Morgunblaðið - 30.04.1991, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 30.04.1991, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRIL 1991 — (TíT VAKORT Eftirlýst 4507 4500 4543 3700 4543 3700 4548 9000 4548 9000 4929 541 kort nr.: 0005 3774 0000 2678 0005 1246 0021 2540 0031 6002 675 316 kort úr umferð og sendið VISA islandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000,- 3 visa á VISA ISLAND Höfðabakka 9 • 112 Reykjavlk Sfmi 91-671700 VAKORTALISTI Dags.30.04.l99l.NR.33 5414 8300 5414 8300 5414 8300 5414 8300 5414 8300 5414 8301 5414 8301 1192 2209 1486 2105 1564 8107 2013 1107 2675 9125 0314 8218 0342 5103 Ofangreind kort eru vákorl sem takaberúrumferð. VERÐLAUN kr. 5000.- fyrir þann, sem nær korti og sendir sundurklippt til Eurocards. KREDITKORT HF. Ármúla28, 108 Revkiavík, sími 685499 Akranes Islandsbanki í nýtt húsnæði Akranesi. UTIBU Islandsbanka á Akranesi hefur flutt starfsemi sína í nj'Tt og rúmgott húsnæði við Kirkju- braut 40, en það bjó áður við afar þröngar aðstæður, sem liáði orðið yfirgripsmikilli starfsemi útibúsins mjög. í hinum nýju húsakynnum er hinsvegar afar rúmgott og innrétt- ingar og aðkoma öll hin glæsileg- asta. Þar verður hægt að bjóða við- skiptavinum bankans betri aðstöðu til að ræða sín mál og fá ráðgjöf varðandi alla almenna fjármála- þjónustu. Þá hefur verið settur upp hraðbanki við útibúið og er hann sá fyrsti sinnar tegundar á Akra- nesi. í hraðbankanum er hægt að fá almenna þjónustu svo sem að leggja inn og taka út peninga, milli- færa, skoða stöðu reikninga og greiða reikninga og gíróseðla. í tilefni af opnun hins nýja útibús var gestum og gangandi boðið upp á veitingar á opnunardaginn og ýmislegt gert til að gleðja yngstu kynslóðina. Þá notaði yfirstjórn bankans tilefnið til að taka á móti gestum og færa tvennum félaga- samtökum á Akranesi stórgjafir; Björgunarsveitinni Hjálpinni og Tónlistarfélagi Akraness. Það var Viðskipta- oghag- fræðingar funda AÐALFUNDUR Félags við- skipta- og hagfræðinga verður haldinn mánudaginn 6. apríl nk. Fundurinn hefst kl. 16.00 í Þing- holti í Hótel Holti. Á fundinum verða venjuleg aðal- fundarstörf. Þá mun Björn Björns- son, bankastjóri hjá íslandsbanka, halda erindi um banka á 10. ára- tugnum þar sem hann fjallar m.a. um sameiningu rekstrar og breyt- ingar í Islandsbanka. Brynjólfur Bjarnason formaður bankaráðs sem afhenti forsvars- mönnum félaganna gjafirnar. Útibússtjóri bankans á Akranesi er Ingveldur Valdimarsdóttir og ásamt henni starfa fimm manns við útibúið. - J.G. Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson UTIBU — Brynjólfur Bjarnason fyrrv. formaður bankaráðs ís- landsbanka ásamt Heiðari Sveinssyni frá Hjálpinni og Lárusi Sighvats- syni og Jensínu Valdimarsdóttur frá Tónlistarfélaginu, sem veittu höfðinglegum gjöfum frá bankanum móttöku. Fyrirtæki Hagnaður Landsbréfa 8,5 milljónir á fyrsta starfsári HAGNAÐUR Landsbréfa hf. á fyrsta starfsári fyrirtækisins í fyrra varð 8,5 milljónir króna. A árinu var Iagður grunnur að þremur helstu viðskiptasviðum Landsbréfa sem eru verðbréfa- miðlun, rekstur og stjórnun sjóða og fjárvarsla. Heildarvelt- an á árinu nam tæpum 17 millj- örðum króna. Eigið fé í árslok var 57,2 