Morgunblaðið - 30.04.1991, Side 45

Morgunblaðið - 30.04.1991, Side 45
indum Auðar var mikil, sannur kær- leikur sem Meistarinn boðaði. Auður sagði oft við mig: „Ég bið guð að láta mig fara á undan, án Möllu get ég ekki lifað." Ég veit að Auður hefði viljað þakka ölljj starfsfólkinu á Landspíta- lanum fyrir frábæra umönnun. Ég votta Bent, bróður hennar og allri hans Ijölskyidu, einnig Möllu og öðr- um ættingjum, mína dýpstu samúð. Með Auði Óskarsdóttur er gengin góð og mæt kona sem ég bið Guðs blessunar í fullri vissu þess að hinir dánu eru ekki horfnir að fullu, þeir eru aðeins komnir á undan. Elín Hjálmsdóttir Löng þá sjúkdómsleiðin verður, lífið hvergi vægir þér, þrautir(magnast, þijóta kraftar, þungt og sárt hvert sporið er, honum treystu, hjálpin kemur, hann af raunum sigur ber. Drottinn læknar - Drottinn vakir daga’ og nætur yfir þér. (Sig. Kr, Pétursson) Löngu og hrikalegu dauðastríði er lokið og því lauk með þeim eina hætti, sem öllum er til þekktu, létti við. í nær tvo áratugi hefur Auður Óskarsdóttir háð sitt stríð og aldrei bognaði hún, alltaf barðist hún með þeirri bjartsýni og kjarki sem ein- kenndu þessa frábæru konu. Ekki veit ég nákvæmlega um það hvenær Auður kenndi þessa sjúk- dóms, er að lokum dró hana til dauða, en það hygg ég að hafi verið fyrir um 20 árum. Það voru margir læknar, sem reyndu allt það, er hægt var til þess að ráða bót á meini hennar, en allt án árangurs. Líkams- þrek hennar og þróttur þvarr og um langan tíma gekk hún við tvær hækj- ur og það var henni óskapleg áreynsla að komast heim til sín á þriðju hæð í húsi við Kaplaskjólsveg. Auður þráði heitt að komast í íbúð, sem þægilegri væri hvað aðgang snerti, og þá íbúð fékk hún, en það var þá um seinan. Hún var lögzt sína hinztu legu, en frá sjúkrabeð sínum hafði hún stjórn á öllu, sem hægt var, og hún fékk þó að koma í íbúð- ina, en aðeins sem gestur. Ekki er hægt að skrifa svo um Auði að ei sé minnst á þá stórkost- legu hjálparhellu sem frænka henn- ar, María Sveinsdóttir, var henni allt frá fyrstu tíð. Það er ólýsanlegt hversu mikil stoð og stytta María var Auði. Á hveijum einasta degi í banalegu Auðar fór María til hennar á sjúkrahúsið og sat hjá henni og hún var hjá Auði er öllu lauk. Það get ég talið til eins mesta happs að sl. fjörutíu ár hefur Auður verið einn allra besti heimilisvinur okkar hjóna og helgaðist það af því að hún og kona mín voru skólasystur í Kvennaskólanum í Reykjavík og þeim stöllum var ekki gjarnt að ijúfa þau bönd vináttu og tryggðar, er þær ungar bundust. Saumaklúbbar og afmælisveislur verða mér alltaf minnisstæðar vegna þess glæsibrág- ar er á þeim var og kannski ekki síður þeirrar hjartahlýju er til staðar var. Áð vísu ber að taka það fram, að ég sat ekki til borðs með þeim í saumaklúbbum, heldur kom ég á eftir og til þeses var séð að ég fengi allt það besta sem búið hafði verið til. Reisn sinni og höfðingsskap hélt Auður allt til hinztu stundar. Þegar leið að sextugsafmæli Auðar þann 26. marz si. og hún lá helsjúk á sjúkrahúsi, hvarflaði aldrei neitt ann- að að henni en að halda upp á afmæ- lið og það skyldi gjört af þeim glæsi- brag, sem ætíð einkenndi hana, en þá þvarr henni sá litli máttur er eft- ir var og óminni seig á hana, sem ei hvarf þær vikur er hún átti ólifað- ar og það finnst mér hörmulegt að henni heppnaðist ekki að halda sitt síðasta gestaboð. Auður Helga Óskarsdóttir fæddist 26. marz 1931, dóttir heiðurshjón- anna Guðrúnar Sveinsdóttur og Óskars Þórðarsonar læknis. Þar ólst hún upp í skjóli góðra foreldra, þar var frændgarður mikill og sterkur og samhentur svo sem vera ber. Auður lauk prófi frá Kvennaskól- anum í Reykjavík 1949. Þar var fall- egur og glaður hópur ungra stúlkna, er þá gekk út