Morgunblaðið - 23.02.1991, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1991
25
Hulda Hákon við eitt af verkum
sínum.
Hulda Hákon
í Gallerí II
HULDA Hákon opnar laugardag-
inn 23. febrúar kl. 15.00 sýningu
í Gallerí II, Skólavörðustíg 4a.
Hulda er fædd 1956 og lauk
myndlistarnámi 1983. Á síðasta ári
hlaut hún 12 mánaða starfslaun frá
íslenska ríkinu, var með einkasýn-
ingu í Svíþjóð og tók þátt í samsýn-
ingum í Svíþjóð, Þýskalandi, Sov-
étríkjunum, Bandaríkjunum og
Ástralíu.
Seltjarnarneskirkja
Konudagur-
inn í Seltjarn-
arneskirkju
Seltjarnarneskirkja hyggst á
næstu mánuðum efla tengsl við
félög í sókninni með því að þau,
eitt eða fleiri í senn, gegni hlut-
verkum við ákveðnar messur. Get-
ur það verið með þeim hætti, sem
félögin óska í samráði við sóknar-
prest. Að messu lokinni gefst fé-
lögunum tækifæri til að kynna
starfsemi sina og efla tengslin sín
á milli.
Seltjarnameskirkja hefur ákveðið
að bjóða kvenfélaginu Seltjörn að ríða
á vaðið og taka þátt í messunni á
konudaginn 24. febrúar nk. Kvenfé-
lagskonur munu lesa ritningarlestra
og sjá um léttan hádegisverð að
messu lokinni, sem söfnuðinum gefst
kostur á að kaupa á vægu verði.
„Vona allir, sem hlut eiga að máli,
þar með taldar kvenfélagskonur
mæti vel í kirkju þennan dag með
fjölskyldum sínum og vitanlega eru
allir velkomnir til þátttöku, en messan
hefst að venju kl. 11.00 og er barna-
starf á sama tíma, þannig að allir
aldursflokkar fjölskyldunnar ættu að
geta fengið eitthvað við sitt hæfí,“
segir í frétt frá Seltjarnarneskirkju.
Póstganga
um bæinn
í tilefni af þátttöku Útivistar í
Umhverfisdögum í Kringlunni
verður aukapóstganga í dag og
hefst hún kl. 13:00. Safnast verður
saman í Miðbænum við gamla
pósthúsið og byrjað á því að ganga
einn hring á „gamla rúntinum."
Þá verður gengið með Tjörninni,
um Hjjómskálagarð, Vatnsmýri,
Seljamýri og Öskjuhlíð, með Foss-
vogi í Skógræktina og þaðan upp
í Kringlu. Pósthúsið í Kringlunni
verður opnað af þessu tilefni og verða
göngukortin stimpluð þar í lok
göngunnar. Ferðin endar við sýning-
arbás Útivistar í Kringlunni. Hægt
er að bætast í ferðina hvar sem er
á leiðinni. Göngumenn munu fá
frímerkt göngukort sem viðurkenn-
ingu fyrir þátttöku. Gangan tekur
um tvær og hálfa klst. Ekkert þátt-
tökugjald er í ferðinni.
H MEGAS - hættuleg Iiljóni-
sveit og glæpakvendið Stella &
Björk Guðmundsdóttir verða með
tónleika á Púlsinum á sunnudags-
kvöld. Þar verða kynnt 15 ný lög
sem ekki hafa heyrst opinberlega
áður, auk þess sem gamlar og góð-
ar perlur frá Megasi verða leiknar.
■ DR. HARTMUT Mittelstadt
frá háskólanum í Greifswald í
Þýskalandi flytur opinberan fyrir-
lestur í boði heimspekideildar Há-
skóla íslands þriðjudaginn 26. febr-
úar kl. 17.15 í stofu 103 i Lög-
bergi. Fyrirlesturinn nefnist
„Deutsch vor, wáhrend und nach
dem Herbst 1989“ og verður fluttur
á þýsku, en umræður á eftir geta
farið fram bæði á íslensku og þýsku.
Dr. Harmut Mittelstádt er fæddur
árið 1953 og er nú sem stendur að
vinna að rannsóknum hérlendis.
Hann er málvísindamaður og kenn-
ir m.a. íslensku við háskólann í
Greifswald. Fyrirlesturinn er öllum
opinn.
Tónlistarfélagið í Garði verður
með tónleika nk. sunnudag kl. 17
í Sæborgu, húsi verkalýðsfélags-
ins. Þar mun Uwe G. Eschner
gítarleikari flytja verk eftir J.S.
Bach, L. Brouwer, M. Giuliani, A.
Lauro, F. Martin og M.M. Ponce.
Uwe G. Eschner
fæddist í Ham-
borg og ólst upp
í borginni Rein-
bek í nágrenni
Hamborgar.
Hann byijaði að
leika á gítar 11
ár gamall en fór
ekki í kennsl- ,lwc G- E®chllcr
utíma fyrr en að Kitarleikari'
loknu stúdentsprófi. Á þessum
fýrstu árum öðlaðist liann nokkra
reynslu í iðkun tónlistar utan
klassíska sviðsins sem kemur hon-
um ávallt að gagni í eigin kennslu.
Klassíska gítarnámið hófst svo í
tónlistarskólanum „Hamburger
Konservatorium" undir leiðsögn
Peter McAven. Eftir tvö' ár flutti
Uwe suður til Freiborgar og stund-
aði nám við tónlistarháskólann þar.
