Morgunblaðið - 23.02.1991, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRUAR 1991
Kosningastefna Alþýðuflokksins:
Útiloka ekki aðild að EB
*
Island í A - flokk, er kjörorð kosningabaráttunnar
„ÞETTA er vandaðasta kosningastcfnuskrá Alþýðuflokksins frá upp-
liafi en flokkurinn verður 75 ára þann 12. mars næstkomandi. Þetta
eru ítarleg og rökstudd stefnumarkmið sem við leggjum undir dóm
kjósenda ásamt þeim árangri sem áunnist hefur af starfi flokksins í
ríkisstjórn," sagði Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokks-
ins, þegar kynnt var kosningastefnuskrá flokksins á fimmtudag. Jón
Baldvin sagði að flokkurinn hefði enga ákvörðun tekið um stjórnarsam-
starf eftir kosningar. „Ef miðað er við niðurstöður skoðanakannana
undanfarið, er ólíklegt að núverandi stjórnarflokkar haldi meirihluta
sinum. Við leggjum áherslu á samstarf með flokkum sem eiga málefna-
lega samstöðu um stærstu málin i stefnuskrá okkar,“ sagði Jón.
Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- núverandi kvótakerfi og telur nauð-
herra, var formaður málefnanefndar synlegt að í áföngum verði í auknum
sem vann að gerð stefnuskrárinnar.
Hann sagði að stefnuskráin væri
fijálslynd áætlun um hvernig efla
mætti efnahags- og atvinnulíf á
grundvelli markaðsbúskapar.
Kjörorð Alþýðuflokksins í k.osn-
ingunum eru: ísland í A - fiokk!
Auðugra mannlíf.
í stefnuskránni er lögð áhersla á að
koma í veg fyrir samþjöppun valds
í atvinnulífinu og afnema óþarfar
hömlur á atvinnufrelsi. „Aflétta þarf
lögbundinni einokun í útflutnings-
verslun og setja lög gegn einokun
og hringamyndun. Erlendum bönk-
um verði heimilað að starfa hér á
landi til að auka samkeppni á fjár-
magnsmarkaði. Alþýðuflokkurinn
telur það brýnasta verkefnið í kjara-
málum að bæta kjör þeirra sem
þyngstar byrðar hafa borið á yfir-
stándándi samdráttarskeiði," segir
m.a. í stefnuskránni.
Telur flokkurinn nauðsynlegt að
fram fari endurskoðun á launakerf-
inu í landinu í kjölfar könnunar á
því hver raunveruleg launakjör eru.
Þá vili flokkurinn fækka lífeyrissjóð-
um með samruna þeirra til að bæta
reksturinn og rýmka heimildir ein-
staklinga til að ráðstafa iðgjöldum
í sjóði að eigin vali.
í stefnuskránni er áhersla lögð á
að efla áfram húsrtæðiskerfíð, auka
framboð á félagslegu húsnæði og
treysta fjárhagsstöðu Byggingar-
sjóðs verkamanna. Þá er sagt að
færa þurfi þjónustu Húsnæðisstofn-
unar út í héruðin.
Alþýðuflokkurinn vill gerbylta
■ INGIBJÖRG Guðjónsdóttir
sópransöngkona heldur tónleika í
Selfosskirkju á morgun kl. 15:30.
Meðleikari Ingibjargar verður David
Knowles píanó-
leikari. Á efnis-
skránni eru söng-
lög og aríur eftir
erlenda og innlenda
höfunda.
Ingibjörg var
nemandi Snæ'-
bjargar Snæbjarn-
Guð- ardóttur við Tón-
sópr- listarskóla Garða-
bæjar og iauk búrt-
fararprófi þaðan 1986. Nítján ára
gömul vann Ingibjörg sér rétt til að
taka þátt í alþjóðlegri keppni ungra
söngvara í Cardiff í Wales 1985.
F’ramhaldsnám stundaði Ingibjörg í
Bandaríkjunum og lauk hún s.l.vor.
mæli tekið endurgjald fyrir veiðileyfi
og að hluta veiðileyfagjalds mætti
veija til að treysta byggð í landinu.