í sól og vor. Auður er sú þriðja, er af þeim hópi fellur, en þær sem eftir lifa sakna hennar sárt. Auður hóf störf hjá Ríkisútvarpinu ung að árum og þar vann hún meðan kraftar entust. Hún var um tíma auglýsingastjóri Sjónvarpsins og rocr jiíþlv.08 nunAGUianií araAJSMyaaoM MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐ.JUDAGUIL 30: APRÍL1991 gekk þá ríkt eftir að málfar á auglýs- ingum væri þannig að það félli við þjóðtungu okkar. Það leiddi af sjálfu sér að Auður eignaðist marga góða vini hjá Ríkisútvarpinu, því að hún ávann sér hylli allra er henni kynntust. Þetta var mjög eðlilegt, því að hún vakti athygli hvar sem hún kom fyrir feg- urð, glæsilegt útlit og svo var hjarta- hlýjan og góða viðmótið sem geislaði frá henni. Mér verður það ætíð minnisstætt, er við hjónin heimsóttum hana á sjúkrahúsið sl. haust, er Ríkisútvarp- ið átti 60 ára afmælið. Hún Ijómaði af gleði og þakklæti vegna þess að Markús Örn Antonsson, útvarps- stjóri, hafði þá á afmælisdegi út- varpsins, sent henni fagra gjöf og kort sem á var ritað faileg kveðja frá samstarfsfólki. Þar sannaðist að orð skáldkonungs okkar, Einars Benediktssonar, eru sönn: Eitt bros - getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Hún sagði „mikið gleður það mig að það man eftir mér fólkið". Én hver getur gleymt Auði? Eins og ég gat um var Auður einn allra besti heimilisvinur okkar hjón- anna og vinátta hennar náði auðvitað líka til barna okkar, svo og til barna- barna. Við minnumst þess æ með þakklæti, að Auður, þá orðin afar sjúk, kom til okkar upp á þriðju hæð til þess að líta á það hvernig Hildur dóttir okkar og Jónas, maður henn- ar, höfðu komið sér fyrir. Þetta gjörði hún af kærleika miklu meira en mætti, því þá studdist hún við tvær hækjur. Hún fylgdist líka ávallt með af athygli námi og starfi Ólafs, son- ar okkar, og svo þegar dóttir okkar eignaðist börn sín, var það ævinlega það fyrsta sem hún spurði um er við heimsóttum hana hvernig litla fólkið á Hagamelnum hefði það. Þannig var Auður, hún var ávallt fundvís og minnug þess góða. Þegar nú Auður er kvödd þökkum við Erla henni af hjarta alla hennar vináttu og tryggð við okkur, sem aldrei verður metin sem vert er. Á vináttu hennar og okkar bar aldrei skugga, þar verður minningin heið • og tær. Þegar þessu mikla dauðastríði Auðar er lokið, hvarflar hugur að því hve stór og sterk hún var í þraut- um sínum, ávallt hafði hún á reiðum höndum gamanyrði hversu sárþjáð sem hún var. Auður fæddist að vori til, hún var ætíð vorsins barn og nú deyr hún inn í vorið, þegar sól hækkar og náttúr- an færist í skrúða sinn. Veri minning um Auði í raun lofi betri. Halldór Ólafsson Sú fregn barst mér sl. mánudag að æskuvinkona mín, Auður, væri dáin. Að vísu voru þetta ekki óvænt tíðindi því ég hafði heimsótt Auði fyrir örfáum dögum og þá duldist engum að hveiju færi en engu að síður setur mann hljóðan við þessa harmafregn. Hér er látin æskuvin- kona og vinátta hennar svo samofin æskuminningum mínum. Auður Helga Óskarsdóttir var fædd 26. mars 1931, dóttir hjónanna Guðrúnar Sveinsdóttur og Óskars Þórðarsonar, læknis í Reykjavík. Auður ólst upp á einstöku rausnar- og myndarheimili að Öldugötu 17. Óskar, faðir hennar, var sonur síra Þórðar Ólafssonar, prests og Maríu ísaksdóttur að Söndum í Dýrafirði, en Guðrún, móðir Auðar, var ættuð úr Skagafirði, dóttir hjónanna Guð- bjargar Jónsdóttur og Sveins Jónat- anssonar, bónda á Hrauni á Skaga. Var heimilið á Öldugötu 17 oft mjög fjölmennt, systkinin Auður og Bent og margar frænkur Guðrúnar sem áttu þar heimili lengri og styttri tíma. María, Malla, bróðurdóttir Guðrúnar, var ein þeirra. Hún kom á heimili Guðrúnar og Óskars árið 1934 og átti þar heimili síðan. Fyrstu minningar