Morgunblaðið - 30.04.1991, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRIL 1991
43
Minning:
* __________
Oskar Bergsson
Fæddur 16. október 1910
Dáinn 15. apríl 1991
Þann 30. júní 1933 þegar við,
nýbrautskráðir stúdentar frá
Menntaskólanum í Reykjavík,
gengum niður Skólabrúna með
hvítu kollana, andaði að okkur blæ
af sól og sumri. Það var ljúfsæl
þakkar- og kveðjustund. Ferfalt
húrra. Þakkir fyrir mikið og dijúgt
veganesti til langferðar, sem við
hugðumst eiga fyrir höndum. Og
húsin gömlu við Lækjargötu tóku
undir fagnaðarsönginn, Gaudeamus
igitur juvenes dum sumus. Já, gleðj-
umst meðan ung erum.
Einn í þessum glaðværa hópi
ungmenna var semídúxinn, Óskar
Bergsson. Hann var fæddur í
Reykjavík hinn 16. október 1910.
Voru foreldrar hans þau hjónin
Bergur Bárðarson frá Skógum und-
ir Eyjaijöllum og Guðbjörg Sveins-
dóttir frá Ytri-Sólheimum í Myrdal.
Óskar settist í 4. bekk Mennta-
skólans haustið 1930 að loknu
gagnfræðaprófi um vorið. Þá tengd-
ust vinabönd milli hans og okkar
sambekkinganna, sem héldust óslit-
in ævilangt, þótt samfundum fækk-
aði með dögum og árum. Eftir stúd-
entspróf tók Óskar próf ýforspjails-
vísindum við Háskóla íslands og
lauk þar með glæsilegum námsferli
mikils mannsefnis, sem heims-
kreppan þá átti drýgstan þátt í.
Óskar sinnti margvíslegum störf-
um á lífsleiðinni. Hann var um ára-
bil hjá Sláturfélagi Suðurlands sem
skrifstofumaður, einnig lengi hjá
Ti-yggingastofnun ríkisins og síðar
starfsmaður á Hagstofu Islands.
Hann vann mikið við þýðingar úr
erlendum málum, t.d. fyrir hið
kunna tímarit Úrval.
Óskar var mjög hæfur starfs-
maður hvar sem hann lagði hönd
að, enda góðum gáfum gæddur og
lipur í umgengni allri. Hann hafði
hlýtt viðmót og aðlaðandi auk þess
að vera drengur hinn besti til orðs
og æðis.
Aðal hans var þó sérstæð þekk-
ing á íslenskri tungu og virðing
fyrir henni, og sýndi það sig ljósast
í þelmjúkri meðferð móðurmálsins,
handbragði öllu og áferð á því, sem
hann ritaði fyrr og síðar.
Árið 1936, þann 31. maí, kvænt-
ist Óskar Sigríði Eggertsdóttur,
hinni vænstu konu, sem var honum
ómetanlegur lífsförunautur. Hún
var mikilhæf kona, umhyggjusöm
húsmóðir, eðlishlý og þolinmóð, vel
gefin og fáguð. Þau eignuðust 2
börn, Elsu Hildi, sem gift er Jóni
Björgvinssyni framkvæmdastjóra
og Eggert borgardómara, sem
kvæntur er Rögnu Hall.
Eiginkonu sína, Sigríði, missti
Óskar þann 29. mars 1979, 69 ára,
eftir 43ja ára hjónaband.
Þá dró mikinn dökkva yfir hús
og heimili að Bragagötu 24, þar
sem áður stóð bernsku- og æsku-
heimili Óskars og síðar þeirra hjón-
anna og barna þeirra. Sá skuggi
máðist aldrei út síðar.
Óskar var að eðlisfari fremur
hlédrægur, tilfínningaríkur og við-
kvæmur. Hann hlaut þau örlög að
fara mjög einn í lífi sínu, einkum
hin seinustu ár. Við sem álengdar
stöndum, vitum í raun svo lítið um
vegfarandann, það sem leynist í
djúpi sálar, það sem bærist hið
innra með honum, því að „hjartað
eitt þekkir þjáning sína og jafnvel
í gleði þess getur enginn annar
blandað sér“.
Enn er mér í fersku minni bekkj-
arförin okkar um Snæfellsnes vorið
1932 með Pálma Hannessyni. Ef
til vill enn ljósari í minningunni
fyrir það, að um hana ritaði Öskar
bókarkorn, einskonar dagbók eða
ferðasögu. Lokaáfangann fórum við
með varðskipi frá Arnarstapa til
Reykjavíkur.
Um ferðaiokin segir Óskar: „Nú
nálgumst við Reykjavík óðfluga.
Turnar og þök rísa upp úr móð-
unni, hærra og hærra. Klukkan er
12 á hádegi, hinn 13. júní leggur
skipið að hafnarbakkanum.
Fimmtabekkjarförin 1932 er að
enda komin. Við göngum upp í
skóla áður en við skiljum. Síðstu
sporin í þessari för eru létt sem þau
fyrstu. Enn einu sinni hrópum við
ferfalt húrra. í þetta sinn er það
hvorki gjald fyrir mat né drykk.
Það er gjald okkar til lífs og gleði,
til regns og sólar, til allrar þeirra
afla, sem gera okkur bekkjarförina
um Snæfellsnes ógleytnanlega."
Óskar Bergsson andaðist að
heimili sínu þann 15. þ.m. Nú er
nökkvinn annar og fylgdarliðið ei
hið sama, framandi strönd fyrir
stafni, vafinn sólgliti vonanna í trú
á skaparann, hann sem við eigum
mest að gjalda, hann sem ræður
fyrir sólu og regni, hann sem fagn-
ar hveiju sínu barni, sem að leiðar-
lokum ber að garði hjá honum.
Laus við viðjar heimsins gengur
nú horfinn vinur léttum sporum á
fagnaðarfund til móts við föðurinn,
sem beðið hefur hans í hlaðinu
heima.
Guð veri með honum og ástvinum
hans.
Þakkir og kveðjur frá samstúd-
entunum 15, sem eftir lifa af þeim
39 sem voru árið 1933.
Gríniur Grímsson
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíóum Moggans!
BLOM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.
★ GBC-Pappírstætarar
Þýsk framleiðsla
Ýmsar stærðir og gerðir fáanlegar
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 -105 Reykjavík
Símar624631 / 624699
SUZUKI
SUZUKI UMBOÐIÐ H/F
Skútahrauni 15, S 65-17-25
Núergamaníbaði
i
Barninu líSur vel í babi með Nivea fljótandi baðsápu !
sem er mild og viðheldur náttúrulegum eiginleikum
barnshúðarinnar. Sýrustig pH5. *
NIVEA
J.S. Heigoson, simi 91-685152