Morgunblaðið - 30.04.1991, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRIL 1991
41
kunningjunum sem uppeldisbróður
sinn.
Einar var tvíkvæntur. Fyrra
hjónabandið stóð stutt og ég veit
fátt um það. En mér finnst minning
mín um Einar hefjst um það leyti
sem Ella, Elínborg Gísladóttir, varð
lífsförunautur hans. Samband
þeirra alla tíð var þannig að varla
var nefnt nafn annars þannig að
nafn hins fylgdi ekki með.
Mér er þannig farið að ég er
fjarska ónýtur að rækja frænd-
semi, móti betri fyrirætlun. Þeim
mun meira þykir mér um vert þeg-
ar frændfólk nennir að rækja
frændsemi við mig. Það gerðu þau
JSinar og Ella. Alltaf var jafn
ánægjulegt þegar þau renndu i hlað
og'gáfu sér tíma til að staldra við
dálitla stund og spjalla, alltaf hlýrra
á eftir. Mér er ánægja að minnast
þess nú að ég skyldi þó drífa mig
til að endurgjalda þetta í ofurlitlu
og heimsækja þau á liðnu hausti,
meðan Einar var enn hress og líkur
sjálfum sér. Þá áttum við hjónin
indæla kvöldstund hjá Ellu og Ein-
ari, og fengum meðal annars að sjá
myndir frá skemmtiferð sumarsins,
sem varð raunar dálítið söguleg.
Þetta var í sjálfu sér táknrænt,
því Einar var alla tíð duglegur að
ferðast og ekki dró Ella úr því. Þau
voru sennilega meðal þeirra fyrstu
hér á landi sem eignuðust tjald-
vagn. Hann notaðu þau alla tíð vel
til lengri og skemmri ferða og höfðu
bæði unun af ferðalögum og úti-
veru. Áður áttu þau um tíma sumar-
bústað í landi Úlfarsfells í Mosfells-
sveit, ekki langt frá Fellsmúla, þar
sem foreldrar Ellu bjuggu um hríð
eftir að þau fórú af heimaslóðum í
Arnarnesi við Dýrafjörð.
Þar að auki varð það hlutskipti
Einars að starfa að ferðamálum,
beint eða óbeint. Þegar ég man
fyrst eftir honum vann hann hjá
bílaverkstæði Ræsis hf. Síðar ók
hann um tíma hjá Guðmundi Jónas-
syni og varð þannig einn af frum-
herjum óbyggðaferða á bílum; Páll
Arason fjallagarpur hefur til að
mynda í bók sinni minnst Einars
sem dugandi öræfabílstjóra og góðs
samferðamanns. Hjá Dala-Brandi
ók Einar lengi og síðar Vestfjarða-
leið; um skeið var hann bflstjóri hjá
Landsímanum. Síðustu starfsárin
vann hann á verkstæði Sveins Eg-
ilssonar hf. í Reykjavík og hætti
raunar ekki fyrr en sjötugur —
hefði sennilega haldið áfram lengur
hefði hann ekki veikst hastarlega
skömmu eftir sjötugsafmælið, þó
hann næði sér furðanlega eftir þau
veikindi.
Einar var einstök barnagæla.
Börn löðuðust að honum og ég man
varla eftir öðrum manni betri eða
þolinmóðari við börn. Sjálfur eign-
aðist hann tvö börn með fyrri konu
sinni en þijú með hinni síðari. Hon-
um var alla tíð mjög umhugað um
börnin sín, og ekki síður barnabörn-
in eftir að þau komu til skjalanna.
Þeirra er nú skarð fyrir skildi, þeg-
ar afí er ekki lengur til. En minning-
in lifir og það er gott að eiga góðar
minningar um ljúfan dreng.
NÚ þegar Einar Þórir er fluttur
síðasta spölinn vill svo til að ég get
ekki fylgt honum nema í huganum.
