Morgunblaðið - 30.04.1991, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 30.04.1991, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1991 Einar Þórir Stein- Ærsson - Minning Fæddur 10. október 1916 Dáinn 19. apríl 1991 Ó, Drottinn geym mitt megn og mál, minn líkamskraft og veika sál, húsið mitt og heimkynnið, holla vini, og gef mér þá glaða og heila aftur að sjá. (S. Jónsson) Kveðjustundir eru alltaf sárar. Þær eru sárar vegna minninganna. ^ Góðar minningar eru það sem mað- ^ur geymir með sér og kallar fram þegar manni líður vel og þegar eitt- hvað bjátar á. Með afa átti ég mik- ið af góðum minningum sem oft komu okkur til að brosa en í dag valda þær sorg og söknuði. Einar afi verður lagður til hinstu hvílu í dag. Það er sárt að sjá eftir jafn góðum og örlátum manni og hann var. Það sem sefar þó sorgina er að vita að hann er nú hjá góðu fólki, laus við allar þjáningar. Afi var mikill maður, hann umvafði mig ástúð sinni og umhyggju og hann fegraði lífið. Hann var atorku- maður, fullur af krafti. Þegar ég nú hugsa til baka og rifja upp stund- »-ir okkar saman koma öll þau ótal mörgu ferðalög sem við fórum sam- an fyrst í hugann. Þegar afi var yngri keyrði hann rútu vestur á firði og þangað sótti hugur hans á hveiju vori eftir að hann hætti að hafa akstur að atvinnu sinni. Ferðirnar eftir krækióttum fjallvegum Vest- fjarða með honum voru ófáar. Afi naut þess ekki síður en við börnin að slá upp tjaldinu og koma þar fyrir ljósum og hitunartækjum. Hann átti marga vini og kunningja ^íyrir vestan á ferðum okkar stóð og alls staðar var afa tekið opnum örmum. Ég hélt að afi þekkti alla á Vestfjörðunum og það var montið barn sem sagði frá sumarfríinu sínu með afa, í sveitina þar sem hann þekkti alla. Það var líka gott að fara með afa í beijamó. Litlum börnum finnst ekki gaman að tína ber í fötu, vilja heldur setja þau beint í munninn en þeim finnst líka leiðinlegt að koma tómhent heim og það vissi afi og laumaði að okkur beijum til að bjarga stoltinu. Einar afi var mikil barnagæla. Börnin fundu þetta því þau þurftu ekki nema rétt að líta á hann og voru svo ^i'omin í fangið á honum. Öfundin gerði oft vart við sig ef maður varð ekki fyrstur í kjöltuna hans en það var óþarfí því hjá afa var pláss fyr- ir alla. Eftir að við urðum full stór hópur til að komast í kjöltuna var alltaf gott að geta hjúfrað sig upp að honum og fengið smá stroku niður kinnnina. Það voru fleiri en börnin sem iöðuðust að afa, dýrin þekktu hann líka þegar þau sáu hann og hann var mikiil dýravinur. Einar afi átti sér eitt áhugamál sem tók öllu öðru fram síðustu ár hans þó hann fengi alltof stuttan tíma til að sinna því. Það var hestamenn- skan og hún Toppa sem hann sá ekki sólina fyrir. Afi var rétt að byija að temja hana og sögurnar af þeim viðureignum fengu okkur til að gráta af hlátri. Afi og Toppa voru nefnilega jafn þijósk og oft voru þau ekki alveg sammála um ferðatilhögun en afi fann alltaf skýringu á því hvers vegna Toppa fór ekki alveg að óskum hans. Einar afi hafði óbilandi áhuga á því hvað börnin, barnabörnin og barnabarnabörnin höfðu fyrir stafni. Síðustu daga sína var hann með hugann allan hjá þeim, hvort þau væru ekki byijuð að undirbúa prófín, hvort þau væru búin að fá sumaivinnu og hvernig þeim vegn- aði. Honum sárnaði að geta ekki séð yngstu barnabarnabörnin og fá ekki að fylgjast með þeim stækka og þroskast. Afi fylgdist með okkur öllum þó hópurinn væri orðinn stór og sífellt nýir að bætast við hann. Nú er vorið komið aftur og það er bara tæpt ár síðan við kvöddum Hermann afa í síðasta sinn. Hjarta okkar er þungt af hinni miklu sorg en við vitum að Einar afi er í góðum höndum hjá Hermanni afa sem hef- ur tekið vel á móti vini sínum og saman munu þeir fylgjst með okkur þangað til við hittumst aftur. Við biðjum góðan guð að styrkja Ömmu-EIlu í hennar miklu sorg. