Morgunblaðið - 23.02.1991, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1991
Ast er...
... að glíma sameiginlega
við vandamálin.
TM R®g. U.S. Pat Off.—all righta raawved
© 1990 Loa Angelos Tim®a Syndicato
Er það heimþrá. - Ég held
ekki. Rafhlaðan er tæmd!
HÖGNI HREKKVISI
Engiiin vandi leystur með stríði
Kæru íslensku stríðsfylgjendur.
Ég skrifa ykkur þetta bréf eftir að
hafa lesið í DV (2. febr.) að sam-
kvæmt skoðanakönnun blaðsins
væru 65% íslensku þjóðarinnar fylgj-
andi stríðinu í Persaflóa. „Mikill
meirihluti landsmanna er þeirrar
skoðunar að Iýðræðissinnar verði að
fórna einhveiju til að knésetja Sadd-
am Hussein" (DV).
Þið eruð sem sagt sömu skoðunar
og meirihluti Bandaríkjamanna og
aðrir Evrópubúar (75-80%), sem telja
að George Bush og stríðsfélagar séu
að beijast fyrir frelsi, réttlæti og
friði í heiminum og menn eins og
Hitler þurfi því að stöðva.
Með því að púsla saman frásögn-
um fjölmiðla bendir lítið til þess.
„Heimurinn vildi frið en Saddam
Hussein stríð“ (George Bush. ABC
News 16. jan.). Hvers vegan skyldi
Hussein hafa haldið að hann kæmist
upp með innrásina í Kúveit? George
Bush vissi vel af landamæradeilu
íraks við Kúveit og einnig af fleiri
hundruð þúsund íröskum hermönn-
um við landamærin stuttu fyrir inn-
rásina. Þann 25. júlí 1990 barst
sendiherra Bandaríkjanna í írak
skrifleg beiðni frá James Baker ut-
anríkisráðherra, undirrituð af George
Bush forseta, um að koma eftirfar-
andi skilaboðum til Saddams Hus-
seins: „Við niunum ekki skipta okkur
af landamæradeilu yðar við Kúveit
og tökum enga afstöðu í þeim mál-
um“ (Seattle Times, 16. 1990).
Forseti Bandaríkjanna, vitandi
þetta og hversu mikil ófreskja Huss-
ein var, sem réðst inn í íran 1980
(þá var hann reyndar ekki kallaður
Hitler enda góður vinur Banda-
ríkjanna), hví skyldi hann hafa sent
Hussein þessi vinsamlegu skilaboð,
en nokkrum dögum síðar (2. ágúst
1990) kallað hann Hitler og unsvifa-
laust sent fjögur hundruð þúsund
manna her á svæðið.
Samkvæmt ummælum fólks í
könnun DV sagði karl á Suðurlandi:
„Saddam Hussein er eins og Hitler.
Slíka menn verður að stöðva, og því
er ég fylgjandi þessum hernaðarað-
gerðum." Væri ekki viturlegra að
stöðva Hitler-framleiðendur eins og
Ronald Reagan, George Bush o. fl.
sem hafa matað þannig illmenni með
vopnum og fjármagni til ofbeldis og
manndrápa í áraraðir? Eða sölu íjóð-
veija á eiturgasi eins og Hitler sjálf-
ur notaði tii útrýmingar á þúsundum
manna?
George Bush er ekki friðarsinni
frekar en Stalín, Hitler eða Hussein.
Hann er forseti landsins, sem hann
segir að heimurinn eigi að taka sér
til fyrirmyndar. Landi frelsis og rétt-
lætis. Þar höfum við hans hugmynd
um frelsi og réttlæti. Fyrir þá sem
ekki vita hafa Bandaríkin hæstu
þjóðartekjur heims. Þrátt fyrir það
deyja þúsundir barna árlega úr nær-
ingarskorti og sjúkdómum sem auð-
veldlega væri hægt að koma í veg
fyrir á meðan aðrir baða sig upp úr
peningum og olíu. Fátæktin á sumum
svæðum Bandaríkjanna (t.d. með-
fram Mississippifljóti) er sambærileg
við mörg þriðjaheims lönd.
„En úr því að ekki var hægt að
semja er sjálfsagt að heija á íraka,“
sagði karl á Austurlandi. Karl á
Austurlandi, hvað veist þú um það?