mínar tengjast einmitt Auði en eldri systir mín, Svana, var upphaflega besta vinkona Auðar en ég, litla systir, fékk að vera með og við áttum sannarlega hamingjuríka æskudaga. Við geng- um allar í Landakotsskólann og tún- in, sem þá voru á Landakotshæð- inni, vona leikvöllur okkar. Eitt sem mér gleymist seint var hvað Óskar og Guðrún tóku okkur systrunum vel. Óskar, sem var starfandi barna- læknir, átti bíl á þessum árum en þá var bílaeign ekki eins algeng og seinna varð. Sennilega hafa fáir bílar verið eins vel nýttir. Það voru ófá skipti sem við fengum að sitja í eins og við kölluðum það. Einnig minnist ég ferða í sumarbústað þeirra á Di- granesi sem var nýbyggður þegar hernám Breta hófst hér vorið 1940. En bernskuárin iiðu. Auður og Svana systir mín, gengu í Kvennaskólann en ég í Menntaskólann. Þá skildu leiðir um tíma en seinna endurnýjuð- um við vináttu okkar og hélst það alla tíð. Að námi loknu hóf Auður störf á auglýsingadeild Ríkisútvaips- ins og auglýsingastjóri Sjónvarpsins var hún um árabil. Heimilið á Öldugötu 17 var ein- stakt. Óskar læknir var sérstakur heimilisfaðir og þau hjónin samhent um að skapa gleði og stemmningu við hin ýmsu tækifæri enda var vina- hópurinn stór. Minningar um ánægjustundir flykkjast fram. Jóla- boð hjá Auði þar sem heimilisfólkið og gestir gengu kringum jólatréð og sungu eða farið var í samkvæmis- leiki. Það voru einmitt bestu eiginleikar þeirra hjóna sem Auður tók í arf, glæsileika, gestrisni og reisn. Önnur minning er fyrsta utanlandsferðin. Við fórum þijár saman, Dúna Þor- kels, Auður og ég. Það voru glaðar og hressar stelpur sem upplifðum „útlönd" í þessari ferð. Sigling með Gullfossi til Kaupmannahafnar og síðan ferðin til Amsterdam og París- ar er ógleymanleg. í heimsókn í Kaupmannahöfn og allri ferðinni var Auður hrókur alls fagnaðar eins og henni var vandi. Hafa ævintýri þess- arar ferðar oft verið rifjuð upp á góðum stundum. Fyrstu búskaparár mín bjuggum við hjónin á Ægisgötunni, bernsku- stöðvum mínum, í næsta nágrenni við heimili Auðar. Þá og alla tíð síðan var Auður mikill aufúsugestur á tylli- dögum fjölskyldu minnar. Eftir lát Guðrúnar og Óskars fluttu Auður og Malla, frænka hennar, á Kapla- skjólsveg og þar stofnaði Auður sitt glæsi- og rausnarheimili og verða veislur og saumaklúbbar hennar okk- ur vinkonunum minnisstæðar svo og allar samverustundir okkar. Auður átti 60 ára afmæli 26. mars en þar sem ég var á förum til útlanda lét ég verða af að heim- sækja hana á Landspítalann áður en ég fór og ennþá einu sinni lifði ég reisn hennar þar sem hún sat um- kringd vinum og ættingjum en fár- sjúk. Síðasti fundur okkar Auðar var svo fyrir örfáum dögum en þá var hún á gjörgæslu en Malla frænka hennar dvaldi hjá henni uns yfir lauk. Auður er horfin en minningin um góða vinkonu lifir. Sigrún Magnúsdóttir Með fáeinum orðum langar mig að kveðja kæran vin og vinnufélaga, Auði Óskarsdóttur, sem unnið hefur hjá Ríkisútvarpinu um áratuga skeið. Auður var kornung þegar hún hóf störf og vann hún fyrstu árin á Inn- heimtudeild, en frá stofnun Sjón- varpsins vann hún sem auglýsinga- stjóri þess, þar til að auglýsingadeild- irnar sameinuðust þegar flutt var í Utvarpshúsið við Efstaleiti. Auður var sérstakur persónuleiki, hún hafði mikla reisn og útgeislun og var glæsileg og falleg kona, var vinur vina sinna og gaf mikið af sér til þeirra sem henni þótti vænt um, hún var vinmörg og hennar nánustu börn, börnin hans Bent, bróður henn- ar, áttu þar góða og gjafmilda frænku. Auður hafði ekki gengið heil til skógar sl. 15 ár en reyndi ávallt að stunda vinnu sína og lét lítið á veik- indum sínum bera. Það er sárt til þess að hugsa að Auði skyidi ekki auðnast að fá að dvelja í íbúð sinni, sem