Morgunblaðið - 30.04.1991, Blaðsíða 35
Bílaleigur
Budgetá
íslandi
verslanir
Framleiðsla
Fyrirtæki
reer JM4A .os huoa<hjw3T3í gtsajszudhom tS
TVIURGUNBlAÐrÐ^MlÐJUDÁUUR 30. 'APRíriððl ~ 35
Morgunblaðið/Sverrir
FUIMDUR —— Fulltrúar nokkurra sænskra hótela og veitingastaða funduðu hér á landi í síðustu viku
um stofnun fyrirtækis um beinan innflutning á íslenskum afurðum.
STOÐTÆKJASMIÐIR — Eigendur Stoðar hf. stoðtækja-
fræðingarnir Guðmundur R. Magnússon, Órn Ólafsson, Sveinn Finn-
bogason og Atli S. Ingvarsson.
ALLT í
MÚRVERKIÐ
B.B.BYGGINGAVÖRUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.
Starfssvið Stoðar hf. er smíði á
gervilimum, spelkum, sjúkraskóm
og hjálpartækjum og sala og þjón-
usta á gervibrjóstum og umbúð-
um.
UfTT-U1 :
Ikea ímik-
illisókná '
Bandaríkja-
markaði
ERLENDAR verslanakeðjur hafa
oft alið með sér þann draum að
hasla sér völl á Bandaríkjainark-
aði en öll sú saga einkennist af
brostnum vonum. Bresku fyrir-
tækin Laura Ashley og Sock Shop
liöfðu ekkert nema fyrirhöfn og
fjárútlát upp úr krafsinu og þann-
ig gekk það líka fyrir sig hjá
Marks & Spencer, sem þó vildi
hafa vaðið fyrir neðan sig og
keypti upp bandaríska verslana-
samsteypu, Brooks Brothers.
Það eru þó til fyrirtæki, sem hafa
náð fótfestu vestra, til dæmis Benet-
ton og Body Shop, og nú virðist sem
eitt enn sé að bætast í hópinn,
sænska húsgagnafyrirtækið Ikea.
Fyrir nokkrum vikum opnaði það sjö-
undu verslunina í Bandaríkjunum, á
Long Island, en á síðasta ári tóku
tvær til starfa, í Kaliforníu og í New
Jersey. Er áætlað, að sú áttunda
verði opnuð skammt frá Los Angeles
á næsta ári.
Forráðamenn Ikea segja, að salan
hafi aukist um 30% á ári í Banda-
ríkjunum og muni líklega ná 250
milljónum dollara í ár. Vaxtarbrodd-
urinn er því hvergi meiri hvað fyrir-
tækið varðar og það þrátt fyrir efna-
hagslegan samdrátt og mjög erfiða
tíma í húsgagnasölu. Sérstaða Ikea
felst hins vegar í lágu verði og góðri
hönnun.
Innréttingar og annað fyrirkomu-
lag og raunar sjálfír verslunarhættir
Ikea eru dálítið út af fyrir sig en
þeim hefur verið tekið mjög vel
vestra. Göran Carstedt, forstjóri Ikea
í Bandaríkjunum, er líka bjartsýnn:
„Það eru 18 milljónir manna í New
York, meira en samanlögð íbúatala
Svíþjóðar, Noregs og Finnlands,“
sagði hann og bætti síðan við bros-
andi, að í Kalifomíu væru þeir 24
milljónir.
Á undanförnum árum hafa orð-
ið umtalsverðar breytingar í smíði
stoðtækja m.a. vegna notkunar
nýrra efna, og jafnframt hefur
notkun hjálpartækja til fatlaðra
og til endurhæfingar aukist. í
fréttatilkynningu frá fyrirtækinu
segir að nýir tímar kalli þannig á
aukna sérhæfingu án þess að per-
sónulega þjónusta skerðist.
Með fjölgun menntaðara stoð-
tækjasmiða mun Stoð geta veitt
viðskiptavinum betri þjónustu,
m.a. vegna meiri sérhæfingar, að
því er forsvarsmenn fyrirtækisins
segja. Vegna breytingarinnar
verði betri nýting á tækjum og
aðstöðu sem aftur leiði til hag-
kvæmari reksturs.
Hjá Stoð hf. starfa nú auk stoð-
tækjafræðinganna ijögurra, einn
sjúkraskósmiður og sex sérmennt-
aðir og þjálfaðir aðstoðarmenn í
gerð stoðtækja, ásamt sölu- og
skrifstofufólki. Fyrirtækið er með
starfsemi sína í Læknamiðstöðinni
Domus Medica og að Trönuhrauni
6, Hafnarfirði, auk móttöku á
Akureyri í Endurhæfingarstöðinni
Bjargi tvisvar í mánuði. Stoð-
tækjafræðingarnir sinna einnig
sjúkra- og endurhæfingarstofnun-
um og meðferðarheimilum.
