Morgunblaðið - 30.04.1991, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐJÐ ÞRIÐJUDÁGUR 30. ÁPRÍL 1991
lAukaaðild eða
íkki aukaaðild
Weftir Gunnar Helga
f Kristinsson
ræðnanna um Evrtpeka efnahigp-
Bvæðið. Niðurstaðan er þvl emfold.
Aukaaðfld er tfl, og Islendingar eru
nú að semja um ílflca aðfld.
Deilur um aukaaðild 1961-63
A fynstu érum sjöunda 4^6^-
ins urðu hér A landi heilmiklar deil-
ur um aukaaðiid íalands að Evrtpu-
bandalaginu. " "" ‘
utanrlkisrAöherra 1 - fyrir ályktun
þar aem sagði: „Aukaaðild að EBE
cins og ríkisstjómin sjilf ' *kí™ u
ainni og máinutnmgi hefur skil-
greint, myndi leiða U1 yfirriða út-
lendinga yfir helstu atvinnuvegum
og auðlindum þjóðarinnar. MeðJþvl
yrði sjálfstaði hennar og þjóðerm
stefnt í beinan voða.“
Sennilega hefðu margir sofið rt-
á þeim Uma ef þeir helðu
Gunnar Helgi kristinsson
Aukaaðild lektorsins
Ég renndi nýverið yfir grein
Gunnars Helga Kristinssonar,
stjómmálafræðings og lektors við
HÍ, sem birtist í Morgunblaðinu 11.
apríl og hef ég athugasemdir við-
víkjandi efni hennar.
I stuttri grein sinni tekst lektorn-
um að misstíga sig a.m.k. tvisvar.
í fyrra sinnið, þegar honum verður
tíðrætt um hugtakið „association“.
Það vill hann þýða sem „aukaaðild"
í íslensku og verður þar með gam-
alli þýðingarvillu að bráð og fellur
allur málatilbúningur lektorsins á
þessu athugunarleysi hans.
í seinna sinnið, þegar hann tæp-
ir á þýðingu á nafni „The European
Community“ á íslensku sem „Evr-
ópubandalagið" annars vegar og
sem „Evrópusamfélagið" hins veg-
ar. Þar misstígur lektorinn sig á
ný, því hann mælir vísvitandi gam-
alli þýðingarvillu bót og það á
grundvelli marklítillar röksemdar-
færslu.
1) Lektorinn vill hafa hugtakið
„aukaaðild" fyrir „association“. Það
er rangt hjá honum. Hugtakið
„aukaaðild“ væri réttast þýtt með
„affiliatjon" eða „affiliated memb-
ership“ á ensku og á þýsku með
„Teilmitgliedschaft". Fyrir hugtak-
ið „association“ dugar því ekki hug-
takið „aukaaðild". Lektorinn ætti
því að leggjast undir sinn akadem-
íska feld að nýju og íhuga málið
nánar. Að finna góða þýðingu á
„association“ í þessu tilfelli er ef
til vill ekki létt, en að fara í smiðju
góðra íslenskumanna og snjallra
þýðenda hefur oft hjálpað í máli sem
þessu.
2) Haldlítil eru rök lektorsins á
móti því að taka upp rétta þýðingu
á „The European Community“ sem
er „Evrópusamfélagið" á íslensku.
Því verður ekki móti mælt. Rök
lektorsins eru byggð á misskilinni
tillitssemi við „almenning“. Einna
helst má skilja mótbáru hans á
þann veg að almenningur hafi nóg
á sinni könnu með að átta sig á
öllum þessum hafsjó skammstaf-
anna á stofnunum og því best að
hlífa fólki og ekki leiðrétta hugtaka-
brenglunina sem kemur fram í þýð-
Týndur köttur
Fúsi er svartur eins og hálfs árs
gamall högni. Hann sást síðast við
heimili sitt að Melgerði 31 Reykja-
vík þann 26. mars sl. Hann er
eymamerktur og með ól, sem hugs-
anlega gæti hafa tapast. Mögulegt
er að hann hafi þvælst í önnur
hverfi. Ef einhver hefur orðið hans
var, vinsamlegast hringið í síma
32506.
ingunni á „The European Commun-
ity“ sem „Evrópubandalagið“ á ís-
lensku. Það væri „óráð“ svo notað
sé orð lektorsins, að leiðrétta slíkt.