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá hug þinn og sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. (Kahlil Gibran) Minningin um góðan mann mun lifa í hjörtum okkar og huga. Hafi Einar afi þökk fyrir allt og allt. Elín, Hermann, Steindór, Adda og Birkir Freyr. Einar Þórir Steindórsson var fæddur í Reykjavík 9. október 1916 sonur hjónanna Guðrúnar Guðna- dóttur frá Keldum í Mosfellssveit og Steindórs Björnssonar frá Gröf í sömu sveit, og var fjórða barn þeirra hjóna af alls níu systkinum. Einar Þórir hét nöfnum móðurafa míns og ömmu og vorum við reynd- ar þrír sem það sama Einars nafn báru, en við Éinar Þórir vorum jafn- framt bræðrasynir og nánir frænd- ur og vinir alla tíð reyndar vaxand- andi vinir eftir því sem árin liðu og áramunur okkar svo sem hvarf í tímans rás. Við leiðarlok er margs að minn- ast og minningabrotin lengri og skemmri hrannast upp. Mörg hver og enda flest frá sameiginlegum ánægju- og gleðistundum en önnur frá þeim augnablikum þegar alvara lífsins og sorgir sameiginlegs sökn- uðar kvaddi dyra. í hvoru tveggja tilfella var gott að þekkja nafna eiga hann að og vera samvistum við hann, því að hann var bæði hjartahlýr vinur og gleðinnar mað- ur. Hann var á ferð sl. sumar norður Strandir með konu sinni á leið til æskustöðva hennar. Þegar beygt var fyrir einn múlann og niður hall- ann með næsta firði kom stór olíu- flutningabíll á móti og það sem verra og óvæntar var að skyndilega var skarð langt inn í veginn ómerkt og djúpt og ekkert rúm til að mæt- ast. Við þessar kringumstæður án umhugsunarfrests kalla fýrstu venjulegu viðbrögðin á að stöðva strax og reyna að sveigja niður í hallann, en nafni minn brást öðru- vísi við því að á sekúndubroti ákveð- ur hann að renna bíl sínum utan í stóra bílinn og hægja ferðina um leið svo mikið sem framast mátti. Þetta tókst furðu vel og án hætt- ulegra áfalla en eftir á mátti sjá að allt annað hefði næsta örugglega kostað þau hjónin lífið eða alvarlega slösun auk eyðileggingar farartæk- is þeirra. Ökkur sem þekktum feril nafna míns sem Iangferðabílstjóra í ára- raðir kom þetta ekki á óvart, honum hafði sjaldan hlekkst á en oft þurft á verulegu snarræði og kjarki að halda við stundum býsna erfiðar aðstæður á oft erfiðum ferðum og við langan vinnudag. Við urðum heldur ekkert hissa meðreiðarsveinar hans í útreiðatúr- um síðustu ára sem vissum hvert átak það var eftir sjúkdómsáfall fyrir allmörgum árum að byija hest- amennsku á ný og sáum gömlu srierpuna sýna sig með óbuguðum kjarki og yfirvegun við ásetu gammviljugra hesta og við tamn- ingar lítt taminna. Við minnumst líka lengri og skemmri reiðtúra og ferða á ýmsum tímum við margvíslegar aðstæður og uppákomur, þar fór víllaus ferða- félagi glaðbeittur og bjartsýnn, áræðinn en þó varkár og umhyggju- samur um ferðafélagana sérstak- lega þá sem yngir voru og óreynd- ari. Réttra níu ára varð nafni minn fyrir þeirri sorg að missa móður sína, sem hann ekki aðeins iinni mjög heldur og líktist mjög að út- liti og geðslagi eftir því sem fólk henni vel kunnugt hefur sagt mér