milljónir og heildar- eignir námu alls 236,9 milljón- um króna. Á sínu fyrsta starfsári annaðist Landsbréf hf. ýmis útboð verð- bréfa fyrir Landsbankann og aðra aðila ásamt því að vera viðskipta- vaki húsbréfa á Verðbréfaþingi Islands. Landsbréf hóf skráningu hlutabréfa 14 hlutafélaga á árinu. Þá bauð fyrirtækið upp á alhliða þjónustu í erlendum verðbréfavið- skiptum í kjölfar þess að stjórn- völd heimiluðu þá Islendingum í fyrsta sinn að fjárfesta í slíkum bréfum. í nóvember hófst þannig formlegt samstarf Landsbréfa við breska verðbréfafyrirtækið Barc- lays de Zoete Wedd Ltd. Landsbréf stóð á síðasta ári fyrir stofnun þriggja sjóða sem eru í umsjá fyrirtækisins. Þar er um að ræða Landssjóð hf., íslenska hlutabréfasjóðinn hf. og íslenska lífeyrissjóðinn sem hóf starfsemi sína undir lok ársins. Landssjóður er verðbréfasjóður sem starfar í 7 deildum og voru heildareignir hans um síðustu áramót 615 milljónir krónur. Heildareignir íslenska hlutabréfasjóðsins hf. námu þá 199 milljónum króna. Á aðalfundi Landsbréfa var ákveðið að greiða 10% arð af hlut- afé félagsins. Á síðasta ári var starfsmannaQöldi að meðaltali 14 og fjölgaði á árinu úr 4 í 21. rnMffll.lJllf Orkudrykkurinn Breakthrough fram- leiddur hér á landi FYRIRTÆKIÐ Sól hf. og dóttur- fyrirtæki þess, Islenskt bergvatn hf., hafa í samvinnu við fyrirtæk- ið Hreysti hf. og Weider Intern- ational hafið framleiðslu á orku- drykknum Breakthrough til út- flutnings. Fyrsti farmurinn fór vestur um haf til Kanada og Kaliforníu í Bandaríkjunum í byrjun síðustu viku. Breakthrough er vel þekktur drykkur, sérstaklega meðal íþrótta- fólks, eftir því sem segir í fréttatil- kynningu frá íslensku bergvatni hf. Þegar Weider International ákvað að markaðssetja orkudrykk var leit- að eftir öllum nýjustu upplýsingum sem tengjast bruna líkamans á kol- vetnum. Eftir áralangar rannsóknir var niðurstaðan orkudrykkurinn Breakthrouh sein inniheldur frúkt- ósa o g pólý glúkósa ásamt nauðsyn- legum steinefnum sem tapast með svita. Drykkurinn kom fyrst á markað árið 1987 og hlaut þá viður- kenningu sem besta nýjungin á stórri matvælasýningu í Banda- ríkjunum. Fyrir tveimur árum voru fulltrúar frá Weider á ferð á íslandi og kom þá fyrst til tals að framleiða orku- drykkinn hér á landi. í fréttatil- kynningunni segir að menn hafi hrifist af gæðum íslenska vatnsins, auk þess sem þeir voru ánægðir með framleiðsluaðferðir Sólar hf. og nýstárlegar umbúðir sem fyrir- tækið framleiðir, þ.e. glæru dósirn- ar með állokunum. Breakthrough er flutt út í slíkum dósum líkt og Svala vatnið og Seltzer drykkirnir frá íslensku bergvatni hf. Til að byija með verður Breakthrough markaðssett í Kanada og Kali- forníu, en mikill áhugi er fyrir markaðssetningu í Evrópu. stærðum •tækja, allt frá smáfyrirtækjum með tvo [vuskjái upp í stóra vinnustaði þar sem hundruð notenda eru tengd ===== = samtímis við tölvuna. FYRST OG FREMST SKAFTAHLlÐ 24 REVKJAVlK SlMI 697700 PC-Byrjendanámskeið Notkun tölva byggist á þekkingu og fœrni. Þér býðst nú 60 tíma vandað nám á sérstaklega góðum kjörum. Ritvinnsla Töflureiknir Stýrikerfið Tölvuskóii íslands Sími: 67 14 66, opiö til kl. 22

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.