En þessar línur eiga að flytja þakk-
læti frá mér og mínum fyrir kynni
af góðum dreng, og þá kveðju sem
hvort sem er verður ekki skilað
héðan af nema í huganum. Ellu og
börnunum biðjum við blessunar.
Siggi Hreiðar
Ótal minningar koma upp í huga
minn þegar ég sest niður og reyni
að skrifa nokkur fátækleg orð um
elskulegan tengdaföður sem lést
eftir erfiða baráttu við illvígan sjúk-
dóm þann 19. apríl síðastliðinn.
Það fyrsta sem mér dettur í hug
er brosið hans tengdapabba og hlýj-
an sem geislaði frá honum.
Þegar ég kom inn í hans fjöl-
skyldu tók hann mér strax opnum
örmum og gaf mér það traust sem
að ég þurfti svo mikið á að halda
í kynnum mínum við hið nýja.
Eg minnist hve hann brosti blítt
þegar við sátum andspænis hvort
öðru í kirkjunni á brúðkaupsdaginn
minn og allar þær samverustundir
sem við áttum saman hvort sem
um er að ræða jól, afmæli eða önn-
ur mannamót, alltaf var sama hlýj-
an frá honum til mín og minna.
í okkar síðasta Ijölskylduferða-
lagi sl. sumar hittumst við í Ás-
byrgi, í yndislegu veðri sem var til-
valið til göngutúra.
Hve allt var hljótt við lindina í
botni byrgisins, hve allt var fagurt,
aðeins flugur sem suðuðu og örfáir
fuglar sem sungu. Það var yndis-
legt að hluta á þögnina og hljóð
náttúrunnar. Hvern gat grunað þá
að upphafið að endalokunum var
sennilega hafið, lífsins klukka var
farin að tifa hraðar og hraðar.
Það er ekki langt síðan ég heim-
sótti hann á sjúkrahúsið, þá allt í
einu fannst mér ég vera að upplifa
það aftur þegar faðir minn lést,
fyrir tæpum tveimur árum, úr sama
sjúkdómi. Sama baráttan, sama
þjáningin og sama vonleysið.
Mér er minnisstæð setning sem
hann sagði við mig þegar hann lá
helsjúkur á spítalanum „það hefur
alltaf verið svo gott á milli okkar“.
Það hefur svo sannarlega verið
það, við gátum talað saman.
Hann tengdapabbi var ötull við
að sýna barnabörnunum sínum
hlýju og ástúð og ekki fóru börnin
mín varhluta af því, ég veit að þau
Sigfús, Hlynur og Helga eiga eftir
að sakna afa síns mikið.
Þegar ég hugsa til baka held ég
að tengdafaðir minn hafi haft alla
þá kosti sem góður tengdafaðir
getur haft til að bera, hann var
tryggur, hlutlaus en umfram allt
traustur og vissi ég alltaf af honum
í fjarlægð því hann var alltaf tilbú-
inn að rétta fram hjálparhönd.
Þær voru ekki svo fáar ferðirnar
sem hann fór að sækja litlu dóttur
mína Helgu á leikskólann, meðan
ég var í skóla og frétti ég það að
tengdapabbi hefði verið orðinn ansi
vinsæll hjá hinum börnunum á
eftir að allt var komið í ró og kyrrð
og ljúffengur maturinn mallaði í
pottunum, beið hún við gluggann
eftir að ljósið myndi ijúfa myrkrið
úti á hafinu og bátur þeirra kæmi
í land.
Þau flutti svo suður til Reykjavík-
ur árið 1978 í Asparfell 12. Hún
var skoðanaföst og alltaf tilbúin að
veija þann sem minna mátti sín.
Aldrei kvartaði hún undan hlut-
skipti sínu í lífinu og virtist alltaf
geta miðlað gleði, jafnvel þegar
veikindin höfðu gagntekið hana
alla. Minnug var hún með eindæm-
um og fylgdist vel með öllu, þolin-
mæði hennar og skilningur ein-
kenndu hana, og alltaf var stutt í
glaða og hláturmilda brosið hennar.
