Morgunblaðið - 30.04.1991, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1991
47
Valgerður Guðmunds-
dóttir - Minning
Fædd 7. september 1906
Dáin 21. apríl 1991
Amma okkar, Valgerður Guð-
mundsdóttir, er látin. Hún lést í
Borgarspítalanum eftir erfið veik-
indi síðustu mánuðina.
Amma Vala, eins og við bræðurn-
ir kölluðum hana, fæddist í Reykja-
vík 7. september 1906. Hún var
elsta barn hjónanna Kristínar Þórð-
ardóttur, ættaðri af Hvalfjarð-
arströnd Og Guðmundar Sæmunds-
sonar úr Kjósinni. Alls urðu systkin-
in fimm og er nú aðeins yngsta
systirin á lífi.
Góð efni í upphafi entust ekki
fjölskyldunni, og var oft þröngt í
búi í uppvextinum, en samheldni
systkinanna og gott heilsufar skap-
aði hamingjuríka æsku. Föst skóla-
ganga ömmu náði litlu lengra en
til barnaskólans, en af áhuga reyndi
hún þó að bæta meiru við. Hún var
mjög handlagin og náði góðum tök-
um á handavinnu af margvíslegu
tagi.
Ýmis störf stundaði hún á yngri
árum, en húsmóðurstörfin urðu að-
alævistarfið eftir að amma giftist
afa, Kristni Valdimarssyni, 12. maí
1928. Hjónaband þeirra var ein-
staklega farsælt og samheldnin
mikil. Vitnaði hún oft til afa við
okkur bræðurna, en hann lést fyrir
nær aldarfjórðungi. Lengst af
bjuggu þau á Ásvallagötunni, en
tvo mánuði vantaði upp á að afi
gæti flutt á Reynimelinn, þar sem
þau reistu hús ásamt einkasyni sín-
um og föður okkar.
í þessu húsi, þar sem amma bjó
á neðri hæðinni, ólumst við bræð-
urnir upp. Hún var vakin og sofin
yfír velferð okkar og passaði okkur
þegar á þurfti að halda. Sérstaklega
Fæddur 28. mars 1891
Dáinn 23. apríl 1991
Óvíða finnst á íslandi fjölskrúð-
ugri og fegurri staður en Þingvalla-
sveit — og er vatnið sjálft ekki sísta
djásnið. Á þessum árstíma, þegar
vetur konungur er á förum og vor-
blíðan að færast yfir, er fallegt um
að litast á Ölfusvatni í Grafningi.
Þannig var það eflaust einnig fyrir
réttum 100 árum, þegar Sæmundur
Gíslason, föðurbróðir okkar, leit þar
fyrst dagsins ljós.
Sæmundur fæddist 28. mars
1891. Foreldrar hans voru Gísli
Þórðarson og Guðlaug Þorsteins-
dóttir, sem þá bjuggu á Ölfusvatni.
Gísli var soniir hjónanna Þórðar
Gíslasonar og Sigríðar Gísladóttur,
er bjuggu á Úlfljótsvatni. Guðlaug
var dóttir hjónanna Þorsteins Þor-
steinssonar í Tungu og Sigríðar
Þorgilsdóttir. Albróðir Sæmundar
var Guðmundur, kennari og síðar
skólastjóri, fæddur á Ölfusvatni
árið 1900. Hálfbróðir þeirra, sam-
feðra, var Þórður, fæddur árið
1877.
Sæmundur stundaði búskap og
almenn sveitastörf fram til ársins
1944, er hann flutti til Hafnarfjarð-
ar ásamt móður sinni og bjó hann
þar alla tíð síðan, lengst af við störf
hjá Rafveitu Hafnarfjarðar. Sam-
býliskona Sæmundar frá árinu
1952 var Aðalheiður Ólafsdóttir.
Einkenndist sambúð þeirra af gagn-
kvæmri ástúð og umhyggju. Aðal-
heiður dvelst nú á Sólvangi. Hafa
þau Sæmundur notið þar einstak-
lega góðrar aðhlynningar, sem vert
er að þakka.
Þegar Sæmundur hélt upp á 100
ára afmæli sitt á skírdag með vinum
og vandamönnum og starfsfólki
Sólvangs var bjart yfir honum, þar
sem hann sat spariklæddur við
gluggann í sólskininu. Svo til fram
var henni umhugað um að fræða
okkur. Fyrst var það sögu- og vísna-
lestur, en strax og hægt var að ná
einhverjum árangri var bandprjónn-
inn tekinn fram og hófst þá lestrar-
kennslan. Síðar tók við kvæðalær-
dómur og jafnvel vísnagerð, en
einnig var oft spilað á spil eða tek-
ið til við aðra dægrastyttingu. Aldr-
ei skorti þolinmæði eða hvatningu,
svo sem þegar við áttum að fara í
spilatíma. Aldrei vorum við einir í
húsinu, þótt pabbi og mamma væru
í vinnu eða brygðu sér af bæ. Við
nutum þess í ríkum mæli að eiga
ömmu af gamla skólanum og ekki
var að heyra annað en að hún væri
ánægð með sitt hlutskipti.
Amma var jafnlynd, vinaföst og
vinamörg og til hennar komu marg-
ir vinir og ættingjar. Þótt hún væri
hæglát var hún stundum ótrúlega
fljót að kynnast nýju fólki og með-
al vinanna voru sumir, sem höfðu
á árum áður leigt hjá henni á Ás-
vallagötunni, þegar fólk bjó þrengra
og samskiptin voru að því leyti
nánari.