Kennari hans var prófessor Sonja
Pnmnbauer og árið 1989 útskrifað-
ist hann þaðan með lokapróf í gítar-
leik og kennslu.
Uwe hefur sótt námskeið hjá
ýmsum þekktum gítarsnillingum
okkar tíma, þ. á m. hjá David Russ-
el, Roberto Aussel og Frank Bun-
garten.
Árið 1989 flutti Uwe til íslands
og starfar nú aðallega við kennslu
en hefur haldið þó nokkra tónleika,
m.a. í Listasafni Siguijóns, Nor-
ræna húsinu, í Hallgrímskirkju, á
Selfossi, Akureyri og Austfjörðum.
Uwe er starfandi kennari við
Tónlistarskólann í Garði.
■ DAGUR Harmonikkunnar
verður haldinn í Tónabæ
v/Skaftahlíð sunnudaginn 24.
febrúar kl. 15-17. Stórhljómsveit
Harmonikkufélags Reykjavíkur
spilar ásamt minni hópum og ein-
leikurum. Heiðursgestur dagsins,
Örvar Kristjánsson, leikur nokkur
lög. Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir.
■ OPIÐ HÚS verður í dag, laugar-
daginn 23. febrúar, kl. 14 í Fella-
helli og gefst gestum og gangandi
þá tækifæri til að skoða staðinn og
þær listskreytingar sem komið var upp
í tilefni hátíðarinnar og fá sér kaffi
og með því. Þá mun brúðuleikhúsið
Dúkkukerran flytja leikritið Bangsi
og önnur sýning verður á sjónleiknum
Hans og Gréta. Einnig munu nemend-
ur í Jazzballettskóla Báru og Dans-
skóla Heiðars Ástvaldssonar sýna
dans. Hátíðinni lýkur svo á rokktón-
leikum sem hefjast kl. 18.00 á laugar-
dagskvöld. Þar leika efnilegar ungl-
ingahljómsveitir m.a. Infusioria,
Mortuary, Afródíta, Strigaskór nr.
42, Yo mama, Sýra Blús og Hand-
ryðið, Si svona, Sinadrættir og
Bjarni trúbadúr. Listaútva,rpið Fru-
man sendir út á FM 105,9 á meðan
á hátíðinni stendur.
Brjálæðislega
góðar plötur,
diskar og kass.
PHIL COLLINS Fái£riCÖLÍ«ÍKB
Sé’rious Hits Live
Do You Remember,
In The Air Tonight,
Against All Odds,
One More Night,
Another Day In Paradise,
You Can't Hurry Love,
Groovy Klnd Of Love og flr.
KENNY ROGERS
Very Best Of
Oll lögin voru endurunnin frá grunni,
Ruby, Dont Take Your Love To Town,
Coward Of The County,
Love Is Strange,
You Decorated My Live,
Island In The Stream,
The Gambler o.fl.
MADONNA
Immaculate Collection
Allt ný "REMIX": Like A Virgin,
Borderline, Into The Groove,
Live To Tell, Like A Prayer,-
öll hennar bestu lög
ásamttveim nýjum:
Rescue Me og topplagið
Justify My Love
N.K.O.T.B.
NEW KIDS ON THE BLOCK
No More Games
Step By Step,
Hangin' Tough,
Cover Girl, Right Stuff,
Please Don't Go Girl.
Allt nýjar hörkugóðar "REMIX"
útgáfur, má bjóða þér upp í dans?
CURE
Mixed Up
Close To You,
Lullaby, Lovesong,
Hot, Hot, Hot,
Why Can't I Be You,
The Caterpillar
og fleiri.
Allt breyttar - ferskar útgáfur
Austurstræti 22
Glæsibæ
Laugavegi 24
Strandgötu 37 Htj.
Álfabakka 14 Mjódd
Laugavegi 91
sími 28319
sími33528
sími 18670
sími 53762
sími74848
sími29290
Þar sem músíkin fæst!
U-S-l-K
15%
afsláttur
RIGHTEOUS
BROTHERS
Very Best Of
Unchained Melody,
You've Lost That Loving Feeling,
The White Cliffs Of Dover,
Ebb Tide
og fleiri sígræn lög.
ELTON JOHN
Very Best Of
Crocodile Rock,
Goodbye Yellow Brick Road,
Candle In The Wind,
Lucy In The Sky With Diamonds,
Don't Go Breaking My Heart,
Bennie And The Jets,
Song For A Guy.
LED ZEPPELIN
Remasters
Lögin eru öll endurhljóðblönduð
af Jimmy Page:
Stairway To Heaven,
Whole Lotta Love,
Immigrant Song, D'yer Mak'er,
Good Times Bad Times,
Black Dog og 17 önnur lög.
LADDI
Bestu vinir aðal
Þú verður tannlæknir,
Austurstræti,
Jón spæjó,
I vesturbænum,
James Bond,
og 12 önnur lög
PLACIDO DOMINGO
Greatest Love Songs
Perhaps Love,
Yesterday,
Bésame Mucho,
Autumn Leaves,
Blue Moon,
Maria
Póstkröfusími
hljómplötuverslanir
Grænt númer: 996620
t„„„/
Rauðarárstígur 16 • sími 628316