Henni fannst gaman að glettast og
gera að gamni sínu. Tryggari og
trúari vin var vart hægt að hugsa
sér, og við vitum að ljós Guðs vernd-
ar sálu hennar, og í okkar sálum
er hún alltaf hjá okkur.
Kallið er kotnið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem)
Sigurður Runólfsson,
börn og barnabörn.
deildinni því það geislaði alltaf af
honum hlýjan, og börn hændust
ósjálfrátt að honum.
Ég er sannfærð um að í veikind-
um sínum saknaði hann þess að
geta ekki sótt hana á leikskólann,
því helsjúkur og þjáður en þó von-
góður sagði hann við hana: „Helga
mín, bráðum getur afi farið að
sækja þig aftur á leikskólann þinn.“
Þegar ég skrifa þessar línur fyll-
ist ég söknuðu og tómleika og
ósjálfrátt kemur þessi setning upp
í huga mér: „Engin veit hvað átt
hefur fyrr en misst hefur.“ Mér er
hugsað til þess hvað við stöndum
öll berskjölduð fyrir dauðanum,
þrátt fyrir öll þau læknavísindi sem
í kringum okkur eru.
Ég veit að börnin mín eru mér
hjartanlega sammála, við munum
öll hugsa um hann sem góðan,
ástríkan tengdaföður og afa sem
öllum vildi vel, en hefur nú fengið
hvíldina eilífu, eða eins og Helga
litla sagði: „Einar afi er farinn til
Guðs, hann er búinn að hitta Ólaf
afa og þeir sitja í stórum stólurn
og þeir eru ánægðir."
Saklaus en falleg hugsun og
eflaust að fleiri hafi þessa ímynd í
huga sér. Að lokum kveð ég elsku-
legan tengdaföður og afa sem við
munum ávallt sakna, minningin um
hann mun lifa.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Sigríður Olafsdóttir
, FEIN
SYNING
Fimmtudag og föstudag, 2. og 3. maí frá kl. 13:00-18:00.
Ýmsar nýjungar kynntar, m.a. hin nýja stórkostlega raf-
aðrar slípivélar.
Komið og kynnistgæðum handverkfæranna
frá FEIN
Kaffi og meðlæti.
NÁKVÆMNI OG ÖRYGGI
RAFMAGNS HANDVERKFÆRI
hlöðuvél og
HÖGGBORAR - LOFTHÖGGSVÉLAR
SKRÚFVÉLAR - TOPPLYKLAVÉLAR
BORVÉLAR fyrir allskonar sérsmíöi.
HLEÐSLUVÉLAR
Skrúfa og bora,
handhægar og öflugar.
Einstök hönnun.
SLÍPIVÉLAR
til slípunar á járni eða stáli,
snúningshraöi 800 til 45000 Vmín.
Margar stæröir og geröir.
JÁRNJARNABORVÉL
meö rafsegulfestingu.
Borstærö upp í 52 mm.
Kjarnaborar í úrvali.
STEINKJARNABORVÉLAR
Sterkar handhægar með eða
án sogfestingu.
Borstandur stillanlegur halli.
Borstærö upp í 250 mm.
Kjarnaborar frá 18-250 mm.
Sölu- og þjónustuaðilar
Geisli - Vestmannaeyjum, Glitnir - Borgarnesi
Póllinn - ísafirði, Snarvirki hf. - Djúpavogi
RAFLAGNIR - TÖLVULAGNIR - MÓTORVINDINGAR - VERZLUN - ÞJÓNUSTA
RAFVER HF=====
SlMI 91-82415-82117 ■ TELEFAX 1-680215 ■ SKEIFAN 3E-F, BOX 8433, 128 REYKJAVlK