' '
Aðalfundur
Félags málmiðnaðarfyrirtækja fer fram
laugardaginn 4. maí 1991 á Hótel Sögu -
A sal og hefst kl. 9.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður
fjallað um eftirtalda málaflokka:
- Mannvirkjagerð
- Kælitækni
- Vélar og tæki
- Viðgerðarþjónustu
- Iðnlánasjóð
í hádegisverðarhléi ávarpar Friðrik Sophus-
son fundinn og gerir stutta grein fyrir stefnu
flokks síns í iðnaðarmálum.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta vel og
stundvíslega.
V_________________________________________/
BÍLALEIGAN Gullfoss sf. hefur
undirritað sérleyfissamning við
Budget Rent A Car í Englandi.
Af þessu tilefni opnar Gullfoss
bílaleigu undir merkjum Bud-
get í ,nýju húsnæði að Dalvegi
20 í Kópavogi.
Helsti ávinningur Gullfoss með
samstarfi við Budget er að sögn
Sigurðar Magnússonar eins eigan-
dans, að fyrirtækið fær aðgang
að reynslu og söluneti Budget. ís-
lendingum gefist nú kostur á að
leigja bifreiðir hjá Budget erlendis,
þar sem rúmelga 3600 skrifstofur
séu í 140 löndum. Auk þess segir
hann að samstarfið hafi í för með
sér aukna nýtingu bílanna og
svigrúm til bættrar þjónustu.
Bílaflotinn hafi verið aukinn og
sé nú boðið upp á flestar stærðir
bíla, allt frá litlum fólksbílum upp
í stóra, aflmikla, fjórhjóladrifna
jeppa. Einnig verði til útleigu tjald-
vagnar og farsímar.
Eigendur Gullfoss auk Sigurðar
eru Magnús Sch. Thorsteinsson og
Vilhjálmur Sigurðsson, sem allir
starfa hjá fyrirtækinu. Skrifstofu-
stjóri hefur verið ráðinn Kristbjörn
Torfason.
Sænskir veitingamenn íhuga bein-
an innflutning íslenskra afurða
HÉR Á landi eru nú staddir
fulltrúar nokkurra sænskra
hótela og matsölustaða, sem eru
að kanna möguleika á beinum
innflutningi á íslenskum afurð-
um fyrir fyrirtæki sín. Athygli
þeirra beinist einkum að vörum
eins og Viking-bjór, vatni, villi-
silungi og lambakjöti.
Svíarnir, sem hér eru staddir,
standa að rekstri veitingastaða af
ýmsu tagi og munu þeir hafa í
huga að stofna fyrirtæki um bein-
an innflutning á íslenskum afurð-
Sérfræðingum fjölgar hjá Stoð
STOÐTÆKJASMIÐJAN Stoð
hf. hefur innan sinna raða fjóra
af sex starfandi stoðtækjasmið-
um á landinu eftir að Atli S.
Ingvarsson ig Guðmundur R.
Magnússon gerðust meðeigend-
ur að fyrirtækinu um siðustu
áramót. Stofnendur fyrirtækis-
ins voru stoðtækjafræðingarnir
Sveinn Finnbogason og Örn
Ólafsson, en Stoð hf. er níu ára
gamalt fyrirtæki.
um, ef af verður. Þeir eru hingað
komnir þar sem þeir telja að með
því að bjóða upp á íslenskar afurð-
ir megi mæta óskum gesta um
nýja og fjölbreyttari rétti á mat-
seðlum veitingahúsa sinna. ísland
sé einnig hreint land í hugum neyt-
enda og megi því höfða til þeirra,
sem áhuga hafi á umhverfísvemd,
með því að bjóða upp á íslenskar
afurðir.
Áhugi Svíanna beinist, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins, einkum að því að flytja inn
vörur á borð við ferskan fisk og
nýtt lambakjöt, en ekki frystar
vörur. Ennfremur munu þeir hafa
hug á að kaupa Viking-bjór, sem
þeir telja fyllilega sambærilegan
við þann, sem er á boðstólum í
Svíþjóð.
1. MAÍ KAFFI Í MÍR
Kaffisala verður að venju 1. maí í félagsheimili
MÍR, Vatnsstíg 10. Húsið opnað kl. 14.00. Glæsi-
legt hlaðborð. Hlutavelta. Kvikmyndasýningar.
Lítió inn.
MÍR.