hún og Malla frænka ætluðu að eyða ævidögum sínum, en margt fer öðruvísi en við ætlum. Það þykir ekki hár aldur nú á tímum að ná 60 árum, en af þeim var hún starfsmað- ur Ríkisútvarpsins rúm 40 ár. Þegar við sem unnum með henni seinustu árin, fengum andlátsfregn hennar, söfnuðumst við saman í at- hvarfi okkar, kveiktum á kertum og minntumst hennar með hlýhug og virðingu. Ég votta aðstandendum hennar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Auðar Óskars- dóttur. Þorbjörg Guðmundsdóttir Auður Oskarsdóttir, fyrrverandi auglýsingastjóri Sjónvarpsins, verð- ur jarðsungin í dag. Ég kynntist Auði fyrst fyrir fimm árum þegar ég tók við sem auglýsingastjóri sam- eiginlegrar auglýsingadeildar RUV. Þá var Auður að minnka við sig vinnu vegna langvarandi veikinda. Þrátt fyrir erfið veikindi starfaði hún hjá okkur á auglýsingadeild RÚV hluta úr degi allt til síðastliðins sumars. Það var án efa erfitt fyrir hana að þurfa að hætta fullri vinnu á besta aldri, en yfir því kvartaði hún aldr- ei. Hún kom ætíð glöð til vinnu og við hin vissum af kynnum við hana að hamingjan gat haldist þrátt fyrir erfið veikindi. Auður starfaði allan sinn starfsferil hjá Ríkisútvarpinu, alls rúmlega 40 ár. Fyrst starfaði hún á innheimtudeild og var um tíma innheimtustjóri, en þegar Sjónvarpið tók til starfa 1966 var hún fyrsti starfsmaður þess og var henni falið það vandasama hlutverk að stjórna auglýsingadeild Sjónvarpsins. Auður fór til írlands að kynna sér rekstur auglýsingadeildar hjá írska sjónvarp- inu og sagði mér oft frá þeirri för, og þar eins og svo víða annars stað- ar urðu samstarfsmenn hennar góðir vinir. Oft komu í heimsókn upp á auglýsingadeild vinkonur sem höfðu unnið undir stjórn Auðar á liðnum árum, og það sama má segja um viðskiptavinina. Margir þeirra hafa sgat mér að ótrúlegt hafi verið hvern- ig hægt var að hafa yfirsýn og taka á móti pöntunum þegar sem mest var að gera fyrir jólin í sjónvarpsaug- lýsingum og engrar nútímatölvu- tækni naut við, og þegar viðskipta- vinum voru send jólakort fór Auður út í búð og keypti jólakort og frímerki fyrir sinn eigin pening. Auði hefði án efa ekki grunað þegar hún hóf störf hjá auglýsingadeild Sjónvarps- ins fyrir 25 árum þvílíkum snjóbolta hún var að rúlla af stað. Er skemmst frá því að segja að innan nokkurra ára var þessi aukabúgrein farin að vera verulegur tekjuhluti Sjónvarps- ins, og þegar við sjáum allan þann hundraða fólks sem vinnur á ein- hvern hátt við sjónvarpsauglýsingar verður okkur Ijóst að hið hljóðláta starf Auðar var ómetanlegt bæði fyrir Sjónvarpið og þróun auglýs- ingaiðnaðar á Islandi. Við samstarfs- fólk á auglýsingadeild RÚV kveðjum í dag góðan vin og sendum ættingj- um hennar innilegustu samúðar- kveðjur. Starfsfólk auglýsingadeild- arRÚV, Helgi S. Helgason. Fleiri greinar um Auði Helgu munu birtast næstu daga ★ Pitney Bowes Frímerkjavélar og stlmpilvélar Vélar til póstpökkunar o. fl. OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33 -105 Reykjavík Símar 624631 / 624699 Kaupmenn, innkaupastjórar SÓL- GLERAUGU Ótrúlegt úrval af dömu-, herra-, unglinga- og barnasólgleraugum. Einnig skíðasólgleraugu. Frábært verð HOLLENSKA VERSLUN ARFÉLAGID Borgartúni 18 Simi 6188 99 Fax 62 63 55 45 SYLVANIA HEILDSÖLUDREIFING Rafkaup ÁRMÚLA 24, RVÍK. S í M I : 6 8 1 5 7 4 STERKIR ÞÆGILEGIR FALLEGIR Útsölustaðir: Fjarðarkaup, Hafnarfirði Kaupstaður Mjódd, Reykiavík Mikligarður v/Sund, Reykjavík Skagaver, Akranesi Borgarsport, Borgarnesi Bjarnabúð, Tálknafirði KEA Vöruhús, Akureyri Skóbúð Húsavíkur, Húsavík Verslunarfél. Austurlands, Egilsstöðum Vöruhús K.Á./,Selfossi Samkaup, Keflavík Útilíf,Glæsibæ, Reykjavík ÖRKIN 1070-11

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.