Morgunblaðið - 30.04.1991, Page 1
64 SIÐUR B
96. tbl. 79, árg.
ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovéskur flugræningi:
Fljúgið til
Reykjavíkur!
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKIR öryggisverðir afvopn-
uðu í gær mann á Domodedovo-
flugvelli í Moskvu en hann hafði
reynt að snúa flugvél í innanlands-
flugi til Reykjavíkur. Maðurinn
er sagður þrítugur og frá borg-
inni Barnaul, sunnan við Novosíb-
írsk í Síberíu.
Ræninginn krafðist þess að bætt
yrði eldsneyti á vélina í Moskvu og
henni flogið til Hamborgar en þaðan
til Reykjavíkur. Er vélin var færð til
á vellinum réðust verðirnir inn í hana
og yfirbuguðu manninn.
Undanfama mánuði hafa flugrán
verið mjög tíð í Sovétríkjunum og
vilja ræningjarnir yfirleitt komast
úr landi.
Japan:
Fjórðungur-
inn drepur
sig á vinnu
Tókíó. The Daily Telegraph.
FJÓRÐUNGUR starfsmanna í
helstu fyrirtækjum Japans er
líklegur til að verða bráð-
kvaddur vegna of mikils
vinnuálags, samkvæmt niður-
stöðum nýrrar könnunar sem
birtar voru í gær.
Starfsmenn fyrirtækjanna
hafa lengi rætt sín á milli um
dauðsföll af völdum of mikillar
vinnu en það eru ekki nema um
tvö ár síðan fjölmiðlar tóku að
gefa þessu vandamáli gaum.
Umræðan hefur leitt til þess að
æ fleiri ekkjur, sem misst hafa
eiginmenn sína af þessum sök-
um, krefjast bóta.
Lögfræðingar hafa veitt fjöl-
skyldum fómarlambanna aðstoð
með símaþjónustu og áætla að
30.000 manns deyi árlega af
völdum of mikils vinnuálags.
Flestir þeirra fá hjartaáfall eða
heilablóðfall eftir mikla yflr-
vinnu í langan tíma og undir
miklu álagi.
• •
Orvilnun ílrak
Reuter
Kúveiskir hermenn skutu viðvörunarskotum upp í
loftið á öryggissvæðinu við landamæri íraks og
Kúveits í gær er uppþot brutust þar út á meðal ir-
askra flóttamanna, sem flykktust í örvæntingu sinni
að rútum er fluttu um 300 íraka til Kúveitborgar.
Þaðan fóru þeir heppnu með flugvél til írans. Á
myndinni situr írösk kona með barn í kjöltu sinni
og grætur sáran eftir að hafa misst af síðustu
rútunni.
Sjá „Bandaríkjamenn ætla ...“ á bls. 26.
Efnahagsóreiðan í Sovétríkjunum:
Borís Jeltsín reynir að
stöðva námaverkföll
Moskvu. Rcuter, Thc Daily Tclegraph.
BORÍS Jeltsín, ieiðtogi Rúss-
lands, hóf í gærkvöldi að ræða
við kolanámamenn í Novokúz-
netsk á Kuzbass-svæðinu í Síb-
eríu með það að markmiði að
bundinn verði endi á tveggja
mánaða verkföll. Á fundi með
sex hundruð verkamönnum
lagði hann áherslu á að þeir
myndu sjálfir taka ákvörðun í
málinu en hann vildi útskýra
stefnu sína. Hann hyggst einnig
ávarpa fund námamanna 1.
maí. Stjórnmálaskýrendur álíta
að Jeltsín taki gífurlega áhættu
með ferð sinni. Takist honum
Náttúruhamfarir í Sovétríkjunum:
Mikið tjón af völdum
landskjálfta í Georgíu
Moskvu. Reuter. ^ ^
ÖFLUGUR landskjálfti, sem mældist 7,0 stig á Richters-kvarða, reið
yfir Kákasus-lýðveldið Georgíu í suðurhluta Sovétríkjanna í gær.
Að minnsta kosti 24 biðu bana og mikið tjón varð á byggingum.
Jarðskjálftinn varð laust eftir
klukkan níu í gærmorgun að ísl.
tíma. Fimm tímum síðar kom annar
skjálfti, sem varð þess valdandi að
rúður brotnuðu í höfuðborg
Georgíu, Tbilisi, og næst stærstu
borg lýðveldisins, Kutaisi. íbúar
gamalla bygginga urðu skelfingu
lostnir og streymdu út á göturnar.
Talsmaður georgíska þingsins
sagði að 24 hið minnsta hefðu beð-
ið bana og mikið tjón hefði orðið á
byggingum. „Náttúruhamfarirnar
urðu í fjallahéruðum og það tekur
langan tíma að komast að því
hversu margir fórust,“ sagði hann.