Er það vegna þess hver villa er
gömul og ráðsett? Fyrir mig er þessi
skoðun lektorsins skrýtin vísindi og
lítt sæmandi kennara og framsækn-
um vísindamanni við æðstu mennt-
astofnun okkar. Hann ætti miklu
fremur að ganga fyrir skjöldu og
mæla fyrir notkun réttara hugtaka
í stað þess að gefa „almenningi“
létt klapp á kollinn. Lektorinn veit
jafnvel og aðrir að „almenningur"
í landinu vill vera rétt upplýstur og
því liggur ábyrgð á herðum t.d.
kennara að stuðla að réttri upplýs-
ingamiðlun. í lok greinar sinnar
klykkir lektorinn út með nokkuð
maddömulegri ábendingu um „laus-
ung“. Ef einhver stundar lausung
í þessu máli þá er það lektorinn
sjálfur þar sem hann mælir rangri
notkun hugtaka bót. Dæmi hver
fyrir sig. Er réttara að viðhalda
rangri þýðingu hugtaka í jafnvið-
kvæmu hagsmunamáli þjóðarinnar
sem samskiptin við Evrópusamfé-
lagið er?
Að lokum: Ég er kennari í raun-
greinum og við raungreinakennarar
leggjum okkur fram við að þýða
og nota íslensk hugtök í stað er-
lendra í kennslunni. Oft er hér um
að ræða erfið hugtök í þýðingu því
nákvæm verða þau að vera. Því
fremur gremst mér „kæruleysi“
lektorsins og athugunarleysi sem
kemur fram í grein hans. Greindar-
leysi fyrirgefst. Kæruleysi í athug-
unum ekki. Svo einfalt er það nú.
Vigdís Hjaltadóttir, raun-
greinakennari við Tækni-
skóla Islands og starfsmaður
á Ferðask. Landi og Sögu.
HEILRÆÐI
Hestar voru lengi aðalfarartækin á íslandi. Nú hefur bíllinn að mestu
tekið við hlutverki þeirra. Hestamenn og ökumenn verða að sýna hveij-
um öðmm tillitssemi. Þeir eru samferðamenn í umferðinni.
1 t Hi
17. leikvika - 27. apríl 1991
Röðin : 121-221-112-11X
xUxX;:-:;::-:-:-
668.029- kr.
12 réttir: 2 raöir komu fram og fær hver: 167.067-
11 réttir: 49 raöir komu fram og fær hver: 3.407-
10 réttir: 564 raöir komu fram og fær hver: 296 -
Röðin kostar aðeins 15 kr.
kr.
kr.
kr.
Námskeið
fyrir sumarið
TIL ÚTLANDA í SUMAR?
Hraönámskeiö í tungumálum í maí fyrir byrjendur og fyrir þá
sem vilja bæta viö eöa dusta rykiö af fyrri kunnáttu. Kennd
veröur danska, enska, franska, gríska, (talska, spænska,
sænska og þýska.
VILTU TAKA MYNDIR?
Helgarnámskeiö (Ijósmyndatöku 10.-12. ma(. Tæknileg
undirstööuatriöi um myndavélar, filmur og fylgihluti.
Einnig myndataka viö misjöfn skilyröi og myndbygging.
Leiðbeinandi: Halldór Valdimarsson.
FERÐASTU Á BÍLNUM?
Á námskeiðinu „Aö gera viö bílinn sinn“ læriröu aö fylgjast
meö bílnum og halda honum viö, skipta um platínur, kerti,
viftureim og bremsuklossa og annast minni viögeröir.
Elías Arnlaugsson kennir í bifvéladeild lönskólans
7., 8. og 11. maí.
NOTARÐU RENDHJÓLK)?
Námskeiö um meöferö og viöhald reiöhjóla veröur haldið (
lok ma(.
VORPREYTA?
„Do-ln sjálfsnudd og slökun" 21 .-30. maí er námskeiö (
japanskri aöferö viö sjálfsnudd sem felst í banki á orkurásir
líkamans. Tilgangurinn er jafnvægi og betri líöan.
Leiðbeinandi: Hildur Karen Jónsdóttir.
ÆTLARÐU AÐ TÍNA GRÖS?
Á námskeiðinu „Villtar jurtir og grasasöfnun" kynnistu
nytjajurtum í náttúrunni og hvernig má nota þaer.
Byrjar 29. maí og lýkur meö grasaferð 8. júní. Leiöbeinandi:
Einar Logi Einarsson.
VANTAR FÖT FYRIR SUMARK)?
Síöasta saumanámskeiöiö á þessu misseri. Fyrir byrjendur
og lengra komna. Hefst 7. ma(. Leiöbeinandi: Ásta Kristín
Siggadóttir.
VILTU TEIKNA OG MÁLA?
Myndlistarnámskeiö meö teikningu og vatnslitun. Harpa
Björnsdóttir kennir og fer út meö hópinn aö sækja fyrirmyndir
þegar veöur leyfir. Hefst 8. maí.
Nánari upplýsingar um námskeiöin, staö, tímasetningu
og verö á skrifstofunni.
1ÓM5TUNDA
SKOLINN
Skólavörðustig 28 Sími 621488