Flokkurinn telur nauðsynlegt að
gjörbreyta landbúnaðarstefnunni til
að ná fram lækkun á verði innlendra
matvæla.
Alþýðuflokkurinn vill hagræða í
opinberum rekstri til að hemja út-
gjöld hins opinbera og vill selja at-
vinnufyrirtæki í eigu ríkisins og taka
upp afnotagjöld fyrir þjónustu ríkis
og sveitarfélaga. Þá segir að draga
eigi úr stjórnmálaáhrifum á rekstur
fjármálastofnana með því að breyta
ríkisbönkum í almenningshlutafélög
og með sameiningu og fækkun fjár-
festingarlánasjóða, sem breytt verði
í hlutafélög. Tekjustofnar sveitarfé-
laga verði endurskoðaðir þannig að
í stað aðstöðugjalds greiði fyrir-
tæki launagjöld, fasteignagjöld og
gjöld af umferð og megandi orku-
notkun.
Flokkurinn útilokar ekki aðild að
Evrópubandalaginu, en ítrekar
óskoruð yfirráð íslendinga yfir fiski-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Forystusveit Alþýðuflokksins kynnti stefnuskrá flokksins á frétta-
mannafundi sem boðað var til á fimmtudag.
miðunum og orkulindum landsins.
í stefnuskránni segir að samræma
þurfi skattlagningu eignatekna til
samræmis við skattmeðferð ann-
arrra tekna og draga eigi úr vægi
tekjuskatts á almennar launatekjur
og gera tekjujöfnunaráhrif skattsins
markvissari með beitingu persónuaf-
sláttar, barnabóta og húsnæðisbóta.
Þá telur flokkurinn að nú hafi skap-
ast skilyrði til að taka upp stefnu
stöðugs gengis sem fáist staðist til
lengdar. Vill Alþýðuflokkurinn að
kannað verði að tengja gengi krón-
unnar við evrópska gjaldmiðla í
tengslum við samninga um Evrópska
efnahagssvæðið.
Fjárframlög til umferðarmála:
Umferðaröryggi í Keykjavík hefur aukist
- segir Haraldur Blöndal, formaður umferðarnefndar
MINNIHLUTAFLOKKARNIR í borgarstjórn lögðu fram nokkrar
tillögur um umferðarmál við umræður um fjárhagsáætlun Reykja-
víkurborgar á fimmtudag. Haraldur Blöndal, formaður umferðar-
nefndar, lagði til að flestum þeirra yrði vísað frá, enda væru þær
sýndartillögur. Hins vegar kæmi fram í þeim stuðningur við þau
sjónarmið, sem ríkt hefðu í umferðarnefnd á undanförnum árum
og leitt hefðu til þess að umferðaröryggi í borginn hefði aukist.
Ingibjörg
jónsdóttir
ansöngkona.
Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi
Alþýðubandalags, lagði til að borg-
arstjórn byði foreldrum ungra barna
upp á umferðarfræðslu enda væru
slys á börnum hér mun algengari
en meðal nágrannaþjóðanna. Jafn-
framt lagði hann fram tillögu um
átak til að auka umferðaröryggi til
að fækka slysum, meðal annars með
gerð undirganga fyrir gangandi veg-
farendur undir Miklubraut.
Sigrún Magnúsdóttir, Framsókn-
arflokki, lagði til að iátin yrði fara
fram könnun á arðsemi fram-
kvæiwia, annars vegar vegna lagn-
ingar Ósabrautar meðfram strönd-
inni og hins vegar vegna breikkunar
Vesturlandsvegar. Hún lagði jafn-
framt fram tillögur um að gerð verði
undirgöng undir Miklubraut við
Rauðagerði og hitalagnir í Bústaða-
veg við Öskjuhlíð og við Höfða-
bakka. Sigrún lagði að lokum til að
varið yrði 10 milljónpm króna til að
leggja reiðvegi í borginni.