og sjá má af myndum. Næstu árin var hann mikið á vegum föðursystkina sinna mest hjá Helgu föðursystur sinni og manni hennar Hreiðari á Engi og í Þormóðsdal í Mosfellssveit og leit enda alltaf á þau sem aðra foreldra sína. Einnig hjá föðurbróður sínum, föður mínum og voru enda með þeim öllum Helgu og Hreiðari og foreldrum mínum annarsvegar og Einari hinsvegar miklir kærleikar alla tíð og nutum við þess óspart yngri frændsystkin hans af báðum bæjum. Sama má reyndar segja um marga frændur hans því að nafni var bæði vel að sér um ættfræði og sérstaklega frændrækinn. En Einar fór snemma að vinna fyrir sér og stóð síðan á eigin fótum fórst vel enda kom fljótt í ljós hve hann var góður verkmaður, hand- laginn og einstaklega nostursamur og nettur um allan frágang á vinnu- Laredo* M/T Laredo* LTL M+S*PLUS Steeler* Ralley*GTS UNIROYAL Hjólbarðar fyrir þá sem gera kröfur — Einstök mýkt í akstri. - Hljóðlátir. - Ótrúleg ending. — Frábært grip við allar aástæSur. NYTT! Frábær vöru- og sendibíladekk í flestum stærðum SÖLUAÐILAR: GUMMIVINNUSTOFAN HF. og umboðsaðilar um allt land RETTARHALSI 2 SKIPHOLTI 35 stað og við hvert verkefni. Lengst af hefur hann stundað bifreiðaakstur, fólks- og vörubif- reiða en þó lengst langferðabifreiða en jafnframt unnið við bifvélavið- gerðir á vetrum og eingöngu við viðgerðirnar síðstu árin en réttinda bifvélavirkja aflaði hann sér á full- orðinsárum. Nafni minn var á hæð réttur meðalmaður sinnar kynslóðar, lið- lega vaxinn og mjög vel að manni, svo sem sjá mátti alla tíð, hann var glaðlyndur og góðlyndur þó fastur fyrir og einarður þyrfti á því að halda og óáreitinn að fyrra bragði. Hann kunni vel að meta góða frá- sögn og kunni einnig vel með góða sögu að fara en var óvenjulega frómur maður í orði. Hann var söngmaður góður, og undi sér vel við góða músík og bóklestur. Tvítugur að aldri kvæntist hann Sigrúnu I. Guðnadóttur úr Reykja- vík. Þeirra börn urðu Gunnar Helgi og Guðrún. Þau Sigríður skildu fáum árum síðar. Árið 1944 kvæntist Einar aftur glæsilegri mannkostakonu Elín- borgu Gísladóttur ættaðri úr Dýra- firði. Þeirra börn urðu Sigrún Björk, Þórlaug Erla og Höskuldur Hauk- ur, allt hið vænsta fólk enda var nafni minn stoltur af börnunum sín- um öllum, barnabörnum og barna- barnabörnum og gat enda verið það, og eins og hann fylgdist vel með þeim öllum og hélt við þau góðu sambandi sýndu þau honum sérstaka ræktarsemi sem ég veit að hann mat mikils. Þau Elínborg bjuggu lengi í sam- býli við Steindór föður Einars á Sölvhólsgötu 10 en byggðu síðar íbúð að Álftamýri 56 og bjuggu þar síðan. Þau voru höfðingar heim að sækja og aufúsugestir vina sinna, samhent en þó sjálfstæðir einstakl- ingar bæði tvö. Ég býst ekki við að við frændur hefðum þótt líkir menn, en við átt- um mörg minni saman og minning- ar og enda sama lífsreynsla ungra manna sem við búskap störfuðu fyrir 40-60 árum úr hestamennsku og smalamennsku og við fjárrag og af sendiferðum og verkefnum sem þessu tengdust og fleiru. Okkur leiddist því aldrei saman og við áttum auðvelt með að finna sameiginlegan tón og skemmtan eins þótt sameiginlegar tómstundir snérust um vinnu eða aðra slíka athafnasemi. Nú verða ekki lengur gerðar áætlanir um ferðalög í byggð eða óbyggð, um ný og efnileg hestefni né um viðhald og endurbætur á aðstöðu hestamanna, en kannski verða á síðari vegferð grænar grundir og sprækir klárar, ný verk- efni og önnur lífsfylling. Til þeirra funda er að hlakka. Einar Þór