Morgunblaðið - 30.04.1991, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 30.04.1991, Qupperneq 25
íiaAjgnuÐsto: MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1991 25 Evrðpumarkaöshyggjan Hagsmuníf og vaikost* tsíancía Heimsklúbburinn: EVROPUMARKAÐSHYGGJAN HAGSMUNIR OG VALKOSTIR ÍSLANDS Eftir dr. Hannes Jónsson, fv. sendiherra Kynnið ykkur allar hliðar Evrópumarkaðsmálanna í traustu, óháðu og að- gengilegu heimildarriti. Höfundur gerir sannsýna heildarúttekt á hagsmunum Islands í gömlu Evrópu 18 nýlenduríkja og í stærri heimi 170 ríkja. Yfirgrips- mikið efni sett fram á lipru máli og í myndum, myndritum, teikningum og töflum svo lesandi geti sjálfur sannreynt hvort gróði eða tap, sjálfstæði eða fullveldisafsal fylgi aðild að Efnahagssvæði Evrópu og EB. Ómissandi inn- legg í Evrópumarkaðsumræðuna. 118 bls. kilja. Fæst hjá flestum bóksölum og útgefanda. Verð kr. 1.000,- Pöntunarsími (91)75352. I BÓKASAFN FÉLAGSMÁLASTOFNUNARINNAR Pósthólf 9168 - 109 Revkiavik - Slmi 7535? Stjórn NEMA, talið frá vinstri: Bárður Tryggvason, Inga Sólnes, formaður, Guðmundur Arnaldsson, Ólöf Pálsdóttir, ritari, Aðalsteinn Steinþórsson, gjaldkeri, Bergþóra Einarsdóttir og Kristjana Guð- mundsdóttir. Á myndina vantar Helga Hjálmsson og Kristínu Steins- dóttur. Vorfagnaður NEMA HINN árlegi vorfagnaður Nem- maður og skáld (stúdent ’81) og endasambands Menntaskólans á Steinunn Jóhannesdóttir leikkona Akureyri verður haldinn á Hótel og rithöfundur (stúdent ’67). Reyn- Borg föstudaginn 3. maí kl. 19. ir Jónasson tónlistarmaður (stúdent ’53) stjórnar fjöldasöng og hljóm- Ræðumenn kvöidsins verða Sig- sveit Ingimars Eydals leikur fyrir mundur Ernir Rúnarsson frétta- dansi. Erindi um S-Afríku INGÓLFUR Guðbrandsson ræðir um Afríku, kynnir heimsreisu þangað í nóvember og sýnir myndir á kynningu Heimsklúbbs- ins á Hótel Sögu á morgun, mið- vikudag. í frétt frá Heimsklúbbnum segir, að sökum fjölbreytni sinnar og feg- urðar sé Suður-Afríka oft kynnt með orðunum „Heill heimur í einu landi“. Verðlag þar sé einstaklega lágt og því sé spáð að landið verði í framtíðinni eitt helsta ferða- mannaland heims. Fyrst og fremst sé það óskaland náttúruskoðandans og ljósmyndarans, en þar séu líka spennandi borgir og fagrar bað- strendur, auk þess sem það sé gós- enland sælkera. Kynning Ingólfs Guðbrandssonar á Suður-Afríuku hefst klukkan 16 á morgun í Ársal Hótel Sögu og er aðgangur ókev.pis. (Ur fréttatilkynningu) Fyrirlestur um kennslufræði PRÓFESSOR Erik Wallin heldur fyrirlestur við Kennaraháskóla Islands í stofu B-201 fimmtudag- inn 2. maí kl. 16.00. Heiti fyrir- lestrarins er: Kennslufræði - Hvorki fugl né fiskur? Þáttur kennslufræði í kennaramenntun og skólastarfi. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Erik Wallin dvelur hér á tandi dagana 1.