Morgunblaðið - 30.04.1991, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRIL 1991
17
Ný ljóðabók eftir
Þórarin Eldjárn
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefur
sent frá sér ljóðabókina Hin há-
fleyga moldvarpa eftir Þórarin
Eidjárn.
í kynningu Forlagsins segir m.a.:
„í þessari nýju bók leitar Þórarinn
Eldjárn eins og oft áður fanga í
hversdagsmyndum og gefur þeim
nýtt og óvænt gildi handan hvers-
dagsins. Ljóð sín yrkir hann að'
þessu sinni á frjálsu formi, yrkir á
persónulegan hátt um líf sitt og
reynslu, og ögrar sjálfum sér og
samtíð sinni á gráglettinn — stund-
um sársaukafullan hátt. Tungumál-
ið er tæki Þórarins til að vekja spurn
eða óvæntar hugrenningar, en um
leið kærasta yrkisefni hans, hvort
sem hugað er að máttleysi þess eða
möguleikum."
Hin háfleyga moldvarpa er 48
bls. Valgarður Gunnarsson listmál-
Þórarinn Eldjárn
ari málaði kápumynd. Prentsmiðjan
Oddi hf. prentaði.
Einleikstónleikar Bryn-
dísar Höllu Gylfadóttur
BRYNDÍS Halla Gylfadóttir
heldur einleikstónleika á vegum
Musica Nova í Bústaðakirkju
miðvikudaginn 1. maí kl. 20.30.
Á efnisskránni eru fjögur íslensk
einleiksverk fyrir selló; Eter eftir
Hauk Tómasson, Dal regno del sil-
enzio (Úr þagnarheimi) eftir Atla
Heimi Sveinsson, Flakk eftir
Hróðmar Inga Sigurbjömsson og
Spuni II eftir Guðmund Hafsteins-
son, en hún frumflutti það verk
þann 25. apríl sl.
Bryndís Halla Gylfadóttir er
fædd árið 1964. Hún stundaði nám
í sellóleik hjá Gunnari Kvaran við
Tónlistarskólann í Reykjavík og
lauk þaðan einleikaraprófi árið
1984. Framhaldsnám stundaði hún
við New England Conservatory í
Boston þar sem kennarar hennar
voru Colin Carr og Laurence Lesser
og lauk hún þaðan mastersprófi
árið 1989. Veturinn 1989-1990
dvaldi Bryndís í Amsterdam og
stundaði nám við Sweelinck Con-
servatorium.
Bryndís hefur komið fram á tón-
leikum á íslandi, í Hollandi, Svíþjóð,
Jón Hilmar Alfreðsson
sið að bíða innlendu þjónustunnar.
Af þessu má ráða að fé vantar
ekki til innlendrar glasafrjóvgunar
og hana má að fullu fjármagna
með greiðslum, a) frá TR sem þó
væru mun lægri en nú renna til
útlanda og b) einstaklinganna
sjálfra, en þær greiðslur yrðu
langtum lægri en nemur útlögðum
ferðakostnaði nú. Með þessu móti
yrði snurðulaus rekstur best
tryggður.
En er það ekki ranglátt að krefja
Bryndís Halla Gylfadóttir, selló-
leikari.
Kanada og Bandaríkjunum og var
einleikari með Sinfóníuhljómsveit
íslands í sellókonserti Schumanns
í desember sl.
Bryndís starfar nú sem fyrsti
sellóleikari við Sinfóníuhljómsveit
íslands.
(Frcttatilkynning)
um einstaklingana greiðslu fyrir
þessa tegund læknishjálpar um-
fram aðrar? Slíkri spurningu er
vandsvarað, en spytja má á móti
hvort það sé réttlætanlegt að sam-
eiginlegur sjúkrasjóður lands-
manna greiði fyrir þessa starfsemi
að fullu, á meðn hann hrekkur
ekki til fyrir brýnustu læknis- og
líknarverkefnum.
Þá má benda á að ófijósemi
skerðir ekki tekjuöflun á sama
hátt og sjúkdómar oft gera, að um
tvo vinnandi einstaklinga er að
ræða sem ómegð íþyngir ekki.
Þess gerast þó dæmi að hjón hafi
ekki efni á þessari meðferð, án
þess að samhliða fari vanhæfi til
að ala önn fyrir bami, en slík til-
felli eru ekki mörg og þar fer vel
á félagslegri velferð, til dæmis með
fullri greiðslu af'hálfu TR.
Hér hefur verið gerð grein fyrir
tillögu til fjármögnunar við rekstur
glasafijóvgunar. Inntak þeirrar til-
lögu er að starfsemin keppi ekki
við hefðbundna sjúkraþjónustu um
naumt skammtaða fjármuni. Til-
gangurinn er að tryggja hnökra-
lausan rekstur og framþróun á
sviði ófijósemislækninga.
í víðari skilningi má líta á þetta
sem lítið skref í þeirri endurskoðun
sem nú fer fram innan heilbrigðis-
kerfisins og miðar að því að tryggja
aukið fjármagn á komandi árum,
jafnhliða hagræðingu og sparnaði.
Höfundur er læknir á
Landspítalnnum.
"etta er óneitanlega óvenjulegur og nýstárlegur bíll, - APPLAUSE frá Daihatsu.
Hann sameinar ótal kosti sem nútíma bíleigandi krefst:
Undurgóð fjöðrun ásamt sítengdu aldrifi eða framhjóladrifi valda því að hann liggur
einstaklega vel og er því mun öruggari í akstri.
Kraftmikil, sparneytin vél, vökvastýri og ótrúlega mikið rými fyrir farþega
og farangur gera hann ólýsanlega þægilegan, beinlínis skemmtilegan.
En þetta eru bara orð, við getum haldið lengi áfram.
Þú verður einfaldlega að prófa, þar liggur sannleikurinn.
□AIHATSU
APPLAUSE
- prófaðu bara!
|AÐ 100.000 KMj
Applause með framhjóladrifi kostarfrá kr. 929.000 stgr. á götuna.
Applause með sítengdu aldrifi kostar kr. 1.245.000 stgr. á götuna.
FAXAFENI 8 • SÍMI 91 -68 58 70