Embættismaður í borginni Zesta-
foni sagði að átta manns hefðu
beðið bana þar og margir orðið fyr-
ir meiðslum. „Meira en helmingur
bygginga í borginni eyðilagðist eða
skemmdist,“ sagði hann.
Ekki var hægt að ná fjarskipta-
sambandi við afskekkta bæi á
skjálftasvæðinu og þyrlur voru
sendar þangað með hjálpargögn.
Björgunarsveit fór á svæðið frá
nágrannalýðveidinu Armeníu og
önnur var á leiðinni þangað frá
Evrópu.
Yfirmaður Sovésku jarðfræði-
stofnunarinnar í Moskvu sagði að
upptök fyrri skjálftans hefðu verið
um 70 km frá Kutaisi og 30 km
frá Tskhinvali, höfuðstað héraðsins
Suður-Ossetíu. Rúmlega 25.000
manns biðu bana í jarðskjálfta, sem
reið yflr Armeníu í desember 1988
og mældist 6,9 stig á Richter.
að telja námamönnum hughvarf
styrkir hann mjög stöðu sína
en mistakist honum gæti valda-
ferillinn verið á enda.
Aðstoðarmenn Jeltsíns segja að
hann hafi þegar greint fulltrúum
námamanna frá aðalatriðum
þeirra tilslakana sem sæst hafi
verið á er hann samdi við Míkhaíl
Gorbatsjov Sovétforseta fyrir
skömmu. Meðal annars yrðu bein
afskipti kommúnistaflokksins af
málefnum námamanna aflögð og
stjórnvöldum í Rússlandi falin yfir-
stjórn þeirra. Áður hefur komið
fram að Gorbatsjov hét því að
ýmsar óvinsælar verðhækkanir
yrðu felldar úr gildi, fijálsum
kosningum flýtt og aukin réttindi
einstakra lýðvelda tryggð. Á móti
kemur að í yfirlýsingu leiðtoganna
eru verkföll námamanna sögð
„ólíðandi" og rætt um að koma á
„sterkri stjórn“ í vissum atvinnu-
greinum. Þessi hluti samkomu-
lagsins hefur vakið reiði margra
stuðningsmanna Jeltsíns er brigsla
honum um svik.
Helstu samtök andstæðinga
kommúnista, Lýðræðislegt Rúss-
land, ákváðu á sunnudag að Jelts-
ín yrði forsetaframbjóðandi sam-
takanna í Rússlandi 12. júní þótt
hann væri harðlega gagnrýndur
fyrir meinta undanlátssemi gagn-
vart Gorbatsjov. Heimsmeistarinn
í skák, Garríj Kasparov, er einn
Finnland:
Miðflokkur-
inn ljær máls
á EB-aðild
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara
Morgunblaðsins.
MIÐFLOKKURINN í Finnlandi,
flokkur Eskos Ahos forsætisráð-
herra, samþykkti á sunnudag
ályktun, þar sem flokkurinn ljær
í fyrsta skipti máls á aðild Finna
að Evrópubandalaginu (EB).
Miðflokkurinn, sem nýtur eink-
um stuðnings í dreifbýlinu, hefur
til þessa hafnað algjörlega frekari
þátttöku Finna í samstarfi Vestur-
Evrópuríkja. í ályktun flokksins frá
því á sunnudag, aðeins tveimur
dögum frá valdatöku stjórnar Eskos
Ahos, segir hins vegar að Finnar
þurfi að velta fyrir sér kostum og
göllum hugsanlegrar aðildar að EB.
Þó beri fyrst að ljúka samningavið-
ræðum EB og Fríverslunarbanda-
lags Evrópu (EFTA) um evrópskt
efnahagssvæði.
Pertti Paasio, formaður finnskra
jafnaðarmanna, sem eru í stjórnar-
andstöðu, lýsti því hins vegar yfir
á laugardag að Finnar ættu að
sækja um fulla aðild að EB. Paasio
var utanríkisráðherra í stjórninni,
sem fór frá á föstudag, og hefur
ekki áður tekið afstöðu með EB.
Reuter
Frá fundi um 15.000 stuðnings-
manna Borís Jeltsíns, leiðtoga
Rússlands, í Moskvu í gær er
þeir fögnuðu forsetaframboði
hans 12. júní.
af liðsmönnum samtakanna. Hann
telur að rússneski forsetinn hafi
orðið fyrir miklum áhrifum af
kuldalegum móttökum í ferð sinni
til Vestur-Evrópuríkja fyrir
skömmu, e.t.v. hafi hann þess
vegna tekið upp samstarf við Sov-
étleiðtogann. Er Jeltsín heimsótti
þing Evrópubandalagsins var
hann skammaður ótæpilega fyrir
andstöðu sína við Gorbatsjov.
„Vesturlandabúar eru enn of
hrifnir af Gorbatsjov," sagði Kasp-
arov. „Þeir draga enn dám af
svart-hvítum hugsunarhætti kalda
stríðsins og það tekur sinn tíma
að breyta honum.“