Elín G. Ólafsdóttir, Kvennalista,
lagði fram tillögu um að veija 47
milljónum til sérstakra aðgerða til
að auka umferðaröryggi barna og
Ólína Þorvarðardóttir, Nýjum vett-
vangi, flutti tillögu um aðgerðir til
að auka öryggi bæða gangandi og
akandi vegfarenda í Reykjavík.
Haraldur Blöndal, formaður um-
ferðarnefndar, lagði til að öllum til-
lögum minnihlutans um umferð-
armál yrði vísað frá, að undanskildri
tillögu Siguijóns Péturssonar um
umferðarfræðslu fyrir foreldra.
Lagði hann til að henni yrði vísað
til umferðarnefndar. Hann sagði til-
lögur um tvenn undirgöng undir
Miklubraut væru yfirboðstillögur,
raunhæfara væri að gera brú fyrir
gangandi fólk eins og stæði til að
gera á næsta ári.
Haraldur sagði tillögu Sigrúnar
Magnúsdóttur um könnun á hag-.
kvæmni vegagerðar óþarfa, enda
hefði slík könnun þegar farið fram
hvað Ósabraut varðaði og að ekki
væri ástæða til að rífa upp götur til
að leggja hitalagnir. Það ætti aðeins
að gera þegar verið væri að leggja
götur eða endurleggja. Tillögu Sigr-
únar um reiðvegi sagði hann vera
sýndartillögu og sömu sögu væri að
segja um tillögur Kvennalista um
aukin fjárframlög til umferðarmála.
Haraldur sagði að lokum, að til-
Iaga Nýs vettvangs um umferðarör-
yggi væri óþörf og dæmigerð fyrir
vinnubrögð óábyrgra stjórnmálask-
úma.
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn:
Ekkí þörf fyrir ungl-
ingahús í miðbænum
FULLTRÚAR Kvennalista og Nýs vettvangs lögðu til við umræður
um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar, að komið yrði upp félagsað-
stöðu fyrir börn og unglinga í Seljahverfi og miðbænum. Borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokks töldu þessar tillögur óraunhæfar og
óþarfar og lögðu til að þeim yrði vísað frá. Atkvæðagreiðsla um
fjárhagsáætlunina og breytingartillögur við hana fer fram næst-
komandi þriðjudag.
Borgarfulltrúar minnihlutaflokk-
anna fluttu nokkrar tillögur um
íþrótta-, tómstunda- og æskulýsmál
við umræður um fjárhagsáætlunina,
sem lauk á föstudagsmorgun. Sigrún
Magnúsdóttir, Framsóknarflokki,
lagði til að 35 milljónum yrði varið
til úrbóta á aðalleikvangi í Laugard-
al og að stofnuð yrði sérstök nefnd
til að samhæfa forvarnastarf gegn
vímuefnum. Elín G. Ólafsdóttir,
Kvennalista, lagði til að keypt yrði
færanlegt hús til að bæta félagsað-
stöðu barna og unglinga í Selja-
hverfi og að Vonarstræti 4 yrði
breytt í félagsaðstöðu fyrir unglinga.
Kristín Á. Ölafsdóttir, Nýjum vett-
vangi, lagði einnig til að komið yrði
upp félagsaðstöðu fyrir unglinga í
miðbænum og í Seljahverfi. Siguijón
Pétursson, Alþýðubandalagi, lagði
að lokum til, að borgaryfirvöld könn-
uðu í samráði við skíðafélögin hvern-
ig mætti bæta aðstöðu gönguskíða-
fólks í Reykjavík og nágrenni.
Júlíus Hafstein, formaður íþrótta-
og tómstundaráðs, lagði til að tillögu
Siguijóns Péturssonar yrði vísað til
ráðsins en öðrum tillögum minni-
hlutans yrði vísað frá. Hann sagði
að margt í tillögu Sigrúnar Magnús-
dóttur um Laugardalsvöll bæri vott
um þekkingarskort og í raun væru
efnisatriði hennar þegar til athugun-
ar hjá íþrótta- og tómstundaráði.
Eins hefði nýlega verið komist að
þeirri niðurstöðu í ráðum og nefnd-
um borgarinnar, að vímuvarnar-
nefnd, eins og Sigrún stakk upp á,
væri óþörf.