-8. maí. Hann er prófessor við Uppsalaháskóla í Svíþjóð og staddur hér til að skoða framhalds- skóla. Hann hefur mikla reynslu af skólamálaumræðu og þróun skóla- mála síðustu áratugi í heimalandi sínu. Auk þess hefur hann stjórnað mörgum rannsóknarverkefnum er tengjast ólíkum sviðum skólastarfs. (Úr fréttatílkynuingii) Sýningum á Pétri Gaut fer fækkandi SÝNINGUM Þjóðleikhússins á Pétri Gaut fer nú fækkandi. Fjór- ar sýningar eru eftir og verða þær 2., 4., 10. og 14. maí. í fréttatil- kynningu frá Þjóðleikhúsinu kem- ur fram, að lofsamlegum orðurn hafi verið farið um sýninguna í norskum og sænskum blöðum. í fréttatilkynningunni er vitnað í dóma hinna erlendu blaða og er þar sérstaklega fjallað um frammistöðu Arnars Jónssonar í hlutverki Péturs Gauts, Þórhildar Þorleifsdóttur, leik- stjóra og Sigurjóns Jóhannssonar, höfundar leikmyndar. Einnig er vikið að tónlist Hjálmars H. Ragnarsson- ar, sem sögð er einföld, en fögur og frumleg. Mikill fjöldi viðstaddur opnun sýningar á verkum Yoko Ono Á föstudagskvöldið hitti Yoko Ono nokkra íslenska listamenn á Kjarvalsstöðum og fékk þá fjóra þeirra til að teikna eftir skugga sínum á vegg. Hér er það Harpa Björnsdóttir sem stýrir pennan- um. Davíð Oddsson borgarsljóri hélt Yoko Ono og fylgdarmönnum hennar hóf á laugardagskvöldið. Þá var fylgst með rokksýningu á Hótel íslandi. Á myndinni sést Yoko silja milli borgarstjórahjón- anna, Davíðs og Ástríðar Thorarensen. Um fimmtán hundruð gestir sóttu opnun sýningar á verk- um eftir Yoko Ono og aðra Fluxuslistamenn á Kjarvals- stöðum á laugardaginn, og er það mesti fjöldi sem hefur verið viðstaddur opnun á veg- um Listasafna Reykjavíkur. Alls sóttu um tvö þúsund manns sýninguna þann dag og svipaður fjöldi á sunnudag. Gunnar B. Kvaran forstöðu- maður flutti ávarp við opnun- ina og Hulda Valtýsdóttir formaður menningarmála- nefndar opnaði sýninguna formlega. Þá ávarpaði Yoko Ono einnig gesti stuttlega, bauð þá velkomna og þakkaði fyrir móttökurnar. Sýningarnar hafa vakið mikla athygli, enda um margt skemmtilegar, og voru þeir ófáir gestimir sem lögðu leið sína á Kjarvalsstaði um helgina. Yoko Ono, sem kom til landsins til að vera viðstödd opnun sýningar- innar, hefur haft í mörgu að snúast undanfarna daga. Á föstudagskvöldið hitti hún nokkra listamenn á Kjarvalsstöð- um, við það tækifæri fékk hún fjóra þeirra til að teikna eftir skugga sínum á vegg, og áritaði Morgunblaðið/Einar Falur Við opnun sýningarinnar á Kjarvalsstöðum á laugardag. Frá vinstri eru: Hulda Valtýsdóttir, formað- ur menningarmálanefndar Reykjavíkur, Gunnar B. Kvaran, forstöðumaður Listasafna Reykjavík- ur, Ina Blom og Jon Hendrics, sem önnuðust uppsetningu sýningarinnar, og Yoko Ono. hún teikninguna síðan með við- komandi listamanni. Þá braut hún austurlenskan vasa og bauð gestum að taka sér brot og mæltist til þess að hópurinn hitt- ist aftur að tíu árum liðnum og setti vasann aftur saman. A laugardagskvöldið bauð borgar- stjórinn, Davíð Oddsson, Yoko til samsætis og á sunnudag var farið í skoðunarferð um Suður- iand, og meðal annars gróður- sett tré i Vinaskógi. í gær héldu Yoko og fylgdarlið í Bláa lónið og skoðuðu listasöfn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.