Hvers vegna neitaði George Bush
Hussein um friðarstefnu? Það átti
að reyna viðskiptabannið í að
minnsta kosti sex mánuði. Því var
það ekki gert? Bannið var talið ár-
angursríkara en búist var við í fyrstu.
Nú (16.-17. febr.) þegar Sovétmenn
eru í meiriháttar friðarumræðum við
íraka, sem gætu leitt til friðsamlegr-
ar lausnar, hvers vegna er þá ákveð-
ið að helja landbardaga innan
skamms sem annars áttu ekki að
byija á næstunni?
Góðu stríðsfylgjendur. Það er eng-
inn vandi leystur með stríðinu við
Persaflóa. Svo lengi sem það eru
skepnur við völd sem fitna af ofbeldi
og morðum í heimfnum verður eng-
inn friður, heldur stríð og aftur stríð
og aftur stríð. Því þannig þrífast
skepnumar best.
Að lokum, karl á Austurlandi og
karl á Suðurlandi. Hvernig væri nú
að mynda eigin skoðanir á málinu í
stað þess að éta upp eftir Bush eins
og þreyttar hermikrákur?
Þórdís Sigurþórsdóttir
Framför
Til Velvakanda.
Ég vil lýsa ánægju minni með
útvarpsstöðina FM 95.7. Ég kemst
alltaf í gott skap við að hlusta á
dagskrá þeirra. Ágúst Héðinsson
fær sérstakar þakkir frá mér fyrir
skemmtilegar og frumlegar spurn-
ingar í spurningakeppninni sem nú
stendur yfir. Einnig fínnst mér
söngakeppnin alveg sérstaklega
skemmtileg. Ég vona bara að þið
haldið áfram á sömu braut. K.
Víkveiji
Alltaf verður Víkverji jafn undr-
andi á því fólki sem leggur í
vana sinn að eyðileggja af skemmd-
arfýsn einni saman. Víða um borg-
ina eru t.d. ruslafötur, sem eru til
þess ætlaðar að hægt sé að fleygja
bréfarusli og öðru smálegu. Á
gönguferðum sínum um Fossvog
hefur Víkveiji komist að því að um
það bil önnur hver fata eða fleiri
eru ónýtar og virðist ekkert vera
geit til að koma upp nýjum fötum
eða laga þær skemmdu. Af þessu
leiðir að rusl liggur víða meðfram
göngustígum til mikillar óprýði.
Víkveiji beinir þeim tilmælum til
borgaryfii-valda að gefast ekki upp
fyrir skemmdarvörgunum og koma
þessu í lag.
skrifar
Góðar götumerkingar auðvelda
okkur mjög að komast um
götur borgarinnar. Hjns vegar er
slíku ekki alls staðar til að dreifa
í borginni; víða eru merkingar svo
takmarkaðar að ókunnugir eiga í
miklu basli með að rata. Kunningi
Víkveija sem nýfluttur er til borgar-
innar kvartar mjög undan þessu og
segir nauðsynlegt að hafa kort ætíð
til taks í bílnum vilji hann bregða
eitthvað út af venjulegri leið til og
frá vinnu sinni. Reyndar má telja
það borgaryfirvöldum til hróss, að
fyrir nokkru voru sett upp myndar-
Jeg götuskilti ofan við helstu gatna-
mót. Þetta var mikið framfaraspor,
en betur má ef duga skal. Skil-
merkilegir götuvísar eiga einnig að
vera í íbúðarhverfum, að ekki sé
talað um götunúmer á húsum.
Merkingar útum land eru víðast
hvar í góðu lagi og auðvelt
að rata eftir skiltum sem við þjóð-
veginn standa. Hins vegar þyrftu
heimamenn á hveijum stað að gera
meira af því að merkja örnefni, sem
ekki komast inn á vegaskilti Vega-
gerðarinnar. Sérstaklega er gaman
að ferðast um þær sveitir, þar sem
heimamenn hafa merkt helstu sögu-
staði. Reykvíkingar gætu reyndar
tekið sér þetta framtak til fyrir-
myndar og látið merkja helstu ör-
nefni í borgarlandinu með sérstök-
um skiltum.
i«i*(l