Varðandi tillögur um félagsað-
stöðu í Seljahverfi sagði Júlíus, að
skynsamlegast væri að bíða um sinn
þangað til hægt yrði að breyta félag-
sálmu Seljaskóla í félagsmiðstöð og
enn fremur að ekki væri þörf fyrir
unglingahús í miðbænum, eins og
bæði Kvennalisti og Nýr vettvangur
lögðu til. Benti hann á, að enginn
hefði orðið var við óskir ungs fólks
um slíkt hús.
Hnífstungnliðin í
Sjálfstæðisflokknum
eftir Leif Sveinsson
Fyrra hnífstunguliðið
Dagana 2. og 3. desember 1979
fóru fram alþingiskosningar á ís-
landi. Varýmsum flokksformönn-
um falin stjórnarmyndun, meðal
annars fór Geir Hallgrímsson með
umboð til stjórnarmyndunar dag-
ana 21. desember 1979 til 14.
janúar 1980.
Geir reyndi stjómarmyndun í
þeirri góðu trú, að þingflokkur
hans fylgdi honum einhuga, en
svo reyndist ekki. Fjórir þingmenn
áttu samtímis í leyniviðræðum við
framsókn og Alþýðubandalag um
stjórnarmyndun, sem lauk með
myndun ríkisstjómar Gunnars
Thoroddsen 8. febrúar 1980.
Auk Gunnars sviku Geir þessir
þingmenn: Albert Guðmundsson,
Friðjón Þórðarson og Pálmi Jóns-
son„ en utanflokksmaðurinn Eg-
gert Haukdal stökk um borð í
óheillaskútu Gunnars síðar á kjör-
tímabilinu gegn vænum bitlingi.
Geir Hallgrímsson reyndi það,
sem fáum hefur tekist, að vera
heiðarlegur drengskaparmaður í
stjórnmálum.
Við lok stjórnarmyndunartil-
rauna hans vaknaði hann hins
vegar upp við það, að fjögur spjót
stóðu í baki honum og þau öll frá
hans eigin flokksmönnum.
Aðeins einn þeirra fimmmenn-
inganna er nú í líklegu sæti á
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ihs, en það er Pálmi Jónsson.
Síðara hnífstung-uliðið
Þegar riíjað er upp þetta harm-
sögutímabil í sögu Sjálfstæðis-
flokksins, sem að framan getur,
þá er það með ódæmum, að kom-
ið sé fram á vígvöllinn nýtt hnífst-
„Ég skora því á alla
sanna sjálfstæðismenn
að sameinast umað
gera kosningu Þor-
steins Pálssonar sem
glæsilegasta á lands-
fundi flokksins og
minni hina nýju hnífst-
ungumenn á örlög
hinna fyrri.“
ungulið og því nú einnig beitt að
formanni flokksins, Þorsteini
Pálssyni.
Þótt ýmsir efuðust um forystu-
hæfileika Þorsteins Pálssonar, þá
hefur hann nú tekið af öll tví-
mæli um forystuhæfileika sína
með afskiptum sínum af málefn-
um Lithaugalands, þannig að nú
hefur hann öðlast virðingu allra
landsmanna, hvar í flokki sem
þeir standa. Sá er vinur, _sem í
raun reynist og þar hafa íslend-
ingar vakið á sér verðskuldaða
athygli í afstöðu sinni til málefna
Eystrasaltsríkjanna og láta hótan-
ir Sovétmanna sem vind um eyrun
þjóta. Við seljum ekki sál okkar
fyrir fáeina ullartrefla og nokkur
þúsund síldartunnur. Enginn Is-
lendingur myndi sakna þess, þótt
eitthvað fækkaði í njósnaliði
Sovétmanna við Túngötu. Kalda
stríðið er búið.
Eg skora því á alla sanna sjálf-
stæðismenn að sameinast um að
gera kosningu Þorsteins Pálsson-
ar sem glæsilegasta á landsfundi
flokksins og minni hina nýju
hnífstungumenn á örlög hinna
fyrri.
Ilör'undur er lögfræðingur í
Reykja vík.