðvikudaga frá 1. maí til 25. september.
Leiguflugið okkar gerir öllum kieift að komast til útlanda. Sannkölluð
kjarabót í anda þjóðarsáttar.
verö frá fcr.
..
báöar leiðir.
;.;.;.v.;.y.v.y.;.v.
verð frá kr.
báðar leiðir.
Fjölbreytt ferðaþjónusta á áfangastöðum. Ferðir með dönskum og enskum
ferðasknfstofum. Margvíslegir gistimöguleikar. Sumarhús - bflaleigur - o.fl.
Dæmi um okkar verð:
TAKMARKAÐUR SÆTAFJÖLDI Á ÞESSUM ÓTRÚLEGU VERÐUM.
FIUGFERÐIR
SGLRRFLUG
Vesturgata 12, Símar 620066 og 22100
Ofangreind verö miðast við staðgreiðslu.