Garðinn sinn ræktaði hún af
sömu natni og vináttuna og vorum
við bræðurnir þar bæði áhorfendur
og þátttakendur. En svo brugðum
við okkur með henni í búðir eða í
strætó niður í bæ. Hversdagsleikinn
getur verið ævintýralegur fyrir
unga drengi.
Amma fylgdist vel með fréttum
og umræðum, en var þó ekki upp-
numin af hraða nútímans. En hún
lét þróunina þó ekki fram hjá sér
fara og tók að ferðast eftir miðja
öldina. Þar á meðal langa ferð með
afa, ferðir með systur sinni, margar
ferðir með pabba og mömmu og
nokkrar með gamla fólkinu á sólar-
strönd.
á síðasta dag hafði hann fótavist.
Langri ævi er nú lokið.
Sæmundur var einstakt prúð-
menni og ljúfmennska einkenndi
framkomu hans. Samt vissum við
að hann var fastur fyrir í skoðun-
um, m.a. á þjóðmálum, og hvikaði
aldrei frá þeim. Hann var fróður
um margt, ekki síst ömefni í sveit
sinni, og íslendingasögur voru hon-
um frá unga aldri hugleiknar.
Sæmundur upplifði margt á
langri ævi. Hann sá þjóð sína sækja
fram frá fátækt til velmegunar.
Sjálfur lagði hann gjörva hönd á
plóginn, en hann vann störf sín í
kyrrþey eins og þúsundir annarra
íslendinga og gerði ekki miklar
kröfur. Saga Sæmundar er hundrað
ára saga íslensku þjóðarinnar. Af
þeirri sögu getum við mikið lært.
Amma fylgdist grannt með bygg-
ingaráformum Samtaka aldraðra
og hugsaði sér að eyða ævikvöldinu
í þjónustuíbúð, þegar heilsan færi
að gefa sig. Því keypti hún sér íbúð
í Bólstaðarhlíð 41, en langaði að
komast aftur í Vesturbæinn og þeg-
ar samtökin reistu stórhýsi við Áfla-
granda 40 flutti hún þangað. Amma
átti þó sinn fasta sess á Reynimeln-
um eftir sem áður.
Á Aflagrandanum bjó hún vel
um sig, en góðu dögunum fækk-
aði. Heilsan tók að bresta. Að vísu
hafði amma orðið fyrirýmsum áföll-
um á lífsleiðinni, en alltaf náð heils-
unni aftur, enda skorti ekki vilja-
styrkinn. En nú var henni brugðið.
í hönd fór erfiður tími. Seinustu jól
voi-u hennar síðustu með okkur en
þá tók spítalavistin við. Þegar við
nú kveðjum ömmu Völu þökkum
við henni innilega alla hjálpina og
ástúðina í okkar garð, sem við höf-
um notið í svo ríkum mæli og biðj-
um henni guðsblessunar.
Kristinn og Stefán Ingi
Við kveðjum elskulegan föður-
bróður og biðjum Guð að blessa
minningu hans.
Guðlaug Edda og Inga Lára
Guðmundsdætur.
+
Útför eiginkonu minnar, móður okkar og ömmu,
KRISTÓLÍNU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Baldursgötu 26,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 2. maí kl. 10.30.
Jarðsett verður í Setbergskirkjugarði sama dag.
Pétur H. Karlsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og jarðarför
RAGNARS RUNÓLFSSONAR,
Bólstað,
Guð þlessi ykkur öll. Eyrarbakka.
Lilja Sigurðardóttir,
Emil Ragnarsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Sæmundur Gísla-
son - Minning
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ERLA ÞORSTEINSDÓTTIR,
Þverholti 2,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar 26. apríl.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 2. maí kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið.
Zóphanías Baldvinsson,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
+
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KJARTAN ÓLAFSSON,
Langholtsvegi 18,
er lést 20. þessa mánaðar, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 2. maí kl. 13.30.
Ágústa Jónsdóttir,
Jón B. Kjartansson,
Jóhann Ó. Kjartansson,
Erla S. Kjartansdóttir, Kristján Þórarinsson,
Brynja Kjartansdóttir,
Oddur Kjartansson
og dótturbörn.
+
Útför
INGU SIGURRÓSAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Efstalandi 4,
sem lést þann 19. apríl, fer fram frá Fossvogskirkju í dag, þriðju-
daginn 30. apríl kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu
er bent á Styrktarfélag vangefinna.
Sverrir Gunnarsson,
Gunnar Gunnarsson,
Svanhildur L. Gunnarsdóttir,
Gunnar H. Gunnarsson,
Inga K. Gunnarsdóttir,
John Henrikson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar og bróðir minn,
SVEINN PÁLSSON
fyrrverandi menntaskólakennari,
andaðist 18. apríl.
Útför hans hefur verið gerð í kyrrþey.
Helena Pálsdóttir,
Páll Sveinsson,
Kári Pétur Sveinsson,
Frans Jósef Sveinsson,
Gunnar Páll Sveinsson,
Karl Ágúst Sveinsson,
Páll Pálsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
GUÐMUNDU EIRNÝ SIGURJÓNSDÓTTUR (GÚNDU),
Gránufélagsgötu 53,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til læknis og starfsfólks sjúkradeildar A, Hjúkr-
unarheimilinu Hlíð.
Þórey Stefánsdóttir,
Rafn Stefánsson,
tengdasynir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns
míns föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GÍSLA ÓLAFSSONAR
bakarameistara.
Sérstakar þakkir færum við Samtökum bakara, Landssambandi
iðnaðarmanna og Iðnaðarmannafélagi Reykjavíkur fyrir að heiðra
minningu hans.
Kristín Einarsdóttir,
Anna Gísladóttir,
Einar Ó. Gíslason, Friðgerður Samúelsdóttir,
Erlingur Gíslason, Brynja Benediktsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.