Steindórsson lést á Landkotsspítala 19. apríl sl. eftir all langa og stranga sjúkdómslegu sem kona hans og börn reyndu að gera honum sem bærilegasta af umhyggju og kærleika. Honum fylgja einlægar kveðjur og fyrir- bænir. Við Jóhanna biðjum Elínborgu og öllum ástvinum Einars Þóris Guðs blessunar. Einar Birnir Einar er kominn á leiðarenda. Hann var leystur frá þessum heimi á sjötugasta og fimmta aldursári. Söknuðurinn framkallar minningar líkt og myndir af liðnum atburðum, en ein er þó skýrust: minningin um glaðlegt andlit frænda míns, brún, sindrandi augun og hlýjan, dillandi hlátur. Foreldrar Einars voru Guðrún Guðnadóttir frá Keldum í Mosfells- sveit og Steindór Björnsson sem kenndi sig við Gröf í sömu sveit. Einar var ekki orðinn tíu ára þegar Guðrún féll frá, og upp frá því dvaldi hann oft langdvölum hjá for- eldrum mínum, Helgu, systur Steindórs, og Hreiðari Gottskálks- syni. I raun fannst mér hann líta á þau sem aðra foreldra sína og þann- ig reyndist hann þeim. Samskiptin við Einar og Ellu voru mikil meðan foreldrar mínir lifðu. Þau voru dugleg að koma í heimsókn og boðin og búin að leggja fram hjálparhönd þegar þess var þörf, og þegar hún móðir mín nefndi Einar Þóri leyndi sér ekki að hún þóttist eiga nokkuð í honum. Hann brást heldur ekki. Um það gæti ég nefnt mýmörg dæmi, en eitt er mér kannski efst í minni af því að allt í kringum það var í senn svo trega- fullt og spennandi: það var þegar Einar hjálpaði okkur að flytja er Reykjavíkurborg tók samastað okk- ar eignarnámi, Engi í Mosfellssveit, móðurarfinn hennar mömmu á bökkum Lambhagaár. Einar átti líka ófá sporin og ófá handtökin að hjálpa foreldrum mín- um að koma sér fyrir á nýbýlinu sem þau reistu þá úr landi Lága- fells og nefndu Hulduhóla eftir hól- unum í kring. Þá var ég ungur að árum og lítið lið í mér; samt tók Einar mig undir arminn mörgum árum seinna þar sem við hittumst á mannamóti og kynnti mig fyrir Hóhnfnður M. Jóhanns- dóttir — Minning Fædd 5. maí 1933 Dáin 21. apríl 1991 í lífinu er fátt víst nema dauð- inn. Hann býr með okkur allar stundir. Samt kemur hann sífellt á óvart. Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar sem hafði átt við langvarandi veikindi að stríða, er nú látin. Langt um aldur fram, tæplega fimmtíu og átta ára gömul. Hún var fædd á Skaga, A-Húna- vatnssýslu á bænum Ósi. Foreldrar hennar voru: Jóhann Jósepsson, f. 21.1.1892, d. 29.4.1980, Rebekka Guðmundsdóttir, f. 21.8.1895, d. 30.9.1959, og var hún yngst af níu systkinum. Núlifandi systkini eru Friðgeir, Kristinn, Valdimar og Ragnheiður. Arið 1939 fluttist hún með móð- ur sinni suður til Hafnarfjarðar, þá sex ára gömul. Höfðu þá foreldrar hennar slitið samvistum. Eignaðist hún þá fósturföður sem hét Sigurð- ur M. Sigurðsson, f. 7.12.1894, d. 13.5.1966, sem gekk henni í föður- stað. I Hafnarfirði átti móðir okkar sín uppvaxtarár. Árið 1952 fluttist hún síðan með eiginmanni sínum Sigurði Runólfssyni vestur til Hell- issands og eignuðust þau fimm börn saman, áður átti hún dreng, Sigurberg Gröndal Ragnarsson. Saman áttu þau: Hafdísi Guð- björgu, Sæbjörn, Víking, Runólf Óðinn og Herdísi. Barnabörn henn- ar eru fjögur, og var hún heima- vinnandi húsmóðir á barnmörgu heimili, jafnframt sem hún starfaði við sjávarútveg með eiginmanni sín- um. Þótt mikil vinna og erfiði hafi legið í hennar höndum, þá skorti aldrei móðurástina og umhyggjuna til okkar bamanna. Oft á kvöldin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.